OK, enn og aftur
EINN dagur eftir af árinu og aðeins svo langur tími til að gera allt sem maður ætlaði sér. . Ég kannast ekkert við að hafa tekið bílpróf á árinu..
né heldur í fyrra, ég held að ég hafi ekki keyrt bíl í tæplega ár. .Ég ætlaði að ganga á Esjuna í fyrsta sinn.. nei, held nú síður.. ég þori bara ekki að telja upp fleira.
Árið leið samt eins og eldflaug! Frábært ár, eitt það besta hingað til, vona að 2004 verði enn betri. Flott ár..2004, mun vonandi setja upp stúdentshúfu, verða tvítug.. – sýnt skilríki í ríkinu.. þvílíkur sigur,
hvað ætli fleira gerist?
Dagurinn var æði og hann byrjaði í morgun. – Emil svaf yfir sig, Saga svaf yfir sig og ég var ALLTOF sein – umferðin er hlægileg!
Emil kominn heim frá Danmörku og rosa gaman að hitta hann, góðum gír! Eftir endalaust rabb kom Saga til okkar á
Hressó (allt pakkað á Paris/Brennslunni) – þar sem Guja stóð fyrir miðasölu. Maður er svo sjúkur!.. en hver pólerar/pússar hnífapörin á þeim bænum? Guði sé lof, Saga er eins. 4-5 tímar á Hressó takk fyrir góðan dag.
Um kvöldið komu hvorki meira né minna en bæði
lambúshetturnar og tm7 ( hvað er með þessi nöfn, en ok!) Alls 10 stk. stelpur í spil, Trivial og Actionary, – gott spil. Frábært að sjá þær allar saman fyrir nýja 2004.
Talandi um nýja.....þá er gamla á morgun. Eitt af því skemmtilegasta er að drekka ákavíti og borða kryddsíld með fjölskyldunni og horfa á
Kryddsíld í sjónvarpinu. (erum við ekki hallærisleg?) Um kvöldið verður farið í Vesturbæinn, brennan, skaupið, stjörnuljós, skjóta upp rakettum, kampavín og hele pakken. Svo verður stefnan tekin í partý hjá Brynju og hitta allt gamla góða hverfið, kannski bærinn.
Best að spyrja
Bókina með svörin:
Verður 2004 gott ár?
Svar: Taktu áhættu.
(Gott svar.. og ég tók þá áhættu að spyrja aftur:)
Svar: Þú færð að vita það fyrir víst.
Úff.. spekin, bók, ég veit ekki hvort ég á að brosa eða gráta, en við sjáum til. Þetta er soldið spennandi en um leið smá ógnvekjandi. Jæja, bull.