fimmtudagur, mars 30, 2006



Fyrst maður er nú einu sinni kominn í gírinn! Hún er svo mikið æði!!!! Þegar þetta hljómar á skemmtistöðunum sleppir lýðurinn sér:)

Kíkið á snillinginn!!!

Lena Philipsson - Det gör ont
One-Liners

Ég sá alveg gæðamynd í gær...Catwomen! Ég var alveg hissa á því að Kata Skvís hafi ekki setið með okkur í sofanum, svo góð var myndin;) Hún er troðfull af sprenghlægilegum one-liners:

"time to accsessorize!"
"I´ll have a White Russian..Hold the ice, hold the vodka and hold the kahlúa"
og uppáhaldið mitt með Halle Berry:
"Miiiiiiijjjááááááá!!!!"

Eigið þið ykkur e-n uppáhalds movie one-liner?

Ég var að byrja í nýjum kúrsi, Hospitality Management. Á morgun eigum við Sandra og María úr bekknum að eyða u.þ.b. 3-4 klst í e-u hótellobbýi. Skrá niður og lýsa umhverfinu í minnstu smáatriði (lýsingu, lykt, hljóð o.fl.) og fylgjast með starfsfólki sem gestum - field research!

Tori Amos - A sorta fairytale

föstudagur, mars 24, 2006


OH hjálp!! Komumst við áfram???
Mér finnst þetta smá fyndið samt, betra á ensku:)

Tékkið á myndbandið m/Silvíu Nótt

What do you think about the video?...

fimmtudagur, mars 23, 2006

BHAAAAA........ Ég datt inn í fyrst seríu af The OC og ég er að grenja úr mér augun!!! Anna fór aftur til Pittsburg og Seth skilinn eftir.. þetta er bara the sadest moment!!! Bhaaaaaaa ég trúi þessu ekki!


Jíha! Sólin er farin að skína allverulega og allir sitja úti með ís í hönd:) ritgerðin okkar var víst ekki jafn hræðileg og við vonuðumst eftir. Í kvöld: Cowboy-partý(?????) á Hotel Anglais! Welcome!

Nancy Sinatra - These boots are gonna walk all over you

mánudagur, mars 20, 2006

Jáh..ég var að leika við templatið eftir ekkert of æðislegan dag! Brynja og Dóra flugu heim í dag eftir þrusugóða heimsókn, takk stelpur mínar!:)
..og skólinn byrjaði aftur af e-ri alvöru. Við Nina og Anjelica byrjuðum daginn á því að skila inn vægast sagt hræðilegri ritgerð eftir algert klúður og fór dagurinn bara niður á leið eftir það. EN! Á morgun er nýr dagur!

Fugl á lestarstöðinni beit í buxur.. svangur eflaust þar sem enginn þorir að gefa þeim lengur?

Carola fer í Eurovision fyrir hönd Svía! :)

Carola - Fångad av en stormvind!

miðvikudagur, mars 15, 2006

"I fell in love with San Pedro
Warm wind carried on the sea, he called to me
Te dijo te amo
I prayed that the days would last
They went so fast"


Copenhagen á morgun!!! Wuhu!!!:)
Á morgun verð ég í Köben með þessum vitleysingum
Ég held að þær ætli að fara hamförum á Strikinu ef ég þekki þær rétt... and I think I do.
"Shop til you drop" verður setning morgundagsins.

Madonna - La Isla Bonita

sunnudagur, mars 12, 2006

Stjörnuspá sunnudags..
LIBRA: 24/9-23/10 Söndagen blir romantisk men det finns också ett utrymme för sport och motion, allra helst utomhus. Aktiv dag.

óNEI..minn sunnudagur er sko eins og hann var skapaður til að vera: með þynnku eftir laugardagskvöldið og slæpast á kaffihúsi með stóran bolla kaffi og Cosmopolitanblað. Seinna felur sunnudagurinn í sér að gera ekki neitt og kíkja á vídjó með Koffa housemate.

Í gær fór ég að vinna á barnum á Lunds Nation(e.k. stúdentaklúbbur) . Ég kynntist föngulegum hóp af fólki. Fyrst var sk Sittning, stúdentar koma saman og borða fansí mat (eldaður af öðrum stúdentum), drekka mikið og mikið og góla drykkjusöngva langt fram eftir nóttu..Kvöldið stefndi strax í rugl þegar meirihluti fólksins var orðinn SÓTölvaður áður en eftirrétturinn var borinn fram..síðan voru borðin tekin frá og 500manna skemmtistaður varð úr! Það var brjálað gaman að komast aftur á bak við barinn! Dansgólfið varð hinn sóðalegasti "MEATMARKET" og ég held að enginn af markaðnum hafi farið einn heim.

Pink - Stupid Girl

fimmtudagur, mars 09, 2006

Skattskýslutími! Jeeej! mín lítur út svona:

"......Verotuksessa mahdollisesti tapahtuneita virheitä voitte pyytää oikaistavaksi välittömästi. Vapaamuotoisen oikaisupyynön voitte tehdä suullisesti tai kirjallisesti......."

ég þarf hjálp.

Etta James - At Last

miðvikudagur, mars 08, 2006

Lag kvöldsins: Madonna - Sorry

sunnudagur, mars 05, 2006

Herregud það snjóar og snjóar og snjóar það er grínlaust búið að snjóa og snjóa STANSLAUST(og grínlaust) allan tímann alla daga í 10 daga..Fullkominn jólasnjór í mars! og skítakuldi! Við Marlous fórum aðeins á djammið í Malmö í gærkvöld og ég hélt í alvörunni að ég ætlaði að deyja úr kulda..Djammið í frystikistunni stoppaði ekki fólk í trylltri sveiflu!
Þegar e-r talar um veðrið vill maður segja e-ð allt annað eða hefur maður ekkert að segja.
Ég hef þrætt ótal kaffihús hér í Lundi sem er ekki í frásögu færandi þar sem þið vitið ekkert hvað Ebbas skafferi er og getið þar af leiðandi ekki skilið að eplakakan og kaffið á þeirri búllu er bókstaflega lífsfórnarvirði....M, m, m OG M!.......

Kaffi dagsins: Zoéga´s