föstudagur, júlí 18, 2003

Ég veit ekki hvernig þetta er þarna í siðmenningunni. . . en hér er búin að vera HITABYLGJA!! Um daginn voru 36 gráður í sólinni! Ágætt að geta skroppið til Iceland (2 gráður), Greenland (4 gráður), Jódlands(6 gráður). . og í þessum hita. . Finland ( -20 gráður). . þetta eru sem sagt kælarnir og frystirinn. . skírðum þá. .hmm. .Um kvöldið kólnaði heldur þó svo við grilluðum banana undir teppi. . smakkaði slíkt í fyrsta skipti og það var bara ekkert verri. .

Hver haldiði að hafi ekki komið að borða samloku á litla uppsetta kaffihúsinu okkar á veröndinni í dag. . jú það er satt. . Jón Celeb Ársæll! og þar að auki ber að ofan. . já við erum heppin

Road Trip!!!! Já, í gær var svo sannarlega tekið road trip. Við Saga ætluðum að vakna snemma og taka Snæfellsnesið á jeppanum, buðum Gulla með snemma . . en hann afþakkaði og sagðist ætla til Rvk. . leggjum í hann!!. . næstum komnar að Borgarnesi. . *hringing* "Hva! Fóruði án mín!!!???!". . þrátt fyrir galla Gulla. . þá snerum við við. . leggjum í hann!! Sólin skein, hiti, nátturufegurð. . kommon! þetta var allt svo fallegt!. .!! eftir að utvarpið át geisladiskinn. .heilsuðum við upp á gömul sveitahjón á bæ nokkrum til að ath. hvort þau ættu ekki flísatöng til að ná CDasna út. . bændur og hundar voru hressir og átti ég gott spjall við húsfreyjuna um þurrkinn sem þau hafa þurft að þola á nesinu. . - ekki náðist að redda útvarpinu og myndaðist út frá því einkar furðuleg stemmning í bifreiðinni. . ólíkir karakterar og furðulegustu samræður. . .- sungið annað slagið og hlegið eins og galið. Við skoðuðum fjöll og slíkt. . Arnarstapa, Búðir, Djúpalón (fallegt!!) og bæi sem fólk veit ekki einu sinni að séu til. . Hellisandur, Ólafsvík og Rif þar sem planið var að heimsækja frænku hennar Sögu. Ef e-r er að leita að ÖLLUM Kríum sem til eru í heiminum. . look no more. . .þær eru ALLAR á Rifi. . Á bakaleið var stoppað við foss e-n og fengum við öll close look þar sem heljarinnar vatnsslagur átti sér stað. . hegðun Gulla kom öllum í opna. . það var ekki þurr fatarflík á neinum á heimleiðinni og voru myndir teknar af blautbolskeppninni af konu lítilli. MÖGNUÐ ferð eftir allt saman og verður næsta road trip eflaust að þessu blessaða Hvanneyri. .

Jæja, loksins fór maður alveg Jafnaskarðið. . fylgt læknum í "gljúfrinu", fallegt. . endaði á e-ju engi. . sofnaði í klst á enginu, þvílík þreyta!!! Kameran alveg að gera sitt. . maður er farinn að gleyma svo miklu úr jarðfræðinni 3. bekk, leiðinlegt.
Átti frábært langt spjall við mömmu um daginn. . elska hana, skilur (flest)

Ökunámsbókin verður að bíða. .Um þessar mundir er það "The adventures of Huckleberry Finn" - Mark Twain. þakið, þakið. .

mánudagur, júlí 14, 2003

"You have to meet this guy, the lead singer, he is the Sean Connery of Iceland. . ." - já. . ég minnist þess nokkurn veginn að hafa sagt þetta. . . .
Þvílík endalaus vitleysa!!!
Hérna heima eru margir sammála um að ball aldarinnar hafi bara skotist hér upp fyrir skömmu. .
Við ÆTLUÐUM að klára snemma!. . dekkuðum upp f. morgunmat þó að eftirlegukindur sætu á næsta borði. . Á meðan við lögðum lokahönd á sal og uppvask ætlaði Pekka kallinn að blanda stelpudrykki. . rólegur á vodkanu! drukkið í grænum í eldhúsi. Atli, Tumi, Hjalti og Arnþór komu inn úr rigningunni sem þeir bæðevei tóku með sér!! og skelltu sér með okkur í partý með "Village-people-i" til Lilju í Steinkotinu. . . þar byrjaði snilldin eina, drukkið það sem hendi var næst. . ég held að ég hafi drukkið kaffi sem bland út í e-ð ef ég man rétt. . Atli og Tumi mingluðu strax við innfædda!, snilld. Ég veit ekki hvað við drukkum en strax þá vorum við Suvi orðnar ískyggilega!! Við Sebastian tókum afganginn af djúpa samtalinu okkar síðan úr síðasta partýi og gaman að líta yfir þessa engla af fólki. . E-ð blackout. . en rölt upp að Hreðavatnsskála. . svo vorum við Suvi allt í einu búnar að henda drasli í fatahengi. . munum ekki hver gerði það og vorum ekki með miða. .- stefnan tekin að dansgólfinu þar sem allir misstu sig!!!!! Sungið með mönnum og allir í stuði - "komdu sæll og blessaður!", "Sísí" og öll þau. . og ef það var ekki bara ég en ég held að þeir hafi tekið "Halló! Halló!" Halló!" þrisvar sinnum. . og útlendingarnir voru fljótir að ná textanum. . mesta snilld!!!!! Kvöldinu var eytt á gólfinu þar sem allir eyddu allri orku í dans. . en þó er í minni að hafa farið að barnum í hléi, við ætluðum að panta hvítan rússa en barkonan kom eins og álfur svo tequila á línuna, ég höndlaði það ekki. . og var línan því Atli og Suvi. . hver var ekki á barnum nema Egill sjálfur Ólafsson. . og smelltum við báðar einn á hann. .guð minn alm . .já, allavega . . . dansað eins og brjálætt væri. . vatnsslagur víst milli Pekka og Gulla á barnum. . pakkaður staðurinn!
Að balli loknu reyndi fólk að rusla sjálfu sér heim. . sumir enduðu víst uppi á Grábrók. . veit ekki meira um það?! Ógleymanlegt!! (fyrir utan einstaka blackout. .)

- Næsta morgun. Ég vaknaði algjörlega raddlaus!!!Það kom ekki orð! og ég veit ei af hverju en vaknaði kl. 9. . Pekka og Birgitta, morgunmatarvaktir, sváfu bæði yfir sig, bæði ennþá hálffull. .vakin með vatni!! Fólk tíndist niður af Skakka og skiptist á vitneskju um það sem fram fór kvöldið áður. .
Í vinnunni byrjuðu og enduðu flestar setningar með " we are in so much trouble!", "shit. .", "I´m feeling soooo bad. .", "o my god. .". . við vorum með yfirbókun á hótelinu!! Aldrei verið jafnmikið að gera. . hand steady as a rock my ass. . Guði sé lof að fólkið sem varð að bíða var sænskt (easy to please), ég var að fá hjartaáfall í ala carte, og stelpurnar í hópunum líka. . djöfull er ég samt stolt af mér, maður er bara að "massa" þýskuna!! slepptum kvöldmat, lifðum á morgunmat. . og þegar kvöldið var loks á enda var orkan engin . .
Er með Day off í dag, ekki átt í langan tíma!! short á staffi. get samt ekki sofið. - fólk í tómu rugli!
Ef það verður gott veður í dag. . ætli maður fari ekki í langan göngutúr, måske Selvatn, lesa bók og taka því nú einu sinni rólega. . . svo er BBQ- stafffapartý í kvöld. .
Við leigðum Catch me if you can í Borgarnesi um daginn, mögnuð mynd!

föstudagur, júlí 11, 2003

"Who will be the SURVIVOR??!!". . . Við erum farnar að búa til okkar eigin þátt í veitingasalnum, Fosshótel Bifröst.
Challange 1. : "Útskýrðu fyrir 100 Ítali sem skilja aðeins ítölsku, að kaffivélin fór allt í einu að kólna og það tekur smástund fyrir hana að hitna upp aftur. .(frjálst að nota "bodylanguage)" - Good luck with that!
Challange 2. : "Leystu úr flækju þegar grilljón Þjóðverjar koma eins og þruma úr heiðskíru og heimta morgunmat og "BESTICK!!" og þú ert ekki með laus borð. . (frjálst að fá taugaáfall inni í sal)" - Have a nice one!
Morgunmaturinn í morgun var CATASTROF! aldrei! HEF ÉG SÉÐ JAFMIKIÐ AF FÓLKI!. . . .Eldhúsið var eins og lent í miðjum hurricane! Leirtau sett þar sem auður blettur var!! í öllum hillum og skúffum. . vantaði allt á morgunverðarbuffetið, við vorum bara þrjú. . - þú hefðir bara átt að vera á staðnum. . Hamingjan eina. .

Annars er hvað ball á morgun. Stuðmenn!
- Nenniði að finna ágæta enska þýðingu á orðinu "Stuð"????
Þvottahús-Lilja er að plana að fara með staffið í e-ja hestaferð¨verður líklegast e-r miðnæturferð svo sem flestir komast. .jej. . ég hef ekki séð hest! síðan 16 ára á Hrauni
Jæja, ég held að Jónas Heiðar næturvörður haldi að ég sé alveg búin að ganga frá því. . .en ekki meir um það. . í gær voru allir vægast búnir að ganga frá því. . - yfirbókun&því sem fylgir,- 36, metið okkar í ala carte, tvídekkningar, bið, bar & vesen, drukknar ömmur, sextugir Ítalir að reyna við þjónustufólk, kviknaði í servéttu og næstum einum Ítala. . þreytan á fólki hérna er samt farin að segja til sín



Ég er víst komin með heimasíma. . hann er 00-354-435-0051 , leggið hann endilega á minnið!!

miðvikudagur, júlí 09, 2003

Vá! Hvað þessi dagur er búinn að vera e-ð endalaus!. . var í morgunmat frá 06.30 til 10. . Brian skuttlaði okkur Suvi í Borgarnes og fór svo e-rt sightseeing, komast aðeins frá. . – í Borgarnesi. . “the city” fórum við í “mollið” og eyddum klst inni í hverri verslun. . alveg báðar! Stoppað vel lengi í ríkinu. . velja e-ð sull í kokteila fyrir laugard. Síðan var loks málið að komast heim, áttum að vinna kl. 4. . náðum að fara á puttanum með e-jum Hill-Billy kalli, bíllinn að detta í sundur, hey í aftursætinu og allur pakkinn. . – kom svo í ljós að hann var að fara á golfvöllinn. . e-ja 10 metra frá staðnum sem hann pikkaði okkur upp. . svo við vorum staddar “in middle of nowhere” . . fengum svo far með yndislegu fólki sem var líka á leiðinni að Bifröst ( komu svo á barinn um kvöldið að “djamma”). Svo vorum við að drepast í vinnunni. . . vorum með öll einkennin. .
Marie, franska stelpan hérna, algjör demantur, hún á afmæli í dag!

Rölti upp að Selvatni um daginn, sólskin&blíða, ævintýraþráin sem flestir eru illa haldnir af hér. ., bókin “Tales of Edgar Allan Poe” draugasagan um “The Black cat”. . hjálp!. . en gerist lífið betra? Held ekki. Fór líka í Jafnaskarðsskóg! The creeps. .

Ég er farin að kunna heilu setningarnar á finnsku, held næstum uppi samræðum. .Hmm. . .eða þannig séð furðulegum samræðum. . en SNILLD að kunna e-ð í þessu skrítna tungumáli. .
M.a.
“Missä on linja auto-asema?” = “Hvar er strætóstöðin?”
“Missä on Juna-asema?” = “Hvar er lestarstöðin?”
“Olet omituinen!” = “Þú ert skrýtin!”
“Perseet olalle” = “Let´s drink!”
“Ei! Minä olen kännissa!” = “ Nei! Ég er full!”
“Häivy! Mä vihaan sua!” = “Farðu! Ég hata þig!”
“Omituista” = “skrýtið. . .”
“Minä olen tyttö” = “ég er stelpa”
“Moikka! Mikä sinun nimesi on?” = “Hæ! Hvað heitiru?”

sunnudagur, júlí 06, 2003

"Hvað er það helduru sem mun breyta lífi þínu?" . . .hver getur svarað þessu? Svörin geta verið allt og ekkert. . . fólk sem þú hittir, bækur sem þú lest, staðir sem þú sækir heim. . .Hvað vilt þú? . . erill enginn, friður og n.k. sjálfstæði, met það mikils - Er það e-ð sem heitir að velja ekki réttu leiðina? rétt leið? Er maður bara að þykjast. .
. . . fólk er að verða svo "fullorðið".
Er maður sami krakkinn í eplatrénu og í æsku . . .
Hugsanir hellast yfir, dagdraumar banka.

laugardagur, júlí 05, 2003

Klukkan að ganga 5, hresst fólk á sveimi!
Gott kvöld (heldur langt þó) að enda. . fjármálaráðuneyti skellti upp balli eftir mat og var maður að kokteilast án kokteilanna á barnum til 4. .heldur frekar auðveldari pantanir á borð við rummið, vodkið, gumminn, irish coffee, bailey´s, campari, whisky, koníak o.fl. en engu að síður gaman - snobb-fólkið var í ruglinu!!!! Tvistað við Gipsy King og guð má vita. . .

Loksins fékk ég Svíann minn í a la carte, langt spjall, feitt tips.

Skemmtileg hefð hefur myndast í vinnunni, maður er að finna gula Post it- miða á furðulegustu stöðum með "Dear diary. ." skilaboðum með RUGLI! sem ganga á milli okkar Suvi - æðislegt að þurfa aldrei að nota fake/uppgerðar- bros til gestanna inni í sal :)

Á morgun verður dottið´íða ( "fallen in to it") eftir massa törn.

"Mina olen dordella unínen" = "ég er mjög þreytt"

Góða nótt!

föstudagur, júlí 04, 2003

Halló! Halló! Halló! . . . á ekki að hleypa inn?

Þetta verður víst rosa sveitaball. . allt "Village people-ið" er að fara og rútur utan af landi. .

Er hérna í lobbýi eftir 15 klst vinnudag. .arrg.. "Skatman" er á svæðinu. . Ráðstefna fjármálaráðuneytis og ríkisskattstjóra

- Suvi honny á afmæli í dag, 23 ára, og hefur átt í þrjá daga. . kaka 1 júlí því mikið að gera núna. Í gær rétt eftir 12. . heyrðist bara: "Tefðu hana, taktu hana út í þvottahús! e-ð! ". . Saga tafði og ég bjó til müsli og stóra glasið af appelsínudjús (og auðvitað brauð með öllu) ( þekkjum hvor aðra OF vel! ). .á bakka með kerti - sungið á íslensku, tár. Farið upp á þak að sjá e.k. hlut af sólsetri. . - gestir furðulostnir - ekki á hverjum degi sem maður sér þrjú græn vesti uppi á hótelþaki.
Við Suvi reyndum fyrir okkur í "housekeeping" um daginn. . byrjuðum með "Hvernig þrífa skal herbergi- lista for dummies" , þrifátfittið var snilldin ein. .enda hvert andartak myndað. . litla svuntan, útvarpið milli herbergja, hanskarnir, nafnspjaldið og tuskan ("offwiper") - Það að þrífa hefur aldrei verið jafnskemmtilegt, enduðum með doktorsgráðu í þrifum og meðhöndlun fyrstu ryksugu ever made. .

Alveg einstakt að fara niður að Glanna ("Daredevil") að morgni dags, við erum víst fleiri sem sitjum alltaf á sama steini. . - tónlist í Walkman, alltaf sama Krían í bjarginu, laxar á hoppinu, friður og frelsi . . . .

Átti gott spjall við Álfdísi í gær, sem er að vinna á Laugum. . möguleikarnir endalausir, stórir draumar, heimurinn handan hornsins

þriðjudagur, júlí 01, 2003

“DON´T PUT UNPOLISHED KNIVES & SHIT IN THE BOXES!!“. . hversu erfitt?
- Við Suvi erum orðnar eins konar mömmur hérna. . og erum orðnar þreyttar á því. . enginn tekur til eftir sig á staffaborðinu! Við þurfum undantekningalaust að gera það á kvöldin.. en í gær var mælirinn fullur. . við vorum á barmi þess að fá báðar alvarlegt “snappstig” á snapplistann inni í eldhúsi. . eins er þetta með “the cutlery” – ENGINN virðir skiltin okkar. . skilaboðin eru skýr á bæði íslensku og ensku. . við erum alvarlega að spá í að bæta þýsku, frönsku, sænsku og spænsku við. .

Það getur svo sannarlega hitnað í kolunum inni í eldhúsinu. . Kokkarnir eru þeir sallarólegustu sem ég hef kynnst. . frábærir - það er nánast fyndið þegar það er svona brjálað að gera, eins og síðustu daga, hundrað og e-ð manns inni. .ef við erum óheppnar (eila alltaf) eru þetta allt Frakkar sem NEITA gjörsamlega að REYNA að skilja ensku!! . . Bodylanguage er aðaltungumálið hvað þá varðar . .þjónar í stresskasti! Keyrsla, . . við komum inn í eldhús. .þeir :” rólegar elskurnar. . hvað liggur á?” HVAÐ LIGGUR Á?? Kaffivélin biluð, brauðið frosið, engir klakar, smjörvandamál, fólk í hópum eru allt í einu grænmetisætur, enginn skilur ensku. . “Lít ég út fyrir að geta talað ítölsku???!”, fokk! Og það er eins og fólk haldi að þjónarnir eru þeir sem eru að elda matinn. . ef þau eru kannski búin að bíða í smá stund og líta svo á okkur, sem erum að gera e-ð annað (en vitum að kokkarnir eru að elda) þá verða þeir kannski súrir á svipinn af því að við erum ekki inni í eldhúsi að elda eða e-ð! jájá!! Bara með lambafillet og gratíneraðan sjávarrétt í vasanum eða !??
Það myndaðist ský inni eldhúsi eftir morgunmat í gær þegar við Pekka vorum að sjóða “Tea-water for the British ladies, thank you” því kaffivélin kolappsaði. . þegar við komum að pottinum í þokunni aftur var ekkert vatn í pottinum, gas/bruna lyktin maður!

Vorum með BÍÓ-kvöld, skellt upp skjávarpa, popp&pepsi inni í sal, alveg dýrlegt, undir teppi í fyrsta flokks bíói.

Fór upp á þak í morgun að lesa Napóleons skjölin, spennó, búin með 101 Rvk(ekki mjög góð) Hvað á að lesa næst? Ökunámsbókina kannski?

laugardagur, júní 28, 2003

Klukkan er rétt rúmlega 4. . fallegur morgunn. . gat bara ekki sofið meir. . ég er með e-ð drasl í hálsinum, fékk martröð í 2 tíma og ákvað bara að fara niður. . - heyri í næturverðinum vera að rusla í morgunmat - við Pekka, Jón og Suvi förum að vesenast eftir tæplega 2 tíma. Hver er að hlusta á Bryan Adams? - Fyrir utan gluggann sé ég lítið bleikt saklaust þríhjól. E-r er nýbúinn að slá blettinn á hringtorginu.

Blanka logn
fiðrildið getur verið sinn eiginn flugstjóri
Fréttablað morgundagsins er löngu komið.
Teppahrúgan myndar eins konar faðm utan um litlu sálina, lífið gerist varla betra.
Fjallstindar eru færir.

- Drífa Ísleifsdóttir


fimmtudagur, júní 26, 2003

“Mina olen selva” = “ég er edrú”. . já alltaf er maður að læra e-ð nýtt. . þú getur í raun bara sagt E-Ð . .Hvað sem er! Þýðir e-ð. .
Fróðlegt að læra um menningu þessara landa. . T.d. Furðulegt skólakerfi í Frakklandi. .þar sem kennarar OG NEMENDUR skiptast á að fara í verkfall!! Farin að vita hitt og þetta um Rússland líka. .

Eina mínútuna ertu í bænum á Kaffi Vín að ræða þörunga- og sameindalíffræði við róna með Brynju – þá næstu ertu uppi á Hraunnefsöxl, fór í 6 tíma fjallgöngu, yndislegt. . sat á klettatoppnum í hálftíma, múzik, MASSÍFT útsýni!! Allur Norðurárdalur, og hugur víðsfjarri – hlakka svo til að klára MR. . – gera e-ð annað, hvað sem það verður. . .ég hef átt í verulegum samræðum. .hvað skiptir máli. .?

Vinnan er búin að vera talsverð og þar að auki búum við í vinnunni en rosa ánægð. Fólk er alveg að missa sig í þessu fjölskyldulífi. .
Í fyrradag kom 40manna VIP hópur úr Rvk og ekkert mátti fara úrskeiðis. . þau eiga eftir að skrifa e-ð um staðinn og . . Við Brian skelltum okkur í tourguide-gallann og tókum á móti hópnum að Glanna, buðum þeim upp á ÍSkaldan bjór með útsýninu. . og ég þurfti að læra bækling um svæðið utanað á 10 mín. . eftir að hafa guidast þar var farið að keyra á þau 4 rétti, allt þurfti að vera fullkomlega fagmannlegt og smjaðursmjettið! Til allra hamingju fór allt rosalega vel og hópurinn var voða ánægður :)
Í gær fórum við Saga, Seb, Suvi og Sandra í Borgarnes “downtown” – skoðuðum Bjössaróló, Brákarsund og fórum á Héraðsbókasafnið. . tókum m.a. “Tales of Edgar Allan Poe” – draugasögur o.fl. ætlum að vera með upplesningu, kerti og scary í kvöld.

Vaknað í morgun kl.8. . spurning: Vorum við að dansa afródansa uppi á borðum í ressanum í nótt? Voru allir OFURölvi! í nótt? Vorum við að syngja Alanis Morisette uppi á sviði í nótt? Já, já og því miður aftur já. . Ég er ansi hrædd um að staffið hafi drukkið allt hótelið í gærkvöld. .Gítarinn tekinn upp. .ég er bara að furða mig á að enginn gestur hafi bara farið að kvarta. . – Við Suvi skelltum í Hot n´Sweet sem við ætluðum að eiga saman allt sumarið. . um 4 leytið var einn dropi fyrir júlí og einn dropi fyrir ágúst. . – Spænskir drykkjuleikir eru ekkert sniðugir. . – Jón snillingur var ennþá drukkinn í morgunmatnum. . eftirminnilegt djamm:)

Bjarki bara að fara til Danmerkur að elda staffamat í Legolandi! Snilld. Góða ferð!

laugardagur, júní 21, 2003

Góðan og blessaðan daginn. .
Dagskrá dagsins í dag er að gera njet.
Síðustu daga hefur verið bilun en ekki síður snilld. Í fyrradag voru 160-200 manns hérna á hótelinu, háskólar voru með ráðstefnu. . Hótelið ekki nógu stórt svo við leigðum Kaffihúsið á Bifröst undir HR um 60 manns. Við Suvi sáum algjörlega um þann hóp 24/2. .Þvílíkt rugl. .og bilun að við vissum hvorki upp né niður hvaða dagur var ,báðar á barmi taugaáfalls. . vaknað um morgun 19. gera allt tilbúið vorum á hlaupunum allan fokking daginn . .um kvöldið. .CATASTROFA. .hópur strax um 6 leytið og ég held að ég hafi þurft 8 hendur á barnum, alkar!! og inni í ressanum voru um 100 manns! Keyrt var á hópinn forrétt/aðalrétt/eftirrétt og þau pöntuðu endalaust mikið af áfengi, rosa stemning á honum, tóku upp gítarinn og sungu, ræður og allur pakkinn. . – síðan heimsendir á barnum sem við höfðum sett upp. .nokkuð fyndið að fylgjast með fólki. . í byrjun kvölds. .”einfaldur gin í tonic”. . fór að líða á kvöldið. . “höfum hann tvöfaldann!”. . korteri seinna . . “Tripple gin í tonic, engan klaka!”. . hálftíma seinna. . “Ég ætla að fá áfengi!” . . yndislegt fólk! ..ég veit ekki hve mörg kort ég straujaði þetta kvöldið. . þegar bytturnar fóru að tínast upp á herbergi (fundur kl.9) höfðum við Suvi unnið að ganga 16 klst., við eigum okkur alltaf “müsli-time” á furðulegustu tímum, maður veit ekki hvað klukkan er hérna né hvaða dagur er. .en vá hvað þetta kvöld var skemmtilegt, adrenalínið- sváfum 2 og hálfan tíma (dreymdum báðar að við værum að vinna, spyrja hvor aðra út í kaffibolla??!) vöknuðum 5.45 í gær. . morgunmatur gaman að sjá aftur fólkið sem var að rugla í manni blindfullt á barnum kvöldið áður. . svo inni á hóteli . .KAOS!. . inni í sal var OF mikið af fólki. .kaffivélin bilaði á tímapunkti. . uppvaskið í fokki. . – Pekka greyið að fá hjartaáfall. . unnið til kl.2. . gengum í gegnum öll skref þreytunnar! Frá því að næstum saga af okkur lappirnar yfir í svefngalsa, í að sofna næstum standandi í að bjóða “góða kvöldið” um hádegi í að drepast úr hlátri af þreytu í að næstum grenja úr þreytu. . þá fengum við Suvi ( víst tvíburinn minn þessa dagana) skipun um að sofa í 2 tíma fyrir kvöldið. . kvöldið gekk rosa vel en um 11 leytið vorum við orðnar ískyggilega þreyttar, báðar með hita og hausverk, föttuðum að við höfðum einungis borðað morgunmat 15 klst. . Sandra rúmmeit komin aftur úr bænum, gátum svo ekki sofnað . .”vantar klaka!”
Ég get ekki hætt að hugsa inni í mér á ensku. .maður er talandi ensku 24/7 og jafnvel við íslendinga. .
- þessir dagar voru samt snilldin ein :)
Vissuð þið að ef þú rekst á björn í miðjum skógi þá eru mestar líkur á því að þú lifir af ef þú leggst niður og þykist vera dáinn. .

þriðjudagur, júní 17, 2003

Hefuru ekkert að gera í vinnunni?. . bored.com

Vinsælasta síða næturvarða

-kíkið á ChickenJoke.com -

mánudagur, júní 16, 2003

Jaaaááá. . . segjum bara það.



I am an imaginary number
1i
I don't really exist

_

what number are you?

this quiz by orsa


P to the S: Bjarney átti afmæli í gær, til hamingju aftur!

laugardagur, júní 14, 2003

Ágætt að komast aðeins í bæinn, sofa e-ð!. . (sumt fólk höndlaði þetta í fyrra með því að vera á) - en ekkert slíkt.
Fyrstu frídagar síðan 1 júní. Á þessum 2 vikum hefur mikið gengið á. . náttúran er yndisleg á Bifröst, búin að "klífa" Grábrók 2x, taka Glanna+Paradísarlaut, klífa annað magnað fjall sem ég veit ekki hvað heitir. - ekki sóaður tíminn.
Vinsæll leikur "Bifro-ball" (allt er leyfilegt) sem "við fundum upp" hefur farið illa með alla, allir marnir og illa leiknir, aðallega eftir Brian (frá Nýja Sjálandi) og Mowgli ("Brynjar")sem hlífa engum. Á kvöldin/næturnar þegar við erum ekki að drekka e-ð erum við að drekka og í hinum og þessum mindgames sem Seb er annað hvort að búa til á staðnum eða. . en strax núna veit maður u.þ.b. ALLT um hvern og einn sem býr upp á Skakka - nútíð og framtíð. Ég mun eignast barn með Brian "in the hot tub" eða inni á skrifstofu hótelstjórans, stinga svo af með Sögu, Seb og Söndru til Frakklands en giftast svo Jósef. Hlakka til! Við vitum mikilvægustu hlutina um hvert annað, hvernig hver og einn opnar banana og hvoru megin fólk lætur álegg á hrökkbrauð . . það getur sagt mikið um þig!

Við Saga höfum eytt síðustu dögum í að koma okkur upp system í uppdekkningu. . Ekkert grín! - prófið endilega heima :

1. borðum ( tveggja manna, fjögurra manna eða langborðum) raðað aðgengilega, smekklega og þráðbeint, kannaður aðgangur þjóna á milli borða
2. ofurstraujuðum dúkum skellt á áðurnefnd borð, síðan skreytingar t.d. hraun&birki
3. stólum raðað hnífjafnt! (við erum m.parket svo allir á sömu fjöl). .ekki horfa á hvert borð heldur langborðið sem heild.
4. aðalhnífurinn (hvort sem plein, steikar, fiski..) settur ca 5-6 cm inn á við miðað við stól, endi hnífs við enda borðs, síðan miðast öll dekkningin út frá hnífnum.
5. gaffall samsíða aðalhníf og "í sömu línu" og hnífur þvert á móti, salatgaffall/hnífur ( 1cm upp fyrir enda aðalhnífs/gaffals) samsíða, súpuskeið endi v.enda borðs, desertgaffall - ef bara. .skaft snýr til hægri, en ef líka teskeið. .gaffalskaft til vinstri og teskeiðsskaft til hægri
6. brauðdiskur vinstra megin (ekki skyggja yfir salatgaffalinn!), miðja disks lárétt við rót aðalgaffals, brauðhnífur hægra megin á disk
7. rauðvínsglas ca 1-2 cm beint f. ofan enda aðalhnífs , svo hvítvíns (ef notuð bæði) (vatnsglösum skellt á eftir komu gests, ská niður hægra megin við rauðv.glas, klaki)
8. tauservéttur - til skiptis blævængur og kerti, en "stjarna" eða "hálfmáni" ef tími gefst
9. salt og pipar, kertastjaki + kerti, vínseðill
10. rétt lýsing athuguð, tónlist, undirbúa brauð/smjör/vatnskönnur.

19/6 - verður STRESS!

fimmtudagur, júní 12, 2003

Ég er að farast úr þreytu. . erum inni á bar að skála í kampavíni, Renato kom nebbla í heimsókn og hann er svo ánægður með hótelið, húrra! Annars er bara frábært hérna, gaman að vinna líka. Staffið nær rosalega vel saman og partý alla daga. . það er vel talað að í lok sumars verður minibus fyrir framan hótelið og við förum öll beinustu leið í meðferð. .einn tveir og þrír. Hótelstjórinn er algjör stuðbolti og áfengið er hræódýrt. Í fyrradag var "brjálað kvöld" mikið að gera, allt á öðrum endanum inni í eldhúsi. Það munar rosalega að geta farið brosandi út í sal aftur úr eldhúsinu þar sem þrifstrákarnir tóku "Jósefinn" (uppvaskið) með dúndrandi afrótónlist og viðeigandi dans. . við Suvi (finnsk)vorum í hláturskasti allt kvöld. Klikkuð kona út í sal með varalit all over.
Á föstud. verður mikið að gera. .ferðaskrifstofufólk að koma og við erum að bjóða þeim í e.k. partý

föstudagur, júní 06, 2003

Við erum á sama tíma og venjulega. .þessa vikuna. - enginn svefn, staffið getur spjallað hættulega mikið fram á nótt, með "Pernó" eða hvað sem það heitir við hönd. Ég er aftur að vesenast í móttökunni, lítill tími þar svo ekkert massíft blogg.. við erum enn að bíða eftir annarri tölvu hingað og þá kemur e-ð meira. Annars er allt frábært að frétta. Ball Á MORGUN upp í Hreðavatnsskála - staður elskenda - þar sem hjörtun slá hraðar. . KLÍGJA!!!

Í dag 6/6 á hún Sollis kornelíus bláber afmæli! ætli maður slái ekki á þráðinn e-t í dag v.tíma. Þangað til þá.. Til hamingju!
og þið hin. . þangað til næst. .

fimmtudagur, júní 05, 2003

Klukkan er 6.45. . mikið drukkið gær, vínsmökkun. .endaði út um þúfur (bókstaflega) en ég er núna að taka kaffipróf í móttökunni. . Zzzz. . .lítið að gera ,við Emil erum að rusla saman morgunmat handa fólkinu, kemur eftir smá. . blogga meira seinna, og maila þig Katrín :)


Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Frappuccino!
ískalt kaffi með mjólk og ísmolum, borið fram í háu glasi með röri.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?

þriðjudagur, júní 03, 2003

Bifröst calling (2/6´03)
Snilldarlið í ár víst. . margir útlendingar - svo maður lærir eitt og hitt í finnsku, frönsku, dönsku, skosku/nýja sjáland. Í augnablikinu erum við inni á bar að drekka e-n franskan drykk sem Sebastian lofsyngur e.k. hot´n sweet - hann er frakki með dredda, maður skilur helminginn af því sem hann segir og sá helmingur er furðulegur. . en algjör snillingur.
Erum að bíða eftir Jósef dishwasher. . hann er e-ð á reiki. .en lýsingin á honum er feiminn, hommi, 115 kg. Hann er nú ledgend hérna. En nýjustu fréttir eru að hann er svo feiminn að hann ætlar ekki að koma. Hin heilaga umræðuþrenning er Sheeps, socks and sex. - annars þögn.
Annars þarf að vakna kl.6.30 - í morgunmat og svo líka á kvöldvakt. Hvað er klukkan?!

föstudagur, maí 30, 2003

Bloggið er í fokki. . Allt í einu vildi ég að ég væri tölvunörd - en það eru ekki allir eins og. . .tölvunördar.

Dagurinn í dag er búinn að vera skrítinn. . m.a. búin að reyna að bjarga "Kaffibollakrísu!!!" sem á sér stað á Bifröst um þetta leyti - e-r stal líka vöfflugrillinu. Ég held að þessi nýja hótelstýra sé snillingur! . .ég hef ekki ennþá hitt hana en hef nú þegar skellt á hana í síma o.fl. Gott. .

fimmtudagur, maí 29, 2003

Jæja.
Í gær komu einkunnir í hús. .ég er bara þokkalega sátt. Við Katrín og Álfdís sátum í grasinu í gær í sól og blíðu og biðum e-ja 3 tíma eftir prófsýningu. . – í mínu tilfelli mætti Gylfi ekki og Ási er búinn að týna prófinu mínu eða e-ð. Fráábært!

Tinna, Brynja og ég skelltum okkur á How to lose a guy in 10 days. . jah.. þetta er spólumynd dödens, en maður gat alveg hlegið að henni.

Í gær fór maður nú aldeilis að fíla sig eins og Jamie Oliver í eldhúsinu. “The old spagetti in the old pot”. .neinei, en ég (og pabbi) elduðum voða fínan rétt handa stelpunum. Olla kom í fyrra lagi og horfði á hl.af leiknum með okkur, pressan maður!, og svo fóru hinar að tínast inn. Stórfrábært kvöld, umræður á borð við hlutabréfamarkaðurinn, gengi krónunnar, kvótakerfið!, Kreppuna miklu ...Jii.. hvað við erum e-ð fullorðnar! Ætti maður að fara að kaupa sér e-ja dollara? Græða e-n pening. .
GAvuð.. vissuð þið að í Hvíta húsinu eru til 13.092 gafflar, hnífar og skeiðar. . hver hefði trúað því?! – pæling...... -segja sumir. (ekki margir samt)

Svampaklóin!!
- Já, það er satt. Við Tinna fundum upp eina mestu nauðsynjavöru sem bara hefur ekki sést á markaðnum síðan. .
Þetta er svona kló á priki.. sem hægt er að klóra sér á bakinu með. .OG.. fest t.d. svamp við klónna. .skrúbba bakið, krem lika og svona. .

"Ert þú ekki orðin(n) leið(ur) á því að þurfa alltaf að láta aðra skrúbba á þér bakið?, bera sólarolíu á bakið og annað slíkt?! Við erum með lausnina! . . Svampaklóin!!"

- Já, þetta er auglýsingin okkar.
Þetta væri fyrir fólk á öllum aldri, og þá kannski sérstaklega f. eldri kynslóðina. Maður gæti tekið hana með í ferðalög.
Ok, ef e-r þarna úti fer að segja e-ð "Hey þetta er nú þegar til!". .eða e-ð í þá áttina...þá vissum við Tinna það ekkert.
Þetta er bara hugm. waiting to happen - týpískt! henni verður ábyggilega stolið. . . á morgun! Sick heimur.

þriðjudagur, maí 27, 2003

Blessuð!!
Það fer bara að styttast í að maður skelli sér upp í hinn fagra Borgarfjörð - 1. júní nánar tiltekið. . - byrja að vinna 2. júní. . Mun búa upp á "Skakka" næstu 2 mánuði. Hún Sylvía beiler verður ekki í sumar svo. . líkur eru á að maður fái demented rúmmeit. .- vonum að svo verði ekki. - og svo er það Krít.
Hjólaði út um allt í dag. . upp á Aðalskrifstofu Fosshótel, nett spjall við Renato og ná í hin klassísku "grænu vesti". Spjallaði við hótelstýruna í gær í síma og hún hljómaði bara nice. Hjólaði svo að Fosshótel Lind, þar sem Gummi verður í tvo daga en verður svo keppinautur á Vatnajökli í sumar.
Hvað er þetta?! Ég SÉ EKKI glerbrot á götum borgarinnar. . NEMA þegar ég er að hjóla - ég held að ég hafi hjólað í sömu glerhrúguna á hverjum einasta! morgni með henni Sollu á leið okkar í öll þessi próf. ótrúlegt!. .maður lærir ekkert af mistökunum. . nei, það er allt önnur ella!

Við skelltum okkur í leikhús á sunnud. Jiii . .hvað við erum menningarlegar! - Veislan - mjög skemmtileg sýning, eini feillinn var hann Rúnar Freyr. . hann var e-ð voðalega ýktur, of mikil öskur og læti. Við Brynja vorum samt í yngri kantinum á sýningunni og voru e-r spurnaraugu. .Ég verð bara að fara að sjá þessa mynd.
Hver er þetta?!! Ég bara vil ekki trúa þessu.

NadineGuiding
Nadine Cooper Lewis: Thu ert fyrrverandi trailer
trash sem giftist upp fyrir thig og ert
stanslaust ad reyna ad thoknast kallinum
thinum, sem vill samt bara skilja vid thig. Thu
ert ekki allt of gafud og reynir ad baeta upp
fyrir gafurnar med ymsum radum, en yfirleitt
til einskis.


Hvada Leidarljos karakter ertu?
brought to you by Quizilla

sunnudagur, maí 25, 2003

Já, síðasta færsla er e-ð skrítin. .þetta átti í alvöru að vera e-ð athyglisvert en . .ég veit ekki.

Áður en ég byrja á þessari frásögn ætla ég bara að segja að þvílíkt bull.
Í gær var lagt í ´ann - ég, ásgerður, dóra og birna á jeppabíl. Áfram veginn!. . gróf staðarlýsing var "Bústaðurinn er RÉTT HJÁ SELFOSS!"
My ass rétt hjá Selfoss!.. - Þegar við fórum að nálgast bústaðinn vorum við staddar In the middle of NOWHERE! ég veit ekki ennþá hvar ég var. . Við þurftum að opna tvær rollu-girðingar til að komast á áfangastað, fórum lika hring í kringum e-jar réttir. .en það var smá út af því að við fórum vitlausa leið. En allavega. . við vorum búin að búast við e-i sumarb.þyrpingu eða e-ju , en nei, TVEIR litlir bústaðir (e-ð par í hinum), hliðina á bóndabæ!, við erum að tala um rollur í bakgarðinum! ok, flott. Þegar inn var komið. . við misstum kjalkana niður í gólf. Ég á ekki eftir að geta lýst þessu en. . þetta var eins og að koma inn í e.k. dúkkuhús! Blóma-ALLT!. .ekkert í stíl. .gjörsamlega OVER-decorated! af ALLS KYNS postulínsdúkkum, styttum, skrauti, kransa, diskar upp á vegg, strauborð, prjónasett og blóma þetta og líka hitt. . enda hét bústaðurinn Rósakot (fullt af svona dóti sem væri hægt að kaupa í Ótrúlegu búðinni) og jólasería í loftinu!?! Sætt líka. .það var búið að hella upp á könnuna. . –þetta var allt saman ekki alveg með felldu, hálfcreepy. .eins og byrjunin á e.k. hryllingsmynd. . . .
Við reyndum að haga okkur eins og við værum ekki heima hjá Bangsamömmu og fórum bara að elda. Stuttu seinna komu Finnur, Óli, Konni og Höddi og svo Benni og Helga, -áttu ekki til orð.
Miður að segja þá brutum við nokkurn veginn reglurnar sem héngu upp á vegg, hliðina á e-ju skrauti. . ”Ölvun er stranglega bönnuð.” . . .Fólk var galið af drykkju! Alls staðar! Dansað eins og brjálætt væri . .
Kvöldið var eitt rugl. Hann Hörður snillingur, ölvaður mjög, ætlaði af óskiljanlegum ástæðum að taka e-t fimleikaatriði af vegg við pott niður á möl. . .
Ölvað fólk hringdi í 112. . ”hvað eigum við að gera?”. .Hörður greyið með heilahristing, blóð mikið og ég veit ekki hvað. Þurfti að reyna að halda stráknum vakandi í a.m.k. ½ klst. .þá ætti að vera í lagi. . svo um klukkan e-ð, var ekki lengur spurning um hvað klukkan væri heldur hvað klukka væri!?. .
Ég verð að játa að ég drapst stuttu eftir þetta og e-n ”göngutúr” m. Birnu, hún sami hænuhausinn og ég. . sofa úti!? Nei. .
Vaknaði kl.7 við jarm í rollu!!!. . Dúkkuhúsið spillt!! Eyddum við morguninn í þynnku talsverða, göngutúr að gilinu, ”viltu læra íslensku?” og bárum saman bækur okkar um hvað í anskotanum fór fram kvöldið áður.

Svo þurfti ég að koma mér heim til að fara í stúdentsveislu. Þegar Eurovision svo byrjaði voru málverk tekin af vegg og bara skellt upp myndvarpa, snilld. Fylgst með af innlifun og biðu margir spenntir eftir að sjá hvort stelpurnar í t.A.T.u myndu gera e-ð galið svo skipta þyrfti yfir á æfingu. Spennan magnaðist þegar stigin voru gefin og trylltist lýðurinn þegar 2x12 stigin voru gefin eða bara í hvert skipti sem Ísland fékk stig. Lagið sem vann var samt ekki mjög tryllt, eiginlega frekar súrt. Birgitta stóð sig eins og hetja. Svo var tjúttað. . flestir með græna bollu í hönd, ég lét vera. Tobba var himinlifandi með vínglösin og bókina sem við gáfum henni , frábært! Ljóðið sem við Brynja sömdum um lífshlaup Tobbu, alveg 7 erindi(rím og læti) + viðlag, vakti mikla lukku :) Húrra!
- Síðasta erindið. .:
Lyftum glösum skálum nú
SKÁL ! þú merka frú!
Við höfum á þér mikla trú
Við viljum partý og hananú

föstudagur, maí 23, 2003

Athyglisvert. . .hér

miðvikudagur, maí 21, 2003

Aloha allihopa!
Sól sól á Íslandi, ský ský á Kanarí, gott er að vera á Íslandi. .Þvílíkt veður! Sól og bjart! Allir svo brosandi að það hálfa væri hellingur, yndislegt.
Frábær helgi framundan gott fólk, ég vona að allir geri e-ð skemmtilegt!

Mikill spenningur er kominn í fólk í sambandi við útskriftarveislu á Breiðabliki laugard. - allir farnir að vinna að ræðu, en ætla sumir bara að spinna á staðnum eftir talsverða drykkju.
Ég hringdi upp í Þjóðleikhús í morgun og pantaði miða á Veisluna, ætla ég að bjóða henni Brynju minni í leikhús á sunnud. Leikritið virðist lofa góðu. . en slæmt að Hilmir Snær sé hættur.

Í gær var kátt á hjalla, við Brynja, Dóra og Bjarki skelltum okkur á kaffihúsaráp. .og já takk Bjarney, við báðum um "lítið af klökum" út í kakóið okkar. . - ;)
Svo var rúntað út um allt, glæsilegt sólsetur í gær.

Ég var að fá til baka Skunk Anansie diskinn minn "Paranoid&sunburnt". . mikið saknað. .hann og "Stoosh" ómissandi! í safnið. Magnaðir tónleikar, þegar "Twisted" var tekið, sleppti fólk sér. Ég vil sjá þau aftur, þau bara hurfu. . The Fugees. .horfið.

Skemmtileg e-mail virðast ganga aftur um . .á borð við "Hversu vel þekkiru mig?!". . Skemmtileg svör Olla, takk!
-og ég er búin að fá það skriflegt að saumaklúbburinn Lambhúshetturnar komi í camping í sumar, jej :) Maður verður að fara að endurtaka ferðir. .eins og í Úthlíð o.fl. Þar fer fólk fyrst og fremst á kostum! Ég hvet sem flesta til að fara í útilegur í sumar, það er bara ekkert skemmtilegra en að grilla eða e-ð með vinum sínum út í náttúrunni.

mánudagur, maí 19, 2003

Það er komið SUMAR!! FRÍ!! Þar til ég fer að vinna. Mikil hamingja hérna megin.
Maður verður nú að fara að dettaíða. .búin að vera edrú síðan 12-13 apríl. . . Stolt af mér bara, enda lítið þekkt fyrir drykkju.
Ég held nú samt að sumarbústaðaferðin seti strik í reikninginn. . hjá mörgum.

Kolbeinn Tumi Daðason er farinn að blogga! Til hamingju með það! Hann fer beint í linka-safnið. Fylgist endilega með því sem hann hefur að segja – hér.

Í kvöld er bara LOKAÞÁTTUR SURVIVOR!!. . Matthew hefur bara farið hamförum síðustu daga.

sunnudagur, maí 18, 2003


"It´s about survival at this point!"
Eitt próf. Bylgjuafl-, raf- og ljósgeislunarfræði hefur aldrei verið jafnskemmtileg!!

laugardagur, maí 17, 2003

Ha! Ég var að finna gamla “ritunarbók” úr íslensku 8.bekk hjá Úlfari. .skildi aldrei tilganginn með þeim. . en samt gaman að lesa þetta nuna. Maður átti að skrifa um guð má vita hvað. .og við Brynja skrifuðum um guð má vita hvað! Bútur:
,,Maður var að læra og allt i einu var ráðist á mann! Koddar flugu um loftið og allir urðu klikkaðir. Yfirleitt voru tveir á móti tveimur en stundum sveik einhver lið. Allir voru með sína tækni, Bjarki beit, Brynja kleip og beit og Andri pikkaði fast í mann. Þetta endaði alltaf með stórslysi eða þar til mamman kom.”
(endirinn á þessu er e-ð bjagaður.. íslenskan heldur ekki upp á marga fiska)

föstudagur, maí 16, 2003

Viti menn! Fyrrverandi herbergisfélaginn minn á Bifröst, hún Sylvia Clothier Rudolfsdóttir (hún er þarna e-s til hægri) er að fara að taka þátt í Ungfrú Ísland sem verður haldin á Broadway 23. maí! Voða skvísa!
Skemmtilega á óvart! Við höldum nottla með henni.

fimmtudagur, maí 15, 2003

tulll
Thu ert Will og Grace! Lif thitt getur verid daldid
snuid. Thu ert alveg ruglud/adur i thessum
stora heimi og vinir thinir eru allir klikk! En
hafdu ekki ahyggjur. Etta reeeddast.


hvada skjareinn thattur ert thu?
brought to you by Quizilla

miðvikudagur, maí 14, 2003

Það fer ekkert á milli mála að það eru aðeins tvö próf eftir!! (í mínu tilfelli). MS-ingar eru svo gott sem búnir og eru allir að fara að djamma. - mig langar að gráta!
Munnlega stærðfr. var í gær. .það rúllaði nú ekki alveg, ég átti eftir að fara yfir ca 10 dæmi af guð má vita hvað mörgum. . og ég fékk einmitt!!! eitt af þeim, en þetta hafðist svo sem. .ólesin var í morgun og voru margir í bullinu, en það var ekki síður gaman.

þriðjudagur, maí 13, 2003

Atli var að sýna mér Eurovision-myndbandið hennar Birgittu "okkar". . ég var s.s. að sjá það fyrst núna. . mér finnst þetta bara ansi glæsilegt myndband, hún er bara flott í því og ég held að þetta eigi eftir að vekja verulega athygli! Ekta Radio-lag. . .
Sonur Raj þjálfara, sem er sætasta barn sem til er! bara í aðalhlutverki líka!
Hvað segir fólk um þetta? Lendum við í ásættanlegu sæti? vinnum við?!

sunnudagur, maí 11, 2003

Elska manninn!

F*** Dignity. .

Fat man lookin' in a blade of steel
Thin man lookin' at his last meal
Hollow man lookin' in a cottonfield
For dignity

Wise man lookin' in a blade of grass
Young man lookin' in the shadows that pass
Poor man lookin' through painted glass
For dignity

Somebody got murdered on New Year's Eve
Somebody said dignity was the first to leave
I went into the city, went into the town
Went into the land of the midnight sun

Searchin' high, searchin' low
Searchin' everywhere I know
Askin' the cops wherever I go
Have you seen dignity?
Nokkur svör við spurningu á líffræðistúdentsprófinu. .hér

laugardagur, maí 10, 2003

Gleðilegan kosningadag og alla daga!
Áðan fórum við Brynja upp í Laugardalshöll að kjósa . . og mun ég eins og fleiri taka hvern ég kaus, með mér í gröfina.. þrátt fyrir 3.stigs yfirheyrslu. .
Nú eru aðeins 4 próf eftir og er ég svo alveg búin 19.maí (nema ég þurfi að taka endurtöku í e-ju).. Sem sagt mikið gaman framundan. Bekkurinn ætlar að skella sér upp í sumarbústað föstud.23 einhvers staðar rétt hjá Selfossi, þann 24. er svo hún Þorbjörg Daphne Hall að fara að stúdentast og það verður víst mikið fjör á Breiðabliki þann daginn!!

"We live in an age that reads too much to be vise, and thinks too much to be beautiful."
-Oscar Wilde

miðvikudagur, maí 07, 2003

Jæja, 5 próf uppgerullen!!!(gott framlag atli)!
Næst er það munnleg/skrifleg enska. .- ætli maður massi það. . ætli ég fari ekki bara að tala finnsku eða e-ð. . ( Ath. ég kann ekki finnsku)
En annars er búið að ganga alveg ágætlega, nema nottla efnafr. Próflestur minn hefur samt tekið krappa beygju því að ég er um þessar mundir handlama...algjörlega! á hægri hendi.. þetta er e-ð freaky, hún er stökkbólgin, það er ekki hægt að rétta úr henni og svo er hún skökk. Ég get s.s. alls ekki glósað staf, verð gjörsamlega að "spara" hendina f. prófin.. og e.prófin versnar hún aftur - vítahringur. Það var eins og tveggja ára krakki hafi skrifað byrjunina á líffr.prófinu mínu, ég varð að vara kennarann við. . tilraunir til að skrifa með vinstri hendi enduðu með velsköpuðu HÍRÓGLÍFRI! En ég er með e.k.spelku (eins og ömmurnar nota) og hakka Íbúfen.- þetta reddast. gaman að þessu!!

laugardagur, maí 03, 2003

Ég er ekki að trúa því að ég verði í "Áhrif kvikmyndagerðar" á næsta ári. . hvað er það annars svona skv.textbook?. . .- en þetta er eflaust mesta chill-fag sem hægt er að fara í! og svo líka bókmenntir. . En annars var ég ekki sátt, ásamt fleirum, þegar öll þessi valfög duttu út. . TVENNT! af þremur sem ég var búin að velja. Það verður kennd hebreska!!! en ekki enska og listasaga. . hvað er málið?

föstudagur, maí 02, 2003

Þvílíkt rugl!! Hvílíkt rugl! banani.
Byrjuð í prófum og vá, slæm byrjun! Efnafr.próf – klikk mikið efni! Lífræn efnafræðisdrusla! IR-rófsasni! – þetta var CATASTROFA!
Enginn svefn, mikið kaffi – ég fékk efnafræðimartröð í nótt. . og allt sem maður sér minnir mann á e-ð. . tannburstarnir í tannburstaglasinu mynduðu t.d. sp2 svigrúmablöndun o.s.frv. – enda á þessi “Hver málaði þessa veggi?!”-geymsla að ganga endanlega frá mér.

Það er rosalegt gluggaveður maður! Hættulegt!

Var líka í munnlega þýskuprófi. . ég var handviss að ég mundi annað hvort segja “Da” á rússnesku eða fara að tala sænsku. . en nei, míns fór bara að tala ensku!! Annars gekk þetta alveg ágætlega, heppin með sögur.

Annars ágætt að komast smá í burtu frá bókunum í dag, Sollis bláber með saumó og svona...

Ég vænti þess Gulli, ef þú ert að lesa þetta, að þú takir niður punkta á Ingólfi 10/11 maí.

þriðjudagur, apríl 29, 2003

A little story:
This is a story about four people named Everybody, Somebody, Nobody and Anybody.
There was an important job to be done and Everybody was sure that Somebody would do it. Anybody could have done it, but Nobody did it. Somebody got angry about that, because it was Everybody´s job. Everybody thought Anybody could do it, but Nobody realized that Everybody would not do it.
It ended up that Everybody blamed Somebody when Nobody did what Anybody could have done. . . .!!!

föstudagur, apríl 25, 2003

Gleðilegt sumar!
Skólinn byrjaði aftur í gær (miðvikud.). . og ég hef sjaldan verið eins þreytt, fór í stærðfr.próf og nóttina áður EKKERT sofið. .þvílíkur hausverkur!!! Brynja var á Hrísateignum einnig andvaka svo nóttin fór bara í símarugl

Tinna á afmæli á morgun (þegar þetta er skrifað) en þannig séð á hún afmæli í dag. . svo til hamingju! svo hún hélt upp á það í gærkvöldi. Frábær veisla! Tortillas og e-r réttur með öllu í og e-r annar og HOT sósa og kjúllinn. .það kviknaði í manni. Saumó var sér líkur og eftir talsvert slúður og áhugaverðar “rök”ræður kúruðum við yfir Clueless og kannski sorglegt að segja en við Tinna gátum “mæmað” alla myndina. . . Classic.
Seinna kíktum við til Gumma sem er því mikið miður að flytja. . HVAR verða partýin núna?!. .líklegast þar sem hann er að flytja. . en samt . .þetta eru tímahvörf.

Á föstud. er Ungfrú-keppni og við missum ekki af henni –
Tobba að dimmitera í mjög svo skrautlegum búningi. . og útflutningspartý hjá Gumma vitaskuld. .
Ha? Próf?!
En talandi um próf þá ætla ég að mæla með CD disk sem fer skemmtilega með próflestri. . Starsailor –Love is here . . . . . . . . . . .og líka Ensími - kafbátamúsík
Samantekt: Hvenær á Tinna afmæli?

sunnudagur, apríl 20, 2003

Gleðilega páska allir saman!
Enginn farinn að setja inn málshætti. . ég fékk held ég “Fleiri sjá en ernir” e-ð í þá áttina. . hann er allavega á bak og burt. .

Eitt sem ég sakna síðan ég var krakki . . skírdag eða “skärtorsdag”, þegar allir klæddu sig upp sem “påskkäringar”, jafnvel strákar, og gengu um bæ allan, í heimahús og sungu “Blåsippan ute” eða “Bä, bä, vita lamm. .” o.fl. – og gáfu e-ð t.d. myndir sem maður hafði litað – memories, memories

Dr. Sívagó var rosalegur, sorglegur endir, fyndið barn


föstudagur, apríl 18, 2003

Í dag er föstudagurinn laaaaaaaangiiiiiiiiiiiiii. . . .
Við Brynja fukum meðfram (einu sinni næstum því ofan í) sjónum í dag ýmist á gömlu góðu línuskautunum eða á hjóli. . bílar á Sæbrautinni sáu flestir að þeir þyrftu að gera ráðstafanir . . Það er bara besta veður úti! Laugardalurinn rokkar í svona veðri!
Ég er að lesa um ýmsar fylkingar dýra og svona núna . .og mig langar bara mest í Húsdýragarðinn, skoða seli

Í kvöld er seinni hluti Dr. Sívagó ( sem lítur NÁKVÆMLEGA eins út og Þorvaldur D. Kristjánsson). . spennandi, ég held að vondi kallinn eigi eftir að koma e-ð meira við sögu núna þegar Lara er farin frá spítalahúsinu. .
Á morgun á mamma afmæli, ég held að við förum (aftur) á Eyrabakka - Rauða Húsið.

miðvikudagur, apríl 16, 2003

Það er allt að gerast. . en hvað sem því líður. .þá er lítið að gerast. Hvað er miðvikudagur í dag?

Við mamma fórum í bíó. . hún er svo mikið fyrir að fara á týpískar “konumyndir”. .svo við skelltum okkur á Crush með Andie MacDowell og hálft liðið úr Four Weddings and a Funeral. .allt í lagi mynd . . en eins og fylgir því að fara á svona myndir þá voru u.þ.b. 3 kynslóðir saumaklúbba á staðnum sem annaðhvort görguðu eða flissuðu með hverju atr.- nokkuð fyndið

Páskafrí er í höfn. Gott að geta skemmt sér í fríinu með lestri góðra bóka. . bóka á borð við Aflfræði II, Dæmahefti Gylfa, Modern Short Stories. .o.fl.

Atli er víst búinn að teygja sig inn á svið ljóðanna og er ekkert nema gott um það að segja. . við viljum sjá meira af þessu!

Á laugard. fórum við Atli og Ásrún upp í sumarbústað til mömmu og pabba e-s rétt hjá Laugarvatni. . lítið um það að segja. . gott veður og kveikt var í grillinu. Við Atli stoppuðum ekki lengi og fórum aftur í bæinn strax um kvöldið. Við komum við á Eyrabakka og Stokkseyri. . ég er ekki að grínast við sáum tvær manneskjur samanlagt á báðum stöðum. Stuð.
Seinna þetta kvöld komu Magga, Unnur, Katrín&Sverrir, Tumi, e-r gaur og Arnþór. Stutt stopp heima, en nánast heill vodkapeli flaug í blandarann og afgangurinn fékk að fljóta með í bæinn. Kvöldið byrjaði illa þar sem Sólon-kallinn hirti ein skilríkin. . en við létum lítið á okkur fá og fórum á Vegamót! Þar þeytti plötusnúðurinn skífum og
“við áttum “dansgólfið”. . .” allavega þá lá leiðin næst einhverra hluta vegna inn á Ara í Ögri. Brjáluð stemning! Hljómsveitin tók bara allan Eurovision-pakkann, og sumir úr hópi okkar, góluðu með. Auðvitað fórum við ekki í bæinn án þess að kíkja inn á Nellys. . búllan var gjörsamlega pökkuð! og ég hef sjaldan séð eins sveittan stað. . -nema þá Nellys- en þarna virtist saman komið ALLT það fólk sem ég gæti ímyndað mér hafa verið á Scooter kvöldið áður. .- lentum við svo meira en minna allt kvöldið í alls kyns veseni og var kvöldið allt meira en lítið skrítið allt saman. . .
________________________________________________________
“Nei! Ekki segja þetta!” öskraði hún og skellti símtólinu í vegginn.
Hún hnipraði sig upp að pullunni sem lá eins og tuska á gólfinu. Hún brast í grát. Tárin streymdu niður kinnar hennar og maskarinn fór í klessu. Henni fannst hann hafa svikið sig. .
“Hvernig gat hann gert þetta?”
________________________________________________________
Hann er svo magnaður kallinn. .
“Nowadays people know the price of everything and the value of nothing”
-Oscar Wilde

fimmtudagur, apríl 10, 2003

Löng umræða. . Hvenær ætli heimsendir verði? Verður heimsendir af mannavöldum? Eða? Af hverju? Hvernig verður heimsendir? Verður heimsendir? Í kvöld. . er á morgun annars staðar. .? Hvað erklukkan margt í rauninni ? Er kannski enginn “heimur” til? og því getur hann ekki endað? Sjónarspil? Önnur vídd?
Maður getur tapað sér í þessu. .pæling - segja sumir.

Þegar maður er búinn að byggja stóra spilaborg. . þá bara hrynur allt til grunna. .
Eins. . þá var ég að koma úr u.þ.b. 4 tíma! Páskabingói með henni Katrínu. . Við ætluðum svvvooo að vinna. .allavega e-ð. . en eins og allir vita sem lent hafa í . að nákvæmlega.þá fór bingóstjórinn að telja upp allar þær hugsanlegu tölur sem ég var EKKI með. . svo. . í annarri lotu þá fór hann að telja upp allar þær tölur sem ég var ekki með á dönsku. . frábært!

Ási blindi og það litla fólk sem í þýsku er . .fer gjörsamlega hamförum þessa dagana. .- þessir tímar eru bara snilld!

Bið að heilsa ykkur Ollu og Sollu sem eru núna að sparka bolta á Portúgal í um 20 stiga hita, takk fyrir, að sögn Ollu - sem virtist vera hæst ánægð með það ;)

laugardagur, apríl 05, 2003

Best að blogga í dag til að festast ekki í fyrirsjáanlegu sunnudagsmynstri. . .

Hvað er búið að vera að gerast. . .
-Jú, það var kosningavika í vikunni. . veggir þaktir plakötum, alls kyns drasl og nammi gefið- þetta venjulega. . allt gert til þess að krækja í atkvæði. Við, eins og aðrir frambjóðendur, tókum þátt í skrípaleiknum og buðum upp á nammi í samræmi við slagorð. . (Bland í poka , X-DUMB í Loka ). – virðist hafa skilað sér :)

Erfðaefnisleikritið sló í gegn!. . . . . .

Á þriðjud. var síðasti þáttur The Amazing Race! ...liðið mitt vann!!! Húrra húrra!! ;)

Það reis bara á einni nóttu upp vídeoleiga “Bíó grill” þar sem gamla Laugarásvideo var. .og á fimmtud. sáum við Katrín og Unnur myndina Unfaithful – rosalegt! Við breyttumst í tilfinningaflóð sökum hneykslis o.fl. og Katrín ýtti á stop. . en í lok myndarinnar kláruðum við myndina!?

Í enskutíma vorum við að horfa á “Sister Wendy...e-ð”. . sem eru þættir um nunnuna Wendy, lítil, vel tennt og mjög svo smámælt, sem ferðast um víðan heim og skoðar málverk. . hún talaði svo innilega um hvert verk fyrir sig að maður bara heillaðist algjörlega upp til skýja! Verð að komast yfir þessa þætti. .

Við Brynja fórum í gær á Sólon. . settum upp viðeigandi snobbsvip og sötruðum súpu dagsins - Sólon er bara orðið hið fínasta kaffihús á daginn og e-r snilldarkokkur hlýtur að prýða eldhúsið. .
Ég ætlaði ekki að trúa því að ég hafði séð hinn eina sanna Viggo Mortensen í gær röltandi miðbæ Reykjavíkur eins og hann hafi aldrei leikið í Lord of the Rings. . en í dag staðfesti biblía margra, Séð og Heyrt, það.- Hver er Chelsea Clinton núna? Sharp Lee hver??, ha?

sunnudagur, mars 30, 2003

Hvað eru veðurguðir að reyna að segja okkur Íslendingum?. . ég held að Ísland sé bara heljarinnar brandari í veðurbransanum. . maður er að fá sér ís í Álfheimum. . sólin skín, grasið þokkalega grænleitt, fólk í stuttbuxum. . maður kíkir inn í svona korter. . fer aftur út. . kominn á sandala. .*boom!* fær snjóbolta beint í augað!!

Síðastl.viku hef ég ekki eytt miklum tíma í svefn. .Óskarinn kom . . .og fór kl.05.15 (og þá var klukkan margt . .), stórskemmtilegt! Við atli horfðum á og veðmál var í gangi, atli tapaði að vanda(varð að koma því að!) “But hey. .who hasn´t. .”
Við pabbi fórum á Slaghörpuleikarann (eða The Pianist) – góð mynd, heldur betur sorgleg.

Gettu Betur. við unnum.
-eftir það þá var haldið til Katrínar,- ölvun? Já, töluverð. . ég bara SKIL EKKI fólk sem getur drukkið Tequila. . . seinna í bæinn. . FLUGhálka! Og Dóra greyið var sú sem fékk að fljúga . .kíkt var (af nauðsyn) á Nellys. .suddalegt.- þræddum Kaffibarinn og litum inn á Grand Rokk-þar kunni mannskapurinn mannganginn og sat við skák. Við fórum. -eftir það stakk Dóra af og Katrín einnig. Við Unnur fundum okkur knúnar til að nota síðasta tækifæri f.próf til þess að djamma. Fórum á Sólon, Hverfisbarsröð, Vegamót, út, Vegamót, Hverfisbarsröð og skautuðum heim..djöfull var KALT!að labba heim! Við erum hetjur!

Á morgun eigum við Ásgerður að halda fyrirlestur um erfðaefni. . til að tryggja skilning á erfðaefnum munum við setja upp leikþátt þar sem við förum með hlutverk DNA keðju. .ætli maður fái Óskarinn fyrir það?

Talandi um Óskar þá komu saumóstelpur hingað í gær og við kúrðum yfir söngkeppni. Óskar þessi bekkjarbróðir fór ,ásamt Degi, með lag fyrir hönd MR – stóðu sig einstaklega vel. Skemmtileg keppni, ég spáði nú FSU strákunum sigri en 2.sætið var ekki slæmt. Sonja úr Iðnskólanum fór líka rosalega vel með frumsamið lag, Drekadalur. . Inn á milli atriða fór Tinna með gamanleik um létt geggjaða konu í spinningtíma. Dramatískt.

Á morgun hefst kosningavikan og hlakkar maður nett til að fá að vita hvaða fólk bauð sig fram í hvað.

sunnudagur, mars 23, 2003

Ef e-r er allsgáður og/eða vakandi núna, ætti sá og hinn sami að kíkja út um gluggann . .og horfa til himins, himins!! með höfuðið. .nei. .á norðurljósin!!!

Við Tinna, Olla, Brynja og Solla skelltum okkur á ekki svo góða mynd. . Maid in Manhattan. .mæli ekki með henni, en engu að síður alltaf gaman að fara í bíó!! Eftir myndina bíluðum við upp/niður/U-beygjur/hliðar/bakk og ótal hringi á sama hringtorginu í Kópavogi, múgæsingur var talsverður í bílnum og allir duttu út úr karakter við “flaut” Brynju á e-ja misheppnaða gaura.- lentum STUTT og asnalega í e.k. left-over-af-partýi. Sögðum strax skilið við það og bíluðum í aðra átt . .

Ég verð að nota tækifærið fyrst að það er nú e-r þarna úti sem les þetta. . að mæla enn með annarri mynd sem ég var að horfa á í svona billjónasta skiptið. .
Reality Bites með (aftur?) Winonu Ryder, Ethan Hawk, Ben Stiller, Janeane Garofalo, Swoosie Kurtz, o.fl.
Mögnuð tónlist í myndinni(Ofspilaður diskur!)með Crowded House, U2, Lenny Kravitz, Lisa Loeb & Nine Stories, Squeeze o.fl. og dansatriðið á bensínstöðinni. .
“Hækkaðu í þessu!! Þú sérð ekki eftir því. . .
-MmmmMY SHARONA!! (m. The Knack) ”
er óborganlegt!

þriðjudagur, mars 18, 2003

Það styttist óðfluga í sumar bara. . og líka Óskarsverðlaunin . . .en til mikillar ánægju fékk ég loks hringingu í gærkvöldi frá framkvæmdastjóra Fosshótel sem gulltryggði vinnu fyrir sumarið. . þjónninn er bara alls ekki svo slæmt starf.

Í dag fengum við hefti um valgreinar fyrir næsta ár . . mikið um að velja. . og talsvert af nýjum greinum s.s. matvælafræði, lögfræði, enska o.fl. Ég er persónulega, eftir miklar spekúlerasjónir, næstum búin að festa mig við ensku, bókmenntir og listasögu ( hver grein 3 stundir á viku), skemmtilegt að komast í e-ð annað (vonandi).

The Amazing Race í kvöld!!!! Maður missir sko EKKI af því!!! Derek´n Drew eru að gera GÓÐA hluti og sé ég ekki fram á neitt annað en SIGUR! – en ég þoli ekki þessa Flo sem er e-ð að dúlla sér með Drew, aumingja Zach!!!! - ætli það sjóði upp úr í kvöld? annars virðist hann vera nokkuð svalur náungi. . .

sunnudagur, mars 16, 2003

Söndag - næsta vika verður aðallega hryllileg með nokkrum andartökum ólýsanlegra kvala. . stærðfr.próf, eðlisfr.próf, enskupróf, líffr.próf og svo hin og þessi próf í skóla lífsins. . get varla beðið.

Kosningavaka MS-inga var haldin að þessu sinni í húsnæði Tannlæknafélags Íslands. Eftir partý með hverfisfólki hjá Gumma. . rúlluðum við á RISAjeppanum hennar Tinnu á vit ævintýranna. .kosningavakan var snilld!Lögðum undir okkur dansgólfið, flestir á rassgatinu og drullufyndnir – tölur voru kynntar með jöfnu millibili og Jón Pési var alltaf í góðum málum. Þegar klukkan var orðin eitthvað og löggan kíkti inn í kaffi og kleinu þá fannst okkur nóg komið og skelltum okkur niður í bæ. – ekki svo í frásögu færandi bæjarferð. .en við Tinna, Olla, Brynja og Gummi vorum fyrir rest plötuð inn á O´Brians (sem heitir það víst ekki lengur). . suddastaður en snilldin innpökkuð engu að síður! (nei)

Road trip! á laugard.- þynnka í fyrirrúmi- við Atli settum stefnuna á Þingvöll. . Atli keyrði. . á meðan ég þeytti skífum í samræmi við umhverfið og ástand hverju sinni. . Þegar á staðinn var komið var mottóið ,,The only way is forward” sett og haldið af stað! Það var ekkert púður í því að fylgja “ellimannagöngustígunum”svo við Atli reyndum sem mest að gera okkur erfitt fyrir. . Klifum niður klettaveggi, næstum dottin. . og þessi “Tom Cruise-leið” okkar að Öxará var svo sannarlega enginn hvolpur. . þegar við loks komum á áfangastað vorum við með Öxará vel upp fyrir hné. .frábær ferð.

Um kvöldið var afmæli haldið hjá Ollu og var hún afmælisbarnið. Rosalega góður mexíkanskur matur . .og sápan og slúðrið lág vel í loftinu.

-seinna þetta sama kvöld fór ég í partý til Óla. .-jesus ég hef sjaldan séð annað eins. . maður þykist þekkja þetta fólk. .en þetta sama fólk var bara flest alveg FARIÐ í hausnum af drykkju þarna, sérstalega þá Guðrún!
70% spíri teygaður úr tilraunaglasi, strákur sást ekki meir eftir að hafa verið rígmanaður í 15 staup af Tequila, fólk var undir borði. . ofan á borði . . Potta-bollan var viðbjóðsleg og fékk ég sjálf að vita það eftir tvöfalt tap í e.k. ólsen-ólsen eða e-ð, hver maður á felgunni! ég bara man ekki meir- fólk fór bara jah. .á kostum. .

föstudagur, mars 14, 2003

Bara fjöllin í gær. . það voru GEÐVEIKT margir í Skálafelli í gær! Alveg . .ég og Birna, Birna og ég og við tvær, strákur á skíðum og strákur á bretti, strákur á bretti, strákur á skíðum og þeir tveir. . og þá vorum við alveg strax orðin 12. . og svo var e-r gelgja, önnur gelgja og kærastinn hennar, kærastinn, gelgjan og hin gelgjan og þau þrjú. . o.s.frv. svo við vorum alveg geðveikt mörg!!!!
-magnað færi inn á milli en vá! EKKERT skyggni!!! Stólalyftan lá eins og á leið upp til himnaríkis. .HVÍTT! Allt í kring! Sá ekki neitt!. . við gátum skíðað fram á blábrún hengju án þess að fatta það. .maður var allt í einu bara einn í heiminum
En þetta var massa gaman og alltaf gaman að lenda í e-jum hremmingum og kakóið klikkaði ekki.

-Í kvöld er kosningakvöld MS-inga, Jón Pétur að bjóða sig fram í Ármann. . ég held nú bara að hann taki það. .en það verður gaman að fylgjast með tölum þegar þær berast í hús

miðvikudagur, mars 12, 2003

Það hefur svo sem lítið komið upp á daginn. .

Við pabbi og atli fórum á Lilya 4-EVER um daginn, sænsk mynd á rússnesku. . og eins og atli sagði. .mjög áhrifamikil mynd, ég var alveg eftir mig og er enn. . ég hefði allt eins farið að gráta þá og þegar

Háskólakynning á sunnud.- ég er litlu nær hvað mig langar að gera en þetta var áhugavert..

Skólinn gengur. . en það er einmitt bara ágætlega skemmtilegt í skólanum þessa dagana. Kennarar veikir í vikunni. . ½ bekkurinn fór á Ara í Ögri og lífgaði það upp á hluti.
Undanúrslit Sólbjarts 18 mars , 5.Y vs. 5.M- það verður spennandi

Ég og Unnur ákváðum loks í gærkvöldi að skella okkur á Herranótt, leikritið Hundshjarta og var það bara þónokkuð skemmtilegt! Fyndin atriði þar sem gert var grín að áhugamannaleikritum. Propsin fengu stóran plús og já bara mjög svo skemmtileg sýning.

Ég vil leiðrétta ákveðinn misskilning sem sumir, ég segi nú ekki tapsárir. . en. . jú tapsárir birtu á heimasíðu sinni . . liðið mitt , NB. því sama og alltaf!var eins og svo oft áður í fyrsta sæti í kapphlaupinu í gær! Klassa spilamennska!. .

Það stefnir í afmæli hjá Ollu á laugardaginn og líka bekkjarpartý hjá Óla, snilld.

laugardagur, mars 08, 2003

Svona er það þá á jafnsléttu. .
-Ég er að deyja hérna mig langar svo á skíði aftur í dag en verð að haldast heima fyrir með hálsbólgu og hita. .
Maður verður að sleikja upp hvern einasta dag sem opið er í fjöllunum á þessu landi!

Það er búið að vera svo gaman síðustu þrjá daga, allur dagurinn (e.skola) á skíðum. . það er fátt annað skemtilegra en það!
- miðvikud. var farið í Bláfjöll fram á myrkrað kvöld( ljósastaurar upp í brekku) - úff fallegur lyftuvörður með sætasta bros! Varð ástfangin . .

- ÓNÝT! Í skólanum. .

- fimmtud. Skálafell með Birnu, Dröfn og Dóru,- æðislegt færi, magnað skyggni og besta veður! Eftir lokun stólalyftu þutum við niður borgarbrekkuna á innan við mín-skíðað til kl 22.00(svo fallegt þarna á kvöldin), Dóra datt e-ð og missti einu bíllyklana að bílnum, KOLniða myrkur!- litlir lyklar. .stórt leitarsvæði. . við bjuggumst við að gista á staðnum. .en eftir dúk og disk fundum við lyklafjanda og rusluðumst heim. .

-ÓNÝT! Í skólanum. .

- föstud. Skálafell með Þórunni Helgu og Ollu, rosagaman, fórum furðulegustu leiðir. . þræddum öll gilin og flugum gjörsamlega yfir stökkpallana- fest á filmu, þórunn í spikat- og heitt kakóið (NB.í PÓSTthermoinu!) rann niður kaldar æðar.- keyrðumst heim til Þórunnar og flatbökuðumst þar, ég strax komin með hita og óreiðu- seinna flæktumst við Olla á árshátíð bændasamtaka á Hótel Sögu,stutt stopp – en bændasamtökin eða “rollurnar” eins og þau voru kölluð þegar þau voru m.ráðstefnu á Bifröst, eru sko djammarar í lagi!!

Birna var að hringja. .og það er enginn heima. . ég er alvarlega að hugsa um að stinga af og fara á skíði þrátt fyrir að mamma bannaði það

þriðjudagur, mars 04, 2003

Ætlaði ég að snappa???!!!!- tölvudruslan HENTI ÚT! efnafr.skýrslunni minni! Ekki einu sinni heldur ÞRISVAR!!! Í gær. .

Jæja, eins og lesendur þessa “bloggs” vita þá fór ég á The Ring laugard.kvöld. . jesus! Við Tinna íhuguðum alvarlega brottför í hléi! Við vorum engan veginn að höndla þetta! Sátum saman á grúfu ½ myndina af hræðslu, báðar með alvarlega OFöndun í lok myndarinnar! . . .og það er líka e-ð við mig, ég þori aldrei að vera með fæturna á gólfinu í bíói. .er e-ð svo hrædd um að einhver kippi í þær undir sætinu. .ég hef oftar en einu sinni oftar en tvisvar verið sögð skrítin út af þessu. .
En hefði ég farið beint heim að sofa eftir myndina. .hefði ég ekkert farið beint heim að sofa...ég hefði líklegast náð mér í vasaljós og farið undir rúm. .því að ef ég væri undir rúminu myndi ég mest líklega vita af því ef e-r annar væri þar einnig. .
-svo við Olla fórum í ,,partý” til Gumma þar sem megnið af hverfispakkinu var saman komið. . .
Þar var fólk í glasi, sumir dýpra settir en aðrir . .og var Maggi með e.k. “talkshow” þar sem hver og einn var tekinn fyrir!. .rifjaður upp HVER EINASTI skandall sem sá og hinn sami stóð fyrir. . og af NÓGU að taka víst. . hver svaf hjá hvaða gangaverði o.s.frv. þetta er svo steikt lið!

Var að horfa á mynd sem ég hef séð OF oft en hef alltaf jafngaman að. .
Girl Interrupted með Winonu Ryder o.fl.- skemmtilegt geðveikrahæli. .
“Verum tré. . .allir vera tré. .
-Hvernig tré ert þú sitjandi svona á gólfinu?!
Ég er fjandans runni!”

laugardagur, mars 01, 2003

Laugardagur. Edrú enn sem komið er. . enda hefur maður nú verið ansi slappur í djamminu að undanförnu. .

Leikritið í gær var bara hið ágætasta. .NÁKVÆMLEGA eins og myndin bara. .nema mér fannst flest söngatriðin koma alveg út úr kú og eiginlega óviðeigandi sum. . en þetta var skemmtilegt leikrit og flott upp sett.

Eftir leikritið var nóttin ennþá ung og við Brynja, Olla og Tobba fórum heim til Brynju og kúrðum yfir Með allt á hreinu, snilldarmynd! Ég þarf ekkert að taka það fram. .
En Brynju til mikils ama steinsofnuðum við Tobba og Olla í flækju og regluleysi í rúminu hennar Brynju. .Tilvitnun: ”mjög skemmtilegir gestir”. . en okkur til varnar þá stendur Gestaþáttur Hávamála með okkur. . “. .Ókynnis þess vár þig engi maður að þú gangir snemma að sofa. .” (er að fara í próf á mánud.)en seinna rusluðum við okkur heim um nótt miðja allar með koddafar dauðans!. .alveg ónýtar!

En mikið rosalega er maður útitekinn eftir daginn í dag. .
Við Olla og Brynja ákváðum að skella okkur á línuskauta meðfram Ægissíðunni syngjandi hástöfum Grýlulög á leiðinni . .Hmm. .já. ., þetta gekk nokkurn veginn slysalaust fyrir sig. . .- enduðum svo í Kópavogslauginni þar sem einhverjir 5 ára krakkar létu okkur ekki í friði.

Í kvöld er það THE RING. . . shit.

fimmtudagur, febrúar 27, 2003

Það er allt að gerast. .
Nú eru MS-ingar komnir í árshátíðarfrí, og er sjálf árshátíðin á morgun. . vonandi skemmtiði ykkur sem best !
Sjálf þarf ég að mæta í íslenskutíma eftir nokkrar klst. . .æði

Var að koma af Kofa Tómasar frænda með þeim Ólínu og Brynju Dís. . alveg hreint frábært. . fyrr í kvöld vorum við staddar í Austurbæjarbíói á Söngvakeppni MS. . mættar þeim Baldri og Arinbirni til stuðnings. .tóku þeir lagið “Letter to my penis” og slepptum við okkur sum (kannski ekki alveg..en..) þegar kynnar kynntu: “ ...sem tilheyra hinu víðfræga Laugalækjargengi” nostalgía . . .allavega. . þá var þetta STÓRskemmtileg keppni og voru atriðin ófá fáránleg. . og ekki ófá heldur. .alls 22 atr.- M.a. tók ein stelpan mjög vel Shakira lag, önnur “ironic” og enn önnur “Papa don´t preach”. . flottur strákur tók “Shiver” með Coldplay og var það flott! og e-r tók “Your song” sem er ekki BARA fallegt song!! Og var maður allt í einu aftur andlega staddur á Rammstein tónleika þegar kauði tók “Sonne”. .Tæknimenn tóku “Tribute”-nákvæmlega eins og lagið er! Snilld! - vinningslagið var “Ást við fyrstu sýn”(Páll Óskar) með honum Flosa sem maður ætti nú að kannast við ef maður hefur nokkurn tímann áður mætt á söngkeppni. . og var flutningurinn glæsilegur! Annars voru einnig í sjálfri hljómsveitinni þeir Jón Pétur og Gunni litli og stóðu þeir sig eins og hetjur! Stolt af þessu liði.

Á föstud. förum við stelpur svo aftur í Austurbæjarbíó til að sjá leikritið “Hrein mey á leiðinni”. .leggst vel í mannskapinn. .

sunnudagur, febrúar 23, 2003

Jahérna. . við Atli fórum á myndina CHICAGO og þvílík snilld!! Ég hef ekki séð jafnskemmtilega né glæsilegri mynd í LANGAN tíma! Ég mæli virkilega með þessari mynd! Renée fór á kostum! Richard Gere! Sjarmör dauðans kom skemmtilega á óvart og Catherine Zeta-Jones! Hún er OF svöl! Maður gat hlegið/dáðst að henni alla myndina! Snillingur! Ótrúlega flott mynd. .

Í gær sat ég hálfan daginn á frystikistu með Brynju í eldhúsinu á Jarlinum og sagði henni m.a. frá Röddinni svo hún geti þóst hafa lesið hana í áfanga sem gengur undir skemmtilega nafninu yndislestur. .

Um kvöldið var eldaður mjög svo góður pastaréttur heima hjá Tinnu og sóuðum við Tinna, Tobba og Solla öllu kvöldinu í kjaftagang og læti. . mjög gamanJ
Svo fór Brynja með mér heim og við tókum okkur BOX stöðu, en sofnuðum báðar. Og misstum af þessum 49 sek.

Er ekki e-ð of gangster-legt eða e-ð . .að kalla vinkonur sínar eða þegar maður er að tala um vinkonur sínar. .tala þá um “stelpurnar sínar”. . T.d. “Ég og stelpurnar mínar tókum einn laugara í gær. .” eða e-ð álíka. . við vorum mikið að pæla í þessu í gær. . Fyrrum herbergisfélaginn minn á Bifröst, hún Sylvía, sem Tumi hlýtur að muna eftir. . féll kylliflatur. .;) allavega. . hún talaði alltaf eftirminnilega um “stelpurnar sínar”. . en á hinn bóginn var hún nú hörkutól dauðans! Þvílíkur snillingur. . fór heim aðeins yfir helgi. .kom aftur “heim”(að Bifröst) með glóðarauga, rispuð eftir e-jar neglur o.fl. eftir að hafa ráðist á “einhverja hóru sem var með stæla”. . ég sakna hennar.

föstudagur, febrúar 21, 2003

Enn ein vikan búin( hjá mér eru föstudagar vikulok. . ), hún leið ansi hratt og hún kemur mest örugglega aldrei aftur. .tár?nei. .hlátur? oneei. .eftirsjá? nei. . það gerðist eiginlega lítt merkilegt í þessari viku minni. .

Í gær sótti ég um vinnu hjá Fosshótel. Ég fékk 6 blaðsíðna umsóknareyðublað. . ég ÞOLI EKKI spurningar á borð við. .”Gefðu okkur a.m.k. 5 ástæður af hverju við ættum að ráða þig.” og hvað þá “Hvernig getur þú lagt þitt af mörkum til að gera Fosshótelin að vingjarnlegustu hótelkeðjuna á Íslandi?” . . .

Um kvöldið var svo farið á leikritið áðurnefnda. .flott leikrit, flott sviðsmynd, vel leikið og svona en já þetta var farið að verða heldur langdregið. . var líka alveg frá kl.20.00 til 23.30. .
Farið verður svo aftur í leikhús á sunnudaginn, Herranótt – Hundshjarta, það verður gaman að sjá það.

-Í dag á Dóra bekkjarsystir afmæli. .til hamingju! Kökur og Coke í E-stofu í allan dag.

Eins og ég sagði þá er liðið hans Atla að missa það í The Amazing. . næstsíðasta sæti, það segir sitt!

Ég keypti CD disk í dag, hundgamlan. . Nas – it was written, alveg frá 1996! Klassalög, og eitt sérstaklega í uppáhaldi hjá mér, “the message”, eitt flottasta lag sinnar tegundar!

þriðjudagur, febrúar 18, 2003

Jæja jæja. .það er skrambi mikið að gera þessa dagana. .mikið af prófum o.fl.
-Það er bara fyndið. . ef það er e-ð sem á svona helst ekki að gera eða er bara alveg bannað. ..þá eru bara enn meiri líkur á því að maður geri einmitt það. – T.d. verð ég að játa að ég var ein af mörgum sem struntuðu í bíómótmælin og fór einmitt í bíó á sunnud.-Two weeks notice- meiri svona spólumynd. .en það var samt gaman að henni.

-Alltaf gaman að láta segja manni hvað og hvað maður gerði ekki á árshátíðinni. . við Birna erum hættar að drekka HÉR MEÐ. Hætt þessu rugli. .

-Á fimmtud. verður farið á leikritið Death of a Salesman eða Sölumaður deyr, eflaust taumlaus skemmtun.

-X-bekkurinn, hinum megin við ganginn, var að skora á bekkinn okkar í Paint-ball við e-rt tækifæri. .skilin verður eftir sviðin jörð. .

-The Amazing Race í kvöld! AAAAAAAAAAA.........

-Húrra! Kláraði The Remains of the day í gær. . og horfði á myndina. . vá! KILLER mynd! Ég þurfti að þjást í skömmtum. .

Whenever people talk to me about the weather,
I always feel certain that they mean something else

-Oscar Wilde-

sunnudagur, febrúar 16, 2003

Bank bank? Halló! Hvar hefur maður verið?!

-Árshátíð bara á fimmtudaginn! Ég ætlaði nú fyrst ekki að fara. .en lét svo til leiðast þar sem allur bekkurinn ætlaði að skella sér á ballið og stemningin var gífurleg.
Morgunpartýið var hjá Konna, allir komu með e-ð. .500 skinkuhorn, 200 súkkulaðikökur og 100 rúnstykki. .nei, en svona í alvöru. . .það hefði verið hægt að fæða 60 manns! ,rosa gott sem sagt. Morgunpartýið var bara frábært, spjallað og svo fór allur bekkurinn í Party&co. -deilur komu upp- um hvort til sé NIVEA-háreyðingakrem- þær voru leystar með því að hringja í Nivea umboðið. .svar umboðs var á reiki. . Sumir ætluðu að byrja snemma og áður en farið var á hátíðardagskrána var blandaður sjeik með ávöxtum. . . og hálfur vodkapeli var vitaskuld crucial í uppskriftinni.- sjeikinn slapp naumlega framhjá bodysearchinu hennar Kristínar íslenskukennara í smárabíói.

Parýið/maturinn var hjá Dóru í Hfj. Frábær matur og skemmtilegt partý. Sumir höfðu bersýnilega drukkið e-ð meira en sjeik á ókristilegum tíma, en bekkurinn kom engu að síður skemmtilega á óvart og var það orð götunnar að ef öll bekkjarpartýin væru eins og þetta . .þá verða mörg partýin á næstunni.
- Þó nokkrum bjórum og rauðvíni seinna . .var staflað í bíla þeirra sem ökuhæfir þóttu. .og held ég að fólk hafi af og á verið að drepast í bílnum hennar Ásu . . Ballið var snilld! Fólk dansaði eins og brjálætt væri. .

Árshátíðarfríið er í móðu. .þó að ég sé tæknilega ennþá í því. . veit ég ekki hvað ég er buin að vera að gera. .á föstud. varð ég að hleypa inn í húsið nokkrar óstýrlátar stelpur vegna þess að þær nauðguðu dyrabjöllunni. .nuff said. .en í gær var kósíkvöld hjá Ollu eftir erfiðan dag á kaffihúsi með Brynju, pöntuðum pizzu-og sökum mistaka eigum við líka inni pizzu hjá pizzafyrirtækinu. .og svo var skellt í Betty köku og horft á Eurovision. .margir ekki á eitt sáttir með úrslit . . en ok.

-En bíddu. .er fólk almennt heitt fyrir Hörpu Melsteð?! Hver er sagan?

mánudagur, febrúar 10, 2003

Eins og Bjarney benti á þá er þetta uppreisn hjá mér. . gegn sjálfri mér. . .fram að þessu virðist vera sem ég hef bloggað nákvæmlega annan hvern dag. . but the girl´s gone wild!

-Harald! Harald!. .hversu oft er þetta öskrað í Nonna og Manna? jaðrar við pirrandi oft! Ég er einmitt djúpt sokkin ofan í þættina um þá bræður. . Þessir þættir eru æðislegir!En ein gellan, mamma þeirra (Sigrid Jonsdottir), er soldið í því að fara í taugarnar á mér, hún er ALLTAF í fýlu eða grenjandi og hallar sér upp að öllu uppaðhallanlegu! Það er ekki veggur á Möðruvöllum sem hún hefur ekki hallað sér upp að! og ef hann væri til þá. . . nei! hann er ekki til!.

-Á föstud. hittist sjöan - (Solla) 2 + Harpa = Muffins. Sjá nánar Bjarney.

Atli pakkaði niður vitinu og keypti Bryan Adams- Best of me. En kauði minnir mig svo ótrúlega á The Three Musketeers, enda söng hann ásamt Rod Stewart og Sting titillag myndarinnar-All for Love. – Þessi mynd er mjög dýrmæt! -og það fer ekki lengra en ég var alltaf soldið skotin í D´Artagnan. En þegar maður heyrir þetta lag þá er allt svo yndislegt! Textinn fer alveg með mann. .eins og Kristín sagði alveg út úr kú. . “maður verður alveg OH! þetta er svo fallegt!” . . . lífið er yndislegt!

-Ég er búin að fatta það að ég er með rosa phobiu f. fuglum! Ég er dauðhrædd við fugla! Ef e-r fugl mundi fljúga inn í herbergi til mín. . ég mundi eipa og deyja held ég. Sérstaklega eftir að ég sá myndina The Birds þá. . .

-Könnun: Á einhver annar á landinu fyrir utan ég sjálf og Kristín Erla diskinn Savage Garden?

fimmtudagur, febrúar 06, 2003

Hvaða hommatal er þetta hérna. .vil ekki hafa þetta. .
-Biðjið Daða afsökunar tafarlaust!

En talandi um pólitík þá var ég einmitt í saumó í gær. Ekki má minnast á heimsmálin, því þá er voðinn vís þarna! Enda ekki alsaklausar stelpur þarna á ferð. Byrjaði rólega. . en fór heim með brunasár eftir Sollu. -en skandall, skandall! Tinna mætti síðust á svæðið.- ég á ekki til orð. Æðisleg matseld hjá Ollu, frábærar pizzur og þarna eftirrétturinn.. Saumó var sér líkur, Tobba dramatísk, e-r að reyna að pikka fight, róum okkur niður. . –Umræðuefnin hafa hér verið ritskoðuð og mun ég ekkert minnast á þau. Alltaf jafngaman, elska þessar stelpur.

-Annars var ég eila líka skömmuð í gær, ég er víst aldrei heima hjá mér og vil ekki gera neitt með foreldrunum, ekki fara í e-n sumarbústað og hvaðeina!

Skólinn alltaf á sínum stað. –49 dagar eftir. Líffræðipróf á morgun. Árshátíð í næstu viku. Gaman af því.
-Ég efast MJÖG um að við rennum okkur e-ð á skíði á næstunni. .hvað þá á morgun.
Heimir bekkjarbróðir átti afmæli í gær, aftur til hamingju með það. Kristín íslenskukennari sagði allan 5.Y bekkinn efni í kór! Þó að maður heyri aldrei í neinum öðrum en Bjössa þegar sungið er þarna. Snilld! Þvílíkt efni í tenor!- en Heimir verður með partý í Breiðholtinu á laugard.- massastuð!!

þriðjudagur, febrúar 04, 2003

Aloha allihopa!
- Klassískur þriðjudagur. . . Enn ein stærðfræðislátrunin og The Amazing Race. –fastir liðir.

Ég veit að Atli bróðir elskar þessa setningu en. . . “The gloves are OFF, the Race is ON!!” þvílíkur þáttur. . farið var til Marokkó þar sem ég hef persónulega labbað nokkur skref og færðist æsingur í sófann heima þegar fólk tók vitlaust bensín. . . ég held að það sé bara tímaspursmál þar til liðið hans brósa klúðrar sínum málum. . .mér væri hins vegar alveg sama þótt “Teri n´Ian” detti út, þau eru meira en pirrandi!
Síðasti þáttur Dawson´s í gær. .kom endirinn einhverjum á óvart? Engum.

-Hver man ekki eftir goðunum Per Gessle og Marie Fredriksson??!! “Karl Gústaf Svíakonungur hefur sæmt sænska dúettinn Roxette heiðursorðu fyrir framlag þeirra til sænskrar listsköpunar á innlendri og erlendri grundu.” - vel að því komin! Uppáhalds hljómsveitin mín frá 6 ára aldri og uppúr – það er ekki hægt að finna lag með þeim sem maður kann ekki hvert orð sem og stunu í. Snilld.

-Gamla góða- every day- kaffihúsið með Brynju í dag, Olla kíkti við.

Við erum að planleggja skíðaferð á föstudaginn- plís vera opið!!! Enn einu sinni leitar maður svara í Bókinni með svörin. . .hún segir: “Samstarf er svarið!”- hvað á ég að gera? Stjórna veðrinu?!! Hmm…gæti verið gaman.

-Á morgun er saumó hjá Ollu, -á að verða vegleg “Heimabökuð pizza- veisla”. .- það verður stuð, að vanda.

sunnudagur, febrúar 02, 2003

Aðfaradagur mánudags til mæðu hvað?. . .þetta er frábært! Sólin sem og snjórinn á sínum stað. . ég bið ekki um fleira.

Dagurinn í gær byrjaði á laugardagsmorgni. En hins vegar um þrjúleytið var kl. orðin 14.50. Þá fórum við Brynja á Kaffi Vín og fórum að læra, slúðra og spila. Tókst mér að klára ½ ritgerðina mína um Röddina og tapa hræðilega/vinna glæsilega í hinum og þessum spilum stútfull af “henti-reglum”, samdar af þeim sem samdi spilið hverju sinni.-Vorum við á kaffihúsinu í 4 og ½ tíma!!! Og er ég nú með kaffiEITRUN!
Allt þetta kaffi hafði e-r ofvirknisáhrif á mig og kom ég dansandi heim að Atla mátandi húsgögn fyrir komandi Hatta-partý seinna um kvöldið. . .ég ákvað að segja sem minnst.

-Hattapartýið kom og fór og hafði fólk lagt mismikla vinnu í höfuðfat. Skilst mér að veitt höfðu verið verðlaunin “Mest samkynhneigðasti náunginn á svæðinu” og tóku væntanlega leðurhommarnir vel í það. .voru þeir þeim að segja Ófáir á svæðinu. Þakka ég einnig þeim kærlega fyrir,sem sýndu þar kærkomna hvatningu til frekari ritunnar á ástarsögunni.

-Í morgun vaknaði ég við þrítugasta hanagal og skreið út í búð að kaupa hvítkál. Grunaði mig að ég hafði e-s leynda hæfileika í eldhúsinu. .sem reyndar brugðust síðast. . kartöflumús sem bragðaðist eins og gúmmí!!!-förum ekki nánar út í þá sálma.
Bjó til “´Grænmetis´ala´krem-de-la-krem´la Drífu´súpu”. . .og leyfist mér að segja að hún var ekki á verri endanum- eins og hinn daginn.

-Horfur dagsins í dag eru Röddin og The Remains. .

föstudagur, janúar 31, 2003

Það er ekki laust við að maður sé kominn með hita. .einmitt þegar það er kominn föstudagur, en hei, ég er vog. .

-Í gær fór nú allt í háaloft. Horft var á strákana okkar, með Brynju og strákunum okkar, heima hjá Gumma. Það var öskrað, það var bitið. It was ugly.- þeim gengur vonandi betur næst.

-Það er e-ð voðalega mikið að gera í skólanum þessa dagana, bókmenntaritgerðir hægri vinstri, próf o.fl. En veit e-r hver Anna Klein er? Það var “spurning dagsins” í 5.Y. . e-ð með kleinur að gera kannski?
-Þvílík snilld er að grafa upp gamlar dagbækur! Fyndið hvað allir hafa breyst. . .
_________________________________________________
,,Businessmaðurinn lét hana hafa lopasokka og muldraði e-ð ekki hlustanavert. . hún svaraði, en ákvað að vera svöl og lét eins og henni væri nett sama hvort hún væri að tala við hann eða vegginn. Hún kom sér út fyrir vel hirtri útgönguleið hússins eftir vandræðaleg orðaskipti.
Rugluð, ringluð og þunn skeiðaði hún niður Vitastiginn eins og ekkert hefði ískorist. Á leiðinni að bílastæðinu, þar sem hún hélt að hún hafði lagt ruslahrúgubílnum sínum, ónáðaði hana einhver útlendingur.
-Pardon my French, but. . .Nos trae la cuenta, por favor?
-Was?, sagði hún.
-Es gas se está saliendo!
Spænski hálfviti, hugsaði hún, best að losna við hann eins og skot.
-I am the mafia here in Iceland!!! Don´t mess with me!!! Leave me alone!, öskraði hún . . henni datt ekkert annað í hug.”

miðvikudagur, janúar 29, 2003

Þá er ræðukeppni 5.Y og 6.Y búin. . umræðuefnið var: Á að þurrka upp Tjörnina? Og vorum við auðvitað á móti. .þetta var mjög skemmtileg keppni og voru rökin mjög svo augljós. . .

”Í fyrsta lagi er ekki til neitt SVO stórt handklæði til þess að þurrka upp heila tjörn!!! og jafnvel þótt þessir fjórmenningar hérna myndu finna slíkt handklæði. . .HVAR ætti þá að hengja það upp til þerris???- Sveinbjörn”. . .
“They can take our lives but they can never take our Pond!!”- Konráð

-allavega you had to be there. .- mjög fyndin keppni og var Konráð Jónsson ræðumaður dagsins og unnum við. Veeeii!
-Í gær var líka ræðukeppni, 5.M-3.G, umræðuefni: Líkamshár, stóðu stelpurnar sig mjög vel og unnu!! Ræðumaður gærdagsins var enginn önnur en hún Margrét! Til hamingju!

Ég var sakleysi mínu í strætó áðan. .og á mig réðst e-r náungi í SVR-úlpu og bað mig um að fylla út “FARÞEGA-KÖNNUN!”. .annað hvort var það að þykjast ekki kunna stakt orð í íslensku. . en DAMN! það var kona við hlið mér sem hafði nú þegar notað þá afsökun. . . fake-a skyndiblindu eða hlaupa á strætóhurðina sem þá myndi vonandi opnast og hendast mjög “Die Hard-lega” út á gangstéttina, en þá myndi ég fíla mig OF mikið eins og Keanu Reeves svo. . . - ég gerði ekkert slíkt. . ég tók fjandans könnunina og svaraði spurningum um loftræstingu og hitastig í vagninum, aksturslagi og viðmót bílstjóra. .- hleypið mér út núna!
____________________________________________
,,-Sjitt! Hann er að vakna! Fokk!, hugsaði hún.
Þau litu hvort þegjandi á annað. .hann, verandi mikill áhrifamaður í businsslífinu. . .hún, vitandi það. . þau þögðu.
-Ehh. .best að ég fari að koma mér. .sagði hún, og tók hastlega saman fötin sín sem voru á víð og dreif um herbergið.
Hann ætlaði að fara að segja eitthvað þegar hún greip snögglega fram í. . .
-Má ég fá lánaða sokka? það er janúar úti. . .”

mánudagur, janúar 27, 2003

Mjólkurfernurnar eru farnar að sýna “1 FEB”, og þið vitið jafnvel og ég hvað það þýðir. . það er ekki langt í 1 febrúar. .ekki það að það sé e-ð að gerast spes á þessum degi, hvað ég veit, en tíminn líður ansi hratt.

-Hvað á ég að gera eftir MR? Þessa dagana er ég mikið að velta mér uppúr þessu. Kannski soldið snemma. .en kannski er lestin í alvörunni að fara. .ég held að það sé mál til komið að leggja á borðið e-r plön.
-Það hefur verið langþráður draumur að fara aftur á æskuslóðir eftir menntaskóla og þykjast vera háskólanemi í Lundi. .vá!það held ég að væri gaman! Í sumar átti ég líka gott spjall við gamla sænska konu sem var gestur á hótelinu og keyrir leigubíl(sem heyrir reyndar ekki sögunni til). Hún er búsett í Lundi og sagði það vera “snilld” að sækja háskóla þangað. Hún gaf mér upp nafn sitt og sagði mér að fletta því upp ÞEGAR ég kæmi! knúsaði mig bless og fór með restinni af gamla genginu að skoða Borgarfjörðinn í gegnum rútuglugga. En hvað er maður að fara að læra!!!? Ég skipti oft um skoðun en hef að undanförnu hallast mjög að líffræðinni . .ég veit. .GOTT Drífa! Farðu á eðlisfr.braut! en ég veit það ekki. .
-Við röbbuðum lítillega um plön í saumó, og eins og gatan liggur núna látum við okkur dreyma um. . Tobba til London, fótboltastelpurnar Solla og Olla til Bandaríkjanna, Tinna til Danmerkur, ég til Svíþjóðar og Brynja rokkar feitast á Íslandi. Það verður gaman að sjá hvað gerist eftir ca. 1 og ½ ár.- jæja, nóg af þessu bulli.

-Við Birna fórum á 8mile í gær, njahh…..!

Í kvöld er það kaffihús og heimadæmi, jíha.

laugardagur, janúar 25, 2003

Það er naumast hvað maður er e-ð inni í handboltanum þessa dagana . .
-Í gærkvöld fórum við Olla og Brynja á handboltaleik í meistara kvenna í Framheimili, HVÍLÍKUR leikur! Áður en við mættum á staðinn vissum við Brynja ekki einu sinni hvaða lið áttu að mætast, bara að við værum að fara að horfa á “Frænka hennar Ollu vs. Kærustuna hans Baldurs”. . reyndust þetta vera liðin Fram og ÍR/Fylkir(eða öfugt). . .og héldum við AUÐVITAÐ með Fylki! Úrslit voru 21-24! minnir mig, og stóð Vala (fræ.ollu) sig einstaklega vel í hlutverki Bjarka Sigurðssonar. . .ég veit ekkert um handbolta lengur.

-Að leikslokum fundum við okkur allt í einu í tvítugsafmæli á Sólon og var það Ýr, vink.Tobbu, sem átti afmælið. Til hamingju með það enn og aftur! Þegar líða tók á kvöldið voru MH-ingar búnir að hertaka efri hæðina á Sólon, og fórum við Brynja niður og kjöftuðum yfir bjórglasi. Seinna, en nokkuð snemma þó, skutlaði Þórunn Helga okkur heim og var þetta orðið ágætt.

-Lumar e-r á ritgerð eða e-ju úr “Remains of the day”? Þessi bók er eiginlega að öllu leyti snakk og bull! En ágætis lesning engu að síður, því maður getur bara hugsað um daginn og veginn, fólkið og fjöllin. . þegar maður er að lesa þessa bók.
-Guð hjálpi fjölskylduna, ég er að fara að elda í kvöld.

föstudagur, janúar 24, 2003

Jæja, bara skólavikan búin. .æðislegt! Afrek dagsins í skólanum eru þau að láta Birnu sessunaut fjarlægja blóð úr hendinni á mér þannig að hun varð hvít, og skila því svo aftur . . .tilraunastarfsemi í gangi sko. . .þetta var mjög áhugavert!

-Saumó í fyrradag. Þar kjaftaði hver tuskan . . og varð vegleg “Tortillas-veilsa”. Alltaf jafngaman í saumó en held ég að hver utanaðkomandi fengi slag ef sá og hinn sami mundi líta við á slíka samkomu.

-Í gær var “söngstríð” í MR og var það haldið á NASA(og kom bara mjög vel út þar), margir stigu á svið og tóku misvel lagið, en LANGflestir þó vel, og er það vel. . .. Sigurvegarar kvöldsins voru þeir Óskar bekkjarbróðir (mjög stolt af honum) og Dagur 4.Y með lagið “Straighten up and fly right”- virkilega flott! Eftir keppnina var haldið á Kaffibrennsluna til að fá smá frið frá fimmburunum – don´t ask. . .en fyrst að ég tek svona óljóst til orða er best að segja ykkur að Magga reyndi að sannfæra tvo uppáþrengjandi gaura að við værum allar með fimmburum.- gekk ekki. Hurfu þeir þó óskiljanlega þegar Magga sagðist vera ´74 módel.

Vegna fjölda áskorana hef ég tekið þá ákvörðun að birta annað brot úr ástarsögunni. . .

,,Hún rifjaði snöggt upp atburði gærkvöldsins, sem á annað borð voru eilítið þokukenndir . .
-Guð minn alm..! Hvaða náungi er þetta! Djöfull var ég full.
Hún reis eins hljóðlátlega upp úr rúminu, sem þarf að taka fram að var í slæmu ásigkomulagi, og hún gat. Að vekja hrjótandi náungann við hlið hennar, vissi hún, að væri eintóm ávísun á vandræðalegt uml.
-Jiii…,hugsaði hún með sér, hvað ætli Nathan segi???!!”

þriðjudagur, janúar 21, 2003

Var að koma úr stærðfr.prófi. . þvílík SLÁTRUN! Var alveg að læra í gær sko. .en svo voru allt í einu Golden Globe verðlaunin mun áhugaverðri en diffurafleiðing. .svo. .það er ekki að spyrja að framhaldinu! Ég hef ennþá jafngaman að þessum kvikmyndaverðlaunaafhendingum og fyrri daginn . .
--Skemmtilegt var að sjá Sharon Stone fara vægast sagt ekki á kostum og var hún bersýnilega Á PERUNNI! Frekar druslulegur kjóll líka. Og var ræðan hennar “Samönthu” úr Sex and the City mjög skemmtileg. .”You wouldn´t believe how many men I had to sleep with to get this award!!!”
Gaman að sjá líka hvað Nicole Kidman er gjörsamlega að blómstra!! síðan hún hætti með Tom Cruise (ísl. Tómas skemmtisigling) og Lara Flynn Boyle hélt að hún væri að kynna á ballettsýningu 8ára stúlkna.
-Við Atli vorum líka að pæla, konur fá eila aldrei Heiðursverðlaunin!. .en þá fórum við aftur að pæla. . það eru ekki svo margar konur sem eru komnar á eldri árin sem eru enn e-ð að leika. . Okkur kom eila bara engin í hug nema kannski Meryl Streep. Diane Keaton? Hmm. . .pæling . .segja sumir.- aðrir ekki.

-Lítið brot úr ástarsögunni sem ég er að skrifa. . “Það var sól úti, sýndist henni, þegar hún rak nefið upp fyrir illa máluðu gluggakistuna. Allt var kyrrt, hún hugsaði með sér : “Hvar í andskotanum er ég?, hvaða handleggur er þetta? ” “

sunnudagur, janúar 19, 2003

-Rétt í þessu var ég að koma af mögnuðum tónleikum með Strengjasveit úr Listaháskólanum í Reykjavík og Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þar voru tekin lögin góðu og kannaðist maður við fiðlu og aðra. . . en tilgangur ferðarinnar var engu að síður að berja goðið augum, hana Þorbjörgu Daphne Hall og lék hún snilli sína á selló, virkilega flott!

-Í gærkvöldi þurfti maður nú aldeilis að verja Kleifarveginn, með valdi, slökkva elda, hlífa börnunum o.s.frv.. .braust lýðurinn. . .nei, bara að grínast. .þetta var voða skemmtilegt að fá allt þetta fólk en mjög leiðinlegt að þurfa svo að henda því seinna öfugu út í kuldann . .Átti þetta að vera takmarkuð kokteilsamkunda, einar til tvær stelpur og blandari. .en þegar líða tók á kvöldið fór að hitna í kolunum og mörg kunn andlit kíktu inn. Var þetta mjög góðmennt en aðeins of fjölmennt miðað við hnattstöðu gamla settsins( sem hefur enn ekki jafnað sig e. Föstud.langa) Engu að síður virðist fólk hafa skemmt sér og kom blandarinn að góðum notum. Kokteilar út um allt! nýjar og nýjar tilraunir sem heppnuðust mjög vel. . og vorum við Álfdís orðnar ansi lagnar við gerð “ala´Banana”- drykkjar sem fór vel í fólk . .en jafnaðist þó ekkert á við ”Lurka-íspinna”-kokteilinn hennar Unnar. “Jarðaberja/sprite/passoa/vodka”-kokteillinn var líka alveg einstaklega góður, þökk sé Unni og voru bílstjórar næstum búnir að fleygja lyklinum og sleppa sér í drykkjunni. –bara mjög skemmtileg samkunda, og þakka ég enn og aftur þeim sem réttu út hjálparhönd í dyravörðslu og tiltekt.
-Furðulega stutt bæjarferð.

-Í kvöld er það svo bíó með Birnu og örugglega Dóru. Ég þarf að fara að læra. . .

fimmtudagur, janúar 16, 2003

-Þetta er bara hætt að vera fyndið með Ása blinda þýskukennara. . .hann er einn mesti pervert sem ég hef augum litið! Það virðist vera sem hann taki okkur Birnu fyrir í öllum tímum. .segir kannski ekkert beint dónalegt heldur svona laumu-perralegt og flissar svo í sífellu, MJÖG perralega, og horfir á okkur tvær og BLIKKAR!!! Við sitjum líka FREMST! Og ef maður er ekki að horfa á hann finnur maður fyrir því að hann er að horfa. Fyrir stuttu var hann að tala um e-n “vin sinn” sem þóttist vera lesbísk kona á einkamál.is ( sem hann stundar víst grimmt), en lenti svo rækilega í því þegar hin konan vildi hitta hana (hann) (“frekar digur maður svona.. hehheheh..*perraglott* ”) Já, varst það kannski þú??
Maður veit aldrei við hverju er að búast. . .annars ágætur kennari.

-Allt gengur annars sinn vanagang. . helgin stefnir bara í e-ð rugl held ég. .

-Oh.. svo svekkjandi, við förum ekki til Ítalíu á skíði í ár Ætli Bláfjöllin verða ekki að duga fyrst að snjórinn hefur nú loks látið sjá sig . .Hmm.. annars sýnist mér við Solla vera þær einu eftir sem stunda það enn að fara á skíði..það eru gjörsamlega ALLIR komnir á snjóbretti!!! Ekki það að ég hafi neitt á móti kældum brettastrákum! Í rauninni er ekkert svalari . .

þriðjudagur, janúar 14, 2003

Ok. .bloggið fór eiginlega allt fjandans til í dag. . Tæknin er e-ð að stríða okkur. .Var mér sagt að hrauna yfir Björn Swift en ætla ég ekki að gera það, hann reyndi að hjálpa og var það vel. .búið er að draga nokkurn veginn úr skaða og skemmdum svo ég vil biðja alla að hafa sig rólega . . takk.
-Vei! annars er The Amazing Race í kvöld, elska umræddan þátt! Spennandi að sjá hvort að tvíburarnir Drew og Derek detta út núna. . þeir gætu hvorki verið sætari né heimskari ef dæma má þá út frá síðasta þætti.

sunnudagur, janúar 12, 2003

Það fer að líða að mánudegi. .frábært!
-Helgin er búin að vera soldið slök á kantinum. Föstudagurinn er í móðu, við atli vorum e-ð að umturna herberginu mínu. .og svo fór ég að skúra, skrúbba, bóna. .rífa af öllum skóna?
Á laugard. átti Margrét afmæli!! 19 ára! Til hamingju ;) Partý í Breiðholtinu, gangster´s paradise, voða fjör.

-Af heimilinu er lítið að frétta. . kviknaði í brauðristinni.

-Í kvöld vorum við Brynja að passa lítinn gutta, Atla Frey, -hann er sko töffari í lagi, er í 5.bekk Laugarnesskóla með hanakamb og hlustar á Rottweiler. Vorum að “hjálpa” honum að læra heima og vá! þessi 5. Bekkjarstærðfræði er ekkert grín! Bægsluðumst við þrjú með eitt blaðsnifsi af aukadæmum í hálftíma!. .lögðumst svo öll útaf eftir erfiðið og dottuðum yfir spólu.- helgin hin rólegasta.
-En um næstu helgi er pæling til umræðu hjá allavega okkur Katrínu og Unni að djamma geðveikt.

fimmtudagur, janúar 09, 2003

Bleesuð! Vá ég hef verið e-ð á ferð og flugi út úr heiminum síðastliðna daga. . . veit ekki hvað er í gangi. . .?!?
-T.d búin að sökkva mér ofan í alls kyns tónlist sem ég hlusta minnst á dags daglega. . M.a.Nordman- snilld! E-r sekkjapípukennd tónlist samhliða blokkflautu og svo þessi sænska ráma sexy rödd sem er í textanum í djúpum pælingum. .trúarbarátta, yfirnáttúrulegar pælingar o.fl. Hann Py fær pottþétt stjörnu hjá mér, ekki verri sko..en eins og ég segi ekki e-ð sem maður hlustar á . . svo Michael Jackson!?!og bara e-ð rugl!

-Æfingaaksturinn gengur brilliant, þræddi hálfan Kópavoginn í gær og enn sem komið er hefur mamma ekki þurft að stökkva á handbremsuna, sem að öðru leyti er HANDónýt! .Stýrið er líka smá erfitt viðureignar eftir að Atla tókst að klessa smá á. . En úff ég verð að drífa mig til augnlæknis. .

-Annars eru um 68 skóladagar eftir. .og það eru 68 dagar of mikið. .en við Birna reynum að stytta dagana með föndri, slúðri og alls kyns bulli!
-Í kvöld er það svo aftur kaffihúsið með allavega Brynju. .annað heimili okkar, Kaffi Vín, litla “holan okkar í veggnum”. .þangað koma fáir aðrir en pönkarar, skrítið, lítið og stórfurðulegt fólk. Og við. Ég er hrædd um að ég verði að hefna Kanans síðan síðast, afgerandi tap okkar Tobbu var lítt sniðugt. Þótt Brynja missti alveg feisið í lokin.

sunnudagur, janúar 05, 2003

Jæja þá er það bara skólinn á morgun. .gaman af því.
-Rétt í þessu var ég að koma úr æfingaakstri ,með mömmu, og skal ég segja ykkur að þar var ég nú alveg úti að aka. . .rata skuggalega lítið í Hafnarfirðinum og klessti næstum á e-n staur. Auk þess hefur það uppgötvast að ég sé líka ekki alveg sem skyldi. . og þarf til bráðabirgða að nota gömlu Harry Potter- gleraugun hennar mömmu. Alveg fáránlegt!

-Partý gærkvöldsins var nú bara mjög skemmtilegt. . Við Katrín fundum okkur ekki alveg fyrst en þegar líða tók á kvöldið var fólk farið að skála í skálar, stúta freyðivín og segja vægast sagt lélega brandara. . . og var þetta mjög vel heppnað partý, takk Tumi.
Snillingur kvöldsins var tvímælalaust hann Atli bróðir og vita þeir sem á staðnum voru að honum tókst meðal annars að grilla á sér hendina .
“Vinkonur “okkar Bjarneyjar ,þær Katrín og Unnur, stungu okkur svo e-t af og fóru í bæinn! verða þær lengi að bæta það upp. . Nokkuð seint fóru svo e-jar eftirlegukindur í mjög svo asnalega bæjarferð, og var farið hvergi inn. Skemmtilegt þó og tókum við bara púlsinn á fólki á vappinu.
-Í kvöld held ég að það sé bara kaffihús með Brynju og Dóru til þess að syrgja. . núna líða síðustu mínútur jólaleyfis. . .adjö, lilla Pippi,adjö.

miðvikudagur, janúar 01, 2003

Gleðilegt ár! og takk fyrir allt sem að baki er.
Man ég ekki eftir að hafa verið það full í gær, en ætli það sé ekki vottur af þynnku hjá flest öðrum einnig. . . sbr. atla.
-Mér finnst persónulega áramótin yfirleitt ekki vera mjög skemmtileg. .eins og Óli frændi segir, þetta er mjög asnaleg hátíð, fólk er kannski búið að eiga mjög gott ár og fagnar því svo með látum að það sé á enda!. . og tölfræðilega ætti næsta ár þá að vera í lakari kantinum. .og svo hrynja allir í það og sigla svo á perunni inn í nýja árið. . .-ég veit það ekki. .- ég veit heldur ekki hvað ég er að tala um. . .þetta er eiginlega bara bull! Hvað með fólkið sem átti slæmt ár 2002??, er ÞÁ við hæfi að fagna?- Nei, þetta er rugl og kjaftæði. Óli var að skála í BLEIKU freyðivíni þegar þessi orð féllu og var því í bullinu.- Nennir e-r að koma með aðra skýringu.
-Áramótin voru annars frábær, aldrei þessu vant!
Fórum við mamma og pabbi eftir veisluhöldin on the West side í aðra veislu on the East side. .stoppuðum við ekki lengi hjá Hrafni Gunnlaugs en fengum þó grandtúrinn um hús og því sem fylgdi. –skemmtilegt en ég held ég fari ekki aftur.
-Tveimur bjórum seinna örkuðum við Brynja og Bjarki alveg einhverja metra í húsið þar sem við öll höfum oft og mörgum sinnum sótt partý. . í æsku(ca 4-5 ár síðan) sem og í gær. Þar voru öll andlit kunn og var mjög gaman að hitta gömlu góðu vinina enn og aftur í klassísku partýi hjá Gumma. Þaðan héldum við á Breiðvang. Dansað mikið, hitt marga og frábært eftir allt saman.
Mjög gaman var að sjá Skaupið 2002 sökum þess að Magga fór þar með hlutverk og átti hún stórleik. Til hamingju.