föstudagur, apríl 30, 2004


Starsailor.
Bót allra meina.
Það er ekki lítið óþægilegt að þurfa að þaga yfir stórrass-leyndarmáli og ekki segja ákveðnu fólki. . . og sérstaklega að ef umræddir aðiljar vissu umrætt leyndarmál, sem ég bjargarlaus veit, mundu þeir einfaldlega fá heilsuspillandi gleðiveiki. . ef slíkt er til. Þetta er svo rosalegt að það hálfa er svo skelfilega rosalegt og hugsanlega mundi það tæplega heila vera alveg óhugsandi. Ég lifi í draumi.
Undirskrift, Drífa.

Söguprófið er history; svaf í 2 tíma . . gekk alveg ágætlega – þessar hjólaferðir eru himnasending. . mæti smá seint í próf vegna DJÚPRA samræðna um styrjaldir Napóleons. . hleyp inn í prófið, fyrsta sem ég sé: Napóleonsstyrjaldir. Takk guð! Óþolandi heppni;)
Annars skrifaði ég líka ævisögu Jóns Arnórs á prófið. . og já Sandra við erum að tala um SKÓSTÆRÐS-mál hérna!:)

þreytt í dag: Starsailor - Poor Misguided Fool

þriðjudagur, apríl 27, 2004


”Þú skalt ekki skæla, segir hann.
Ég er ekkert að skæla, segir hún og heldur áfram að skæla.”

- Laxness (Sjálfstætt fólk)

Hann Jack Johnson er alveg að bjarga mér í þessum lestri. . . but blah blah blah..

Ég var að komast að þeirri niðurstöðu í lífinu, að ég þarf að fara að kaupa lottómiða.

”Hlutir til að gera”- listinn setur eiginlega þau skilyrði.


Sumar:
- Skoða heim Ítalíu m/Brynju
- Londonferðin m/mömmu
- Læra á gítar
- Heimsækja Seb, Sögu og Söndru á Bifró.
- Sjá endinn á Sound of Music
- Road-trip m/lambúshettum, Emil og Ásu
- Lesa margar margar bækur úr bókasafninu hans afa
- Ferðast um Finnland m/Suvi
- Búa til "fullkomna" kokteil-uppskrift
- Klífa Baulu
- Læra Moonwalk
- Læra meira í finnskunni
- Hreddaball

. .. . þetta bara gengr ekki upp. Ég veit það ekki einu sinni..

Mæli með því að kíkja á síðuna hans atla - flokkar starfandi í Svíþjóð (Tannlæknakostnaðurinn er alltof hár - flokkurinn)
Auk þess - Luciano Pavarotti saung í stofunni okkar! Það finnst mér alveg magnað.

Lag í kjallara: Jack Johnson- the horizon has been defeated

mánudagur, apríl 26, 2004

Jújú. . . þetta er það sem tekur við af félagsfræðinni. . . .

Which Band Should You Be In?
by couplandesque
Your Name
Band NameSystem Of A Down
RoleVocalist
TrademarkEmo Poster Child
Love InterestGirl Who Works At Starbucks
Created with the ORIGINAL MemeGen!

laugardagur, apríl 24, 2004

Jæja já. . . engin miskunn; maður er rétt svo að rífa sig upp úr þynnkunni eftir dimissio og þá er bara skellt tveimur stúdentsprófum framan í mann; var að koma úr kvikmyndagerðarprófinu. . – mjög ”heimatilbúið próf”, ekki einu sinni pláss gert til þess að skrifa nafnið sitt á prófið; en þetta gekk bara framar vonum og þakka ég mínum steiktu glósum fyrir það (sem dæmi: drama; allt í fokki reyna samt að kópa, grínmyndir; allt í lagi – klúðra öllu engu að síður). . annað hvert orð í þessum ”glósum” er á slæmri ensku og hitt á enn verri íslensku.

Næst er félagsfræði. . . á ekki bókina.

Dimissio var um daginn. . þetta var einn alveg skemmtilegur dagur. Daginn áður var farið upp í Gerplu að fíflast og sleppa frá sér allri heilbrigðri hegðun. Morgunpartý og farið svo upp í skóla að kveðja kennarana. Við áttum að vera Uma Thurman í Kill Bill. . . alveg einstaklega þæginlegur búningur, og verður að segjast að þessar svokölluðu hárkollur eru mesta snilld sem ég hef augum litið! Enginn með eins klippingu og eftir gámaferðina voru þær úfnari og fyndnari en anskotinn!
Síðan var farið út og suður í lygilega góðu veðri! Lífið gerist ekki betra en að drepast næstum því á e-ri bryggju í Nauthólsvík á góðum degi. Síðan gengum við yfir meirihlutann af Íslandi í takt við Dressman-göngu-lagið; skriðum svo af Grænum Kosti síðustu spölin heim til Hödda. Eftir smá jafning var aftur tekið á í drykkjunni og af myndum að dæma voru alltaf e-r slagsmál, villtur dans, e-r hópknús eða allir í e.k. hrúgu. . . trektin var á sínum stað.
Tjúttaður ”trölladansinn vinsæli” á Felix. . þar til á 21 tíma. Maggi var svo elskulegur að skutla okkur Brynju heim, takk.
Myndir í vitlausri tímaröð.

Lag partý´s: Outkast- Hey ya
. . . . en lög dagsins voru öll lögin á Kill Bill vol.1 disknum (nauðgað hrottalega)

Quote: "Í alvöru. . ég held að ég sé að missa meðvitund"
- Lóa á Kaffitár í morgun, klst fyrir próf.

þriðjudagur, apríl 20, 2004

Síðasti skóladagur. . . . . auðvitað léttir á vissan hátt en voðalega leiðinlegt – þegar fólk fer að gráta í kringum mig þá fer ég yfirleitt í kerfi!. . .
Bekkurinn gerði sér “glaðan dag” og fór út að borða saman í frímó; svo fórum við að syngja við undirleik Ásu upp á sal. . svona píanóspil, og sérstaklega upp á sal er svo fallegt. Myndir e-jar . . salurinn er bara svo fallegur, skemmtileg birta.
Ég vil þakka alveg meiriháttar bekk, 6-Y, fyrir allt! og ég meina ALLT! Alræmdur fyrir sudd og læti, brjálæðingar upp til hópa.

Dimissio á morgun – vá, hvað verður gaman:) í tilefni af því þá verður síðan gul um stundarsakir.
Gerpla í kvöld þar sem bekkurinn ætlar að læra bardagalistir. . sjáum hvernig það fer.. endar í tómu rugli býst ég við.

Lag síðasta skóladags: 6-Y- Valede studia

mánudagur, apríl 19, 2004


"Suckered in. Set up. Pushed around."
- Melvin

Ég var numin á brott af geimverum í gærkvöldi. . og þær létu mig horfa á þessa mynd; ENGA kosta völ . . ég hef ekki enn beðið þess bætur.
Grínlaust þá var þetta svo léleg mynd að það hálfa væri sko skelfilega lélegt. Við Sólveig kúguðumst á köflum, þetta var átakanleg mynd; ég gat þetta ekki lengur þegar Mandy Moore var að hlaupa í "slómósjon" og undir var þetta líka SKELFILEGA vemmilega lag. . . þetta er meira að segja slæm spóla (spóla sem við Katrín myndum svo leigja...)- annars var mjög skemmtilegt að fylgjast með Möggu í salnum... og þetta var bara á heildina litið ágætis skemmtun, að Mandy Moore undanskilinni.

smörja dagsins: Mandy Moore- I wanna be with you

sunnudagur, apríl 18, 2004


Kent
Mér líður í augunum eins og ég hafi vakað í 100 klst eða sofið í 1000 ár. .
- eða slæmt.

Lesa allt mikið. . . í þessum fáránlegu aðstæðum svo andstæðum heilbrigðri skynsemi að það hlýtur að felast e-ð táknrænt…

Næsta próf er íslensk ritgerð (föstud.). . . sem er ekki alveg minn tebolli.


”Ég komst að því að bjórinn kostar 13 kr.!!!
Þá er kippan kannski á 80 kall….
BLEKUÐ á 200 kr.!!!”

-Eyrún að fara til Króatíu

lag sunnudags: Kent- 747

fimmtudagur, apríl 15, 2004


Landið lítur út eins og kona í kjól, hún er að rétta úr hendinni. . . .



Matarboð hjá Hönnu í Finnska sendiráðinu
Kona kemur til dyra: "Ahh!! Moi! Mä ole´ Hanna – Kuka sinä olet?"
Drífa: "Eh...bla.....Moi, minä olen Drífa"
Hanna:" blablabla??...Mitä kuluu?"
Drífa: "eh… Hyvää, kiitos kysymästä, entä sinulle?"
Hanna: "/(&$#..blablabla…$#”&()%: blablabla...."
Drífa hugsar (um hvað er hún að tala???????)
Hanna heldur áfram: "$&U/(%% ...blablabal...&%$#(Ö/&."
Drífa spyr sjálfa sig: (hvað er ég búin að koma mér í núna????)
Hanna: " %$#)/ . .vodka. ."


Það er ekkert verið að draga úr þessari ímynd finnsku þjóðarinnar – ég hélt nú að þetta væru ýkjur í meira lagi…en nei.
Það fyrsta sem þessi elskulega kona fer að bjóða mér er VODKA “og tónik” (ég vil meina að þetta hafi verið vodkinn einn). .juju.. það er nú einu sinni miðvikudagur og klukkan er orðin rúmlega 6...
Annars fengum við frábæran furðulegan finnskan mat og endalaust af rauð/hvítvíni, alveg frábært! En.. ekki þekktust margir þarna en guði sé lof var Birgir, sem er með mér í kvikm.gerð. Við vissum ekki alveg hvernig við áttum að haga okkur. . . Kynntumst stráksa sem hafði verið í Finnlandi (í Nordjobb) – vann í vodkaverksmiðju að líma miða á flöskurnar. . . allt í lagi. Og urðum margs vísari um margt . . Við erum sem sagt 3!!! sem erum að fara. .
Mér leið bara skuggalega ILLA í dag, þetta áfengi fór ekki vel í mig.

Lag : Wilmer X- Perssons gård

þriðjudagur, apríl 13, 2004


Halldór Laxness - eins og blaut tuska framan í fólk!

Guð hjálpi oss. . . Hún Ólína er farin að blogga - hún fær sko feitan sess í safnið; það verður gaman að fylgjast með henni.

ÍSLENSKUPRÓFIÐ ER BÚIÐ!!!!!!!! Alger snilld!! aldrei aftur.

Ég er hrædd um að það séu svo YFIRGNÆFANDI hættulegar líkur á því að við Solla verðum fyrir bíl næsta mánuðinn eða svo.... Maður hjólar bara í sínum heimi.. og á kannski ekkert að fara að laga ljósin hjá Faxaskála??? Á að drepa mann!

Næstu dagar verða alveg æði, ég hlakka bara til.. Klára að lesa Sjálfstætt fólk, lesa Meistarann og Margarítu, BIRTÍNG (ein af uppáhalds bókunum mínum.. síðan ég las hana) og kannski Ríkarður III ef tími er ennþá inni í þessari mynd sem ég var að leggja fyrir... eh..mig. Bókmenntapróf á SUNNUDAGINN!! Er það ekki brot á mannréttindum? Biblíunni jafnvel???

En fyrst!! lesa þetta líka HELJARINNAR slúðurbréf sem ég var að fá í hendurnar.

Svo þetta matarboð á morgun... spes.
Guð, það er skóli á morgun... ég man ekki einu sinni hvernig skólinn lítur út.. páska"fríið" gone with the mótvind.

"Do you want the truth?!!!
- …No, we want another lie....."


Lag í dag : Quarashi - Framogtilbaka

sunnudagur, apríl 11, 2004

GLEÐILEGA PÁSKA ALLIR LANDSMENN!!
Kv. Drífa

Dagens låt: Skunk Anansie - Selling Jesus

laugardagur, apríl 10, 2004


Grímur Thomsen

Ófáar leiðinlegar minningar um kallinn. .
Þökk sé honum þurftum við að læsa okkur inni á klósett í gamla skóla og hafa fataskipti þar hvorki meira né minna en 5 sinnum!!!!
Ég hef aldrei þurft að gera svona marga bindishnúta á svona fáum dögum.
Takk!

Ljóð dagsins: Grímur Thomsen - Á Sprengisandi

föstudagur, apríl 09, 2004

Ég vissi ekki að ég væri í áhættuhópi páskageðveikinnar. . .

Hér eru myndir af vinum mínum; Bóbó, Gulli, Pasta, Andri og Fígaró. Og svo er þetta mynd af páskaliljum.

Lag föstudags:: Halfcocked - Bad reputation

miðvikudagur, apríl 07, 2004


Lífið er svo mikil sápa
- það er hægt að hafa svo gaman af því -
"það eru laus sæti fyrir svona 8 manns í sófunum við hliðina á honum en ég geng samt til hans og sest á lærið á honum !!!!! Ekki spyrja, ég veit ekki af hverju ég gerði þetta og ég veit ekki hvernig ég þorði þessu og þegar ég hugsa um þetta er ég ekkert viss um að þetta hafi verið ég!!!! !"
- snillingur

Ég veit ekki hvað ég gerði / eða EKKI gerði án þín-

það þurfa allir melo drama. Ég hlakka svo til í sumar; svo mikið planað - spurning um . . já við sjáum sko til! Úff hvað það verður gaman! Ég er í það minnsta buin að plana 4 road trip! Spurning um bílpróf? eða bara að hjóla þetta - það væri líka gaman... líma ghettoblasterinn við stýrið.. og on the road again. . . ég var líka að fá nýjan lás á hjólið á mánudaginn.. gerði varúðarráðstafanir; lás með svona tölum..veit ekki hvað það heitir.. allavega EKKI með lykli! ég týni þeim ALLTAF! hef þurft að klippa upp 3 lása..
Hmm... eða húkka bara far... eða nei, slæm reynsla.

dagurinn er búinn að vera alveg út úr kortinu!!!
ég ætla að glugga áfram í Sjálfstætt fólk - allt að gerast skal ég segja þér!

Ég veit ekki af hverju: Village people - YMCA
weird. . . það var verið að bjóða okkur í finnskunámskeiðinu í mat til einhverrar Hönnu í Finnska sendiráðinu þann 14.apríl
- djöfull verður þetta steikt.

þriðjudagur, apríl 06, 2004


Fugees

´Hell no sirree, wrong M.C.
Why should I be a spy, when you spying me, ´


Bestu tónleikar í minni sögu. Ég fæ hroll.

Lag dagsins : Fugees - The Mask

Það er nú ekki hægt að segja mikið spennandi í þessum prófum. . samt geta MINNSTU hlutir lífgað ALL svakalega upp á þessa daga. . . . og gert þá bærilega.

það komu vöfflur á manninn!!
Ég fór í vöffluveislu til Brynju í gær. .

allt önnur tuska
Ég meina hversu slæm getur eilíf þjáning verið? Í alvöru.

mánudagur, apríl 05, 2004


"there goes gravity. . ."
já. . sem sagt ekki að læra. .
Ég hef hugsað í óhófi um það að snákur kæmi og biti mig í fótinn í dag. . mér tókst aftur og aftur að hræða sjálfa mig og ég þorði varla út fyrir dyr. . massíft stór snákur, hlakka ekki til að fara að sofa.

Ég manaði mig þó í að fara upp í TBR með stelpunum að horfa á úrslit Íslandsmeistarmóts í badminton. . Þetta var alveg gaman sko! Ég vil óska Tinnu enn og aftur til hamingju með glæsilegan árangur! Átt allt gott skilið. Fyndið hvað svona ekki-inni-í-badminton-fólk hefur að segja um leikinn. . við Tobba komumst að því að Tinna var rosalega smekkleg og sætust inni á vellinum, það er gaman að horfa á stráka keppa í litlum stuttbuxum og við lærðum næstum því hvenær MÁ klappa í badmintonleik og hvernig maður á að haga sér, enda gott spjall við Tinnu-aðdáendur á fremsta bekk.

Lag augnabliksins: Eminem - 8 mile

laugardagur, apríl 03, 2004


”Nothing but good news today. . Er heimurinn ekki frábær staður að vera á í dag?” – Emil.

Ég fékk nebbi góðar fréttir í dag . . Fékk sumarvinnu (byrja reyndar i ágúst..) á Café Engel í miðborg Helsinki! Á annarri aðalgötunni. . :) :) ég held að ég hafi verið skrýtin í skólanum í dag.

Í kvöld hélt 6-Y upp á byrjun páskafrís – Grillveisla mikil hjá Hödda; sem leystist upp í partý, dans, fíflalæti, slagsmál, söng, drykkju, Nínu (fyrir Kristínu) guð má vita og vafasöm athæfi. . . myndir speak for themselves. . . . já - voða mikið af myndum af sama fólkinu
Farið var niður í fjöru, rigning mikil, á alla vegu

Lag grillveislunnar : Britney Spears - Toxic

Ekkert betra en að eiga vini sem eru til staðar.
Núna er komið páskafrí; allir verða að hætta öllu rugli og fara að læra. .

Memo to myself: sumir eru bara craaazy.

fimmtudagur, apríl 01, 2004


Oh! Pabbi og Atli eru að fara á Mezzoforte-tónleikana! mig langar með!
. . ég held bara mína eigin tónleika í stofunni með dúndrandi Daybreak! Alein í húsinu!
(reyndar óstýrlátir krakkar á leiðinni...)
í húsinu.
þjappari!! Hvar er Þjapparinn í dag??

Lag kvöldsins: Mezzoforte - After Hours