Mér finnst alltaf jafn fyndið þegar Birna sendir sms á borð við
“Hvað er að læra heima í stærðfræði?” Þessi elska hefur ennþá trú á mér, takk :)
Komin heim aftur eftir stutta dvöl í
Köben. Úti var nottla ÆÐI! Vorum á frábæru hóteli í bænum (Vester Farimagsgade).
Áttum nokkur lestarævintýrin . . Strax frá Kastrup vorum við næstum farnar um borð á lest yfir til Svíþjóðar.. hlupum e-rt og það var svo rétt lokað á hælana í réttu lestinni. Soldil snjókoma. .Vaknað snemma, og gert grín að okkur, en við fórum í dýragarðinn – sáum ALLT! Tígrisdýr, nashyrning, ljón, brún björn, fíla, apa.. og ÍSBIRNI! Og margt fleira. Gaman þótti okkur í “frumskóginum” þar sem við héldum að RISA leðurblaka var að ráðast á okkur.. en reyndist vera fiðrildi. Allavega. Farið niður í bæ, á Ströget, Kongens nytorv o.fl. Við urðum báðar skotnar í næturverðinum á hótelinu – hann bent okkur á ítalskan veitingastað – óþægilega starað á okkur, sífellt blikk, og var okkur vísað til borðs beint f.framan eldhúsið, þetta var orðið frekar óþægilegt.. en mjög góður matur. Smá barhopp.. kíktum á Moose (svona Kaffibarsstemning) sem Olla lofsyngur. Á sunnud. var farið til
Svíþjóðar. . Ég kenndi Brynju að segja “Jag hatar tåg”. . en fyrst í Malmö vorum við í ruglinu.. lestin ætlaði að snúa við og náðum við að hoppa út í e-ri eyðimörk (Malmö Syd) SKÍTKALT! Náðum lest.. skiptum um vagn.. og vesen.. loks komumst við til Lundar. Löbbuðum um.. dómkirkjan, Stortorget, FOLK Å ROCK, Ebbas skafferi o.fl. Lentum á æðislegum leigubílstjóra sem vissi ekkert hvað hann var að gera.. var að keyra í annað sinn, vitlaus átt o.fl. en gott spjall. Kíktum á gamla heimabæ minn, Åttevägen 5.. allt saman. Fórum í mat til Sigrúnar og Sæma (vinafólk). Aftur í Lundi var rok og RIGNINGARRASSGAT. Við hefðum allt eins getað stokkið í sundlaug.. og týndar í Lundi.. spurðum grilljón af fólki til vegar, og fundum loks æskuvinkonu mína, Ulriku - mikið rifjað upp.. og fékk ég slúðrið af öllum gömlu vinunum.. hver væri í rugli og hver ekki.
Aftur labbað um í Köben og skoðuðum margt. Fengum svo stærsta bjór sem ég hef séð á flugvellinum. Skuggalega full flugum við heim.
Set inn myndir bráðum.
Ítalía eftir svona 2 vikur. . Ég held að ég geti kysst skólamætingu bless!
Annað fátt að frétta. . veit ekkert hvað er að gerast í Nágrönnum, mikið að læra, og mikil vinna framundan.
Saumó í kvöld hjá Sollu; alltaf gaman.
Á morgun hittist svo
“Sundklúbburinn” (ég get reyndar aldrei mætt í sjálft sundið, snemma morguns og í vestri) hjá Bjössa í videokvöld/fordrykki fyrir bjórkvöld. Kjarri bætti svo við þeirri hugmynd að við myndum snæða kvöldmat saman (karlmenn sundklúbbs ætla kannski að elda), það verður gaman að sjá, hlakka til.
Kannski skíði með y-stelpum á sunnudaginn???
Farin í saumó. .