sunnudagur, febrúar 29, 2004


Ladies and Gents . …….It´s OSCARNIGHT!

Já gott fólk, gríðarleg stemning hér.. Óskarsvaka hjá Söndru í nótt. . Íslandsklukkupróf í fyrramálið.

Á föstud. var Esjan klifin í fyrsta sinn..útsýnið var ekkert útsýni, einungis þoka... ég er nú komin í hóp Íslendinga.

....Hins vegar varð afturhvarf til Svía ekki seinna en næsta kvöld. Æskuvinur minn Sigurþór varð tvítugur í Garðabænum. . Þangað fórum við Magga og Eyrún, einnig sænsk æskuvinkona, og var gaman að sjá fólkið aftur. – til mikillar gleði okkar Eyrúnar var frítt áfengi, líst vel á þig Sigurþór. Þar hittum við gamalt Krítarandlit, Inda. Gaman.

Fyrr um kvöldið höfðum við Unnur, Katrín og Magga gert okkur góða ferð á Ítalíu.

. . . álpaðist ég yfir götuna og í ógöngur í Garðbænum, get ég þakkað íbúum Ásbúðar 44 fyrir að vera enn á lífi. Skammt frá var tvítugsgleði hjá Guðrúnu. . Mr-ingar höfðu sig nokkuð hæga hliðiná fótboltaliðinu. Sumir vildu þó koma beru holdi á framfæri og enn aðrir heimtuðu að fá að syngja í sturtunni. . . don´t ask.
Þaðan var haldið á SHOCKWAVE og hef ég ekki séð aðra eins biðröð. . við erum svo illa innrætt að við svindluðum okkur inn annars staðar en aftast í röðinni. Stemningin var okkur ekki alveg að skapi.. en fékk ég samt ghettokveðju"Jó whass up babe!" frá gömlum kunningja, svo takmarki kvöldsins var náð, og var þetta allt ágætt.
Ég var ansi lélegur ljósmyndari þetta kvöldið..en hér eru einhverjar.

Fiðluball í næstu viku. .

fimmtudagur, febrúar 26, 2004


Carrie: I don't believe in email. I'm an old-fashioned girl. I prefer calling and hanging up.

Stanford: Oh God! She's fashion roadkill!

Carrie: The only thing I've ever successfully made in the kitchen is a mess. And several small fires.

Carrie: I will literally be the old woman who lived in her shoes.

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

SHOCKWAVE!!! ! ! ! ! (bergmááááálll......) ! ! !
(þetta er ..ekki.. auglýsing)
SHOCKWAVE á laugard. 28 feb!!!!! Þetta verður sérstakt - en eflaust TAUMLAUS gleði! ;)

Voða spes dagur. . fann síma úti á götu.. fyrst brjáluð að sitja uppi með símann því "heima"-númerið gaf í skyn að eigandi byggi á Ísafirði!! og enginn svaraði..aldrei! og ENGINN var heima í húsunum rétt hjá..FRÁBÆRT! mig langaði helst til að láta símann á nákvæmlega sama stað og ég fann hann - svo fannst eigandi og ég ÞURFTI! að þiggja 1000 kr. í fundarlaun og þá fékk ég samvizkubit anskotans!

Já, pottablómið er ENNÞÁ á lífi. . það hefur enginn trú á mér!

Ég þarf bráðum að segja upp á Horninu. . stúdentsprófin eru bara á morgun.

Kaffi Vín í gær, elskulegi maðurinn minn gaf mér konudagsgjöf; ég gat ekki annað en hætt við að skilja við greyið . . hamingjusamlega gift.
24 feb: Lauryn Hill - Adam lives in theory

mánudagur, febrúar 23, 2004

Jæja. .
Merkisatburður í mínu lífi. . eignaðist mitt fyrsta pottablóm! svo stolt að hafa loksins tekið þetta skref. . þetta er sem sagt "Bergpálmi" . . ég á ennþá eftir að skíra blómið..svo hugmyndir eru vel þegnar.
ég er samt að fá smá ábyrgðarfælniskast.

Við Atli fórum á Cold Mountain í gær - stórgóð mynd, óhætt að mæla með henni! Reyna að sjá sem flestar myndir tilnefndar sem besta myndin "before the big night" sunnudag-mánudag. .

Nauðguð plata hérna megin! (sum ykkar vita það! ;) ) náið ykkur í eintak


Lag dagsins: Lauryn Hill - Just like water

sunnudagur, febrúar 22, 2004

Myndir úr afmæli Dóru 6-Y . .
- grænn
- ég var edrú krakkinn (ekki sá eini samt)
- aðrir drukku epli, drukku sig græna og sprengdu upp epli (4real)
- við vorum stödd útí rassgati!

Lag kvöldsins: No doubt - Don´t speak

laugardagur, febrúar 21, 2004

Þetta er mjög fyndið

Rétt upp hendi sem er EKKI veikur!!!

. . .en gaman að vera að þjóna í STEGGJApartýi á föstud.kvöldi í þessu ástandi. . "eru þið ekki með e-ja svona uppákomu?".. jú, ég skal bara fara úr að ofan og taka lagið á barborðinu! Hvernig væri það! Í staðinn lét ég stegginn staupa tequila sem hann sagðist vera með "ofnæmi"fyrir....og var hann orðinn ískyggilegur þegar leið á kvöldið...ég var fegin að fá að komast heim.

Dóra á afmæli í dag; til hamingju með það!

"I am disinclined to acquiesce to
your request.
. . . . .Means ´No´ "


Lag: Garbage - When I grow up

fimmtudagur, febrúar 19, 2004

Það væri frekar skynsamlegt að fara að læra jarðfræði í dag. Skynsamlegt.
Nema hvað?!?! Minna má nú vera!
Ég mæli m/þessari síðu - handrit að MJÖG mörgum myndum; gaman að lesa
Script-o-rama

Ég var að lesa ýmislegt sem ég skrifaði á bók í 4.bekk - ég held að ég hafi ekki verið með öllu mjalla.

Styttist í stúdentspróf. .ég mun fá hjartaáfall og taugaáfall og allt í senn. - en ég held að ég hafi verið meira kvíðin fyrir samr.prófin í 10.bekk?

Fyrsta lag dagsins gefur tóninn fyrir daginn. . . . ”Volare” með: Gipsy Kings
Ég veit ekki alveg með það.

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

TÍMINN BARA LÍÐUR. . .

Miss Match (Sundur og saman): Kate Fox starfar á lögfræðistofu föður síns en hjónaskilnaðir eru hennar sérgrein. Aðalhlutverk leika Alicia Silverstone og Ryan O´Neal (who?)
(1:17)
- spurning um að kíkja á þetta! Ég var búin að gleyma tilvist Aliciu. .

Jude Law er vilji fólksins, Robbir Williams??annar.. persónulega vil ég sjá Hugh Jackman, hann er þriðji inn á lista. 33 greidd atkvæði (hvaða fólk er þetta?)

Jarðfr.próf á föstud. - vinna um helgina - tvítugsafmæli á laugard.

Loadin´cannons, mate!


Lag þessa dags: Bo Kaspers - Ingenting alls

þriðjudagur, febrúar 17, 2004


Blah! Takið með ykkur bangsa, teppi (sem þið þekkið vel) og soundproof-eyrnaskjól.
....og gerið ykkur ekki ferð í Öskjuhlíðina eftir myndina. Augljós mistök.

Mikið að gera. . .

Lag: Flaming Lips - Yoshimi Battles the Pink Robots pt.1

sunnudagur, febrúar 15, 2004

Another glorious day!
. . svona dagar eru alveg dýrlegir! Vakna eiturhress! Vikuskammtur af Nágrönnum, og lesa svo í kyrrðinni hjá ömmu klst saman.. innifalið jurtate og símablaður. Ég má varla við því að sleppa bókinni, virkilega vel skrifuð – persónusköpunin (Júrí Andrejevits. Nikolaj, Lara Fjodorofna, Misja, Níka, Pasja o.fl.) og frásagnaraðferðin alveg til undrunar hjá mér, ég vildi eiginlega að ég yrði veik á morgun. . en hef ekki efni á því mætingarlega séð.

Dyngdi snjó og freri
Fyrr en varði.
Kerti brann á borði,
Brann kerti.

- Boris Pasternak -

Saumó. .
Af hverju notar maður ekki regnhlíf?
. . ég held að ég hafi aldrei séð Íslending með regnhlíf. . nema e-t á 17. júní.. Er það af því að það er hvort eð alltaf rigning?
- fólk í útlandinu tekur meira að segja regnhlíf m/á djammið.. já satt, geyma þær í fatahenginu.
Mér dytti ALDREI í hug að fara út og "Ah..best að taka regnhlíf!"
Segja sumir - aðrir ekki....

Travis - Why does it always rain on me?

laugardagur, febrúar 14, 2004


Í gær fékk ég fallegasta Valentínusarkort sem ég hef fengið (úr ÖLLUM bréfastaflanum! ;) ), ég táraðist

Árshátíðarfrí!!! Alltaf vel þegið. .
Myndir úr árshátíðarpartýi speak for themselves. . . snilld!

Vinna aftur í kvöld, svo kannski Viktor m/krökkunum - en samt búin að skrúfa niður djammstuðið þessa helgi. .
Mig langar nú frekar í bíó, sjá þessa Gothika.. verður að bíða betri tíma

Saumó á morgun hjá Ollu - spennó:)

Lag dagsins í dag: U2 - I will follow

miðvikudagur, febrúar 11, 2004

- ”ÁFRAM GENGU ÞAU og sungu Eilífan frið, og í hvert skipti sem þau þögnuðu, var eins og fótatak þeirra, stormhviðurnar og hófar hestanna héldu söngnum áfram. . ”

ef e-r heillaðist af þessu. . þá eru þetta fyrstu þrjár línur Sívagó læknis, en ég þarf einmitt að fara að grúska í þeim fyrirlestri, og tel ég fyrsta skref vera að byrja á bókinni.

Árshátíð Framtíðarinnar á morgun. . morgunpartý hér. . ætli ég verði ekki að baka e-ð - Hjálp! Ég er ekki þessi bakari sem þið haldið að ég sé


(lengi lifi)
Lagið: Roxette - How do you do?

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Hvernig var dagurinn?
. . tjah! bara ágætur takk fyrir.. fór í skólann (en fór ekki á skíði), las smá í sögubókinni (en fór ekki á skíði).. svo fór ég í vinnuna (í strætó.. en ekki á skíðum)... þetta venjulega. Fór ”næstum” að reykja pizza-oregano með Múmma, en við létum okkur seinna nægja að sniffa línu.. good shit.
Kynntist æðislegum Breta, Thomas. Ég dýrka útlendinga sem eru allir í “Icelandic beer? DO YOU HAVE ICELANDIC BEER??”.. og fær sér svo góðan fisk með Gullinu.. Við náðum að tapa okkur yfir landakorti og ég var nottla svona allt í einu orðinn sérfræðingur í íslenskri landa- og jarðfræði. . – og úsaði alveg af þekkingu á Snæfellsnesinu góða, takk Saga og Gulli.


Lag þessa dags: Wyclef Jean feat. Sharissa – Take Me As I Am

mánudagur, febrúar 09, 2004

Volkswagen. Heim komið. .
Jih hvað var gaman!
Selva Val Gardena - Alveg æðislegt. . . mig langar aftur strax í dag. . ég bara nenni ekki að hanga í bíl.
Mikið er hægt að segja frá en ég bara nenni því varla. . Vaknað snemma alla daga, komin á skíðin (old school sko, beygja ekki sjálf) um hálf níu, endalausar brekkur!! Fyrsti bjór fyrir hádegi.. skíðað meira, í u.þ.b. 1000-2778 m hæð – háfjallaveiki smá. Ótrúleg náttúrufegurðin þarna.. ég væri alveg til í að setjast þarna að.
Hittum margan Íslendinginn, fórum með þeim m.a. hina margfrægu Sellarondu, til St. Christinu, Ortisei, Corvara, La Villa, upp á tindinn (þar sem var barist í WW1) – góður hópur af fólki. Eftir skíðalætin var farið í APRES SKI. . helsta gamanið á Luisl keller.. en það er einmitt mesti snilldarbar til!! Elska þennan bar, ætla að giftast honum. Núna var maður bara fullur um miðjan dag. Gott mál.
Þarna ríkir gífurleg TYROLA-stemning. . búningar, bjór, jóðl, Anton, bjálkakofar (nb.með reyk úr strompi). Sáum mjög athyglisvert dansatriði..eða e-ð.. eiginlega bara stelpur í mini-tyrol-outfitti að stampa í gólf og slá í rassinn á þeirri næstu. Síðasta daginn tóku Íslendingar eftir-skíðið föstum tökum og slepptu sér á Hotel Laurin, þar mátti sjá miðaldra fólk í villtri sveiflu á skíðaklossunum og öllum pakkanum! Djammið hélt svo áfram á Luisl Keller. . . volkswagen. Fékk bæði símanúmer og e-mail hjá plötusnúðnum Rennes, en við vorum einmitt orðnir “eins og þetta” alla vikuna . . Hann er gogo-dansari og sýndi mér of margar myndir af sjálfum sér í sundskýlu. Mikil traffík á flugvellinum heim, seinkun og svo aftur seinkun vegna þess að e-r fann bensínlykt. . þá þurfti flugstjóri að skrifa undir pappíra í tímana tvo, en þetta var e-ð allt annað. Myndir í þar til gerðum dálk.

Núna er mikið að læra og ég fór undir teppi að horfa á Pirates of the Caribbean m/Brynju og Somma því hér er kalt. “They are really more like guidelines. .”

föstudagur, janúar 30, 2004

Ég held að ég muni fótbrjóta mig úti. Kappið í pabba og mér er of mikið þegar kemur að bruni;) Ekkert "safety first"- kjaftæði
En ég er allavega bráðum farin. . – sjáum til hvort ég komi aftur.. skíði, afterski, snjór, Ítalir og heitt kakó hljómar vel í mínum eyrum.

”spurt og svarað”- fyrirlesturinn hjá Hilmari Odds var bara stórskemmtilegur og kom á óvart. Missti þarna aðeins einbeitingu í lokin . .takk bjarney.

Þið getið bara dundað ykkur á meðan.. púzzlað til dæmis… en já, ég mæli líka endilega með því að þið takið þátt í ”Frúin í Hamborg” á þessari síðu, þetta er bróðir minn fyrir þá sem ekki vita.

Ciao prisipjessa!
giorgio.

One for the road. .


Manu Chao - Clandestino

fimmtudagur, janúar 29, 2004

Gasaleg stemning hér á ferð, enda töluverð eiturlyfjaneysla í gangi.
Lifði af 2xstærðfræði í dag, lærði meira að segja heima.. tókuði eftir því?!
Fékk líka einkar skemmtilegt bréf frá Suvi, virðist vera í sama tjóninu og ég. Djöfull sakna ég hennar.

Fórum á Kaldaljós í gærkvöld, alveg ágætis mynd bara.. strákurinn áslákur er algjör mús. Soldið þung mynd en alveg ágæt! Það verður mjög gaman að heyra í leikstjóranum á morgun.

Búið að ákveða dimissio-búning í bekknum. Þetta verður snilld!
Frikki er kominn í nýja skó.

Hvernig munduði segja "ég er með #lag# á heilanum" á ensku? Sigríður Arnbj. gat ekki einu sinni hjálpað mér...



Lag sem Suvi var að minna mig á.
The Beatles - Hey Jude

þriðjudagur, janúar 27, 2004



Ensími – kafbátamúsík...
- drullugóð tónlist! Minnir mig samt svo mikið á stærðfr.próf í 3.bekk.. hlustaði STRAIGHT heila helgi. Allur diskurinn er bara snilld, sérstaklega góð þó arpeggiator, atari, kælibox og flotkví.

En já... við pabbi vorum að ljúka við að horfa á finnsku myndina Mies vailla menneisyyttä eða the man without a past.. eftir Aki Kaurismäki, einn helsti leikstjóri Finna... fantagóð mynd! Mæli með henni.

Eiginlega ekkert að gera í skólanum í dag.. sem byrjaði einmitt á þreföldu gati. Það fer að styttast svo í árshátíð.. og var mér falið það hlutverk að halda morgunpartý. Mér skilst að bekkurinn ætli svo út að borða á Pottinum og Pönnunni. Fast á eftir því á Konni afmæli og verður heljarinnar fagnaður hjá honum.

Styttist enn meira í skíðin.. spurning um að fara að pakka. Ef ég sá rétt í dag þá ætlar parentið að taka með svona labbrabb - tæki . . Fjölskyldan þarf að fara að finna e-r dulnöfn..

Á morgun fer kvikmyndagerð á Kaldaljós og röbbum svo við Hilmar Odds á fimmtud. Jarðfræðigreinsúrdráttur okkar Birnu er líka allur að gerast.. ætlum að reyna að krydda e-ð upp á þetta.

mánudagur, janúar 26, 2004

I am impressed. . . sænska vinkona mín sem við Brynja heimsóttum fyrir stuttu var að skrifa mér bréf þar sem hún segir meðal annars að hún sé byrjuð að læra íslensku á e-ju námskeiði í háskólanum.

Það er svona þegar maður kann ekki japönsku. . "votta shiva ne co desh!"
.. við verðum að finna e-ð annað til að segja, við yrðum settar e-rt inn.. læst og lyklinum fleygt!

Mona Lisa smile er ágætis skemmtun, takk guð fyrir breytta tíma.

sunnudagur, janúar 25, 2004

Juanes er góður.
...en um steikta drauma þá dreymdi mig að ég og Þórunn Helga værum að leika í auglýsingu sem Roman Polanski var að leikstýra.. við Þórunn áttum að ýta e-jum bíl eftir strandlengju, mjög óljóst, en svo fór draumurinn bara í það að Polanski (var allt í einu rússneskur) var að reyna að skrifa niður kennitöluna mína á rússnesku.. og það tók öld!

nú. Við Sandra og Saga fórum að dansa á föstud., voðalega spes kvöld en klikk gaman! Byrjuðum á Felix.. dansaður trylltur, við Saga fórum að efast um samband Söndru við vegg.. Stjáni bifró djoinaði okkur og kom okkur á sporið með ákveðnum danssporum.. hittum gaur sem kom með ákveðna nýjung í dansinn.. (svona "you had to be there") en allt kvöldið var eiginlega "you had to be there" því að næst fórum við á Glaumbar.. sem heitir nú með réttu "Glyðrubar!"
... strax tekið stæði á dansgólfi fyrir það sem framundan var. Góð tónlist, trylltir dansarar hvert sem augað leit. Sumir kannski AÐEINS trylltari en aðrir.. Stelpurnar þarna eru bara nöttkeis.. uppi á borðum með vinkonum sínum, g-strengur bara hérna! og einkadansarnir þarna voru ekkert einka! heldur bara out there. Við reyndum að láta þetta framhjá okkur fara ..en það var erfitt! Hámarkið hjá mér held ég að hafi verið þegar e-r gaur reyndi að taka mig úr buxunum á miðju dansgólfi. Já eða svarti "fána-gaurinn"... hver man ekki eftir honum? Ég átti erfitt með að halda niðri í mér hlátrinum þegar STÓR gaur kom dansandi á milli sögu og söndru.. en hann var það sem maður kallar klístraður dansari! Kristín Rós tennisgella var þarna líka mætt. Ég fékk þann "heiður" að Oroblu-strákurinn lét hendi mína á rassinn sinn. Staðurinn var sem sagt pakkaður af slaurum og glellum.. en þetta var tryllt kvöld! Stuðið var gífurlegt, dansað til klukkan 6 að morgni.


Í kvöld er Golden Globe.. maður horfir nú allavega á "the red carpet" ef ekki bara allt saman ;)
Gaman.

Lag 25 janúar: Whitney Houston - My love