mánudagur, maí 31, 2004

Þá er maður útskrifaður – hörkustuð; eintóm vitleysa. . . MJÖG gaman. Takk allir! Og Daninn sem ég dró með skilar kveðju!

Í augnablikinu sit ég í móttökunni á Fosshótel Bifröst. . . jú, það mun vera. Hér mun ég vera niðursett fram í lok júlí og vona að e-r kíki í heimsókn. Heimilisfangið góða er Skakki nr.7.
Þessa dagana erum við að bægslast við að koma upp einu stk.hóteli. . Mjög spennandi; í gær ég tapaði fyrir Söndru í keppni um hver gæti haldið á sem flestum koddum; ég náði 12 koddum (ég beit í einn) kemur þá Sandra eins og hlaupandi koddafjall og kallar (m/kodda upp í sér) “HA!HA! 13!!!”. . ég var ónýt það sem eftir var af deginum.

Það er endalaust fyndið að taka upp úr kössunum sem við Suvi pökkuðum niður í lok síðasta sumars. . . enn sú glasamergð!!! EKKERT af sömu tegundinni! “Six glasses of whatever”, “8 brennivínshots – and we love them all!!”
Staffið í ár lítur mjög vel út enn sem komið er. . and more to come. . .

Jæja, nú er ég óendanlega þreytt – enda stutt hvíld síðan tekið var swing með Arnbirni kennara.
Ég verð að fara að koma mér aftur í lestrargírinn. . ætla að byrja á Da Vinci lykilinn sem Birna, svo sæt, gaf mér.

Rabbað við Steina upp í Hredda í gær – sjokk – það verður einungis EITT ball í sumar! Og það er eftir 2 vikur! Svo hér auglýsi ég STUÐMENN 12 JÚNÍ Í HREDDANUM!! Svakalegt.

U2 - With or without you

fimmtudagur, maí 27, 2004

There and back again. .
Jæja. . - þetta er víst bara ákveðið process að tjúna sig niður eftir þetta allt saman. Ég hef komist að því að á þessu tímabili hef ég þróað með mér ákveðið ónæmi. . á fyrirbærum eins og svefni og sjónvarpi. Ég hef minnstu löngun til að horfa á sjónvarp (Ég mundi ekki einu sinni heilsa Nágrönnum út á götu. . ) og ég kann ekki að sofa lengur. Þetta er issue.

Á mánudaginn var síðasta rispan tekin, munnleg stærðfræði, fólk orðið MJÖG truflað og þreytt. . Eftir 2-3 tíma svefn kem ég mér upp í skóla. . ég er ein á ferðinni, og það fyrsta sem ég sé er að SVARTUR köttur LIGGUR gjörsamlega á hurðinni! Boðar ekki gott; ég labbaði svo áfram sem leið lá …undir stiga. Frábært! ”en vel að merkja” sá ég að bekkjarfélagar mínir voru orðnir ga-ga og þeirra vegna ætla ég ekki að lýsa ástandinu sem var á sumum. Stressið í hámarki! ég gat ekki einu sinni haldið á vasareikni án verulegra vandræða. . .
Þetta fór svo allt betur en horfði og þakka ég Skúla kærlega fyrir.

Eftir gífurlegt spennufall, svefnleysi, verkjatöfluáti, martraðir, ógleði og almennri andlegri óheilsu vissi maður ekkert hvernig maður átti að haga sér – allt búið.

Leiðin lá í búshúsið og seinna til Gunna sem átti afmæli að fagna. . Alltof mikið áfengi í boði. .Vínsvelgurinn Einar fór hamförum og varð fólk drukkið eftir 5 mínútur.. Þetta tequila var slæm hugmynd. Ég veit ekki betur en að við Guðrún og Birna ÁTUM PRÓFTÖFLUNA. Hún var ekki góð á bragðið, en var ansi fyndið að sjá Guðrúnu jappla á félagsfræðinni. . . ”það er einmitt það. .” Dansaður trylltur dans meðan maður hafði enn snefil af orku eftir, gólað ”We are the champions” og ég bara man ekki meira. . Stöðugur straumur af fólki barst inn og þegar löggan leit við í annað sinn minnir mig að mér hafi fundist tími kominn til að hypja sig. MYNDIR

Þynnkan var allsráðandi daginn eftir. Stúdentsveisla hjá Eyrúnu, sænskri æskuvinkonu, þar sem Magga og Arnaldur voru og líka. . Eyrún er nú á leiðinni til Króatíu í 12 daga fyllerí fyrir engan pening!

Dagarnir hafa bara verið í e-ju moki. . Í gær kynntist ég honum Brian. Ég var að bíða eftir gula kagganum til að skila bókum alltof seint á bókasafn o.fl. og lendi á þessu spjalli við Ástrala af Farfuglaheimilinu. Erum við samferða niður í bæ – þessi gaur var í bullinu; var á Pixies tónleikunum ´kvöldið áður með Jim (e-jum Ameríkana af Farfuglah. sem hann kynntist) – þeir hittu trommuleikarann í Pixies sem gaf þeim miða á tónleikana í gær. .nema hvað þá er þessi Jim (m/miðana) handtekinn á fyrri tónleikunum (líkl.f.eiturlyf) og nú komst greyið Brian ekki á tónleikana ”coz he´s in jail now and I don´t know what to do. .” en góð saga, og vildi hann endilega bjóða mér í kaffi á Brennslunni fyrir að láta sig hafa 50kall í strætó. .gull-gaur. Allt frekar skrítinn dagur. Fann Brynju í beði í Laugardalnum. .
Um kvöldið var svo saumó-hittingur hjá Tinnu. . svo héldum við Saga og Sandra upp á afmæli Emils á Hótel Klöpp en átti hann 22 ár – til hamingju! Ég held að danski afmælissöngurinn hafi aldrei verið sunginn jafn lýtalaus!

Útskrift á morgun – ég fattaði það í gær að ég hef ekki hugmynd um hvað ég er að fara að gera. . og ég er skuggalega sátt með það.
Í dag er ég búin að væflast um á netinu hjá öllum flugfélögum í heiminum - finna flug til Finnlands.

Whitney Houston- My love

sunnudagur, maí 23, 2004

Þetta er að verða búið. Lauren Hill- Oh Jerusalem

Quote: "Ég mun gráta mig í svefn í kvöld, ég mun gráta fyrir og eftir prófið og um kvöldið o.s.frv."
- snillingur (að fara í munnlega stærðfr.á morgun)

jii hvað þetta er gaman

laugardagur, maí 22, 2004

Ert þú með réttu ráði ennþá?
- Nei.
Þessi ganga er búin að vera frekar loðin. . raska öllum hlutföllum. - var að enda við að ”exa” yfir föstudag á stúdentsprófsdagatalinu mínu. . það var dagur nr.65!!
Ég held að ég sé farin að sjá e-ð skrýtið. . ekki ofsjónir en e-ð skrýtið.
Svona munnleg stærðfr.próf eru dauðagildrur. Veröld manns á því að vera heppinn… ég er yfirleitt mjög óheppin.

Fólk er orðið nokkuð...truflað... Frikki er með e.k.spegils-dilemma, Dröfn er orðin craaazy, Bjarney er komin m/samsæriskenningar á hendur nammifyrirtækja, Konni er orðinn skuggalega skipulagður og msn-myndin hans says it all. .Binni vill láta fólk kalla sig Inna (það veit enginm af hverju), Dóra er með vitlaust stærðfr.blað-í ruglinu, Óli? Er Óli á lífi? Ég hef ekki séð hann í margar vikur.. Birna - nuff said.

e.Yann Tiersen- La valse d´amélie

föstudagur, maí 21, 2004


e.Yann Tiersen- Comptine d´un autre été : L´aprés midi

Ahh...Oui ;)

Hér má líta annað ljóð úr hinni rómantísku ljóðasamkeppni. . – þvílík tilþrif! Ætli þau verði ekki bara sett inn í námsefni fyrir komandi nemendur. . ég held það.

Ísafoldin hvít og hrein.
Á henni vinnur enginn mein.
Með fjöllin hvít og foldina græna
Mun hún fóstra okkur öll.
Náttúran fagra birtist sem málverk á björtu kvöldi.
Ó, hve heitt ég þrái návist þína.
Hvert hafa dagar okkar horfið?
Þó að við hefðum allan tímann í heiminum
Þá ertu horfin á braut.
Berjumst fyrir frelsi og hopum hvergi líkt og Gunnar
Og segjum: “Vér mótmælum allir!”
Og við verðum meiri og merkilegri en nokkrir aðrir menn.


Í gær fórum við Atli soldið skemmtilegt. . fórum á rennslið hennar Guju upp í Tónlistarskóla – þar sem hún lék á píanó (eða flygil). . Mér fannst þetta alveg til fyrirmyndar; hún lék eins og engill – þetta var allt mjög fallegt og þakka ég Guju rosalega vel fyrir og óska henni góðs gengis á þriðjudaginn. Takk.

Gamla settið úti í Köben og enginn séns á partýhaldi – þetta er glæpur.

SIMPLY RED- Stars

fimmtudagur, maí 20, 2004


Skunk Anansi
(vil náttúrulega minna á Ace (þessi með dreddana) en we go waaay back. .)

Það fer að styttast all skuggalega í þetta. . . og annað. 4 dagar eftir, 1 próf. . ekki beint auðveldasta prófið en svona er þetta nú samt. . .

Í gær var munnleg íslenska. . það gekk alveg þó að ég hafi fengið stopp á hjartað þegar ég dró miðann.. fékk meðal annars Bragarbót (Matthías Joch.) sem okkur fannst ekki vinsælt; og enn síður voru Passíusálmarnir vinsælir í B-stofu,- ég fékk líka einn slíkann.
Ég hafði líka ákveðið að orð eins og “Heimshryggð” og “hefðbundið ljóð” væru orð dagsins.. en mér tókst ekki að ota þeim inn í A-stofu.

Horfði á eina af mestu snilldarmyndum í gær.. MAVERICK m/þeim Mel Gibson og Jodie Foster en hún leikur einmitt æðislegan karakter.
“How dare you....?” – Annabelle (Jodie Foster)

Gasalega fjölmennur fundur í gær hjá Norræna félaginu. .

Skunk Anansi- Twisted (Everyday hurts)

mánudagur, maí 17, 2004

Í þessu ljóðagrúski fann ég skemmtileg ljóð úr rómantískri ljóðasamkeppni innan bekkjarins – og birti hér ljóð sigurvegara:

Elli krútt
Skólinn er honum óþarfur því hann er í Gettu betur.
Við ættum að drepa hann með sverði réttlætisins.
Aldrei hefur sólin brosað jafn breitt;
hún leit til mín rannsakandi
líkt og blóm sem springur út að vori.
Æi, hvers vegna fór ég og hvert,
handan þessa háu fjalla?
Blandaðu saman fegurð og hatri og þú færð hurð.


Annars skemmti ég mér ágætlega í þessum íslenskulestri; las t.d. allt leikritið Galdra-Loftur og komst svo að því að ég átti ekkert að vera að því. . .

Ljóð dagsins: Jónas Árnason - Um tilgangsleysi

"Ég undrast þá flamingófugla
sem um pólitík þrátta og þrugla;
því að allt hvort sem er
til anskotans fer,"
sagði vitur og víðlesin ugla.

sunnudagur, maí 16, 2004


ævintýri. .
Klukkan 10 mínútur í Eurovision vissum við Tinna og Brynja ekki hvar við vorum staddar í lífinu . .við vorum á e-jum indverskum stað sem ég vissi ekki tilveru á; vissum ekki hvernig við áttum að haga okkur á slíkum stað. Við fórum út þegar enginn sá. Hraðskrefuðum Hverfisgötuna – eins og við höfðum lent á jörðinni í gær. Leituðum hælis hjá Hraðlestinni, en þar var vondur kall, útnjósnari illra afla, sluppum naumlega. Klukkan tvö lög búin hreiðruðum við um okkur á e-ju ”barborði” óvitandi um framhald þessa ævintýris. “Hvar er Tobba!? Ó góði guð hvar er Tobba?”. . gat ég lesið úr augnaráði Tinnu, hún var orðin örvæntingafull. Brynja fékk sér Coke og reyndi að leyna hræðslu sinni. Sjálf var ég ekki í jafnvægi. Allt í einu! heyrist sími hringja. . .hver ætlar að þora að svara? Brynja leit á okkur Tinnu, sem vorum augljóslega ekki að fara að svara. ., svo hún gekk huguð skrefi framar. Hún svaraði: ”Jelló”. . .þögn. . . . . .
Okkur var borgið. Tobba kom á stóra svarta hesti sínum, skeiðandi niður Hverfisgötuna. Sá hinn sami hestur stoppaði seinna alla umferð í skeifunni þar sem hann platseraði sjálfan sig í miðju alls; umferðarteppa. The rest is history... frábært kvöld! Thai matstofa fær plús. Klukkan 9 lög búin vorum við komnar úr allri hættu, við vorum staddar í höll að Hrísateigi. Grikkland hefði átt að vinna, þó að gríski guðinn hafi stolið bol af Tinnu til að vera í; en Pólland var hins vegar mesta snilldin í keppninni!

Ég hélt alltaf að “ég á ekki síma” væru augljós skilaboð; augljós mistök.
Ég sá rosalegt “chickfight” í nótt. . salurinn trylltist og glös brotnuðu þegar þær tóku aðra lotu. Bærinn var pack´in í gær. . og mikil ölvun um alla borg, að sögn lögreglu, en þurfti enga löggu til að segja mér það. Þegar skriðið var heim úr vinnunni kl.7 að morgni var allt morandi ennþá, ”um hábjartan dag” – allt mjög kjánalegt.

Jæja.. íslenska. . 2 próf eftir; mér finnst ég hafa verið í stúdentsprófum alla ævi. E-jir ”djöflar” í hverju horni. . freista mann að gera e-ð annað. Emil er búinn að vera einstaklega erfiður viðureignar í dag. Hnuss.

Miranda: Steve is completely predictable but that's one of the things I love about him. He's just so comfortable and safe.
Carrie: Are you dating a man or a minivan?

The Beatles- Ob-la-di, Ob-la-da

laugardagur, maí 15, 2004

Þetta stefnir allt í rosalegt kvöld/nótt!
Þessarri færslu ætla ég að tileinka Lambhúshettum - bendi á snilldarljóð. Komin síða.. af því að helmingur (betri helmingurinn?;) ) er að fara af landi brott.

Jejús ég hélt að ég myndi aldrei aftur verða hluti af "Skalla-sjoppuhangsi" en við erum guilty as charged...

ÁFRAM ÍSLAND! Við vinnum ! Ég er viss um það! Við vinnum ALLTAF!

Góðar stundir, ávallt.

Lagið: Jónsi - Heaven

föstudagur, maí 14, 2004

Geisp! á allan lærdóm! Ég er í ruglinu núna.. of langt í næsta próf – og þá fer maður bara ekkert að læra. . .ónei. Ég kúgast af tilhugsuninni að þurfa að vaða í þessari stærðfræðisundlaug enn einu sinni!! Had it!
. . .svo ég hef tekið þá ákvörðun að læra ekki í bili – á morgun er eurovision/kveðjupartý hjá Andra followed by laaaaangri Eurovisionnótt á Café Victor; af hverju samþykkti ég að vinna?!

Charlotte: “Those flowers were supposed to say "We're so sorry, we love you," not "You're dead, let's disco"! “

Snillingur allra tíma: Bob Marley- Could you be loved

þriðjudagur, maí 11, 2004


Ég myndi kasta krónu en þeir eru bara þrír. . . 3 próf eftir gott fólk.
Tvinntölur mega fara til anskotans og helst lengra!!
VIN INN, VIT ÚT
Mér finnst þessi dreifisnepill hans Gunna um próflokapartý/afmæli 24. maí alveg æðislegur.. svona ”gamaldags” boðskort með nafni, til fyrirmyndar, það mætti halda að fólk geri HVAÐ SEM er til að sleppa við að læra. . . I know. I do.

“OMG!! We just saw Björk!! OMG ! Can you believe it!??!!”
- Bretar á Hótel Klöpp seint að kveldi

Björk Guð & tríó Guðmundar Ingólfssonar- Litli tónlistarmaðurinn

mánudagur, maí 10, 2004

Jæja. . . 4 próf eftir af 13!!!!
Ég get þetta ekki lengur... nei takk, ekki fyrir mig.

Eurovision á laugardaginn!! Hver á eftir að vinna???
Af því fáa sem ég hef séð (Ísland, Albanía og Svíþjóð) þá er bókað að Svíar hafa þetta!! Heja Lena! Ekki slæmt það, en auðvitað heldur maður með Íslandi!! Heja Jónsi!
Ég er komin í rosalegan evrópufíling. . .

t.A.T.u- Ne ver, ne boisia

sunnudagur, maí 09, 2004


Og róa sig. . .
Ég er bæði búin að spjalla við Louis og Sollu og það er komin SMÁ ró hérna megin...
Bréfberar ..bréfberar! Þær Jóhanna og Sigurrós spurðu hvernig andlega heilsan væri.. bréfberar! Nú er allt í rugli.

Louis Armstrong- Hello Dolly!



laugardagur, maí 08, 2004


Ég er búin að tala frönsku við sjálfa mig í allan dag. . nei, ég kann ekki frönsku.

Ég held að ég hafi labbað allar Hlíðarnar í gær. . þegar ég kom að Skaftahlíð/Lönguhlíð/Neðri-Stigahlíð/Grænuhlíð/Bogahlíð var ég svo gott sem geðveik – ég vissi að löng pósthúsvera mundi segja til sín e-n daginn. . – svo ég skottaðist yfir Miklubraut og kíkti í bíó m/Sögu og Söndru. VAN HELSING. Ég er með mjög margar athugasemdir en ætla ekki að fara með þær.. Tarzanskýlan, klámmyndavampírurnar og kjánalegi búningurinn gerðu þetta alls ekki leiðinlega bíóferð. Það var aldrei ró yfir mér þarna, það kom ALLTAF e-r vampíra á skjáinn, í n-ta mörg atriði og aumingja hendin á Sögu.

Stærðfræði: Blur- Song 2

föstudagur, maí 07, 2004


Bryan Adams

Morguninn fyrir eðlisfræðipróf I rabbaði ég við ónefndan bekkjarfélaga minn. . þessi félagi hafði bókstaflega varla lært NEITT fyrir prófið. .nema e-jar 5 sannanir.
Félagi: “Ég hugsaði bara. .ok það er ekki séns að ég nái að læra 3 eðlisfr.bækur á 2 dögum.. so why bother”
Drífa: “Hvað ertu þá búin að gera síðastl.daga?”
Félagi: “Ég las Harry Potter”
- Já.. hann er hetja!

Tilvalið að fara kannski bara að lesa ”Stríð og frið” núna fyrir stærðfr.prófin..hvernig væri það?

Bryan Adams- Summer of ´69

Sjitt! Hvað ég hlakka til í sumar!

fimmtudagur, maí 06, 2004


Wet wet wet

Ég hjólaði í skólann, meðfram sjónum. Ég var öll rennÍ SJÓ í eðlisfræðiprófinu. . . – það var rokrassgat og ég fékk HEILA ÖLDU yfir mig á leiðinni… og ég er ekki að tala um smá vatnsgusu.. ég er að tala um HUGE WAVE AF SJÓ flaug yfir mig en samt aðallega Á MIG!
Þurfti að vinda úr mér og svo fauk ég af hjólastignum..... góð saga. Já og hefði ég leikið í grínmynd mundi ég hafa mætt með þang á mér og kolkrabba á hausnum. . . en það er önnur saga.

Norræna félagið heldur opið hús laugardaginn 8. maí að Óðinsgötu 7, kl. 14.00-16.00 fyrir áhugasama. . .

Sex and the City í kvöld!!!!!!!!!

6 maí: Wet wet wet- Love is all around me

miðvikudagur, maí 05, 2004

Ef ég fengi að velja mér Groundhog Day þá yrði dagurinn í dag EKKI fyrir valinu!
SLÁTRUN!! plús það læra vonda eðlisfræði, sem er hjá veginum komin á svartalista!!!, í allan dag vitandi þess.. að á morgun endurtekur sig slátrunin!

Þemalag eðlisfræði: Limp bizkit- Break stuff!!!

mánudagur, maí 03, 2004

“Cool it.. lay back in my backyard.. have a banana
- I´m gone, SOLID GONE!”-
Baloo
Jungle Book, teiknimyndin(e.) er óhemju fyndin. . í henni er líka einn besti eltingaleikur kvikmyndasögunnar. . Fílaherinn ”The dawnpatrol!” er snilld!!!

Gróttu-sólarlag í gær. . .kósý; drap nottla aðeins stemningu að fá útskýringu á Gauss-lögmáli í leiðinni, en engu að síður;)
Sáum Ned Kelly – og myndin var svona að semi-virka. . .en ALLT til þess að sleppa frá eðlisfræði, við eðlisfræðin urðum óvinkonur, og hún þarf verulega að fara að hugsa sinn gang ef þetta á að ganga á milli okkar!! Hnuss.

Eurovisionlagið okkar er CATASTROPH!!

Squeeze - Tempted

Og við þetta er að bæta að mér finnst stelpurnar í saumaklúbbnum okkar allar alveg rosalega mannborulegar. :)

laugardagur, maí 01, 2004


Bo Kaspers
Men jag har börjat fundera
det här känns nästan alldeles för bra
Det kommer aldrig fungera
det är så det brukar va

- Hon är så söt

. . . 7 próf eftir. . .
ég held að það sé hægt að búa til myndarlegan regnskóg úr öllum blöðum, bókum og glósum sem eru búin að lýsa yfir sjálfstæði í kjallaranum hjá ömmu.
Í dag er 1. maí og ef ég lít út um gluggann er "Hvítbláinn" þarna stoltur að húni.

. . ég þarf að endurskipuleggja allt; það er komið babb í bátinn . . MENNINGARferðalagið okkar Brynju verður ábyggilega að hausti/vetri til. . . - það er allt komið út um gluggann!

1.maí: Bo Kaspers- Undantag