Stugan är som frugan.Pant ekki taka til í húsinu mínu..
Myndin sýnir ráðhúsið í Antwerpen, ég sötraði kaffi þar fyrir utan og íslenski fáninn er efst uppi til hægri, tveimur fánum frá Noregi.
Ég er nýkomin aftur til Helsingborg eftir frábæra ferð til Antwerpen; mér finnst þetta bara æðisleg borg og þá sérstaklega bara stemningin og lífið..hitti fullt fullt af fólki og á föstudeginum byrjuðum við Malla og Meintje á e-ri búllunni sem selur um 100 tegundir af bjór.. við völdum asnalegustu nöfnin af listanum (flierefluiter..eða e-ð svoleiðis)og svo auðvitað Duvel, þegar líða tók á kvöldið smökkuðu allir bjórarnir eins og hurfu sporlaust.. jesus ég er þess minnig að við höfum farið með bjórdós í hönd inn í redlight district og heilsað upp á fljóðin dansandi í gluggunum. Dagarnir liðu svo hratt...svo gaman að hitta aftur Liesbet og Lieve sem bjuggu með okkur í Finnlandi.
Þessa dagana liggjum við, ég og minn 6 manna hópur í skólanum, í því að skrifa 10 bls rapport um servicekúltúr á
McDonalds!! Þetta er mjög áhugavert:)
Hei! Ég fékk út úr mínu fyrsta sænska prófi í dag! EISAÐI ÞAÐ!! Mikið er það gaman fyrir ykkur að lesa.
Hafið þið e-t spilað billiard og ekki fengið niður eina einust kúlu í meira en klukkutíma? Ekki einu sinni óvart! Það gerði ég í gær. Það er huge underground poolstofa hliðiná húsinu mínu.