Þá er u.þ.b EINN dagur eftir til að gera ALLT sem maður lofaði síðasta gamlárskvöld að gera árið 2002! Ég á einmitt ALLT eftir! Ég ætlaði t.d. að útvega mér eitt stykki bílpróf á árinu . . þar fór nú það! Ég ætlaði að lesa flóð af bókum á árinu. . .í vaskinn með það! O.s.frv.
-Þessi helgi er búin að vera hin rólegasta.- kannski ágætt-. En við Brynja vorum búnar að bíða. . alveg síðan í byrjun síðasta sumars. . .eftir sem MESTRI HÁLKU á götum borgarinnar, því að þá fyrst fannst okkur auðvitað tilvalið að fara á línuskauta! . .það var um talsverða hálku að ræða á Sæbrautinni um helgina svo við dustuðum rykið af skautunum og rúlluðum meðfram sjónum, -himininn fjólublár og friðsæll sjórinn. Gekk þetta slysalaust fyrir sig.
-Í gær um 4 leytið fór ég með hana Ásrúnu á gæðamyndina “Santa Clause 2”. Í bíósalnum voru fáir aðrir en foreldrar með börnin sín og poppkorn, en allt í einu sé ég klöngra sér í sætin fjóra miðaldra menn, ítalskir sýndist mér. .og ef alvöru mafíur líta út eins mafíurnar í bíómyndunum. . þá var þetta POTTÞÉTT ein slík. .ég bjó mig undir skothríð. –Hvað voru þeir að gera á “Santa Clause 2”, og þar að auki ÁN KRAKKA!!!?? Ég spyr.
-Að öðri leyti var ég næstum étin í vinnunni í dag, á mig hljóp e-ð sem átti að vera “hundur”, en var meira á stærð við hest eða belju. .þetta var allavega e-ð abnormal.
föstudagur, desember 27, 2002
Okkar í milli er ég orðin hálfþreytt á öllum þessum jólaboðum . .hvað varð um þetta með “jólafriðinn”!!!!! ég hef ekki fengið neinn frið síðan í nóvember!!!. .og ég og mitt svefnleysi höldumst enn í hendur . .
-Í gærkvöldi hittumst við nokkur heima hjá Tobbu hérna neðar í götunni. Var boðið upp á mjög einkennilegan heitan jóladrykk, og var það álitamál hvernig hann var á bragðið. .getgátur um innihald þessa gul/appelsínugula drykkjar voru á borð við “Er gulrót í þessu?”, “Er þetta mangóte??”, “Þetta er eins og fljótandi eplakaka!!” og “Þetta bragðast eins og rófa!!” “Ertu viss um að þetta sé ekki mangóte???” . . .og þar fram eftir götunum . .
Þar sem “kerti og spil” eru AÐALtákn jólanna . .kveiktum við á kertum og fórum að spila . . Snilldarspil! Það heitir “Would you rather . .”-og er e.k. spil sem reynir á það hversu vel þú þekkir vini þína . . þú færð e-r kort með spurningum sem þú spyrð e-n af vinum þínum og ert þá að leitast við ákveðið svar sem e-r teningur ákvað . . –spurningarnar voru ekki auðsvaraðar.T.d
Would you rather . .
A) Drown in mayonnaise?
OR
B) Suffocate under a sweaty sumowrestler?
Eða . .
Would you rather . .
A) Have your parents catch you having sex?
OR
B) Catch your parents having sex?
Would you rather. .
A) Have everything you do broadcast on national television?
OR
B) Have everything you think transmitted on national radio?
-Eftir þetta rúlluðum við Solla upp “SÉÐ OG HEYRT”-spilið (sem systir Egils hafði fengið gefið frá Hagkaup í jólagjöf, vegna þess að enginn kaupir þetta spil. . ), en ég veit ekki alveg hvað það segir um okkur Sollu. . .
Síðan var farið niðr´í bæ og skotið rótum inni á Kaffibarnum. Í röðinni hitti ég því miður á e-n vin hans Ara Tómasar sem tilkynnti öllum að ég hafi kveikt í Bifröst í sumar . .það á ekki við rök að styðjast. . . .að hluta til.

Birt af
Drifa
þriðjudagur, desember 24, 2002
Gleðileg jól öllsömul!!
Er núna hálf afslappandi og dauður tími þangað til við göngum til kirkju í fyrsta sinn, til að hlusta á kórinn syngja.
-Jólin á mínu heimili er nánast undantekningalaust alltaf með sama sniði, og alltaf jafngaman! Í gær röltum við Katrín niður Laugaveginn(ÓMISSANDI á Þorláksmessu) og var þar margt um manninn. Sáum við þar fjölda kunningja(m.a.Baltasar!) og var mikil gleði í loftinu.
Dagurinn í dag byrjaði í morgun. Ég fór í vinnuna og var bara töluvert gaman að bera út í dag, allir í svo góðu og jólalegu skapi. Var bara borið út til kl.12 og var þá öllum hleypt heim til sín, eftir að hafa fengið í hendurnar jólagjöf frá Póstinum.-venjan er sú að “jólabörnin”fái konfekt. . .en nú hef ég fengið þau GREINILEGU skilaboð. .að þetta eiga að vera mín síðustu jól hjá Íslandspósti.- mér ásamt Jóhönnu og Sigurrósu, sem hafa fylgt mér þessi 4 ár hjá Póstinum, var gefið PÓST-THERMO, eða KAFFIBRÚSA merktum póstmekinu!! sem allir fastabréfberarnir fengu og líka.- Ég er ansi hrædd um að ég sé OF djúpt sokkin. . .
Þegar heim var komið var pakkað inn gjöfum í flýti og fórum við pabbi í árlega pakkaleiðangurinn okkar út og suður. .og fékk Ásrún að fljóta með. Í bílnum var slammað við jólalög og pökkum dreift. Heim, jólin með fjölskyldunni, æðislegur matur, pakkaflóð! Fékk ég margar skemmtilegar gjafir og þakka þeim sem gáfu kærlega fyrir. Gjöfin sem mér fannst standa uppúr, og nú er ég samt EKKI að gera lítið úr hinum, var frá vinkonu minni henni Ollu.-ég var gráti nær og þakka henni innilega mikið fyrir. Var þetta stór myndarammi með myndum af okkur stelpunum í “saumaklúbbnum” okkar- fyrir þá sem ekki vita þá eru þetta vinkonur úr Laugarnes-og Laugalækjarskóla, þær Brynja, Tobba, Tinna, Olla og Solla. Myndir teknar af okkur við hin ýmsu tækifæri í gegnum árin, sbr. þegar við Brynja sungum saman “Pretty woman” í Karaoke, sem útvarpað var í 50 m radíus, Eldborg og hinar sígildu knús-myndir.
Annars fékk ég eina af fjórum Röddum sem fjölskyldan fékk, Lovestar, kodda, Nirvana-diskinn, bol, tösku, Frestelsernas Berg(Jonas Gardell(sænskur)), Catan landnemarnir-spil og skemmtilegar sólblóma náttbuxur frá Ásrúnu o.fl.
Frábært! Ég vona að allir geta átt gleðileg jól með fjölskyldu sinni og vinum og “djammað svo geðveikt” um áramótin!!!!!

mánudagur, desember 23, 2002
Jólin eru nákvæmlega á morgun. Ég trúi því ekki.-þvílík rigning! Ég held að ég hafi bókstaflega DREKKT öllum pósti ásamt sjálfri mér einhvers staðar á Flókagötunni í vinnunni í dag!
-Í gærkvöldi fór the fam í matarboð til Tuma og co.- það var mjög ánægjulegt og vakti “syngjandi jólasveinn” mömmu hans Tuma mikla athygli og lukku og fylgdumst við með sveiflu hans hátt í hálftíma. Það ríkir ekta jólagleði á því heimili. Maturinn var mjög góður og voru skemmtilegar sögur sagðar. Um tólfleytið fórum við Atli og Tumi á e.k.tennis-samkomu. Á leiðinni keyrðum við framhjá leigubifreið með fullan bíl af fullorðnu, drukknu, fólki sem sendi okkur heldur dónaleg merki og svöruðum við Tumi í sömu mynt. –þvílík kynslóð!
-Eftir stutta dvöl í samkomunni, snerum við aftur heim til Tuma og voru þá hjólin farin að snúast. . fólk hafði drukkið 10 glösum of mikið og var orðið heldur skrautlegt. Annars alveg hreint ágætt boð!
Mamma er þvílíkur heili! Engum nema henni tekst að klína skóáburð á stofuborð! ég held að það verði ekkert grín að ná þessu af!
Partý hjá grams í kvöld og svo er það þokkalega bærinn!

laugardagur, desember 21, 2002
Jahérna hér. Atli bróðir var að klára prófin í dag og er allt gott frá því að segja, Til hamingju!
-Lífið á pósthúsinu Grensásvegi er soldið spes.. Til að mynda fæst varla meiri sápa en nákvæmlega þar og er erfitt að fylgjast með . .það nýjasta er að “Sigga skaftahlíð” HRAUNAÐI GJÖRSAMLEGA yfir Guðgeir sem hefur fram að þessu haft skápapláss við hlið hennar . . .það er frá því að segja að Guðgeir þessi þykir alveg ÓHEMJU LEIÐINLEGUR karakter og klagar í bossinn yfir minnstu smáatriðum, sem honum kemur ekki einu sinni við og er almennt illa liðinn þarna. En Skaftahlíðinni fannst loks nóg komið og flugu orðin alveg miskunnarlaust!! Svo í lok senunnar fór Guðgeir í fýlu og mætti eftir það ekki til vinnu í e-ja daga . .og var aðstaða hans færð í 15 m fjarlægð frá Skaftahlíð.- jæks! Missti ég algjörlega af þessu!
En annars ætluðum við 3 “jólabörn” að sækja pizzu í hádeginu í dag vegna þess að það virðist vera sem fólk laumist alltaf fyrr í kaffitímann og rænir öllu sem pósturinn hefur upp á að bjóða og komum við því alltaf! í kaffi og sjáum ekkert nema mylsnur og dropa af framlaginu. En orðið “pizza” dreifðist um pósthúsið eins og eldur í sinu og sögðust margir vilja slást í hópinn. .pöntuðum við einar 4 pizzur fyrir um sirkabát 10 manns og bara frábært, en svo þegar pizzurnar komu voru allt í einu 4 eða fleiri horfnir og sátum við uppi með massa af pizzu. .bjargaði Benni bekkjarbróðir málinu og borðaði um 8 sneiðar með meiru.-eftir það rulluðum við út í hverfin, en VÁ hvað þetta er ekki í frásögu færandi en er þetta allt sem ég hef að segja um daginn í dag.Þið fyrirgefið.
Lexía dagsins: aldrei treysta Jóhönnu fyrir pizzu og yfir höfuð ekki manneskjum sem ganga undir nöfnunum “Einhver kona í áttunni(108Rvk)” og “Óþekktur Þrista(103Rvk)-strákur”.

föstudagur, desember 20, 2002
Þvílík snilld! Þessir tónleikar hefðu ekki getað verið betri!
En dagurinn í gær byrjaði svo sannarlega ekki á neinum tónleikum…
-Ég fór sem sagt í vinnuna kl.8.00 . .og já ég skal segja ykkur það að ég hef LÍTIÐ sofið undanfarið sökum..þið vitið þarna..prófin! en allavega þá ákvað ég ekki að bæta neitt úr því . .(eins og ég á það til að gera . .gera vont bara enn verra…) og fór ekki frá Katrínu, sem átti AFMÆLI á miðvikudaginn!! TIL HAMINGJU! Fyrr en að ganga 2.00.. nú í vinnunni er allt Á FLOTI!!. . HÆTTIÐ! að senda jólakort!!!(þó ég geri það nú sjálf, þrátt fyrir andmæli frá ónafngreindri manneskju,Unnur). .en já með þetta svefnleysi..ég hélt nú ekki að það gæti orðið svo alvarlegt. .ég fór veik heim úr vinnunni, upp á spítala, fyllt ein 5 GLÖS af blóði . .tékka á stadusnum.
-þrátt fyrir veikindi ætlaði ég á þessa tónleika! Ég hefði farið þótt legið á dánarbeði!!
Ekki ætlaði ég að drekka og afþakkaði hægri vinstri í 3 sekúndur..svo langan tíma tók það Eggert (sem er nýkominn heim, Velkominn heim drengure!) til að fá mig til að opna einn bjór og þiggja 3 mL af kampavíni í boði Tuma. . og sökum blóðtökunnar var það nóg til að Drífa var farin að vagga, að sögn annarra. En við Katrín, Magga og Unnur hittumst heima hjá Álfinum og rúlluðum þaðan með Bjarneyju í átt að höllinni. Ash voru frábærir! Coldplay voru magnaðir! Og tóku þeir svo loks In my place( mitt uppáhald(með þeim) í augnablikinu)eftir að hafa verið klappaðir aftur upp með látum, Magnaðir tónleikar!
-Á leið okkar út úr höllinni, eftir tónleikana, komu e-jir fjölmiðlafulltrúar eða e-ð og afhentu okkur “Aftershow”-passa....og ætluðum við að sleppa því að fara? NEEI!!!!
-Rusluðum við okkur heim til Unnar á meðan Bjarney BRUNAÐI bróður sínum og vini í 220 Hfj., hringdum á leigubíl og héldum í átt að Brennslunni! Var kvöldið fínt og þó nokkrum drykkjum seinna í boði Ians og Rogers ”Head-of-security” voru sumir farnir að finna á sér(og þá er ég ekki að tala um mig, ég hélt mig við vatnið sem ég sótti sjálf á barinn eftir það sem ég taldi vafasamt atferli Ians(en hann er bestasta skinn og var þetta einungis þreytan í mér sem kaus að dæma Ian, þótt aðrir tóku undir og sturtuðu drykkjum í vaskinn, þótt meinlausir)) . . ákváðum við svo loks um 3 leytið að kannski væri snigugt að koma sér heim þar sem flestir áttu að mæta til vinnu nokkrum tímum síðar, og var svefnmálið mitt þar með búið að versna.
-Þetta var nú svei mér kvöldið og verður því seint gleymt.

þriðjudagur, desember 17, 2002
Fínító !. .ég vil ekki tala um prófin meira . .
-en þessar einkunnir. .ég held að þær verða ærlegt spark í rassinn fyrir vormisserið!
Það er tímabært að snúa aftur til “hefðarinnar” sem datt út í 2 ár. . að við Brynja gistum í Kringlunni næstu 2-3 daga eftir einkunnaafhendingu, svo þegar við komumst loks í leitirnar. .þá verða allir búnir að gleyma því að við áttum að fá einkunnaspjald um svipað leyti og við hættum að skila okkur heim . .Hmm… -þetta var allavega “the plan” . .en vitaskuld fór þetta alltaf á sama veg, við héldum til í mollinu í sirkabát 4 tíma.. og ákváðum þá í sameiningu að mæta örlögunum þegjandi . .
Eða. .”ÚBS! það kviknaði óvart í einkunnaspjaldinu mínu á leiðinni heim! Mjög svo sérkennilegt!”
Allavega þá er ég búin að vera mjög dugleg í dag . .MASSAÐI jólakorta-skriftirnar alveg beina línu, hlustaði á jólalagaskammt þessa árs og setti upp seríu!
Á morgun tekur svo gamli góði pósturinn við . .þá fyrst kemst maður í jólaskapið! Vonandi kemur ELKO-blaðið á morgun! Ef það er ekki bara “það yfirnáttúrulega” sem ásækir saklausan bréfberann. .

mánudagur, desember 16, 2002
Blessuð!
-jæja þá er búið að ganga frá eðlisfræðinni. .tour-miði til Timbuktu! En þetta hafðist vonandi, ég er bjartsýn í meðallagi.
Síðasta prófið á morgun og það die Deutsche. Við Katarína púsa erum að læra saman í áðurnefndri geymslu og gengur það vel enn sem komið er, engin alvarleg rifrildi og slagsmálin innan hæfilegra marka . . .hvað varðar þýskuna erum við að klára málfræðina og fór þar af hálfur tíminn í að láta Katrínu muna “bæði og” =”sowohl..als auch”. .
-Annars er undirrituð í þó nokkru andlegu ójafnvægi( ;)harpa) eftir allt sem gengið hefur á síðastliðna daga , en reyni þó að stýra fókuspunktunum rétt og halda vel á spöðunum. . .
-Um daginn sáum við Katrín mjög svo skemmtilega mynd, Bend it like Beckham. Er það þeim að segja, sem þekkja okkur lítið, að það er ALGERT EINSDÆMI ef við Katrín leigjum mynd sem er jafnvel bara ágæt. . .sama hvaða dóma e-r spóluasni hefur fengið, ef við Katrín leigjum hana, er hún ömurleg !
En talandi um þessa mynd þá er það nú óþolandi þegar maður sér e-n leikara..kannski lítið þekktan..og maður kannast svo óþolandi við hann, en veit ekki hvaðan. . það var einmitt stelpan "Jules" sem vakti pirringi og leiðindum. . hvar í anskotanum hef ég séð hana áður???
-Sem fór. . ég gat ekki sofnað. .og fór að grennslast fyrir um þessa stelpuskjátu( "Keira Knightley") um miðja nótt!!!!. .og fann svarið . .hún er tvífari Natalie Portman og leikur maid-ið! (sem sagt í Star Wars)ég hélt alltaf að það væri bara hún Natalie sjálf í tvöföldu hlutverki. .asninn ég.
Lítið annað hefur hins vegar gerst skemmtilegt.

laugardagur, desember 14, 2002
Hver hefur ekki lent í því, á stundu sem þessari, að spyrja sjálfan sig. . .Af hverju fór ég á eðlisfræðibraut?
-En það eru aldrei svör við mikilvægustu spurningunum. . .
Maður ætti kannski að henda í Yngva hnykkli og athuga hvort það sé of seint núna að skipta yfir á málabraut. . .þá gæti ég kannski farið í grískupróf á mánud., og ég mundi nottla ekkert skilja þar heldur en liði kannski ekki eins og hálfvita vegna þess að þá væri prófið ekki einu sinni á íslensku.
Nei, nú er ég hætt að væla. Ég heyri bara rödd kokksins í sumar. .”Farð´ ekk ´ a´ grenja skiluru”. . 160manns í ressanum. .allt á floti. .3 þjónar. .allir þunnir. . EKKERT MÁL!
-No sorry! We are out of Waldorfs. .

fimmtudagur, desember 12, 2002
3 próf eftir og þ.á.m.eðlisfræðipróf. . ég höndla þetta ekki lengur! og þar sem ég er að læra held ég að hver maður yrði nett bilaður.
Ég er í herbegi lokuðu frá öllu lifandi.. og ég fór svona mest að pæla í því einmitt í dag..er að læra undir komandi enskupróf.. að þetta herbergi eða öllu heldur þessi geymsla er hryllingur!
Ok..reynið að sjá þetta fyrir ykkur..
Það eru 4 veggir og eitt loft..einn veggurinn er sem sagt með fáránlega hallærislegu rauðu veggfóðri með svona mynstri sem væri hægt að finna á hallærislegum gardínum frá 1970!..svo er veggurinn sem liggur að þeim vegg í ALLT ÖÐRUM rauðum lit..svo er næsti alveg sæmilega hvítur en á enda þess tekur við e.k.hálfur tréveggur í framhaldi af veggi sem e-r byrjaði að mála brúnan hér um árið en kláraði aldrei verkið.. mjög sérkennilegt! Ekki nóg með það þá eru tvö stór hippa-blóm á skáphurðunum og myndir af kínverskum táknum…og síðast en þó ekki síst.. appelsínugular gardínur! Ég held að Vala fengi hjartaáfall!
Ég get vart beðið, COLDPLAY eftir viku! Annars er ég alvarlega búin að nauðga Bob Dylan (The Essential Bob Dylan)disknum mínum við próflestur. .

miðvikudagur, desember 11, 2002
Jæja, passið ykkur öll því nú er Drífa farin að blogga . .
-Var að koma úr íslenskuprófi, gekk svona bærilega.. fyrir utan það að hver er Skarphéðinn Njálsson? og þegar ég kom heim þurfti ég að fletta upp HVERJU EINASTA orði úr “snjóflygsu-thing-ljóðinu”.. en það gæti varla verið verr í dag en í gær..ég hef bara ekki lent í öðru eins stærðfræðiprófi eða bara einhverju prófi… þetta var CATASTROFA! Ég var á blábrúninni að halda að ég muni falla, kom heim, og með minni heppni ..já..þá staðfesti Bókin með svörin grun minn með “gerðu lista yfir hvers vegna ekki”. –sá listi, var enginn listi…
Ekki á morgun heldur hinn, 13. des., er hin sænska Luciu-hátíð.. margir hugsa..yess!ég er búin að bíða í ár!- en ekki ég.. Það get ég sagt ykkur, að ekki ein HELDUR TVÆR! af mínum “most-embarrassing-moments” tengjast einmitt þessarri stelpu með kertin á hausnum…
1)Hjärup´90…Ég var 7 ára, komin í fyrsta bekk og læti..en það er nú ekki í frásögufærandi fyrr en kemur að þessari hátíð. 6.bekkingarnir áttu að halda svona .. köllum þetta “kórtónleika”, syngja ekki ómerkari lög en “staffan var en stalledräng”,” Nu tändas 1000 juleljus” og “lusse lelle” fyrir aragrúa af fólki. Nú eins og að vera minnsti nemandinn í öllum skólanum sé ekki nógu erfitt þá átti ég að klæðast jólasveinabúningi (með LUKT og alles) og sitja á gólfinu(og gera ekkert annað) fyrir framan alla efstubekkingana og feisa áhorfendaskarann..og það versta var að það var ekkert smá gólfpláss..það var ekki púls! í 10 m radíus! Ég hef ekki enn beðið þess bætur..
-nú ég ákvað að læra ekki af þessum mistökum og gera frekar önnur í staðinn. . .
2)Reykjavík´96…7.bekkur..úje..með elstu krökkunum í skólanum. Einhverra hluta vegna (þó ég muni ekki eftir því) samþykktum við Álfdís að syngja Á SÆNSKU, og ekki í einhverjum kór heldur tvær…DÚETT! Fyrir framan ALLAN skólann… og þið viljið ekki vita hvað það heyrðist lágt í okkur og hvað þetta var falskt..nei þið vilið ekki vita það..en löbbuðum við um með hauspoka það sem eftir var af skólaárinu.
Allavega..(fyrir þá sem eru ennþá að lesa)..gleðilega Luciu ekki á morgun heldur hinn…og gangi þeim vel með lífræna efnafræði sem þurfa hana að taka á morgun;) (núna er ég búin að covera næstu tvo daga..)
takk