jaherna en sá dagur..
burr ég ætti að vera að lesa um heilsuástandið í heiminum(
Global folkhälsa) en ég er ekki að því. Ég er með hugann allt allt annars staðar.. hann er allur í
París. Kom heim í gær aftur.. Verður alltaf betra og betra. 5 klst í rútu frá Antwerpen til Parísar!! Ég hef gengið í gegnum verra.

Á einum degi sérð þú ekki alla París en okkur tókst það næstum því með því að taka 50 metro að
Sacré Cæur á Montmartre .. erum við ekki að grínast með útsýnið! WAUW!
Fyrir framan
Notre Dame labbaði gömul jazzvinkona mín, Emeline, á okkur..!! Engin tilviljun það enda hafði Malla upplýst hana um komu okkar (án þess að ég vissi!).. Sjitt hvað var gaman að sjá hana aftur:) Oh æðisleg borg, ég er alveg ástfangin..
Pompidou er ein svalasta bygging til! Við litum líka inn á kaffihús
Amélie Poulain..
Antwerpen var líka æðisleg as ever og er ég ástfangin af litlu djasskaffihúsi,
De Muze. Á laugardeginum lentum við Malla á djammi með þeim Gudrun, Meintje og Marian. Rulluðum inn á bæjarkrá í smábænum Beerse.. á djamminu with the locals.
Kem heim eftir 2 vikur!!
...and back to the books.
Lag dagsins1: Yann Tiersen - La valse des monstres Lag dagsins2: Infernal - From Paris to Berlin