Hvar á ég að byrja. . . . .?
-
Útskriftarferð – Farið til Krítar. . hótel Golden Bay nálægt Hania, held að við gætum ekki hafa fengið betra hótel. .Útaf fyrir okkur, sundlaug, bar og hefði ströndin verið e-ð nær þá væri hákarl í sturtunni. Sem sagt frábært. . ekki hef ég samt mikið að segja. . svo slúðrið verðiði að fá elsewhere. .Dagarnir á Krít renna eiginlega allir saman í eitt. . . Við vorum heldur óheppnar og ekki. . það var talsvert um veikindi í herberginu, hefðum kannski getað djammað e-ð meira. . en tókum þó “glæsilegan” pakka í drykkjunni á Kalamaki svæðinu. Tóga- kvöldið kom og fór. . Strandblakið var nottla magna skemmtilegt og “áttum” við Guðrún “The annual MR Volleyball – tournament” og lentum glæsilega í eitt af botnsætunum. Eftirminnilegt var þegar við Unnur, Katrín og Sverrir fórum með “Scanway” til Elafonissi, ein fallegasta strönd Evrópu. Við fórum í tveggja klst rútuferð með SNILLDAR guide, Petroulu (eh. .?), gríska glamúrgellu, hefði passað mjög vel inn í hvers kyns sápuóperu. . Hún bjó á staðnum og þekkti hvern krók og kima. Stoppuðum við Sophiu..helli og sáum bara almennt hvernig lífinu er háttað á vesturhl. Krít.. smáþorp, risavaxin tré, chestnuts-tré, ólífur o.fl.
Þrátt fyrir magnaða ferð úti þá var frábært að komast heim. . tíminn hentaði mér ekki alveg. . því miður. Eftir tveggja vikna fjarveru . . var voða skrýtið að koma aftur á Bifröst. . En alveg gull. Staffið allt gólandi á útdyratröppunum :) Fyrstu klst var ég bara farin að vera feimin aftur. . þau sem þekkja mig vel, þekkja mig.- En það leið ekki að löngu fyrr en maður fann að maður var kominn heim – allir til staðar, alltaf.
Nú liðu síðustu kvöldin. . við kveiktum á kertum, drukkum kakó og Sébastien las svo frábærlega
“The Tell-tale heart” draugasögu, af svo mikilli innlifun! Aldrei slær á vandræðaleg þögn. Tekinn upp gítar og fulltrúi okkar í Idol keppninni, Laundry Magga, söng fyrir okkur
“Hvernig á að kyssa rétt..” svo flott! Mögnuð rödd, guð minn alm. .dáist að henni!!
Á föstud. fóru svo síðustu gestirnir af hótelinu. . komið að því að pakka niður húsinu . . – Gleymi aldrei þessum dögum, svo öðruvísi, fólkið í sínum eigin fötum. . engir gestir, hótelið útaf fyrir okkur sjálf. . Allir urðu myndaóðir og frábærar minningar af sumrinu voru deildar nánast með hverri teskeið sem sett var í kassa. Við Suvi eyddum 6 klst inni í “buffinu” að pakka niður í kassa og telja. . CATASTROF! Við eigum ALLAR TEGUNDIR af vínglösum í heiminum. . og helst svona eitt glas af hverri tegund. .akvavit glas?! What tha fuck is that?! Hver kaupir Baileys shake glas, ekkert eins!?? og hver er tilgangurinn með því að vera með 50 mism. stærðir af koníaksglösum?. . Merktum hvern einasta kassa með e-jum brandara fyrir þann næsta sem myndi taka upp úr kassanum. . signed
“I LOVE IT!” (úr Naked gun mynd. . sá verður aldrei þreyttur). Unnið TALSVERT . . – líka laugard. – Við Suvi erum hér með orðnar “waxing pro´s” bónuðum oftar en einu sinni oftari en tvisvar allan veitingasalinn. .
Um kvöldið þurftum við að yfirgefa hótelið. . við sem eftir vorum. .um 10 crashuðum hjá Lilju í einni kös. Takmarkaður svefn. . næsta morgun, hlaðið farangri og fólki í bíla. . Haldið var í Árnes í
RAFTING! niður Hvítá fyrir samansöfnuðum tips-pening. . einar 80 þús!. . Raftingið var nottla snilld! Svo gaman, svo kalt! Eftir það var farið á Selfoss, pizza 67. Allir skiptust á símanr., adressum, e-mailum. Fólk þurfti að kveðjast.
Marie gisti hér og um kvöldið var farið “á Sólon” og Celtic Cross með Söndru, Emil, Gulla og Atla, þaðan í Nauthólsvík. . Marie fór svo með vélinni um 5-6 leytið í nótt. . .skildi eftir bréf á skrifborðinu. .
Þetta sumar hefur verið eins og draumur. .
Ég á svo eftir að sakna samtalanna okkar. . Eins og með Suvi, ég hef aldrei kynnst manneskju sem ég hef átt jafnmikið sameiginlegt með. .ég gæti skrifað ritgerð. . (en ætla ekki að gera það ) - ekkert var óviðkomandi. Alltaf var e-ð að segja. . sögur, reynslu, persónulega hluti, fortíð, vonir um framtíð, draumar&martraðir. . . Alvarlega farnar að klára setningarnar hjá hvor annarri. Það er svo skrýtið hvað þessir 3 mánuðir geta gert þegar fólk hvaðanæva kemur saman á stað eins og þessum, vinnur saman, býr undir sama þaki og gengur í gegnum svo margt saman . . svo ÓLÍKIR karakterar, maður lærir að þekkja fólkið tilfinningalega. . þó að maður viti kannski ekki nákvæmlega hvað þessi á margar systur og bræður eða hvað. . þá getur maður greint hvernig honum/henni líður, þekkir skapið, hvert má fara/hvert ekki. .lærir að þekkja venjur hvers og eins. . og hver er svo einstakur á sinn hátt, og maður lærir virkilega að meta það –
Maður verður e-ð svo berskjaldaður – án þess að þurfa að segja neitt. . nýtt f.mér –
Ég veit að ég er að gerast væmin en þegar ég lít til baka þá held ég að ég hafi fundið part af spurningunni hans Seb. .
Kannski gerist allt fyrir e-ri sérstakri ástæðu. .ég held að mér var ætlað að læra ýmislegt. . og ég lærði svo margt meira. .
Eins hjá einni sérstakri stelpu með sömu ævintýraþrá. . Maður lærði virkilega að meta . .eins og Ísland. . íslenska tungu. . sérstök. . en nú meira en áður vill maður bara komast héðan. . .
Kynntist nýju fólki og nú er svo erfitt að kveðja. . . .
- fólk hefur komið og farið. . en “kjarninn”. . hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. . .
Takk fyrir mig.