þriðjudagur, júní 29, 2004


My day off. . .

Fara til Rvk í nokkrar klst, á pallbíl með skrautlegum verum – check!
Það eina sem á dagskránni hjá mér er að fara á almennilegt kaffihús
, klára Da Vinci lykilinn í eitt skipti fyrir öll, - því það eru allir að vinna.
Og kaupa Le Monde.
Í kvöld er svo staffapartý, sponserað af einhverjum öðrum en okkur. . ég asnaðist til að bjóða gestinum ”Mr.Skyr” (sæti Ameríkaninn) í það. . þetta verður. . . eftirminnilegt.
Henti inn e-jum myndum hér og þar.

Húrra, á morgun verður svo aftur brunað til Rvk, því að þá verður sópaður saman hópur af kvenkyns ex-6Y-félögum (enn sá fjöldi!!) á Kaffibrennslunni.
Það er allt orðið rosalega GRÆNT og blómlegt í bænum!!
Það hefur reynst erfiðara en ella að vera á Bifröst ÞETTA sumarið ef litið er til þess að sakna vina í Rvk. . kannski af því að allir eru að fara út og suður í lok þess.

Sjitt, það er að fara að koma júlí!!

“Rare as is true love, true friendship is rarer”
LA FONTAINE

Garbage- Special

sunnudagur, júní 27, 2004


Já. Takk fyrir daginn. Í sameiningu tókst okkur Steinunni að hella kaffibolla (með 96 gráða heitu kaffi í) yfir hendi mína. . en á hinn boginn tókst mér upp á mitt einsdæmi að hella epladjúsnum yfir Steinunni. Okkur var skemmt.

Ég var actually í fríi um daginn!! Hvað er að gerast?!!
Við Suvi og Saga hitchuðum far í Borgarnes eftir að hafa reynt að líta "sympathatic" út á þjóðveginum.. Deep purple-fans tóku okkur að sér. . ´Borgarnes býður upp á bókasafn og grasagarð. Leiðin heim var engu að síður skrautleg; rokrassgat!!! og enginn ætlaði að stoppa. . enda litum við út eins og raðmorðingjar. Snilldargella varð hetja dagsins og keyrði okkur hálfa leið, síðustu spölin rúlluðum við með öðrum Deep purple aðdáendum - Hver átti þessa hugmynd??!!

England-Portúgal. Skemmtilegasti leikur sem ég hef komist í nánd við.. lobbýið pakkað af ÓLÍKUSTU finnanlegu karakterum. . að horfa á boltakalla.
Talað um "samsæri" Dana og Svía..
E-r gestur: "....%#(=&%"!Q&%#/ FOOLISH!!"
e-r: where you from?
Gestur: Italy!
Góð saga. Ekki lesa bloggið mitt. Ég elska þessa engla. Gat ekki varist bros, ekki hætt því reyndar. Sá ekki leikinn. Allir "doing their own thing", en allir á sama stað.
Ég, að hlusta á tónlist, veit hver staðan er, en fylgist samt frekar með fólkinu
Laura.. annars hugar, að sofna
Seb.. að lesa Sjálfstætt fólk á ensku, kíkir á stöðuna
Pekka.. að horfa á leikinn
Suvi.. reynir að fylgjast með
Baldvin.. kemur með e-n fróðleik um fótbolta, ég heyri ekki hvað hann segir
Emil.. stendur sífellt upp
Saga.. ofan í bók
Laurent.. hlusta á tónlist, samt "one of the guys"
Sandra.. horfa á Beckham;)
Bjarney.. að lesa e-ja bók, en reiðubúin að svara spurningum um Grábrók
E-r gestur.. að missa sig yfir stöðu mála, á nálum
Mette.. pírir á skjáinn, ég held að hún þurfi gleraugu
Joanna.. að horfa út um gluggann, ég veit ekkert hvað hun er að hugsa

Mér mikilvægur hlekkur, í keðju minni, er farinn; hann fór til Danmerkur í gær. Harla óbærileg þynnka hérna megin . . treg upprifjun á kvöldinu áður breyttist í lista; í umferð var vodka, passoa, ég held Malibu, bjór, breezerar, sígarettur, hreinn vodki og af hverju fór ég að hrista bailey´s á þjónana.. listinn var ótæmandi, en tæmdist þó vel á gólfið; tryllt sveifla á barnum, fjöldasöngur og ég veit ekki hvað. . Föst í málverki eftir sjálfa mig, way to go að kveðja Emil minn.

Face North eða hvað það nú heitir krakkarnir komu hingað í dag, jöppluðu á grænmeti og voru på peren. Staffið var ánægt að sjá afturendann á þeim krökkum. Þetta lið.

Fallegasti regnbogi sem ég hef augum litið var yfir Bifröst í gærkvöldi; hann var heill og það var annar regnbogi við hliðiná honum. Öskur og læti - skelli inn myndum af lífinu hér þegar ég kemst í það.
Útskýring mín á goðafræði og himinbrúna Bifröst fyrir franskar ömmur var á reiki.

"At my signal - unleash hell"

Góð tilfinning: R.E.M. - Nightswimming

mánudagur, júní 21, 2004


Spennufall. . fyrsta almennilega rushið búið 126 manns í ressanum. . konur frá Belgíu með nýju Visa-kortin sín. Frábært.
. . þemalag okkar Pekka í morgunmatnum var illnauðgað; "Sunday bloody sunday" - eftir "tryllt" Bailey´s Milkshake/barinn/frönsk tónlist-kvöld í gær.

Ég er kannski að fara til Rússlands. . hversu gaman væri það? HVERSU?!

Ég er e-ð ekki ég sjálf þessa stundina. .
. . .Ég vil ekk´i vera svoooona. . . ekki sitja´ og bíða og vona!!
Allavega. Ræðum það síðar.

Fór í bæinn og kom aftur.
17 júní var bara alger snilld - aldrei þessu vant! Við Emil fórumst næstum því úr kulda, í afneitun að drekka bjór í sólinni á Austurvelli. Um kvöldið fórum við Tinna, Brynja, Tobba, Olla og Helgi á Arnarhól í þvílíkum gír - Love Guru á kantinum! Teppi, bjór og svona bómulssykur á priki.

Afmæli Brynju og Bjarka kom og fór - alltaf gaman að sjá gamla pakkið, og við vorum á dansskónum og í dansibuxum. Það ætti að greiða aðgangseyri til að fá að sjá Tinnu Helgadóttur taka "PLÖTUSNÚÐINN"; what I call "golden moments". . love you girls.

Núna er Sandra farin í bæinn, skildi mig eftir, og ég þarf að sofa alein næstu daga í stóra herberginu okkar! Hnuss.

Hugsa um að labba að Selvatni á morgun, með teppi, stóru bókina og litla vasadiskóið. . VasaDISKÓ???? - pæling. .
. . .diskaúrvalið er í minna lagi:
Dido- LIFE FOR RENT

fimmtudagur, júní 17, 2004


Gleðilegan lýðveldisdag!!!
. . . ”hittumst hjá klukkunni á Lækjartorgi!” Helsti hittingsstaður Íslendinga.
Við Emil komum í siðmenninguna í gær. Eftir skemmtilega, lífshættulega en einnig athyglisverða heimför, farandi milli staða á e-ju öðru en bíl (It´s not a car!!). . heldur farartæki, að hluta til blátt að hluta til ryðmassi með gat í gólfinu, límt saman með kennaratyggjó og málningalímbandi – við sáum lífið með öðrum augum eftir þessa heimferð; við vorum enn á lífi.

Síminn minn er annað hvort enn á barnum eða upp á Skakka í Borgarfirði – svo ég verð týnd í Reykjavík

Komnar inn nýjar myndir í afbakaðri röð.

Mig langar rosalega í útilegu.
Ulf Lundell- Öppna landskap

þriðjudagur, júní 15, 2004

Finnskan gengur svoleiðis gríðarlega. . Í dag lærði ég samviskulega:

Kukka on pöydällä = blómið er á borðinu

. . . en er samt búin að tileinka mér setningu sem má nota við öll tækifæri:

En ymmärrä, kiitos kysymästä = Ég skil ekki, en takk fyrir að spyrja.

Bíókvöld - Last Samurai

Vá, ég verð í bænum 17 júní.. hlakka til, ég hef ekki verið í Rvk 17 júní síðastliðin 4 ár!!

Í dag (eða "á morgun") á hún Bjarney 20 ára afmæli - congrats!

Norah Jones - Long way home

sunnudagur, júní 13, 2004


Hvað ER svefn??!!

Timburmenn hafa plantað sér í öll herbergi Skakka. Að minnsta kosti. Dúndrandi hausverkur og raddleysi eftir gærkvöldið fræga. Hreddaball - Stuðmenn; ekki öll sagan sögð. . heldur kom Sebastien í gærkvöldi; þessi elska MISSTI andlitið þar sem hann vissi ekkert um hnattstöðu okkar Suvi og Pekka. SVONA gaman að fá hann aftur, Frakkinn með dreddana, besti gaur til að hanga með og gera bókstaflega ekki neitt!

Speedy gonsales var tekinn í ressanum og "get tha fuck out we want to finnish"-hugskeyti flæddu til gesta. . Lambhúshetturnar gistu niðrí helvíti og strákarnir Atli, Tumi og Hjalti tjölduðu. Í rigningunni.
Þegar ég loks náði að henda fólki út úr salnum, var allt orðið skuggalegt í helvíti - drykkjuleikir og G&T. Svo var partý hjá Gunna hótelstjóra áður en rölt var út í veður og vind.
Ég veit að ég er hræðilegasta manneskja til að segja bless við fólk - en að segja halló, það er e-ð að mér, grenja úr hamingju... það hélt ég að ég mundi ekki gera. Ég er bara ekki að ná því að við erum flest öll saman aftur - fjölskyldan okkar, föst í paradís.
Og svo að fá vini mína flesta og bróður.

Þetta ball. .í alvöru talað VAR SNILLD! SJITT hvað var gaman!!!
Trylltur dans við Mexíkana í rauðri flíspeysu. . staffið og vinir AÐ SLEPPA SÉR! Við Suvi hittum aftur á hann Egil Ólafsson. Á barnum. Ég var að skoða myndir teknar úr minni vél um kvöldið og á ballinu. . þetta er alveg sér! Fólk fór á kostum og sumir meira til!:)
Ég þakka enn og aftur KÆRLEGA fyrir, Lambhúshettur&Atli, Tumi og Hjalti, að koma - ég mun seint og aldrei gleyma þessu.

Ég er ekkert að fara til Finnlands í júlí - ég er að fara á Vog og hitti þar væntanlega allt samstarfsfólk mitt.

Brynja Dís og Bjarki eiga árin tuttugu að telja á morgun (14)!!!! TIL HAMINGJU!!!! :)
Emil kemur á morgun - skrítið hvað það er ALLTAF ástæða til áfengis hér, á hverju kvöldi. . literally.

"I never thought I would say this. .but last summer. .the best three months of my life - and I mean this."
- Seb

R.E.M. - Orange crush

Memo to myself: ekki blanda saman Grand Mariner&vodka

fimmtudagur, júní 10, 2004

Athugasemd og tilkynning og allt í senn:
Ég er ROSALEGA spennt að fá Lambhúshetturnar (og meðfylgjandi fólk) hingað til mín á laugardaginn - hlakka óheyrilega til :)
Má ekki vera að þessu; þarf að brjóta servéttur í "thing" - Later!

miðvikudagur, júní 09, 2004

"Did you know that bears only make love once a year. . and then they do like all night long. ."

- bjarnarupplýsingaskrifstofaq

Alanis Morisette - Ironic

Allir heilbrigðir - flaskan er tóm.
Ég ætla að reyna að leggjast í Harry Potter í sumar, í dag veit eg ekki hver Harry Potter er.
kveðjur á mölinni.

þriðjudagur, júní 08, 2004

Halló! halló! halló! á ekk´að hleypa inn?!
Við erum að tala um ball ársins 2004 hérna á laugardaginn. . ég held að það sé alveg á tæru.

Fallegur morgunn hér í Borgarfirðinum, við Pekka vorum að klára morgunmatarvakt eftir þriggja tíma svefn... haldiði ekki að það hafi ekki bara verið tekinn Hot n´Sweet á þetta í gærkvöldi? Þegar rúmmál bjórs fór að minnka í glösum fóru einstaklingar að deila of miklu. . - staðurinn er að breytast í verstu sápuóperu!!

En jú mikið rétt, Pekka og Suvi eru komin. . eftir mikið laumuspil - þar sem ég þurfti bjargarlaus að sitja á þeim upplýsingum í meira en mánuð!! kv.ósátt en MJÖG ánægð:)

Húrra! Norræna vinnueftirlitið er farið! eftir að hafa verið hér á loðinni ráðstefnu í of langan tíma og takandi of margar kaffipásur.

Morgundagurinn verður CATASTROPHE! RÚV verður hér að ráðstefnast - fínt orð yfir FYLLERÍ! án alls efa.

"PERKELE GUNVASUTTA!" = djöfullinn er ég þreytt!

Stuðmenn - ofboðslega frægur

miðvikudagur, júní 02, 2004

Ég veit náttúrulega EKKERT hvað ég er að gera í lífinu. . . upp í sveit með klikkuðu liði - og með flugmiða AÐRA LEIÐINA til Helsinki í vasanum; ég hélt að ég væri í tjóninu síðasta sumar en þetta fer versnandi. . .
Svona er þetta - stökkva út í sundlaug og drukkna bara.

Fór og hitti elskulega fossinn minn, Glanna, áðan. . fann týndu eldhúsborðin okkar; þau voru í Paradísarlaut.
ELDFIMAR stjórnmálaumræður yfir hrísgrjónagrautnum sem Frakkinn "Lolo" eða "Loco" leit hornauga á; Það var hægt að SKERA loftið! Athyglisverðir karakterar hér á ferð.

Aðalhitamál sumarsins verður að komast að því hvort Baldvin, uppvaskarinn, sé samkynhneigður eða ekki. . Staðan eins og hún er í dag:
Fyrsta daginn sagði hann að hann væri það 5x + er mjög kvenlegur + er kvenlegur að eigin sögn + kom með nokkrara teg.af rakspíra + á nafnspjaldi hans stendur "Baldvin gayman" VS. hann er alltaf að gefa stelpum undir fótinn + Er mikið fyrir bjórinn + segist segja vera samkynhneigður til að ná í stelpur.
Þetta er erfitt.

Harry Nilsson - Coconut