fimmtudagur, janúar 08, 2004



21 klst. í DANMÖRK!

Hvaða drasl. . ?
Af einhverjum ókunnugum ástæðum HENTUST allir út af msn-ni hjá mér. .e-r 30 nöfn. .ég man svona helminginn.. mjög óþægilegt.
Það er lika búið að taka LANGAN tíma að skrifa umsóknir o.fl. á sænsku út um allan bæ.. að nú er komið kvöld.

Er að fara á Kaffi Vín (who would have guessed?) núna með litlu bifrastarbangsunum. . sem minnir mig á að í leikfimi í dag áttum við að ganga "bangsagang" um íþróttahöllina... don´t ask!

Ég er búin að skoða kort af Köben í bak og fyrir . . "so, I am in my map"

Ég segi bless þangað til á þriðjud. djö.. missi af tveimur tvítugsafmælum. .
Magga á afmæli á sunnudaginn! Til hamingju og "Djammaðu geðveikt!"
Eins með Ásu í bekknum- Til hamingju! og reyndu að hafa hemil á bekkinn;)

Bless! Verð ekki með síma.

miðvikudagur, janúar 07, 2004

Skólinn er ga-ga. Byrjuðum á tveggja tíma gati. . í þriðja tíma var líka gat (Gylfi veikur).. ok íslenska (alltaf rugl).. ahh.. frímó. hey, gat eftir frímó (Helgi er..hvar er hann?).. Hvað segiru? 6 tími! LÍKA GAT!.. förum í jarðfræði, flestir orðnir ískyggilega þreyttir eftir alla tímana og Fawlty Towers/Punk´d - gláp... ég held að ég hafi sofnað í tímanum.. það er hægt að sofa með augun opin. 7 tími.. gat.. (Egill veikur).. flestir sofandi eða horfandi á að mér skilst mexíkó-klámmynd. Svo var kvikm.gerð, stutt spjall, fara fyrr.
Það stefnir í enn verri dag á morgun, ef gylfi og egill eru ennþá veikir... þá fer ég bara í leikfimi og íslensku (ætti að vera til 16.00 í skólanum)

BAnana!!

mánudagur, janúar 05, 2004

Gleðilegt ár.

Vakna snemma og hugleiða... Hmm.... Núna er janúar og þvílík hálka. – allir geta dottið og það þýðir ekkert að hlaupa yfir. Þetta ár verður öðruvísi – svona og svona byrjun, en þetta er allt á uppleið. I can feel it. Ég verð að segja að ég er hamingjusöm. Mig grunar að ma&pa halda að ég sé geðveik.

Áramótin voru all ágæt en soldið veik. Sólarhringurinn er kominn út úr kortinu. Spila og sjúskast með Ollu og Brynju, Kaffibrennslan og í gær 28 days later (heil mynd af ógeði) með Sögu og Söndru. – get ekki sofið.

Skóli byrjaði í dag; gaman að sjá alla krakkana aftur. Ýmislegt kom upp á yfirborðið í sambandi við jólaballspartý – málning, tannbursti o.fl. sem er verra en að vera stutt saga. Einhverjir aðiljar voru að ”ræða” við Kristínu íslenskukennara á balli í fyrra, hún hefur engu gleymt.. aðiljar hafa öllu gleymt.

Framundan er margt skemmtilegt. . .
Á morgun; út að borða og bíó með hl. 6-Y (10 manns), LOTR (aftur) – bara gaman.
Við Birna ætlum líka við tækifæri að kíkja á leikritið "Meistarinn og margaríta" í Hafnarfjarðarleikhúsi... M.a. stórleikarar á borð við Dröfn. - Erum að fara að lesa verkið í bókmenntum.... þetta gæti verið hörkustuð.
- þarf líka að muna að láta Renato baby þýða meðmæli.

Nýársferðin á Bifröst.. húkka far – sem sagt slæm hugmynd. Förum á fimmtud.

DANMÖRK BABY! . . já, það mun vera við Brynja leggjum í hann á föstud. Ég fæ fiðring að hugsa til þess að fara. Er búin að kynna mér aðeins Köben.. Carlsberg bruggið, Rådhusplatsen. . Ef e-r er með tillögur að e-ju ”möst sí” þá endilega. Hugsa um að fjárfesta í digital myndavél í fríhöfninni... – kannski verðum við með upptökuvél.

miðvikudagur, desember 31, 2003

OK, enn og aftur EINN dagur eftir af árinu og aðeins svo langur tími til að gera allt sem maður ætlaði sér. . Ég kannast ekkert við að hafa tekið bílpróf á árinu.. né heldur í fyrra, ég held að ég hafi ekki keyrt bíl í tæplega ár. .Ég ætlaði að ganga á Esjuna í fyrsta sinn.. nei, held nú síður.. ég þori bara ekki að telja upp fleira.
Árið leið samt eins og eldflaug! Frábært ár, eitt það besta hingað til, vona að 2004 verði enn betri. Flott ár..2004, mun vonandi setja upp stúdentshúfu, verða tvítug.. – sýnt skilríki í ríkinu.. þvílíkur sigur, hvað ætli fleira gerist?

Dagurinn var æði og hann byrjaði í morgun. – Emil svaf yfir sig, Saga svaf yfir sig og ég var ALLTOF sein – umferðin er hlægileg!
Emil kominn heim frá Danmörku og rosa gaman að hitta hann, góðum gír! Eftir endalaust rabb kom Saga til okkar á Hressó (allt pakkað á Paris/Brennslunni) – þar sem Guja stóð fyrir miðasölu. Maður er svo sjúkur!.. en hver pólerar/pússar hnífapörin á þeim bænum? Guði sé lof, Saga er eins. 4-5 tímar á Hressó takk fyrir góðan dag.
Um kvöldið komu hvorki meira né minna en bæði lambúshetturnar og tm7 ( hvað er með þessi nöfn, en ok!) Alls 10 stk. stelpur í spil, Trivial og Actionary, – gott spil. Frábært að sjá þær allar saman fyrir nýja 2004.


Talandi um nýja.....þá er gamla á morgun. Eitt af því skemmtilegasta er að drekka ákavíti og borða kryddsíld með fjölskyldunni og horfa á Kryddsíld í sjónvarpinu. (erum við ekki hallærisleg?) Um kvöldið verður farið í Vesturbæinn, brennan, skaupið, stjörnuljós, skjóta upp rakettum, kampavín og hele pakken. Svo verður stefnan tekin í partý hjá Brynju og hitta allt gamla góða hverfið, kannski bærinn.

Best að spyrja Bókina með svörin: Verður 2004 gott ár?
Svar: Taktu áhættu.
(Gott svar.. og ég tók þá áhættu að spyrja aftur:)
Svar: Þú færð að vita það fyrir víst.
Úff.. spekin, bók, ég veit ekki hvort ég á að brosa eða gráta, en við sjáum til. Þetta er soldið spennandi en um leið smá ógnvekjandi. Jæja, bull.

mánudagur, desember 29, 2003



Það snjóar og snjóar og snjóar - ég ætla út.
(ég var sko að læra að láta inn myndir - og núna verð ég óþolandi með þessar myndir allar, allir hætta að lesa.)


Lord of the Rings - Return of the King

Miðnætursýning m/Brynju, Magga og Bjarka. Ég er þreytt... enda þarf maður að vera að svara í símann um miðjar nætur;)
Ég þarf ekkert að ítreka það að þetta var nottla MÖGNUÐ mynd, mjög scary á köflum og voru fætur ekki á gólfinu meira en hálfa myndina. Jóvin bara kick-ass. Aragorn flottur.

Góða nótt

laugardagur, desember 27, 2003

Gleðileg jól öll!
Komin heim í náttbuxur og þægilega peysu. Hér dugir sko að drolla. – lítið að gera í vinnunni svo ég fékk að skjótast heim fyrr. Asnaðist samt til að samþykkja að vinna næstu helgi í Galleríinu. Ahh... laugardagskvöld, og ég ætla ekki að gera neitt; kannski kíkja á sjónvarpið, ef e-ð er að sjá, hef nú bara EKKERT kveikt á því allt jólafríið.

Jólin skullu á og liðu hjá. . . eða þið vitið.
Aðfangadagur var með venjulegu sniði, frábært. Við pabbi og Ásrún kíktum á allt frænd- og vinafólk og dreifðum pökkum út og suður. Heim, amma mætt, rosagóður matur. Allir fengu pakka – allir svo góðir og örlátir um jólin. Ég er voðalega þakklát fyrir allt saman.
Jóladagur, tvö fjölskylduboð.
Annar í jólum, eitt boð og missti af spilakvöldi lambúshettnanna, þurfti að fara að vinna... mjög fátæklegt að gera. Eftir vinnu var rölt með bjór í einni í Vogahverfi til Unnar, Katrínar og Möggu. Kíktum á frekar steikt djamm niðri í bæ.

Jæja, komin í viku vinnu-frí; húrra! Svo er MINNA EN tvær vikur þangað til við Brynja förum til Danmerkur!!
Þar á milli eru áramót og e-r skóli (spurning um að vera rosa dugleg eftir áramót? )
Opið í Bláfjöllum í dag, kannski líka á morgun? En !!!... hætta á að fótbrjóta sig fyrir Ítalíu? Það er mikilvæg spurning. . . . .

miðvikudagur, desember 24, 2003

Þorláksmessa búin...
Ég fór bara ekkert niður í bæ.. af því að ég var nú þegar stödd niðri í bæ. Það er eitt af því skemmtilegasta við jólin.. fara niður í bæ – hitta allt fólkið! Sérstaklega allt fólkið sem maður hittir kannski ekki nema einu sinni á ári... á Þorláksmessu.

Ekki það að ég hafi ekki hitt neitt fólk... reyndar kom það Í RÖÐUM! streymandi inn um dyrnar og út um allt! Fólk var undir hverjum kaffibolla, bak við hvert kerti og jafnvel hangandi í gardínunum. Þetta var u.þ.b. 4 tíma TÖRN, áður en e-ð róaðist.
“Já, gott kvöld, eigiði laust borð?” – Gleymdu því! neinei.. þetta var samt rosa stuð, adrenalínið, gaman að hafa alla vinnandi, allir í svo góðu skapi – JÓLAskapi meira að segja!

Dagarnir líða. . .

Ég náði að klára að kaupa jólagjafir kl. 16.30 í dag – ALDREI verið svona snemma í því! Jólin líka á morgun; Hver getur breytt því?... Fáir – held ég.. hverjum er svosem ekki sama...mér er alveg sama – en það gildir samt ekkert það sama um alla. Ég meina.. er þér sama? Auðvitað er þér ekkert sama! Smá sense hérna!
OF mikið kaffi, kveður. - þessi kalda nótt, ýmislegt vaknar.

sunnudagur, desember 21, 2003

Siggi stormur spáir rauð jól.

....í gær var SVO KALT !! Við hefðum þess vegna getað djammað í frystikistu! Brr.
Bærinn var pakkaður í gær! Hvaðan kom allt þetta fólk!? Maður nennti nánast hvergi inn. . kílómetra langar biðraðir inn á alla staði. Við létum okkur hafa biðröðina inn á Kaffibarinn og gleðin var gífurleg!.. ég er hætt að drekka. Bjór er viðbjóður!
Eftir athyglisverðar samræður á efstu hæð . . var farið út í kuldann aftur,- þá náði kvöldið hámarki sínu - RÖÐ inn á Ara í Ögri!!! Hvað var málið???!! Var þetta falin myndavél? spurning...
Inni á Ara kúrðu allir saman í hrúgu til að farast ekki úr kulda, setið var á ofninum (sem virkaði ekki), laugalækjarpakk 84 - 82 og var tekið lagið.. Fékk boð um strippshow, afþakkaði pent. Rakst á margan manninn.
Hvenær kemur Kraftgalla-æðið aftur?

Í dag þarf ég að gera eðlisfr.verkbók - wuhu!!

Frikki átti afmæli 13. desember! Til hamingju kall!

Finnur er byrjaður að blogga, og fær hann vitaskuld pláss í linka-safninu.

fimmtudagur, desember 18, 2003

Þessi dagur hefur verið eitt ruglið á eftir öðru..
Ruglið á undan hinu.....var gærkvöldið.

Kvöldið byrjaði á því að keyra framhjá hallærislegasta jólaskrauti frá því að jólaskaut kom fram yfir höfuð. Græn slanga..sem e-r virðist bara hafa hent frjálslega upp í tré! Alger ómynd.
.….partý í Árbænum hjá Hrólfi nokkrum í 3-H, aumingja drengurinn – did not see that one coming! Partýið var innbökuð SNILLD! Bollan var enn og aftur öllum leathal!.. Lesendur vilja ekki vita hvað var í þessari bollu... – það var EKKERT sem var EKKI í henni! Eins og heimspekingurinn Altúnga sagði.. þá eru ekki til afleiðingar án orsakar, og í þessu tilviki var bollan góða feitasta orsökin. Afleiðingarnar voru vægast sagt fyndnar, það má lesa um hluta þeirra hjá honum Óla
Þvílíkir tónleikar í eldhúsinu! Bjössi, Kári og Benni, takk fyrir samstarfið- við endum á toppnum.
Við erum að tala um þynnku!!!! frá því kl.6.20 í morgun og í allan dag!! Ekki upplifað annað eins... og þar að auki þurfti auminginn að þjóna rauð- og hvítvín í 70 manna læknaveislu. – kick me while I´m down!

Á morgun er svo einkunnaafhending – á maður ekki nógu bágt?
Brynja er búin að plata mig í LOTR-maraþon, sem byrjar klukkan 11 í fyrramálið. Góðir tímar.

Kata skvís á afmæli í dag! Til hamingju með það!!!!! :)

...hausverkur

miðvikudagur, desember 17, 2003

Hvern þekki ég...sem er á Grikklandi?
(Who do I know.. who is in Greece?)
Gleði gleði! !
Gleði.
Gleði - gleði! gleð.. . i!!!!!


og Þórunn Helga er 19 ára í dag! Húrra!

Burt með þessa könnun!
Flestir virðast treysta á reddingar og undirmeðvitundina, eins og ég - sjáum hvert það liggur...... í næsta þætti.

þriðjudagur, desember 16, 2003

Það er ekkert grín að skrifa jólakort!
Við mamma erum búnar að vera í hláturkasti yfir sænsku orðabókinni sem e-r bjáni sem aldrei hefur komið til landsins hefur skrifað. . . Ætluðum að segja "erfiðlega gekk að tala saman vegna hávaðans" en fengum út að samgöngur væru hávaðasamar (hávaði frá verksmiðjum) ...ALLavega.

Mikið að gera í vinnunni um helgina, Hornið var STAPPAÐ bæði kvöldin! Jólageðveikin er hér!
Ólöf er bjargvættur. Ég er ekki búin að smakka nokkur vínin sem við seljum þarna.. og veit því takmarkað um þau... Hvað á maður að segja þegar fólk fer að spyrja ??? (ég sel fólki ALLTAF Rosemount Semillon/Shiraz frá Ástralíu, Conde de Valdemar eða Mouton Cadet, því þau eru þau einu sem ég hef lengi verið að selja o veit sitthvað um) en nú er Ólöf snillingur! búin að koma mér inn í þetta... hún segir alltaf "þetta er mjög klassískt vín, mjög klassískt" - fólkið fellur alveg fyrir þessu, enda veit það flest EKKERT meira ef ekki minna.. svo þegar það smakkar, kinka þau kolli og eru ALVEG sammála .... "mjög klassískt...." Annars er fátt skemmtilegra en að steypa í fólki af fróðleik, þegar maður veit e-ð.
Flottasti Breti síðan sneitt brauð kom bæði föstud. og laugard. -

Sandra var að benda mér á þetta - leynilegar dagbækur hjá persónum Hringadrottinssögu - mjög fyndið.. en þið verðið samt að byrja í sömu röð og segir, ef þið ætlið á annað borð að lesa þetta.

Síðasta próf á fimmtud. og er það í bókmenntum.. er að lesa allar bækurnar aftur en veit ekkert hvernig þetta próf verður.. sem er soldið scary. Svo um kvöldið verður PARTÝ, þar sem 3-H er búinn að bjóða 6-Y til sín. Bollan vinsæla úr busaballspartýinu verður á sínum stað og flöskur af Kveldúlfi...og er ekki bara spurning um að kasta frá sér allt vit? Eða?... síðan verður skundað á Nasa, þar sem STUÐMENN leika f.dansi.

sunnudagur, desember 14, 2003

Ahh... við atli vorum að hlusta á nokkur lög með COLDPLAY (Live á tónleikum)
Ég þarf ekki að segja meira.. trouble, scientist, yellow, in my place o.fl. Næstum ár síðan tónleikarnir (seinni) voru - sælar minningar

föstudagur, desember 12, 2003

Já, - þið farið grátandi út.... Hahahahahahahahahaha....híhí

Hlustið - brosið. : Billy Mack - Christmas Is All Around.mp3

". . . . .come on and let is snow!"

Hlakka til að fara downtown að vinna -

fimmtudagur, desember 11, 2003

11 desember! Merkisdagur? Já, segja sumir....

Í dag er fjórfalt AFMÆLI! Í fyrsta lagi eiga Pekka, Seb og Sigrún jooosep AFMÆLI! Congrats! Og.. svo á þessi síða ársafmæli!

Það er nákvæmlega ár síðan ég var í jólaprófum 5.bekk og fann ekki til ástæðu að vera að læra. . . Margt hefur gerst á þessu ári, gleði og sorg, tár og bros - mikið rugl - vil ég þakka mínum kærustu vinum fyrir að vera til; ýmsar ákvarðanir teknar og sjáum við hvað gerist næst. . . kannski fáið þið jafnvel að lesa um það

Love Actually í kvöld - gaman að pína söndru; Giorgio.

Oh! vesen! BOLLI! OLLI því að ég var að fá bréfsnifsi inn um lúguna "Velkomin til liðs við Sjálfstæðisflokkinn!"... ég gleymdi að skrá mig úr þessu!

þriðjudagur, desember 09, 2003

Why did Susan get amnesia?

A) She caught it from Harold
B) She knocked herself unconscious
C) She wasn't vaccinated
D) I've forgotten the question


ég er ein að hlæja að þessu.

Ahh..hvað það var gott að sofna í dag, - svefnleysi sem skilaði sér í undarlegri hegðun fram eftir öllu. Jarðfræðipróf í morgun, gekk alveg ágætlega og lítið um það að segja.
Næsta próf er saga/félagsfræði - lítið byrjuð á því.. en sé ég fram á góða tíma, þar sem ég hef ákveðið að glósa ekki og senda hægri hönd í jólafrí, nú þegar hún er orðin alleinkennileg aftur.

The amazing race í kvöld!

sunnudagur, desember 07, 2003

Frostið í götunni farið að glitra eins og stjörnuljós á ný.

Eðlisfræðihelgi.

Gærdagurinn lifnaði alveg við þegar við Emil hittum á Sebastien á netinu. Strax eftir próf ætla ég að skutlast til Renato og spjalla við hann um hugmyndina sem við Seb erum að hrinda í framkvæmd – ég er svo spennt að ég get ekki lært undir eðlisfræði.. sorry, seinna. Frábært að heyra í fólkinu að utan - .. og tæknin í dag maður, ég er svo mikill guffi við svona lagað en allt í einu fór hann að tala í gegnum hljóðnemann, þessi franska rödd hér í tölvuherberginu! Hann sagði meira að segja "Darkness" – frábært að heyra í gaur, eins og ekkert hafi breyst – meira að segja “fags” í beinni.

Endurminning II (Hveragerði):
“Marie! Make a wish! Make a wish!”
Marie getur ekki hamið sig í framsætinu á “Red thunder” - hún hlær og hlær með plastriffil við hönd. Allir skella upp úr:)
“I can´t I am so happy here”

Minä olen dordella uninen.

laugardagur, desember 06, 2003

Ég svindlaði, þetta voru ekki nema 22 tímar, ég svaf frá kl.4 til 6. Gekk samt ágætlega bara og nu eru 4 próf eftir! Dagurinn hefur verið sá furðulegasti, um kl. 11 í morgun var ég í strætó með sollu og ég var handviss um að það væri kvöld. . sofnaði ekki of lengi og dreymdi MJÖG furðulega - ég var í ruglinu í vinnunni í kvöld, mig minnir að ég hafi verið að steypa í Stebba hilmars um ég veit ekki hvað, e-ð sniglar... og ég er nokkuð viss um að ég hafi skrifað e-st á íslenskuprófið mitt "það eru ekki alltaf jólin"
steikt.

Threesome Fun by Mckennat
Username
Favorite Color
Date of ThreesomeJuly 20, 2012
Location of Threesomein the shower
First PartnerGale Harold
Second PartnerJohnny Depp
Created with quill18's MemeGen!



Og ég vil taka fram að ég á mér ekki uppáhalds lit. . þetta er eitt af því asnalegasta sem ég veit um og versta spurning sem þú getur mögulega spurt mig

föstudagur, desember 05, 2003

Kaffi. . . . . . . erum við að tala um 24 tíma - no sleep!
- sjáum til. . .

fimmtudagur, desember 04, 2003

Ljóta ólesna stærðfræði!!
OJBARA!
. . .mig langaði mest til að fara að grenja eftir þetta drasl í morgun! Brynja náði aðeins að róa mig niður og núna er ég næstum því alveg búin að gleyma þessu prófi.
Íslenskupróf á morgun. . það hlýtur að ganga betur;)

Það er ýmislegt komið á Jólalistann:
T.d.
1. Horfa á Home alone 1 og 2
2. Föndra m/Ollu og Brynju
3. "Litlu jól 6-Y"
4. Lord of the Rings- maraþon m/Brynju og Bjarka
5. skrifa jólakort hingað og þangað
6. kveikja í stærðfr.bókinni
7. hengja upp seríu
listinn verður eflaust uppfærður

Mér finnst alveg merkilega fyndið þegar fólk er að tala um verklegt Bridgepróf. . .
"Oh! mér gekk svo illa, það kom rosalega asnaleg "sögn" og hún var bara með spaða og la la la..."
Þetta er víst ekkert grín þetta Bridge, ég ætla e-t að læra það - sjáið til!

Það er ALLT að gerast í Neighbours núna. . Steph og Max eru að fara á date!
Það er eins og enginn megi vera með neinum nema hann búi í Ramsay street
Konni, ég vona að þú sért að fylgjast með;)

miðvikudagur, desember 03, 2003

Í dag á Britney Spears afmæli. Til hamingju með það.
Allt er orðið miklu jólalegra en það var í gær. Jólatréð er komið út heima hjá Katrínu, mamma og Ásrún eru e-ð búnar að baka. Amma fór á kóræfingu í dag; hún er að fara að syngja í Kópavogskirkju og ég bara veit ekki hvað... en ég er að læra stærðfræði sem mér finnst einmitt svo skemmtileg.

Dagurinn var léttur í skólanum. Hressó í íslenskutíma, Malmcom í miðjunni í leikfimi. Í sögutíma var verið að tala um hinar og þessar kvennahreyfingar.. t.d. hinar herskáu Suffragettes sem voru á sínum tíma að tæta upp golfvelli sem var þá e-r einkennandi karlaíþrótt. Þá benti Helgi á það að einhvers staðar hafði hann heyrt að golf stæði fyrir:
Gentlemen Only Ladies Forbidden
ekki spila ég golf með reglulegu millibili, en ég er hneyksluð engu að síður. .

mánudagur, desember 01, 2003

Garg. . Josh Groban - vemmilega góður um jólin.

P.s. Gulli! This one´s for u baby

sunnudagur, nóvember 30, 2003

Núna eru jólin í vinnunni . .
komnar rauðar servéttur, rauð kerti, Juletuborg, jólamatseðill, kransar o.s.frv. þetta minnir á þegar maður var lítið peð sem var að fara á jólaball . . Allar með svona rauðan borða í hárinu (hver man ekki eftir þeim?) - en það vantaði bara lakkskóna til að fullkomna þetta - skuld/sök á öllu var/er skellt á jólaskapið.

Ég er líka búin að vera með svakalega kertamaníu síðastliðna mánuði. . ef ég er að fara að læra eða lesa bók. . þá kveiki ég á e-ju kerti nálægt mér
Jú, það mun vera.

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Fimmti dagur vikunnar, vika í próf, takk fyrir góðan dag.

“Ég er að reyna að breyta mér í kvaðratrótina af 2” – Viktor (Björn Jörundur) í Englum Alheimsins
Vorum að horfa á hana í Kvikmyndagerð og á morgun kemur Friðrik Þór til að rabba við okkur.

Ég er að fá kvartanir hægri vinstri í bekknum um að þessi síða sé ekki vistvæn fyrir hann. .um að ég skrifi um svo mikið annað fólk sem er bara alls ekkert í 6-Y.. Guðrún heldur meira að segja að ég taki annað fólk fram yfir hana og Frikki er e-ð ósáttur. Svo ég segi nú e-ð af bekknum. . þá var varla líft inni í stofunni í dag, svo mikill æsingur í öllum (jólaskapið?). . Ólafur og Aðalsteinn hófu flugvélastyrjöld gegn okkur Birnu sem vorum að reyna að einbeita okkur að stærðfræðikennslu Gylfa, og svo ég tala nú ekki um hátt í rifrildi okkar Guðrúnar við Benna um hvort væri betra að hafa svona “bita” í skyri eða ekki. . Svona “bitar” t.d. eplabitar í eplaskyri eru einfaldlega viðbjóður. Og hvað var það um daginn? Að konur væru hundar en karlar væru kettir?! Ég á mínar furðulegustu rökræður við þau. Fólk er líka bara búið að ganga frá vitinu þarna. . – Ég var líka að átta mig á því í dag að við Birna erum búnar að fá “hótanir” um útrekningu, færðar í sundur eða annað frá öllum kennurum nema Guðbjarti. .eða þá erum við búnar að gleyma því. Bjuggum líka til voða flott listaverk á borðinu úr öllum “niðurtalningsmínútunum..þar til tíminn var búinn”

Lambhúshetturnar komu í gær í “afmæli meira en mánuði of seint”. Ég og pabbi höfðum eytt miklum tíma inni í eldhúsi að elda e-n spagettirétt sem hefur ekki enn hlotið nafn. “búttí-dí-pasta”(eða e-ð) (það augnablik sem maður lætur pastað í pottinn) var um 8 leytið. . Allar mættu þær. Það KVIKNAÐI stundum í munni, þetta var heldur sterkt! Og var ekki gaman að rekast á engifer. .en mjög gott eftir allt saman og sló fordrykkurinn í gegn. Kjaftaði tuskan.. framtíðarplön og guð má vita.. og við gerðum okkur líka grein fyrir því að við erum orðnar svo gamlar.
“En vel að merkja..” :) þá gáfu þær mér m.a. í afmælisgjöf cockteilbók eina, alger snilld þessi gripur! Nú er engin afsökun lengur fyrir að skella á enn eitt cockteilboðið, nema kannski prófin.
Smá fróðleikur:

“Sagan segir að írskur kráareigandi í Bandaríkjunum, Betsy Flanagan að nafni, hafi fundið upp hanastélið. Hún tók upp á að blanda nýstárlega drykki sem hún seldi úr flöskum sem voru fagurlega skreyttar með litríkum hanafjöðrum.
Franskur viðskiptavinur hennar á svo einhverju sinni að hafa lyft glasi og skálað fyrir þeim frábæra drykk sem hann var að gæða sér á með orðunum: “Vive le cocktail!” – og gefið drykknum þannig nafnið. En nafnið gæti líka verið komið af “cockale”, en þar var um að ræða áfengisblöndu sem gefin var bardagahönum til þess að fylla þá vígamóði.”


. . meðfylgjandi: Blue Hawaiian
- Bláir drykkir eru ávallt heillandi, því það er sjaldgæft að við drekkum eða borðum eitthvað sem ber þennan lit.
Einn hluti Blue Curacao
Tveir hlutar Coconut Cream
Tveir hlutar ljóst romm
Fjórir hlutar ananassafi
Þunn ananassneið(eftir smekk)
Mulinn ís


Verð að skrifa handrit + annað verkefni í kvöld. Og svo er það Sex and the City kl.22.50

Memo to myself: ekki setja engifer í neitt.

Lag 27 nóvember : Matchbox Twenty - Unwell.mp3

mánudagur, nóvember 24, 2003

“þetta er algerlega ÓVIÐUNANDI , að þú skulir láta svona nokkuð út úr þér !
Lögrglustjóri ég legg fram kæru !
Hvernig dettur þér svona nokkuð í hug ?”


“Heyrðu veistu hvað????” – Sandra babe. Helsta slúður-hotline-ið mitt þessa dagana, þú ert klikkuð elskan mín, en ef maður er ekki bara í hláturskasti alla daga! Og ef það eru ekki bara allir sem. . .:)

Já og ég var að finna táknmálssíðu, ekki spyrja, - núna getur maður verið með svona merkjasendingar út og suður! ´nákvæmlega..."stay cool" eins og Guja ofar í götunni orðaði það á sinni síðu sem er alger snilld að lesa bæðevei!
En með svona táknmál... talandi um ósanngjarnt í Actionary!

Ég er fallin fyrir e-ri espressovél sem ég sá í e-ju blaðinu. .

Helgin var bara e-ð *orð*. Við Olla og Brynja fórum út í ísbúð á föstud. með ms-strákum, sáum eina Idol-stjörnuna þar. . þetta er orðið svo sjúkt e-ð en maður hefur nú gaman að þessu. Afmæli hjá Tobbu á laugard., við og slatti af selló/listaháskólafólki..voðalega tvískipt í byrjun en í lokin var stór umræða milli allra um frægt strætófólk. . . Já... - svo var það notlla gamla góða vinnan, Solla og Kalli kíktu í pizzu:)
Faunu-fundur í gær, eh..ætli það verði ekki bara jólatré inni á öllum myndunum fyrir rest.

Var að fá mjög svo skemmtilegt bréf frá Maríu sem er í Bournemouth núna, hún virðist ganga á bleikum skýjum þarna úti og rifjar bréfið mjög upp sæluna sem getur fylgt því að standa á eigin fótum, að heiman.

Já og því má ekki sleppa; við Katrín og Þórunn áttum frábært miðvikudagskvöld á miðvikudaginn minnir mig. Við fórum út að borða og fórum svo í keilu. Þórunn hafði aldrei sagt okkur að hún væri í Ólympíuliðinu í keilu, og sprengdi hún skalann með ábyggilega tvöfalt hærri stig en við Katrín til samans! - þrátt fyrir að Katrín fékk að gera þarna eitt skot á kostnað Þórunnar . . æjæjæj, þetta var fyndið (fyrir þá sem á staðnum voru). Farið var svo á Nesveginn til að spila (ok, við erum nördar, og stoltar af því!). Óvenjulegt og frábært kvöld í alla staði, á alla kanta og þar í kring.

Hætt þessu næturbrölti hér með, Dawson´s creek, smá jarðfræði, sofa, og ekki orð!

sunnudagur, nóvember 23, 2003

. . var að loka Horninu m/Kobba, Jazz tónlistin þarna er alveg dýrleg. . og þegar ég var að sópa leiðinlegasta gólf sem hægt er að sópa (erfitt gólf sko) þá kom eitt af mínum uppáhalds lögum. . gat ekki annað en farið að brosa - býð ég góða nótt hérna og dreymi ykkur margt skemmtilegt:
Louis Armstrong´s What a wonderful world

laugardagur, nóvember 22, 2003

Hvað ætli jólasveinninn segi. . . . .?


Are You Naughty or Nice?

föstudagur, nóvember 21, 2003

Halló ég heiti Drífa og ég er þreytt
- Halló Drífa!!!

. . það eru bara allir að drepast úr þreytu þessa dagana. . .og prófin eru bara á morgun eða e-ð. .
Við Brynja Dís fórum á Kofa Tómasar frænda, svo andlega þreyttar að við ákváðum að reyna að þegja í 5 mín. . eftir 5 sek sprungum við úr hlátri. . ég er þreytt.

Fór á nemendatónleika upp í Listaháskóla til að hlusta á og sjá Tobbu preforma á sellóinu. . hún var alveg stórglæsileg stelpan og voru allir ánægðir. Okkur Brynju leið mjög eins og allir þarna væru að horfa á okkur á tímabili og hugsa með sér ’Hvað eru þær að gera hér?’ það var eins og allir þekktust þarna. . .en Tobba sagði okkur mjög loyal vini að mæta!

Kaffibrennslan með Sögu, Söndru og Emil um daginn. . Nokkuð fyndið það sem Saga benti á. . við höfum öll haldið okkur á sömu sviðum . . Sandra við skrifborðið, við Saga vinnualkar á veitingahúsum og Emil á næturvakt, síðust úr kjarnanum á landinu. Kíktum á Matrix 3 . . já, mér fannst þetta mjög ’flott’ mynd. . en auðvitað.. þá var eiginlega Saga sú eina sem skildi fyllilega myndina og gat því ein farið sátt að sofa –ég veit að þessi mynd hefur annars fengið hræðilega dóma. . en ég þarf aðeins að pæla meira. .

Mál&Menning. . reyna að finna e-ja jólabók, en festist í Heimi spendýranna sem ég held að sé í flóðinu í ár. . En allavega þá komst ég ekki að neinni niðurstöðu. . Er e-r með tillögu að jólabókinni (bókunum) í ár? Eða á maður bara að byrja að lesa um þennan Harry Potter? Ég veit að Seb myndi hoppa hæð sína, ég þoli yfirleitt ekki svona æði . .

Er að fara að vinna og fara í afmæli á morgun, en annars held ég að það stefni í e-n lærdóm um helgina. .
Stressið er samt ekkert of mikið . .
Fékk 9,5 á lesna stærðfr.prófinu. . og alltaf skemmtilegt orðafar í commentum frá Gylfa:
" Þú ert alltaf glettilega slyng í þessum prófum en leitt að þú skulir ekki einbeita þér meira í ólesnu prófunum"

Þessi færsla er tileinkuð Robinson Crusoe en er tilefnið ekkert!

Úr Jónasarlimrum (sem ég er svo gott sem búin að lesa alla)

Þó að einmana oft væri Crusoe
á eyjunni kynntist hann mús þó
sem kúrði undir kistu.
Hún var fálát í fyrstu,
en á endanum urðu þau dús þó.


Og hver man ekki eftir Agli segja þetta:

Swift never took a lift,
and neither did Robinson Crusoe do so.

þriðjudagur, nóvember 18, 2003

Hin hliðin á Þórunni Helgu -> best í boltanum og umfram allt ein yndislegasta manneskja sem ég þekki :)

Hér er þórunn á skíðum. (loksins get ég linkað á e-jar myndir. . svo ég varð)

mánudagur, nóvember 17, 2003

"What is mind? No matter. What is matter? Never mind."
- T.H. Key -

Jarðfræðilega séð. . þá mun þetta próf á morgun verða mjöööög athyglisvert. Helgin fór sko ekki í lærdóm heldur meira en minna að vinna. . nál og tvinna! Tsjh! Slightly MAD!

Á laugard. hélt Ólafur Ormsson skáld upp á sextugsafmæli sitt í Djúpinu og var allt morandi út í e-ju tónlistarfólkis m.a. Hljómar..úú Rúnar Júl o.fl. og Árni þarna lubbinn m/gleraugun.. var hann ekki með Mósaík e-t. . anyway, mikil drykkja og ölvun, komst upp í um 50 stóra bjóra.. og það var bara bjórinn.. e-r kona þarna um ca. fimmtugt var í hlýrabol og allt bakið var eitt stórt tattoo. Allt yndislegt fólk og vel í glasi knúsuðu Árni, Venni og Ólafur mig bless og héldu á e-n bar. .pant ekki borga reikninginn!

Í kvöld var Ari í Ögri með staffapartý, á felgunni; Við Kría og Brynja fengum að búa til e-r sjö skot.. og baraðstaðan uppi er á við hálfan fisk svo þetta var heldur betur fyndið að sjá, þegar við vorum að blanda þetta allt saman á bakka á stól, sitjandi nánast á gólfinu. . þetta var eins og efnafræðiverkefni – en HVAÐ heitir þetta?? Við vorum að snappa, mundum það ekki... svo hjálp; Tia Maria neðst, Bailey´s og Cointreau, kveikt í? Og núna heitir súkkulaðistrákurinn á Ara ekki bara það heldur hefur hann nafn. Hann borðar pizzu m/pepperoni og beikon. . Þykir okkur fátt skemmtilegra en persónunjósnir. .og sérstaklega þegar maður þarf að leika e-ð, þurfa að ná í kerti þangað og skila upptakaranum hingað. . kannski verður þetta stundum augljóst hjá okkur. Nei, nei, vel leikið. Hmm...
- Í vinnunni er maður kominn með Cafe latte eitrun

Pabbi var að koma heim frá Japan:) - ég fékk frá honum svona e.k. “Kung-fu-fighting-galla” hann er einstakur hann pabbi, nú þarf ég að fara að æfa kung-fu-ið..

Takk och hej, leverpastej!

laugardagur, nóvember 15, 2003

Standa á stærsta oststykki í heimi.. fór á hæfileikakeppni 85´vikunnar. . sem hefur oft verið betri. . Alveg KLÍSTARÐUR dansari! Footloose! Kicked off my Sunday shoes!? Er það ekki annars? Eftir keppnina fórum við Olla og Brynja sem leið lá. . til Hebba í Síðumúlanum.
Einn sá myndarlegasti strákur sem ég hef á ævi minni augum litið, sá ég á þessum degi. – og það er alltaf góður dagur.

Endurminning I (vandræðabörn): Hakk . . kotte?. . – vildi enginn spila því að við unnum alltaf, vel þróaðar svindlaðferðir, og nokkur eyddi löngum tima i að kenna mér að gefa úr spilastokknum neðan úr bunkanum án þess að nokkur maður tæki eftir. . fór leikurinn svo EINUNGIS að snúast um hver væri með nýstárlegustu svindlaðferðirnar. .óheiðarleikinn var sem illgresi, allir tóku þátt.
Lag fylgir þessum þætti: Gone in Sixty Seconds - Bring Sally Up.mp3

Það er bara komið e-ð rugl við Faunu-dæmi’ð mitt. Það kemur út eins og ég sé e-ð alltaf sofandi í tímum(sem ég er nb aldrei), alltaf skrópandi og algjör ljóska. “I object!” Ég er eiginlega ekkert af þessu!

Við Brynja höfum ákveðið að kíkja líka til Svíþjóðar væl ví ar att itt. Ég hlakka til jólanna...
Kveðja
Tilvistarkreppa og drukknandi í prófum

fimmtudagur, nóvember 13, 2003

OK! TAKK FYRIR ÞAÐ! ÓÞARFI AÐ SEGJA ÞAÐ SVONA BEINT ÚT!





What lesser-known Simpsons character are you?

Brought to you by the good folks at sacwriters.com
.

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

" Mary had a little lamb
Its fleece was white as snow,
And everywhere that Mary went
The lamb was sure to go. "

- Mrs. Sarah J. Hale -

Því verður að deila. . pantaði flug&hótel í gær af netinu, gleði gleði, við Brynja förum til Danmerkur 9-12 janúar 2004! Langt síðan, eins og maður fór oft í gamla daga, Brynja Dís hefur aldrei farið.. – nú er það bara að fara að fínpússa dönskuna, jáh!

Vei, Saga og Sandra kíktu í heimsókn í gærkvöldi, Sandra lumar alltaf á slúðri dödens!! Sem er svo mikið leyndó að ég ætla ekki að tala meira um það ;) ROSALEGT! (enn eitt skiptið) þurfti að skil- og sálgreina, pússla saman og rifja ýmislegt upp.

Styttist og styttist í jólin, spurning um að upplifa þau nú einu sinni. . s.s. vinna ekki á póstinum?
Þetta "hitabrúsa"-sjokk síðustu jól voru ábyggilega e-r skilaboð. . Hmm?

mánudagur, nóvember 10, 2003

Friðrik "frikkalingur?" bara farinn að blogga og fær hann link, keep up the good work! Fylgist með því hér

sunnudagur, nóvember 09, 2003

Að vera túristi í Reykjavík. . .
Frábær sunnudagur í dag. Við Brynja skelltum okkur á Þjóðab.hlöðuna, öflugar. – þar sofnuðum við næstum báðar yfir bókunum, svo við ákváðum að rölta niður í miðbæ.. Plötsligt vorum við að breytast í túrista í eigin borg. “Vá, sérðu þessa byggingu.. djöfull er þetta hús smekklegt..” o.s.frv. Þetta var upplevelsi. Maður horfir svo oft ekki á byggingar og hús frá toppi til táar, horfir bara á það sem maður sér í sömu hæð og maður sjálfur (og já sjónsviðið ).. og gefur sér ekki tíma til þess að dást að þessu öllu saman..því maður er búinn að “sjá” þetta svo oft.
Til að toppa þetta fórum við að leita að netcafé. .hvar eru þau?.. Við fórum á falið Tourist Information netcafe rétt hjá Lækjarbrekku, og kíktum á netið til að finna okkur flug og leita að hótelum í Kaupmannahöfn. . – þetta er bara skemmtun. Fundum hótel sem okkur leist vel á, fór TALSVERÐUR tími í að reikna e-r verð, kíkja á gengið, breyta pundum, dollaranum u.s.w. – Frábært flug, en djöfull bara eitt sæti laust. . alltaf erum við svona heppnar! Erum enn að ákveða annað flug, þetta er mjög spennandi. .
Enduðum góðum degi á Kaffi Vín, home sweet home, alger Ósigur í Rússa hérna megin.

Pool-keppni í Lágmúlanum á föstud. með Brynju og Magga sem er nýkominn aftur heim – jii, hvað maður er lélegur. .
Afmæli hjá Andra í gær, í boði voru vodka-melónur. Skrítið að sjá alla strákana í einu þarna, saumóstelpur og Brynju P. – eins og ekkert hafi breyst.. Magnað samt hvað allt hefur breyst. . og Andrea er bara að fara að eignast barn eins og við tölum - innilega til hamingju með það.
Fékk líka símtal frá D.R.U.K.K.N.U. fólki í Frakklandi, takk fyrir það og hef ég aldrei heyrt jafngóða útgáfu af “Popplag í G-dúr” :)

´85-vika í MS í næstu viku, Radio FM 106,0. – strákarnir allir búnir að safna “mottu” til að lita f. ballið. . sigurvegarinn er Baldur.

Þessa dagana er ég ananas djúpt sokkin ofan í Bráðavaktina (ER), allra fyrstu þættina, fór nóttin í það . .Hver man ekki eftir Clooney, Dr.Green, Dr. Benton, Dr. Lewis, Nurse Hathaway, Jerry, Malik og Carter bara lítill læknanemi. – snilldarþættir, mínus allar þessar blóðsúthellingar. . Maður fær alveg *hroll* þegar Dr. Benton tekur múvið sitt. .

“To call you stupid would be an insult to stupid people!”

Spurning dagsins: Hver segir þetta og í hvaða mynd?

OG. .
* Hér er leikur, sjálf spila ég eiginlega aldrei tölvuleiki.. kann ekkert í þeim en þessi er góð minning..ef þú hefur ekkert að gera.. - Shanghai - getur gert þig klikkaðan!
* Hér er listi yfir "lingo-ið" í Bráðavaktinni. . áhugavert.

föstudagur, nóvember 07, 2003

ZZZZzzzzzzz. . . . bara ef.

Svefleysi er í hámarki, alltaf e-ð sem er ógert á ókristilegum tíma. - núna væri t.d. kjörið að fara að sofa.. klukkan orðin næsti dagur og svona, en nei. Félagsfræði! sú undarlega grein.. bara próf í henni á morgun, haldiði að Drífa fari ekki bara í leikhús. - huggunin er sú að þetta á víst að vera sögulega létt próf. - það segja veggirnir.

Leikhús. Ríkarður III.Shakespeare. Merkilegt nokk, vel upp sett leikrit, og margir frægir og góðir leikarar en þetta á víst að vera soldið á móti verkinu sjálfu.. I wouldn´t know yet, ekki búin m/ bókina. . ekki einu sinni hálfnuð. . ekki einu sinni byrjuð. . (jú, ok , gekk of langt í þessu, bara að plata, ég er byrjuð og vel, og er það vel. . (hvað er langt síðan e-r skrifaði þetta??? )
"Hver hefur áður beðið sér konu með þessum hætti?"
Soldið mikið væl í sýningunni fyrir minn smekk og sum atriði voru frekar "blah. ." En í heildina alveg hreint ágætt, sé ekki eftir því að hafa farið.

Elsku Erla amma mín mundi eftir afmælinu mínu í dag :)

- Andri á afmæli á sunnud. - og fögnum við rækilega á laugard.

Við vorum að fá próftöflu í dag.. ég held að ég fari í 8 próf.. þetta er ekkert allt of sniðug próftafla.. við erum með 1/2 dag fyrir jarðfr. og 1/2 dag f. íslensku.. en 5 daga fyrir kvikmyndagerð! En sú hamingja!

Fleiri myndir á myndasíðu bæði frá mér og e-jar frá Emil, en sumt er enn ókomið.

Hitti finnska kellu um daginn og náði svoleiðis að blaðra höpöhöpö (nonsense) við hana.. það kom samt út fyrir að ég kynni miklu meira en ég kann, því flestur orðaforðinn er tengdur veitingahúsum og jú við vorum á "veitingahúsi" (Victor) - en hún varð furðulostin og það var stuð, stuttu seinna sá ég hana "making out w/random guys".

sunnudagur, nóvember 02, 2003

“All of heaven we have below”
- Addison -

Helgin er hingað til búin að vera í ruglinu... ég missti af eftirtöldu: Idol hjá Tinnu, Idol hjá Óla (og fær auðvitað link) og tvítugsafmæli Kjarra. En helgin byrjaði á afmælinu hans Gunna (til hamingju!) . Á föstud. í kvikmyndagerð fengum við það verkefni( 4 hópar) að búa til stuttmynd, lykilorðið var “afbrýgðisemi”. Við Maja sömdum handrit að sápuóperu á nóinu.. – þetta var svo mikil snilli. . . . .að við gátum ekki hætt að hlæja við upptökur.. það er ekkert grín að vera sápuóperuleikari, öll þessi dramatísku samtöl ( sbr. Barbara: “Allar þessar lygar Tony! Ég bara get þetta ekki lengur!”....”Manstu þegar þú sagðist elska mig.. Var það líka bara lygi??” o.s.frv. ) og maður þarf að vera alvarlegur allan tímann,- bara getur ekki hamið sig. Tæknibrellurnar voru líka óborganlegar. Þessi mynd var öll eitt “Oscar clip!”.. væntanleg í kvikmyndahús.

“That´s a wrap” ..10 mín seinna fór ég að vinna á Horninu. Baltasar óður til pizzunnar og ég átti gott og langt spjall við Yasmine og Adda í Skímó um lax og hvítvín, af því að dæma virðast þau tvö vera barasta besta skinn. Kvöldið gekk skínandi og er ég alveg að fíla þessa bónusa f.söluna, en þessi (ég leyfi mér að segja) fokkings uppvaskari er að gera alla gráhærða þarna, óþolandi náungi!. . eftir lokun þar hoppaði ég yfir á Victor. Kvöldið/nóttin var bara mjög skemmtileg, Ásta komin aftur úr sveitinni og skemmtum við okkur konunglega á barnum og útí sal. FM-tónlistin hans Heiðars dúndrandi á 2 hæðum. Það skortir ekki aðhlátursefni á Victor, e-r hnakkinn í hlýrabol, gellan með megasílíkonið, drukknu gellurnar og hözzlerinn og æi, gellan sem var að dansa ein á dansgólfinu..og var að sleppa sér!, fólk bara making out í sófanum á tímabili..og ég veit ekki hvað. Hefur e-r hérna smakkað “Rose tequila"? þetta er ein og nammi en bara frekar vont..! “skreið heim” (fékk far með dyraverðinum) um hálf sjöleytið.. enn með skólatösku o.fl. –

laugardagurinn er í móðu, ég veit ekki alveg hvað ég var að gera, fór svo að vinna aftur á Horninu til miðnættis og þá komu mr-stelpurnar hingað... frábært að fá þær í heimsókn og furðulegt að fá alla sjöuna, takk fyrir mig, en þreytan var farin að segja talsvert til sín.
Núna er sunnudagur.

fimmtudagur, október 30, 2003

síðan hefur tekið nokkra daga að komast i nýjan búning m/ sömu skrift og áður o.fl. - ég er að fikra mig áfram í þessum tölvuheimi, gengur hægt. .en gengur.

Wauw!! Við Sandra ákváðum að skella okkur á Kill Bill í gærkvöldi, - ég er ennþá að jafna mig eftir þetta massíva BLÓÐBAÐ!! ..ok, nýtt atriði, sturtum 50 lítrum af gerviblóði inn á settið and we are good to go... ACTION!
- ÓTRÚLEGA flott mynd! Ég bara mæli með henni.

opps, gleymdi að láta könnunina fljóta með og fór hún því út í buskann, en kannski kemur ný á næstu dögum.

miðvikudagur, október 29, 2003

Ég gat búið til snjóbolta áðan, kl.23.34 miðvikud.29 okt., Reykjavík, Ísland. :)

Mig langar eitthvert.

þriðjudagur, október 28, 2003

Gamlar sem nýjar myndir eru komnar þarna inn á myndasíðuna. . og nú er ég þreytt - fleiri myndir áður en e-r segir "Cat in a hat"

sunnudagur, október 26, 2003

Eins og fólk þarna úti segir: “Fátt hefur á daga mína drifið..”

Í dag er svo sannarlega Bloody Sunday.. Yfirgnæfandi þynnka gnæfir yfir allt yfirgnæfandi – afleiðing gærkvöldsins.

- Foreldralaust heimili stendur aldrei autt. Hljótt.
Olla var ein svo við Tobba komum með blandarann og barinn hálfan – Ekki partý – Kokteilboð. Kokteilarnir voru hættulega góðir, ananas-, jarðaberja-, íspinna-, appelsínukokteilar..og BANANAkokteilar..við Þorbjörg fengum eitrun! En Ollu tókst alltaf að lauma e-jum bananananum (flott orð.) út í allt. Blöndunin hjá okkur var e-ð svo hröð, allt fór í mixerinn, svo að maður sá eiginlega aldrei áfengismagnið sem fór í þetta allt saman.. en já, flöskur stóðu allt í einu hálftómar þarna. – Einhver setti pipar! út í appelsínu/leppin/bacardi/koskenkova/ananasdjús-kokteilinn. . málið er enn í rannsókn en Arinbjörn, Gunni og Hlynur eru suspect.
- Skrifaðir voru 90´s diskar, mesta snilld.. skemmtilegt að heyra þetta 90´s allt.. af því að já maður var á lífi og hlustaði talsvert á tónlist þá og þ.a.l. gátum við tengt flest við e-ð..Down memorylane.. Sandstorm, No limit, Insane in the brain, Jump around, what´s going on?, boom shakalaka, Sing halleluja, Be my lover, What is love?, Snoop doggy dog o.fl. o.fl. – áttum við Brynja e-ja dansa við flest af þessu, sadly, - en eins og útvarpsstöðvar séu ekki með nr.birti eða e-ð.. Margir muna eflaust eftir laginu “Lemon Tree”.. Í den þá hringdum við Brynja ca 7x í FM, breyttum alltaf röddinni e-ð fáránlega (svo fatta ekki að þetta væru alltaf sömu manneskjurnar) og báðum alltaf um Lemon Tree- biðum í 2 og ½ tíma!
. . . .eftir mikið fjör bættist fleira fólk í boðið og gaman – Bærinn; Ari í Ögri og Hverfisbarinn ( menn eins og Jón Baldvin Hannibals) – Tjúttað til 6, þynnka síðan.

Eðlisfræðinördið er nú að læra eðlisfræði. Greinilega. . . .

I'm sitting here in a boring room
It's just another rainy Sunday afternoon
I'm wasting my time I got nothing to do
I'm hanging around I'm waiting for you
But nothing ever happens - and I wonder

- Fool´s Garden -

miðvikudagur, október 22, 2003

Jæja, þá er loks búið að færa skíðaferðina fram í janúar (31.) og það til Ítalíu - hlaKKa tIL!!!

Við Brynja erum líka að reyna að skjóta dagsetningu á Danmerkurferðina okkar, reynum að hafa hana þegar við erum í fríi eða í byrjun janúar.. þar sem skólamæting okkar beggja er ekki upp á marga fiska þessa dagana.. en þetta kemur

En talandi um pottaleppa þá er endursýning The Amazing Race um miðmætti.. misstum af því í gær.
The gloves are OFF, the race is ON!!

þriðjudagur, október 21, 2003

Hvert fór árshátíðarfríið? Það hvarf jafnskjótt og það kom. . Ég held að ég hafi aðeins opnað eina bók, Leikrit Shakespeare – Ríkarð III. . en við erum einmitt að byrja á henni núna í Bókmenntum, eftir laaaaangt... þvaður um það hvort Merkútsíó í Rómeó&Júlíu sé hommi, en það virðist einmitt vera aðalumræðuefnið þarna, hvort sem verið er að tala um Sokkabuxna-Shakespeare eða MTV-kynslóðina. Uppbyggilegt.

Helgin er í móðu. . löng... og jöfn SKÁK á Kaffi Vín með Brynju. Ég er aldrei e-ð að pæla í plan til að Skák&máta heldur bara að drepa hina kallana, og forðast það að vera drepin. . ég þarf að leita í alvarlega skákkennslu. . ég var fyrst þarna að læra að skipta á kónginum og turninum.

En frábær dagur, við eyddum 6-7 klst!!! í bakstur og kökugerð fyrir stelpurnar í saumó. Við vorum með 3-4 kökur í gangi í einu, á tveimur hæðum.. og það tilraunastarfsemi á tveimur.. oft alveg í kerfi.. hvað hver kaka væri buin að vera lengi, og uppskriftir fóru á mis.. Peruterta e-r með frómasi sem varð ansi skrautlegur og “út úr kú”-kakan, óskiljanlega tókst að þeyta ákveðinn rjóma í smjör og undanrennu. Og það bara bregst ekki! Við Brynja GETUM EKKI bakað marensbotna. . HVERT EINASTA skipti fer e-ð ekki eins og það á að fara. . svo það var tilraun 4.. og endaði hún í ruslinu.
Gærdagurinn fór í álíka rugl.. við Brynja og Bjarki horfðum á m.a. In&out og steypu

FÓTBOLTALEIKUR
- Sjö alvarlegir leikmenn koma upp fótboltavelli í Hljómskálagarðinum. Klukkan er rétt fyrir hádegi. Spennan liggur í loftinu og er hægt að skera það með þar til gerðum græjum. Áhorfendur, áhangendur og aðdáendur eru engir. Flautað er í æsispennandi leik 6-Y vs. 6-R. Ekki líður langur tími þar til Erna nær boltanum, hleypur upp völlinn, sólar varnarmenn og leggur hann svoleiðis á milli keilna hjá liði 6-Y. Staðan er 1-O, fyrir 6-R. Spennan magnast... skot frá 6-Y OH! FRAMHJÁ! Lið 6-R aftur með boltann...en nei, hvað gerist! 6-Y er með boltann... Guðrún og Drífa snúa vörn í sókn og sækja hart að Þorbjörgu, sem er með meiddan hæl, Ásgerður og Dröfn fylgja með... . “ætli þær skori?” – það er á allra vörum. . Hvað er í gangi! Dagbjört nær boltanum, gefur á Ernu. . Hvað gerir hún??? Hvað gerir hún?? haldiði ekki að hún þrumar boltanum beint út í tjörn, enda markatalan 6-R í hag um þetta leyti.
Leikmenn beggja liða standa á bakkanum. Litið er á boltann... litið er á Ernu... litið er til himins. Enginn virðist ætla gera sig líklegan til þess að stökkva og eru fáar “pantanir” á verkefninu sem slíku... enda hefur ekki sést til botns á umtalaðri tjörn í ár og daga. Hvað er til bragðs að taka nema að standa á bakkanum og biðja álfa og tröll um byr sem myndi flytja tuðruna að hinum bakkanum. – og þarf varla að taka fram að endur Reykjavíkurborgar eru lítt samvinnuþýðar í öllu þessu máli.
Það er hálfleikur. Leikmenn safna kröftum.
TALSVERÐUR tími líður og virðist vindáttan breytast að eigin vild. . boltinn vill ekki á þurrt land ( bylgjulögmál Huygens?) Nú hefur skotist upp sú hugmynd hjá liði 6-Y að mynda “Human-keðju” með Dröfn náttúrulega á endanum, næst tjörninni, ef e-ð skyldi klikka. . BROT! Það er brotið á Dröfn.
Vindáttan breytist.. boltinn stefnir á e-ð rör. . hann siglir... Boltin stefnir á e-ja mýri! Viðbragðsstaða! 6-R tekur sér stöðu en leikmenn 6-Y leggja allt í leikinn, stökkva niður klettabrúnir, á tæpasta vaði! Drífa nær ekki boltanum og er rekin af velli! Ásgerður er stödd framar á tjörninni, nær boltanum.. HENDI!!!... Dæmt er innkast, það er tekið og boltinn flýgur. . hann flýgur! ... Hann er á góðri leið ofan í hina tjörnina... þegar.... Erna birtist eins og þruma, stekkur á boltann. ..HENDI! (en ekki dæmt. .tíminn kominn nokkuð fram yfir venjulegan leiktíma) og segir:
“Jæja... 1-0, VIÐ UNNUM!!!”

laugardagur, október 18, 2003

Húrra fyrir hausthléi! Laugardagurinn er mættur og kominn til að vera. Klukkan er um hálf tólfleytið og er aðeins 20 mín í að hún sýni eittleytið. Alveg frábært.
Nú hvað er búið að vera að gerast...

Fyrirlestur um Paul Gaimard búinn. Léttir. Gekk bara ágætlega og skemmti ég mér mjög að fara með öll þessi frönsku nöfn ( “La Lilloise”, “La Recherche”, “Xavier Marmier”, “Eugéne Mequet”, “Voyage en Islande et au Groenland exécuté pendant les années 1835 et 1836” usw.) afbragðs framburður! Nei.

Það var árshátíðarvika í síðustu viku, þema var “Ríki faraós”, Casan voða fín. Ég fór nú ekki á árshátíðina, ekki alveg orðin of hress í að fara á e-ð massíft ball.. en ég fór þó í bekkjarpartýið til Steina. Þar var GREINILEGA eiturhressleiki í öllum! Egill eðlisfræðikennari var nottla mættur í hörkustuði! Með eðlisfræðibókina, sem hann víst notaði til þess að smygla inn víni í matnum, snillingur! Partýið var bara snilld! Dansað af sér allar lappir, sungið úr sér röddina, aðrir drukku úr sér vit og þegar líða tók á partýið var Egill kominn undir trektina með gummislöngunni. Sá maður sama svip á sumum og maður sá í sumarbústaðaferðinni – Rósakot. Eins og talað var um þá var það e-ð sem kom fyrir bekkinn í busaballspartýinu og hefur hann djammað meira síðastliðna 2 mánuði en allt síðasta ár, magnað lokaár :)

Nú er frí en í gær fór ég að vinna. Airwaves í fullum gangi og var BRJÁLAÐ! að gera! Hlaup á öllum til eftir lokun. Úff, Baltasar Kormákur mættur. Ég fékk niður í Djúp hóp Norðmanna sem voru alveg gull. Ef maður beitir sænskunni þá er það bara víst að viðkomandi fólk elskar mann! 11 Norðmenn versluðu fyrir 78000 kall! Annar hópur var með staffafyllerí! 15 hendur á barnum! Náði alls engri átt! Kvöldið var mjög vel heppnað á öllum stöðum Hornsins og EINS OG það getur verið gaman að þjóna... – en annað húrra, ég seldi svo mikið niður í Djúpi að ég fékk feitan bónus frá eigandanum, cold hard cash, - ekki amalegt það... ætli maður skreppi ekki bara til útlanda í hausthléinu... en neinei.

Saumó hjá Brynju á morgun, en hugmyndir um Saumódjamm í kvöld eftir vinnu, spurning hvernig fer. . .

Lag 18. október : Sheryl Crow - If It Makes You Happy.mp3

mánudagur, október 13, 2003

Ég held að ég sé hamingjusamasti krakkinn á plánetunni þessa stundina, ég get ekki hætt að brosa.

Frekar súr dagur í skólanum í dag, stærðfræði og hósti. Framundan biðu ekki skemmtilegri hlutir. .klára fyrirlestur og stærðfræði. Þegar ég kem heim úr skólanum liggur pakki á gólfinu í andyrinu...ha?! Hver!? Hvað?! Getur ekki verið.
Það er víst.. fólk heldur ekki upp á afmæli sín Á SJÁLFU afmælinu á Bifröst (kommon, það væri OF fyrirsjáanlegt!).. og helst í þrjá daga...Hmm...
Ég á ekki einu sinni afmæli fyrr en eftir viku!! En þarna lá pakki og bréf frá Finnlandi. –frábært að fá pakka alla tíð – en ... í þessum pakka var tónlist sem hitti beint í hjartastað. Bo Kaspers Orkester – tónlist sem við í salnum nauðguðum í allt sumar.. nokkuð fyndið að sjá þjónana flauta og syngja með dinnertónlistinni... lög sem rifja upp fleiri minningar en orð geta tjáð. Ég var eins og jólakrakki (á jólunum)... hringdi strax í Sögu sem var enn í skólanum og hlustaði hún á “Hon är så söt” símleiðis við bros...
Afmæliskort og rugl frá Suvi sem endaði á tilvitnun:

“Jag tänkte ringa och gratulera
jag hör att du fyller år
jag har en present i handen
som jag tänkte att du skulle få
kan du inte komma hit i taxi??”

- Bo Kaspers -
Bros.

föstudagur, október 10, 2003

Jæja..góð tímaeyðsla.. skemmtilegt próf; maður hefur ekki hugmynd um hvað maður fær - kíkið á'etta.

Esperanto
Saluton! I thinkas ke you sxouldus lerni ESPERANTO
without hesitati longe. Kontinuu kaj meetu
lotsa de newajn friendojn! Esperanto ruuuulas!


What language are you supposed to speak?
brought to you by Quizilla

fimmtudagur, október 09, 2003

Fimmtudagur rímar og stuðlar næstum því við aðgerðarleysi.
- Atli gerðist samSEKUR í sambandi við áhorf myndarinnar The Replacements. Myndin var svo þvílíkt sorp að við höfðum gaman af. – þetta var NÁKVÆMLEGA sama uppskriftin og notuð var við myndir eins og Little Giants og Mighty Ducks I, II og III, nema hér var “Ice-box” og “Charlie” skipt út fyrir Keeanu Reeves. Atli hraðaði sér stuttu seinna út til að kaupa soundtrackið (hann mun kannski neita þessu). Sjáið ekki þessa mynd.
- Finnskan gengur bara ágætlega. Reynist þetta bara skemmtileg áskorun að læra tungumál upp á eigin spýtur. . eftir að kennslan var felld niður sökum .. já, við vorum bara þrjú. – sjáum hvernig fer.
Þessir dagar heima fara annars bara í hvers kyns rugl – í gær kom ásgerður og við unnum að fyrirlestri um Grím Thomsen – sá maður var genius, fór algjörlega sínar eigin leiðir hvað varðaði skáldskap og annað og var alveg sama um almenningsálit.
- Helgin fer svo í fyrirlestur um Paul Gaimard, Íslandsferðin 1836 og Íslandsmyndir Mayers – svo ef e-r situr á einhverjum upplýsingum um þá för, þá er ég í símaskránni.

Og með þessa könnun, þá fýkur hún.. e-r gæti asnast til að gefa upp sigurvegarann – sem væri synd.

miðvikudagur, október 08, 2003

Tímamót í sögu þessa bloggs! Ladies and Gents.. T.A.R. - könnun hérna neðar á síðunni. . . skrifa e-ð meira seinna.. of upptekin við að hósta og tala eins og Madge heitin(?)

sunnudagur, október 05, 2003

Miles Davis djazz, sítrónute, hósti, hiti og kvef. Og jarðfræði.

þriðjudagur, september 30, 2003

Vá! Það er næstum kominn október! Það er á morgun! Látið snjóinn og ullarsokkana koma. Fólkið bíður.

Helgin kom um daginn.... Bekkjargrillveisla 6-Y hjá Konna – svakalegt, sumir gátu nú verið soldið skrautlegir... dansað, grillað, grillað og dansað, dansað grillandi, dansandi grill? Nei, því miður....kannski í framtíðinni.. en hver kærir sig annars um dansandi grill? Jah..ég bara spyr – kannski e-r. Og hvað var með þennan saltleik?? ólíkindum. Idolið. Bjössi tók upp gítar við mikla gleði og var sungið hvert einasta lag sem þér gæti dottið í hug - svo mikil gleði að nú er ég orðin veik. Kvef, hóstandi og líðan eftir atvikum. Stuð.

Lag grillveislunnar: Dandy Warhols - Bohemian Like You.mp3

Hornið á laugard., kokkarnir Mummi og Óskar eru snillingar!, svo minna verði sagt! Og dj Hlynur sagði sögur sem ég er enn að berjast við að reyna gleyma :)

Við Emil fórum á Bad boys II sem var nú bara saga útaf fyrir sig, fundum aldrei lausan tíma, svo sprakk á dekki, vitlaust bíó, alltof sein á myndina alltof sein af myndinni...o.fl! en vel gerð atriðin og skemmtileg, en hvað ætli þeir drepi svona úbbs marga til að ná einni gellu eða e-ju dópi?!

Núna stendur eiginlega fyrir víst að fjölskyldan, ásamt vinafólki, verður tjúttandi á skíðum yfir jólin.. og það ekki í Bláfjöllum , nei, heldur í Austurríki! Magnað, ég segi nú ekki annað.

Ég sakna vinanna síðan í sumar...núna er rúmur mánuður síðan. Á e-n hátt stóðu þau fyrir svo margt sem ég gæti aldrei komið frá mér, en það tengist að verulegu leyti ákveðnum þroska. – sér hlutina á svo allt annan hátt og sjóndeildarhringurinn breikkað til muna. Skrítið hvað hugsunarhátturinn hefur breyst.

“I hear a voice you cannot hear,
Which says, I must not stay;
I see a hand you cannot see,
Which beckons me away.”

- Tickell

miðvikudagur, september 24, 2003

Girl, interrupted. . . -

föstudagur, september 19, 2003

Votka on kallista. Maito on terveellistä. = Vodka er dýr. Mjólk er holl. . . . .

Já, ekki heyrði ég þessi orð falla í gær.. busadagur. Guð minn alm.. hvað það var kalt að vera í þessu laki!
Mikil stemning myndaðist í bekknum ( sex Y ) og erum við öll sammála um að þessu partýi verður seint gleymt, hver einasti maður fór á kostum!!

Planið var, eins og árlega, að fylla litlu óspilltu busana í 3-H og hafði sú áætlun okkar komist inn á kennaraskrifstofu.. og fengum við því öll heimsókn forvarnafulltrúa. .engu að síður gerðist þessi líka frábæra bolla alveg LEATHAL!! Og voru afleiðingar hennar umræðuefni í H stofu í allan dag...fólk mætti þegar því hentaði í skólann og var skellt upp úr á 5 mín fresti enda atvik gærkvöldsins ófá. Hverjir drápust? Hver reyndi að halda ræðu upp á stól þegar var verið var að toga niður hvers tóga? Hver stóð fyrir fjöldasöng? Drakk OF mikið Hot n´Sweet? Tequila? Hver ældi? Hvar? (plus annað ÓVIÐEIGANDI athæfi inni á baði ;) ) Dansaði eins og brjálætt væri? Datt í runna? Braut vegg? Drakk bollu úr bala? Fram af svölum?! Hver vissi ekki hvar hann var þegar hann vaknaði? Komst ekki á ballið? Baðkarið? Drykkjuleikur? Lá á maganum niðri í andyri og man ekkert eftir neinu?! Henti þurrís (-79°) yfir alla! Jah..mér er spurn.....
Annars er ennþá brjálað að gera, en ekkert nema gott um það að segja..
Fór á Kaffi Vín með Brynju, alltaf furðulegt fólk þarna.. en ætli aðrir líti ekki á okkur sem sama pakka, alltaf hægt að tala við hana Brynju mína. Fór svo með gítar til Emils á næturvakt og seinna komu Saga og Gulli - enn er maður ekki búinn að sofa neitt. Gulli fór í morgun til Frakklands.
Í kvöld er það Idol og verður "part-ey" hér:)
Langur vinnudagur á morgun... 13- lokun(12) á Horninu og svo 12- 6 á Victor... það verður samt bara stuð, dagarnir til dags brosi ég.

sunnudagur, september 14, 2003

Snillingar! Annars eiga sér allir uppáhalds U2 lag, ég er forvitin? Endilega látið vita. My personal I will follow en annars er þetta viðeigandi:
Yes...

I can't believe the news today
Oh, I can't close my eyes
And make it go away
How long...
How long must we sing this song?
How long? How long...
'cause tonight...we can be as one
Tonight...

Broken bottles under children's feet
Bodies strewn across the dead end street
But I won't heed the battle call
It puts my back up
Puts my back up against the wall

Sunday, Bloody Sunday
Sunday, Bloody Sunday
Sunday, Bloody Sunday

And the battle's just begun
There's many lost, but tell me who has won
The trench is dug within our hearts
And mothers, children, brothers, sisters
Torn apart

Sunday, Bloody Sunday
Sunday, Bloody Sunday

laugardagur, september 13, 2003

Ein heima á náttbuxum að reyna að krota ritgerð á blað. . . Þetta er þó rólegur tími, sá fyrsti síðan ég kom til Rvk aftur.

Vikan er búin að vera soldið biluð. . vinnan á Horninu er búin að vera mjög góð, ánægð þar. Pizzabakarinn Oddur bjó í Sverige í 22 ár, rétt hjá Hjärup! og fara samskipti okkar fram á sænsku – krúttleg mállýska hjá honum og hann er svekktur yfir því að ég tala ekki lengur skánsku :)

Í gær fórum við þrjú í ORKUpartý Fosshótela á Nesjavöllum, og auk þess voru Álfdís og Gummi þar. Margir voru af öllum hótelum, en hjá okkur vantaði fjölskylduna. – við kynntumst líka henni Birgittu í sumar, og lést hún nú í lok ágúst.Blessuð sé minning hennar. Þetta er svo ósanngjarnt. Magga söng sálm. Takk elsku Gummi minn.
Bifröst vann besta hótelið og vingjarnlegasta starfsfólkið.

Jæja..ritgerð..”Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga”, ja.

sunnudagur, september 07, 2003

Já jájájájá.... mér finnst ég ekki hafa afrekað neitt nema að vinna ALLA helgina - hún leið á 5 mínútum!!

Vann á Café Victor - frábært starfsfólk. Skrítið að skipta svona yfir.. Á Bifröst var allt e-ð svo "sjænað" og fínt.. uppdekkuð borðin, þjónastykkið, vestið, kertin, maturinn, Richard (Oh..Richard) Clayderman geisladiskar nr.1, 2, 3,4 og 5!!
Og yfir í ermalausan bol, gallabuxur, stuttsvunta og mittistösku - Hvað Richard varðar .. þá er nú dúndrandi hnakkatónlist með Heiðari Austmann fremstan.. Vinnan var annars ágæt, var að vinna með stelpu sem var að vinna í Hreðavatnsskála, snillingur! og stelpu sem heitir Drífa og talar sænsku! Aldrei skeð! Vann í 12 tíma bæði föstud. og laugard. frá 18.00 - 6.00.. Á laugard. voru nottla Þjóðverjarnir í góðum gír og guð hvað þeir geta drukkið bjór! Staðurinn var svo gott sem pakkaður!
Ási blindi kom í mat fyrr um daginn og spurði mig hvernig vinnan væri.. ég sagði þetta ágætt, en soldið sjabbí fyrir minn smekk með e-ja FULLA miðaldra menn klípandi í rassinn á manni og svona. . gullmoli: "Eins gott fyrir þig að ég pantaði vatn!!!" guð minn góður.. hann var úti að borða með frúnni! Hann er alveg snillingur þessi maður. Annars kíktu líka til mín bifrastarfólkið og kvöddum við Seb..
Fyrr í kvöld eftir lítinn svefn fór ég svo að vinna á Horninu.. klassískt veitingahús niðrí bæ. Gott staff - Frábært vinnuumhverfi - flest svona á gamla mátann en það gerir staðinn bara enn meira sjarmerandi. Fer aftur að vinna þar á morgun.. stærðfr.próf á miðvikud. fokk! Og hvað þá með þetta bílpróf.

Ætti maður kannski að sofa e-ð..

fimmtudagur, september 04, 2003

Jasmin or not. . það er alveg craaaazy að gera. . .

Kaffihús, atvinnuviðtöl, atvinnuprufur, saumó, við þurfum víst að gefa út blað, það verður spennandi.. svo vill e-r auglýsa e-ð þá hringið...., hanga á Hótel Baron, stærðfr.heimadæmi, kvikmyndagerð, hitta hina og þessa, Brynja er að skrá okkur í BÍLPRÓF ! víst.. shit!!
Og er svo e-ð búin að vera að vinna í þessari blessuðu heimasíðu jooosep.blogspot.com , ekki beint tölvuséníið. . . svo ef e-r kann að koma tölustöfum f. aftan "comment" þá endilega..hjálp!

þriðjudagur, september 02, 2003

Þá er helgin á enda. . .
Hefði þetta ekki allt verið miklu auðveldara ef allir hefðu bara skilið eins og Brian gerði – án þess að kveðja?

Föstud. fór ég á Kaffi Vín með Brynju Dís, við getum gleymt okkur klukkustundum saman þar. . en þaðan fór ég til Gulla. Við Emil, Saga, Seb, Gulli, Suvi, Pekka og Sandra héldum niður í bæ.. stórskrítinn hópur;) Kaffi Cosy – frábær staður – við pössuðum skemmtilega inn... Klukkan 12 átti svo Sandra afmæli – allur staðurinn söng :)
Saga, Seb og Sandra kvöddu Finnana með tárin í augunum og fóru. .
Við rest fórum á Sólon og röltum svo að Laugateignum eftir stopp á ekkert of æðislegum stað. . Við vöktum með Suvi og Pekka – þurftu að ná rútunni kl.5 – Maður bara fattar það ekki. . að e-r sé að fara, bara ekki fyrr. . fyrr en f.framan rútuna .. þetta var mér ofviða – Suvi hljóp upp í rútuna, hágrátandi – hvers vegna þarf þetta að vera svona erfitt..
(Fyrir þá af Bifröst sem ekki sáu):
Sms: "We love you all! Take care guys. There is always a rainbow up to Biföst"

Strákarnir voru frábærir og við tókum “nætur(morgun)rúnt” um hl. borgarinnar. .
Heim til baka . .tilfinningahrúgan ég, mér hefur aldrei liðið svona. . . og ofan á þetta bættist annað . . nóttin var helvíti – og ég vakti Atla, elsku bróðir minn.
Laugard. allur - - ég hef sjaldan verið jafn viðkvæm. . hef ekki þurft að ganga í gegnum þetta áður.. mátti ekki hugsa um neitt og þá brotnaði ég niður...
Um kvöldið var það svo tvítugsafmæli hennar Söndru í Stúdenta kjallaranum –
Við vorum fimm. . kannski ekki glaðlyndustu manneskjurnar í heiminum.. - eftir sms frá Suvi um líðan hennar o.fl. þá varð þetta allt e-ð svo yfirþyrmandi þegar Marie fór allt í einu að hringja í okkur Sögu – öll fórum við út – Eftir endemis táraflóð komu loks Magga og Gísli – Sandra átti afmæli og átti þetta ekki að enda svona. .
Við fórum inn og kunnuglegt lag kom frá plötusnúðnum.. Við skáluðum fyrir þeim sem gátu ekki með okkur verið, fórum út á dansgólf og slepptum okkur – svo mikill léttir og uppskrift að frábærum endi. . .

Eins og Gulli var að reyna að segja í bílnum um morguninn. . .
“We have to experience sadness to know happiness”

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

Back to reality. . (Oh!. .there goes gravity! *bros* til ákveðinnar manneskju sem ég veit að er að laumast hingað). . - Skólinn byrjaður aftur. . leist fyrst ekkert á þetta. . en ég er aftur kominn inn í þetta, - gaman að fara aftur í sögutíma og svona. . og bókmenntir með Katrínu, erum að fara að lesa Rómeó&Júlíu - Fór líka í minn fyrsta kvikmyndagerðartíma, horfðum á 1/2 Chinatown. . snilldarmynd, hlakka til að sjá afganginn. . Jack er bara þvílíkt svalur í myndinni.
-Rosaleg synd að vera ekki í neinum tungumálum í skólanum lengur. . en við Saga erum búnar að bæta úr því og byrjum 18 sept í Finnsku I hjá Mími.

Fór í gær með Brynju á Kaffi Vín, ekki hitt hana síðan 27 júlí svo þar kjaftaði hver tuskan. . Olla kom svo til okkar og kom með sinn skerf af slúðrinu. . gaman að hitta þær aftur - Tobba kom heim í gær og Tinna kemur á sunnud. og þá er algjör skylda að halda saumó.

Hitti Emil í bænum í dag. . hann var í sömu vinnuleitarbuxunum og ég. . Sótti um á þrem stöðum. .

María Erla sem var að vinna með mér í e-r ár á póstinum er bara löngu byrjuð að blogga, gleymi alltaf að setja hana almennilega inn. . en hér er hún komin!

mánudagur, ágúst 25, 2003

Hvar á ég að byrja. . . . .?
- Útskriftarferð – Farið til Krítar. . hótel Golden Bay nálægt Hania, held að við gætum ekki hafa fengið betra hótel. .Útaf fyrir okkur, sundlaug, bar og hefði ströndin verið e-ð nær þá væri hákarl í sturtunni. Sem sagt frábært. . ekki hef ég samt mikið að segja. . svo slúðrið verðiði að fá elsewhere. .Dagarnir á Krít renna eiginlega allir saman í eitt. . . Við vorum heldur óheppnar og ekki. . það var talsvert um veikindi í herberginu, hefðum kannski getað djammað e-ð meira. . en tókum þó “glæsilegan” pakka í drykkjunni á Kalamaki svæðinu. Tóga- kvöldið kom og fór. . Strandblakið var nottla magna skemmtilegt og “áttum” við Guðrún “The annual MR Volleyball – tournament” og lentum glæsilega í eitt af botnsætunum. Eftirminnilegt var þegar við Unnur, Katrín og Sverrir fórum með “Scanway” til Elafonissi, ein fallegasta strönd Evrópu. Við fórum í tveggja klst rútuferð með SNILLDAR guide, Petroulu (eh. .?), gríska glamúrgellu, hefði passað mjög vel inn í hvers kyns sápuóperu. . Hún bjó á staðnum og þekkti hvern krók og kima. Stoppuðum við Sophiu..helli og sáum bara almennt hvernig lífinu er háttað á vesturhl. Krít.. smáþorp, risavaxin tré, chestnuts-tré, ólífur o.fl.

Þrátt fyrir magnaða ferð úti þá var frábært að komast heim. . tíminn hentaði mér ekki alveg. . því miður. Eftir tveggja vikna fjarveru . . var voða skrýtið að koma aftur á Bifröst. . En alveg gull. Staffið allt gólandi á útdyratröppunum :) Fyrstu klst var ég bara farin að vera feimin aftur. . þau sem þekkja mig vel, þekkja mig.- En það leið ekki að löngu fyrr en maður fann að maður var kominn heim – allir til staðar, alltaf.
Nú liðu síðustu kvöldin. . við kveiktum á kertum, drukkum kakó og Sébastien las svo frábærlega “The Tell-tale heart” draugasögu, af svo mikilli innlifun! Aldrei slær á vandræðaleg þögn. Tekinn upp gítar og fulltrúi okkar í Idol keppninni, Laundry Magga, söng fyrir okkur “Hvernig á að kyssa rétt..” svo flott! Mögnuð rödd, guð minn alm. .dáist að henni!!
Á föstud. fóru svo síðustu gestirnir af hótelinu. . komið að því að pakka niður húsinu . . – Gleymi aldrei þessum dögum, svo öðruvísi, fólkið í sínum eigin fötum. . engir gestir, hótelið útaf fyrir okkur sjálf. . Allir urðu myndaóðir og frábærar minningar af sumrinu voru deildar nánast með hverri teskeið sem sett var í kassa. Við Suvi eyddum 6 klst inni í “buffinu” að pakka niður í kassa og telja. . CATASTROF! Við eigum ALLAR TEGUNDIR af vínglösum í heiminum. . og helst svona eitt glas af hverri tegund. .akvavit glas?! What tha fuck is that?! Hver kaupir Baileys shake glas, ekkert eins!?? og hver er tilgangurinn með því að vera með 50 mism. stærðir af koníaksglösum?. . Merktum hvern einasta kassa með e-jum brandara fyrir þann næsta sem myndi taka upp úr kassanum. . signed “I LOVE IT!” (úr Naked gun mynd. . sá verður aldrei þreyttur). Unnið TALSVERT . . – líka laugard. – Við Suvi erum hér með orðnar “waxing pro´s” bónuðum oftar en einu sinni oftari en tvisvar allan veitingasalinn. .
Um kvöldið þurftum við að yfirgefa hótelið. . við sem eftir vorum. .um 10 crashuðum hjá Lilju í einni kös. Takmarkaður svefn. . næsta morgun, hlaðið farangri og fólki í bíla. . Haldið var í Árnes í RAFTING! niður Hvítá fyrir samansöfnuðum tips-pening. . einar 80 þús!. . Raftingið var nottla snilld! Svo gaman, svo kalt! Eftir það var farið á Selfoss, pizza 67. Allir skiptust á símanr., adressum, e-mailum. Fólk þurfti að kveðjast.
Marie gisti hér og um kvöldið var farið “á Sólon” og Celtic Cross með Söndru, Emil, Gulla og Atla, þaðan í Nauthólsvík. . Marie fór svo með vélinni um 5-6 leytið í nótt. . .skildi eftir bréf á skrifborðinu. .

Þetta sumar hefur verið eins og draumur. .
Ég á svo eftir að sakna samtalanna okkar. . Eins og með Suvi, ég hef aldrei kynnst manneskju sem ég hef átt jafnmikið sameiginlegt með. .ég gæti skrifað ritgerð. . (en ætla ekki að gera það ) - ekkert var óviðkomandi. Alltaf var e-ð að segja. . sögur, reynslu, persónulega hluti, fortíð, vonir um framtíð, draumar&martraðir. . . Alvarlega farnar að klára setningarnar hjá hvor annarri. Það er svo skrýtið hvað þessir 3 mánuðir geta gert þegar fólk hvaðanæva kemur saman á stað eins og þessum, vinnur saman, býr undir sama þaki og gengur í gegnum svo margt saman . . svo ÓLÍKIR karakterar, maður lærir að þekkja fólkið tilfinningalega. . þó að maður viti kannski ekki nákvæmlega hvað þessi á margar systur og bræður eða hvað. . þá getur maður greint hvernig honum/henni líður, þekkir skapið, hvert má fara/hvert ekki. .lærir að þekkja venjur hvers og eins. . og hver er svo einstakur á sinn hátt, og maður lærir virkilega að meta það –
Maður verður e-ð svo berskjaldaður – án þess að þurfa að segja neitt. . nýtt f.mér –
Ég veit að ég er að gerast væmin en þegar ég lít til baka þá held ég að ég hafi fundið part af spurningunni hans Seb. .
Kannski gerist allt fyrir e-ri sérstakri ástæðu. .ég held að mér var ætlað að læra ýmislegt. . og ég lærði svo margt meira. .
Eins hjá einni sérstakri stelpu með sömu ævintýraþrá. . Maður lærði virkilega að meta . .eins og Ísland. . íslenska tungu. . sérstök. . en nú meira en áður vill maður bara komast héðan. . .

Kynntist nýju fólki og nú er svo erfitt að kveðja. . . .
- fólk hefur komið og farið. . en “kjarninn”. . hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. . .
Takk fyrir mig.

laugardagur, ágúst 23, 2003

hello Pekka and Suvi!

sunnudagur, ágúst 03, 2003

Jæja. . þá eru bara nokkrar klst í Krítarferð. . þetta verður e-ð skrautlegt held ég.
Er núna home alone. .Var að heyra í Atla útí eyjum. . hann datt eða guð má vita út í e-ja tjörn??! Eyðilagði símann sinn. . snillingur?
Mamma var næstum rænd í gegnum bílglugga á Ítalíu í dag. . náði svo rétt að hrifsa veskið aftur af kauða. .snillingur!

Þau eru yndisleg! Í fyrradag var svona eiginlega "síðasta kvöldið" mitt á Bifröst. . ef ekki er talið með að ég kem aftur 19 ágúst. . en allavega. . ég var að fara í tvær vikur. . Eftir vinnu. . (það er alveg með ólíkindum að ég hafi ekki fattað neitt!. .sá meira að segja Laundry-Möggu&Gísla e-ð væflast um svona seint. . og þegar Jónas var allt í einu farinn að baka pönnukökur inni í eldhúsi að kvöldi til. .ég hélt að þau væru að fara að horfa á video. .) Við Saga sitjum inni í lobbýi á spjalli yfir Blair Witch. .( skrítið hvað fólk er auðtrúa . .og fellur ALLTAF fyrir þessu) Suvi kemur. . "Girls you have to come. . Magga (hótelstýran) is furious. . something happend in the restaurant tonight. .". . shit! Ég var sú sem átti að ganga frá öllu og dæmi því Mowgli var í fríi. .hjartað ekki alveg í takt. . þegar við komum inn í sal - stendur staffið uppraðað og 2/3 þjóðlagatríós+uppvaskarí+hótelstýra+ gaurinn sem drepst fyrir 12 og góla sólstrandarlag og tætum og tryllum. . tropical matur og kokteilar, rosaflott ;) hefði getað farið að gráta. Seinna settum við upp "varðeld" (einnota grill + 5 viðarbútar) á veröndinni og sungum. . herlingt!

Í gær var svo brunað í bæinn í þvílíkri þreytu eftir vakt. . þurfti að brjótast inn í eigið hús (gleymdi lyklinum). . og beint til Unnar þar sem þær höfðu grillað fyrr um kvöldið. . gaman að sjá ykkur aftur stelpur!

Spurning um að sofa e-ð. .

laugardagur, ágúst 02, 2003

Frábært próf alveg hreint. . . . .segir ALLT um ÞINN karakter!


luicy lui
Your like Alex! Your an incredibly smart person and
your very loyal.....keep up the good work!


Wich of the 3 Charlies Angels r u??(with pictures)
brought to you by Quizilla

föstudagur, ágúst 01, 2003

Já, gleðilegt sumar! Hér er svoleiðis grenjandi hiti og sól. . Fer að vinna aftur eftir 3 tíma. . aðal-hang-out-pleisið er lobbýið eins og er. . byrjuð á nýrri bók. . John Irving - Cider House Rules, lýst vel á hana. . enda var ekki neitt að gera í gær í vinnunni og við Suvi laumuðum okkur inn á falið "bókasafn" sem er bakvið hurð á lítilli kompu í miðjum veitingasal. . Skönnuðum allar bækurnar. . Elskum þessa titla á þessum "vasabókum". . "The Kissing Garden". ."A true love kiss", "Passion nights", "the forbidden kiss" o.s.frv. og svo með þessar líka hræðilegu kápur. .

Í gær var vínsmökkun. . heljarinnar gaman . . engin ofurölvun á neinum . .ég held að fólk sé bara einfaldlega búið að fá nóg af því að vera þunnt í morgunmat. Flest vínin. . "passa vel með osti..", " færi mjög vel með gæs. . hreindýri. ." EKKERT af því sem er á matseðlinum. .en annars björguðum við þessu. . ég er ekkert allt of mikill aðdáandi rauðvíns. . síðan var smökkun á annars vegar bjór í dós og bjór í flösku. . ásamt Smirnoff Ice og e-ð nýtt sem heitir Smirnoff BLACK ice. . alveg ágætt, bragðlaust . . . . breyttist svo í eldhúspartý með gítar. .magnað. Emil og sitt "House of the rising sun"

Tveir dagar eftir hér. . og svo styttist í Krít.

fimmtudagur, júlí 31, 2003

Þvílík keyrsla! Var að ljúka vakt núna um tvöleytið. . kennarar&nemendur Viðskiptaháskólans lögðu undir sig barinn með viðeigandi látum. .

Fátt sem lýsa má hefur nú gerst. .
"Do you know what?, I just realized. . I am so happy. . I don´t know what it is, but I am so happy here"- Suvi elskan sagði þetta við mig í fyrradag. . hversu frábært er að geta sagt e-ð svona?. . ok við virðumst vera fastar í e-jum Dawson´s Creek þætti. . og mig langar bara helst að fara að gráta!. . sem væri reyndar BARA viðeigandi í slíkum þætti. . en sumarið er að verða búið!!! maður fyllist svartsýni að sjá aldrei þetta fólk aftur. . hugmyndir eru uppi um endurfundi í nánustu framtíð. . og er myndun "travel-félags" ofarleg á lista. .við búum jú öll í Evrópu. .nema Brian. . en svo eiga eftir að vera svo mikil vandamál . . fólk er í skóla, peningar, tími. .
Morgunverðar-samræður eru einar þær bestu. . Draumar. Starfsfólkið er alltaf að dreyma hvert annað á FURÐULEGAN hátt. . - og þegar vinnan er búin að vera aðeins of mikil þá eru það klassísku vinnumartraðirnar. . eftir 15 klst vinnudag.. martröð um að við ættum enga kaffibolla, ekkert grín!
-Spöken, phantom, Gummiduss, draugar
Eitt af því besta. . alla daga, rétt áður en við opnum veitingasalinn, eyðum við Suvi tíma í að bjarga flugum úr öllum gluggum í salnum með tiltækum glösum og pappalöppum. . þetta er og hefur verið okkar aðaláhugamál síðastl. vikur. .flugur. - þar sem ég er nýbúin að taka blessaða stúdentsprófið í líffræði gat ég frætt hana um eitt og margt um fluguna, skýringamynd og læti. . en tilfinningin að bjarga lífum er ómetanleg!. . Hótlestýran er búin að koma uppi e-jum flugnapappír í suma gluggana. . og við er orðnar svo tilfinningalega ruglaðar í þessu að ef við sjáum flugu fasta í pappírnum. . jafnvel í miðri keyrslu. . þá hröðum við okkur að ná í glerúða eða e-ð til að lina þjáningar flugunnar. . það er HRÆÐILEGUR dauðdagi (mundi ég halda) að líma lappirnar í flugnapappír (sem fluga) . .

sunnudagur, júlí 27, 2003

Paljon kello on? kuusi. . enn ekki farið að sofa síðan í gærmorgun. . nema aðeins í aftursætiskösinni á kagganum hans Emils. . hver slefaði ekki á öxlina á hverjum! fer að vinna eftir hálftíma í morgunmat. . djamm í Rvk og auðvitað erum við öll á morgunmatarvakt + kvöldvakt. . búið að renna af flestum guð sé.

"Excuse me, but where is the James Bond-hotel, do you know?". . hik. .er þessi breska kona ekki að fokking grínast!? . . nei. . hún var ekki að grínast. . - ég náði mér í Íslandskort, krassaði á það e-ja ómynd og vissi allt í einu sinni allt um upptökur myndarinnar við Jökulsárlón. . ég beið bara eftir því að hún spyrði mig hvort ég væri ekki ábyggilega eskimói líka. .

Hitchhikuðum Borgarnesið með snilldarpari sem var á leiðinni á ættarmót í Húnavatnssýslu í dag. . stelpan alveg sleppti sér af gleði við að sjá að fólk gerði slíkt ennþá. .

Í gær var horft á X-MEN 2 á skjávarpa. . en ef horfa á á þá mynd þá þarftu að vera búin að sjá nr 1. . Við Suvi skildum ekki boffs. .þrátt fyrir kínverska subtitle-ið . . hvorki hvað var að gerast, hver var vondi kallinn, hver var ástfanginn af hverjum, plottið, . . myndina.

. . spurningin "hvað helduru að muni breyta lífi þínu?" . . hver veit nema maður er búinn að hitta e-ð af því. .gamalt sem nýtt. . ég er ekkert skáld svo ég ætla ekki að skrifa fleira en í staðinn láta alla vita að þó að þynnka sé nokkur og svefninn sé enginn, þá brosi ég

fimmtudagur, júlí 24, 2003

já, er ennþá á lífi. .
Ég er svo stolt af mér. . hér með get ég átt mitt fyrsta rifrildi á finnsku. . "Hvar hefuru verið?!", "Hvert þykist þú vera að fara?!!", "djöfullinn!!", "fjandinn!", "farðu ég hata þig!" o.s.frv.
Ég er soleiðis FALLIN fyrir þessu tungumáli. . og er alltaf að læra meira - ég ætla pottþétt að kíkja á landið einn daginn;)

Maður er víst búinn að vinna talsvert þennan júlímánuð. .ég var að telja tímana mína í gær og er komin upp í 63 yfirvinnutíma. . and counting!

Um daginn fórum við Marie og Saga að þvo bíl í Borgarnesi. . sem er ekki í frásögu færandi nema fyrir þær sakir að þá ákváðum við að kíkja aðeins á Hvanneyri. . hlýtur að vera e-ð athyglisvert að skoða á þeim bænum. . eh. .

Á morgun verður pizzapartý og bíókvöld, vínsmökkun (m.ö.o. fyllerí ) 31. -

föstudagur, júlí 18, 2003

Ég veit ekki hvernig þetta er þarna í siðmenningunni. . . en hér er búin að vera HITABYLGJA!! Um daginn voru 36 gráður í sólinni! Ágætt að geta skroppið til Iceland (2 gráður), Greenland (4 gráður), Jódlands(6 gráður). . og í þessum hita. . Finland ( -20 gráður). . þetta eru sem sagt kælarnir og frystirinn. . skírðum þá. .hmm. .Um kvöldið kólnaði heldur þó svo við grilluðum banana undir teppi. . smakkaði slíkt í fyrsta skipti og það var bara ekkert verri. .

Hver haldiði að hafi ekki komið að borða samloku á litla uppsetta kaffihúsinu okkar á veröndinni í dag. . jú það er satt. . Jón Celeb Ársæll! og þar að auki ber að ofan. . já við erum heppin

Road Trip!!!! Já, í gær var svo sannarlega tekið road trip. Við Saga ætluðum að vakna snemma og taka Snæfellsnesið á jeppanum, buðum Gulla með snemma . . en hann afþakkaði og sagðist ætla til Rvk. . leggjum í hann!!. . næstum komnar að Borgarnesi. . *hringing* "Hva! Fóruði án mín!!!???!". . þrátt fyrir galla Gulla. . þá snerum við við. . leggjum í hann!! Sólin skein, hiti, nátturufegurð. . kommon! þetta var allt svo fallegt!. .!! eftir að utvarpið át geisladiskinn. .heilsuðum við upp á gömul sveitahjón á bæ nokkrum til að ath. hvort þau ættu ekki flísatöng til að ná CDasna út. . bændur og hundar voru hressir og átti ég gott spjall við húsfreyjuna um þurrkinn sem þau hafa þurft að þola á nesinu. . - ekki náðist að redda útvarpinu og myndaðist út frá því einkar furðuleg stemmning í bifreiðinni. . ólíkir karakterar og furðulegustu samræður. . .- sungið annað slagið og hlegið eins og galið. Við skoðuðum fjöll og slíkt. . Arnarstapa, Búðir, Djúpalón (fallegt!!) og bæi sem fólk veit ekki einu sinni að séu til. . Hellisandur, Ólafsvík og Rif þar sem planið var að heimsækja frænku hennar Sögu. Ef e-r er að leita að ÖLLUM Kríum sem til eru í heiminum. . look no more. . .þær eru ALLAR á Rifi. . Á bakaleið var stoppað við foss e-n og fengum við öll close look þar sem heljarinnar vatnsslagur átti sér stað. . hegðun Gulla kom öllum í opna. . það var ekki þurr fatarflík á neinum á heimleiðinni og voru myndir teknar af blautbolskeppninni af konu lítilli. MÖGNUÐ ferð eftir allt saman og verður næsta road trip eflaust að þessu blessaða Hvanneyri. .

Jæja, loksins fór maður alveg Jafnaskarðið. . fylgt læknum í "gljúfrinu", fallegt. . endaði á e-ju engi. . sofnaði í klst á enginu, þvílík þreyta!!! Kameran alveg að gera sitt. . maður er farinn að gleyma svo miklu úr jarðfræðinni 3. bekk, leiðinlegt.
Átti frábært langt spjall við mömmu um daginn. . elska hana, skilur (flest)

Ökunámsbókin verður að bíða. .Um þessar mundir er það "The adventures of Huckleberry Finn" - Mark Twain. þakið, þakið. .

mánudagur, júlí 14, 2003

"You have to meet this guy, the lead singer, he is the Sean Connery of Iceland. . ." - já. . ég minnist þess nokkurn veginn að hafa sagt þetta. . . .
Þvílík endalaus vitleysa!!!
Hérna heima eru margir sammála um að ball aldarinnar hafi bara skotist hér upp fyrir skömmu. .
Við ÆTLUÐUM að klára snemma!. . dekkuðum upp f. morgunmat þó að eftirlegukindur sætu á næsta borði. . Á meðan við lögðum lokahönd á sal og uppvask ætlaði Pekka kallinn að blanda stelpudrykki. . rólegur á vodkanu! drukkið í grænum í eldhúsi. Atli, Tumi, Hjalti og Arnþór komu inn úr rigningunni sem þeir bæðevei tóku með sér!! og skelltu sér með okkur í partý með "Village-people-i" til Lilju í Steinkotinu. . . þar byrjaði snilldin eina, drukkið það sem hendi var næst. . ég held að ég hafi drukkið kaffi sem bland út í e-ð ef ég man rétt. . Atli og Tumi mingluðu strax við innfædda!, snilld. Ég veit ekki hvað við drukkum en strax þá vorum við Suvi orðnar ískyggilega!! Við Sebastian tókum afganginn af djúpa samtalinu okkar síðan úr síðasta partýi og gaman að líta yfir þessa engla af fólki. . E-ð blackout. . en rölt upp að Hreðavatnsskála. . svo vorum við Suvi allt í einu búnar að henda drasli í fatahengi. . munum ekki hver gerði það og vorum ekki með miða. .- stefnan tekin að dansgólfinu þar sem allir misstu sig!!!!! Sungið með mönnum og allir í stuði - "komdu sæll og blessaður!", "Sísí" og öll þau. . og ef það var ekki bara ég en ég held að þeir hafi tekið "Halló! Halló!" Halló!" þrisvar sinnum. . og útlendingarnir voru fljótir að ná textanum. . mesta snilld!!!!! Kvöldinu var eytt á gólfinu þar sem allir eyddu allri orku í dans. . en þó er í minni að hafa farið að barnum í hléi, við ætluðum að panta hvítan rússa en barkonan kom eins og álfur svo tequila á línuna, ég höndlaði það ekki. . og var línan því Atli og Suvi. . hver var ekki á barnum nema Egill sjálfur Ólafsson. . og smelltum við báðar einn á hann. .guð minn alm . .já, allavega . . . dansað eins og brjálætt væri. . vatnsslagur víst milli Pekka og Gulla á barnum. . pakkaður staðurinn!
Að balli loknu reyndi fólk að rusla sjálfu sér heim. . sumir enduðu víst uppi á Grábrók. . veit ekki meira um það?! Ógleymanlegt!! (fyrir utan einstaka blackout. .)

- Næsta morgun. Ég vaknaði algjörlega raddlaus!!!Það kom ekki orð! og ég veit ei af hverju en vaknaði kl. 9. . Pekka og Birgitta, morgunmatarvaktir, sváfu bæði yfir sig, bæði ennþá hálffull. .vakin með vatni!! Fólk tíndist niður af Skakka og skiptist á vitneskju um það sem fram fór kvöldið áður. .
Í vinnunni byrjuðu og enduðu flestar setningar með " we are in so much trouble!", "shit. .", "I´m feeling soooo bad. .", "o my god. .". . við vorum með yfirbókun á hótelinu!! Aldrei verið jafnmikið að gera. . hand steady as a rock my ass. . Guði sé lof að fólkið sem varð að bíða var sænskt (easy to please), ég var að fá hjartaáfall í ala carte, og stelpurnar í hópunum líka. . djöfull er ég samt stolt af mér, maður er bara að "massa" þýskuna!! slepptum kvöldmat, lifðum á morgunmat. . og þegar kvöldið var loks á enda var orkan engin . .
Er með Day off í dag, ekki átt í langan tíma!! short á staffi. get samt ekki sofið. - fólk í tómu rugli!
Ef það verður gott veður í dag. . ætli maður fari ekki í langan göngutúr, måske Selvatn, lesa bók og taka því nú einu sinni rólega. . . svo er BBQ- stafffapartý í kvöld. .
Við leigðum Catch me if you can í Borgarnesi um daginn, mögnuð mynd!

föstudagur, júlí 11, 2003

"Who will be the SURVIVOR??!!". . . Við erum farnar að búa til okkar eigin þátt í veitingasalnum, Fosshótel Bifröst.
Challange 1. : "Útskýrðu fyrir 100 Ítali sem skilja aðeins ítölsku, að kaffivélin fór allt í einu að kólna og það tekur smástund fyrir hana að hitna upp aftur. .(frjálst að nota "bodylanguage)" - Good luck with that!
Challange 2. : "Leystu úr flækju þegar grilljón Þjóðverjar koma eins og þruma úr heiðskíru og heimta morgunmat og "BESTICK!!" og þú ert ekki með laus borð. . (frjálst að fá taugaáfall inni í sal)" - Have a nice one!
Morgunmaturinn í morgun var CATASTROF! aldrei! HEF ÉG SÉÐ JAFMIKIÐ AF FÓLKI!. . . .Eldhúsið var eins og lent í miðjum hurricane! Leirtau sett þar sem auður blettur var!! í öllum hillum og skúffum. . vantaði allt á morgunverðarbuffetið, við vorum bara þrjú. . - þú hefðir bara átt að vera á staðnum. . Hamingjan eina. .

Annars er hvað ball á morgun. Stuðmenn!
- Nenniði að finna ágæta enska þýðingu á orðinu "Stuð"????
Þvottahús-Lilja er að plana að fara með staffið í e-ja hestaferð¨verður líklegast e-r miðnæturferð svo sem flestir komast. .jej. . ég hef ekki séð hest! síðan 16 ára á Hrauni
Jæja, ég held að Jónas Heiðar næturvörður haldi að ég sé alveg búin að ganga frá því. . .en ekki meir um það. . í gær voru allir vægast búnir að ganga frá því. . - yfirbókun&því sem fylgir,- 36, metið okkar í ala carte, tvídekkningar, bið, bar & vesen, drukknar ömmur, sextugir Ítalir að reyna við þjónustufólk, kviknaði í servéttu og næstum einum Ítala. . þreytan á fólki hérna er samt farin að segja til sín



Ég er víst komin með heimasíma. . hann er 00-354-435-0051 , leggið hann endilega á minnið!!

miðvikudagur, júlí 09, 2003

Vá! Hvað þessi dagur er búinn að vera e-ð endalaus!. . var í morgunmat frá 06.30 til 10. . Brian skuttlaði okkur Suvi í Borgarnes og fór svo e-rt sightseeing, komast aðeins frá. . – í Borgarnesi. . “the city” fórum við í “mollið” og eyddum klst inni í hverri verslun. . alveg báðar! Stoppað vel lengi í ríkinu. . velja e-ð sull í kokteila fyrir laugard. Síðan var loks málið að komast heim, áttum að vinna kl. 4. . náðum að fara á puttanum með e-jum Hill-Billy kalli, bíllinn að detta í sundur, hey í aftursætinu og allur pakkinn. . – kom svo í ljós að hann var að fara á golfvöllinn. . e-ja 10 metra frá staðnum sem hann pikkaði okkur upp. . svo við vorum staddar “in middle of nowhere” . . fengum svo far með yndislegu fólki sem var líka á leiðinni að Bifröst ( komu svo á barinn um kvöldið að “djamma”). Svo vorum við að drepast í vinnunni. . . vorum með öll einkennin. .
Marie, franska stelpan hérna, algjör demantur, hún á afmæli í dag!

Rölti upp að Selvatni um daginn, sólskin&blíða, ævintýraþráin sem flestir eru illa haldnir af hér. ., bókin “Tales of Edgar Allan Poe” draugasagan um “The Black cat”. . hjálp!. . en gerist lífið betra? Held ekki. Fór líka í Jafnaskarðsskóg! The creeps. .

Ég er farin að kunna heilu setningarnar á finnsku, held næstum uppi samræðum. .Hmm. . .eða þannig séð furðulegum samræðum. . en SNILLD að kunna e-ð í þessu skrítna tungumáli. .
M.a.
“Missä on linja auto-asema?” = “Hvar er strætóstöðin?”
“Missä on Juna-asema?” = “Hvar er lestarstöðin?”
“Olet omituinen!” = “Þú ert skrýtin!”
“Perseet olalle” = “Let´s drink!”
“Ei! Minä olen kännissa!” = “ Nei! Ég er full!”
“Häivy! Mä vihaan sua!” = “Farðu! Ég hata þig!”
“Omituista” = “skrýtið. . .”
“Minä olen tyttö” = “ég er stelpa”
“Moikka! Mikä sinun nimesi on?” = “Hæ! Hvað heitiru?”

sunnudagur, júlí 06, 2003

"Hvað er það helduru sem mun breyta lífi þínu?" . . .hver getur svarað þessu? Svörin geta verið allt og ekkert. . . fólk sem þú hittir, bækur sem þú lest, staðir sem þú sækir heim. . .Hvað vilt þú? . . erill enginn, friður og n.k. sjálfstæði, met það mikils - Er það e-ð sem heitir að velja ekki réttu leiðina? rétt leið? Er maður bara að þykjast. .
. . . fólk er að verða svo "fullorðið".
Er maður sami krakkinn í eplatrénu og í æsku . . .
Hugsanir hellast yfir, dagdraumar banka.

laugardagur, júlí 05, 2003

Klukkan að ganga 5, hresst fólk á sveimi!
Gott kvöld (heldur langt þó) að enda. . fjármálaráðuneyti skellti upp balli eftir mat og var maður að kokteilast án kokteilanna á barnum til 4. .heldur frekar auðveldari pantanir á borð við rummið, vodkið, gumminn, irish coffee, bailey´s, campari, whisky, koníak o.fl. en engu að síður gaman - snobb-fólkið var í ruglinu!!!! Tvistað við Gipsy King og guð má vita. . .

Loksins fékk ég Svíann minn í a la carte, langt spjall, feitt tips.

Skemmtileg hefð hefur myndast í vinnunni, maður er að finna gula Post it- miða á furðulegustu stöðum með "Dear diary. ." skilaboðum með RUGLI! sem ganga á milli okkar Suvi - æðislegt að þurfa aldrei að nota fake/uppgerðar- bros til gestanna inni í sal :)

Á morgun verður dottið´íða ( "fallen in to it") eftir massa törn.

"Mina olen dordella unínen" = "ég er mjög þreytt"

Góða nótt!

föstudagur, júlí 04, 2003

Halló! Halló! Halló! . . . á ekki að hleypa inn?

Þetta verður víst rosa sveitaball. . allt "Village people-ið" er að fara og rútur utan af landi. .

Er hérna í lobbýi eftir 15 klst vinnudag. .arrg.. "Skatman" er á svæðinu. . Ráðstefna fjármálaráðuneytis og ríkisskattstjóra

- Suvi honny á afmæli í dag, 23 ára, og hefur átt í þrjá daga. . kaka 1 júlí því mikið að gera núna. Í gær rétt eftir 12. . heyrðist bara: "Tefðu hana, taktu hana út í þvottahús! e-ð! ". . Saga tafði og ég bjó til müsli og stóra glasið af appelsínudjús (og auðvitað brauð með öllu) ( þekkjum hvor aðra OF vel! ). .á bakka með kerti - sungið á íslensku, tár. Farið upp á þak að sjá e.k. hlut af sólsetri. . - gestir furðulostnir - ekki á hverjum degi sem maður sér þrjú græn vesti uppi á hótelþaki.
Við Suvi reyndum fyrir okkur í "housekeeping" um daginn. . byrjuðum með "Hvernig þrífa skal herbergi- lista for dummies" , þrifátfittið var snilldin ein. .enda hvert andartak myndað. . litla svuntan, útvarpið milli herbergja, hanskarnir, nafnspjaldið og tuskan ("offwiper") - Það að þrífa hefur aldrei verið jafnskemmtilegt, enduðum með doktorsgráðu í þrifum og meðhöndlun fyrstu ryksugu ever made. .

Alveg einstakt að fara niður að Glanna ("Daredevil") að morgni dags, við erum víst fleiri sem sitjum alltaf á sama steini. . - tónlist í Walkman, alltaf sama Krían í bjarginu, laxar á hoppinu, friður og frelsi . . . .

Átti gott spjall við Álfdísi í gær, sem er að vinna á Laugum. . möguleikarnir endalausir, stórir draumar, heimurinn handan hornsins

þriðjudagur, júlí 01, 2003

“DON´T PUT UNPOLISHED KNIVES & SHIT IN THE BOXES!!“. . hversu erfitt?
- Við Suvi erum orðnar eins konar mömmur hérna. . og erum orðnar þreyttar á því. . enginn tekur til eftir sig á staffaborðinu! Við þurfum undantekningalaust að gera það á kvöldin.. en í gær var mælirinn fullur. . við vorum á barmi þess að fá báðar alvarlegt “snappstig” á snapplistann inni í eldhúsi. . eins er þetta með “the cutlery” – ENGINN virðir skiltin okkar. . skilaboðin eru skýr á bæði íslensku og ensku. . við erum alvarlega að spá í að bæta þýsku, frönsku, sænsku og spænsku við. .

Það getur svo sannarlega hitnað í kolunum inni í eldhúsinu. . Kokkarnir eru þeir sallarólegustu sem ég hef kynnst. . frábærir - það er nánast fyndið þegar það er svona brjálað að gera, eins og síðustu daga, hundrað og e-ð manns inni. .ef við erum óheppnar (eila alltaf) eru þetta allt Frakkar sem NEITA gjörsamlega að REYNA að skilja ensku!! . . Bodylanguage er aðaltungumálið hvað þá varðar . .þjónar í stresskasti! Keyrsla, . . við komum inn í eldhús. .þeir :” rólegar elskurnar. . hvað liggur á?” HVAÐ LIGGUR Á?? Kaffivélin biluð, brauðið frosið, engir klakar, smjörvandamál, fólk í hópum eru allt í einu grænmetisætur, enginn skilur ensku. . “Lít ég út fyrir að geta talað ítölsku???!”, fokk! Og það er eins og fólk haldi að þjónarnir eru þeir sem eru að elda matinn. . ef þau eru kannski búin að bíða í smá stund og líta svo á okkur, sem erum að gera e-ð annað (en vitum að kokkarnir eru að elda) þá verða þeir kannski súrir á svipinn af því að við erum ekki inni í eldhúsi að elda eða e-ð! jájá!! Bara með lambafillet og gratíneraðan sjávarrétt í vasanum eða !??
Það myndaðist ský inni eldhúsi eftir morgunmat í gær þegar við Pekka vorum að sjóða “Tea-water for the British ladies, thank you” því kaffivélin kolappsaði. . þegar við komum að pottinum í þokunni aftur var ekkert vatn í pottinum, gas/bruna lyktin maður!

Vorum með BÍÓ-kvöld, skellt upp skjávarpa, popp&pepsi inni í sal, alveg dýrlegt, undir teppi í fyrsta flokks bíói.

Fór upp á þak í morgun að lesa Napóleons skjölin, spennó, búin með 101 Rvk(ekki mjög góð) Hvað á að lesa næst? Ökunámsbókina kannski?