þriðjudagur, ágúst 31, 2004

MÀNADARAFMAELI!!!
I dag er nàkvaemlega EINN mànudur sìdan eg flutti ùt. . .
. . .og nàkvaemlega i dag var eg ad skrà mig i Arbis skòla (saenskur skòli i Helsinki)... Byrja thann 9 september - tha verd eg "sikkjone", sem er "bokaormur" à itölsku . .
Hlakka til!
Lag dagsins i eldhusinu: Roxette - It must have been love

Ordid: mötky (hnìfapör)
Bid ad heilsa heim!
ciao babe!

sunnudagur, ágúst 29, 2004

Terve!
Sunnudagur i Finnlandi. Sweet. I gaer for eg a lestastödina. . og var eg buin ad nefna thad ad eg ELSKA LESTAR! . . en burtsèd frà thvi tha akvad eg, thar sem eg var i helgarfrii, ad fara i lestarferd... Tampere vard fyrir valinu og var thetta einn aedislegur dagur i Tampere.
Um kvöldid forum vid Sanna, Julie, Katie og Petri a rokktònleika a dimmum stad, e.k. hole-in-the-wall.. finnsk stelpuhljomsveit sem spiladi bitra-öskur-leduroutfit-stelpu-finnska-minipils-tonlist... angrymusic. Hljomsveitin heitir THE PATSY WALKERS...thetta var alger snilld! Thaer voru svo lèlegar ad thetta var naestum sàrsaukafullt - og thaer voru lika a rassgatinu; uppahaldsatridid mitt var thegar adalsöngkonan DATT reaching for the beer, skellti mikrofoninum i svidid...priceless!!!
Endudum a bar sem heitir SUPER, tileinkad Superman og fullt af ödrum ofurhetjum... pantadir drykkir a bord vid Tank girl, Jabba, Werewolf, Mr. Fantastic, Ken&Barbie o.fl. Thar màtti lika lesa teiknimyndasögur.. mjög spes.

Um daginn, a fimmtudaginn minnir mig, var her e.k. menningarnòtt - The Night of the Arts - allt um ad vera... öll galleri opin, hljomsveitir a götum uti o.fl. mikil ölvun. . Eg hef heyrt ad thad hafi verid svipad um ad vera heima?
Eg for med Lydie, sù franska i eldhusinu a Engel, og tveimur ödrum Frökkum og tveimur Finnum.. vid röltum baeinn allan, hlustudum a kòr syngja i thessari lika aedislegu domkirkju... barhopping... endudum i kjallaranum a e-ju hoteli med fraegu kvennaklosetti. Kynntist Baku, listmalara fra Afganistan.. hann var med okkur allt kvöldid - snillingur! Vid vorum öll e-n veginn ekki ad fitta inn i kràdid a hotelinu med hinum jakkafata-eg held a koniaksglasi-figurunum...
Sötrudum Cabernet fram a rauda nott. .
Thetta er thad sem eg dyrka vid Helsinki, thad er ALLTAF e-d um ad vera. . . ekki adeins a sumrin.

Nu er eg ad fara ad flytja eftir nokkra daga, sem er gott. . thekki nokkra sem munu bua afram i thessari blokk..
Husfelagi minn, er i alvöru talad ad drepa sig ur alkoholi. . og honum er skitsama.. thad thydir ekkert ad tala vid hann; vid höfum reynt.

Lag gaerkvöldsins: The Patsy Walkers - Rock police

Ordid: mustikkapiirakka (blàberjabaka)

mánudagur, ágúst 23, 2004

Lag dagsins: Coldplay - A Warning Sign

Well well... eg er herna i bulli, tharf ad stadfesta ibud.. a e-ri götu sem eg finn ekki. . .
Eg er ad fara ad flytja a Junailijankuja 5A 020 room 1, Pasila, Helsinki. Mjög òdyr leiga. . Verd liklegast thar til jòla.. og fer svo e-rt annad. Nema eg frjosi i hel i vetrarkuldanum her sem eg hef adeins heyrt talad um, byrjar kannski ad kòlna i Nòvember. .
Eg er ad hugsa um ad saekja um e.k. finnskukùrs i skola her.

A laugardaginn forum vid fimm krakkar, Sanna(SE), Petri(SE), Katie(GE) og Julie(SCO), med bàt ut a eyjuna Suomenlinna (sveaborg) sem er litil og falleg. Thar làgum vid a teppi allan daginn og drukkum ogedslegan bjòr; tùristarnir gàfu okkur hornauga... Eg helt einmitt ad vid attum ad vera tùristarnir?
Um kvöldid var farid a Premiere club og dansadur villtur dans thar til VERSTI plötusnudur sìdan sneitt braud for ad theyta skifum... Hann taemdi dansgolfid... TAEMDI!! Eins og venjulega thurfti ad draga Petri heim... eg er hraedd um ad husfelagi minn se alkoholisti... Bjor i morgunmat var min fyrsta vìsbending.

Ord dagsins: Minä kaipaan sinua (eg sakna thin)

fimmtudagur, ágúst 19, 2004



"Do you have handgun, knife OR GUM????" - Alvarlegir dyraverdir i Russlandi (look serious and are very serious..)
Bannad ad vera med tyggjò a djamminu. . . Af hverju? Èg thordi ekki ad spyrja.

St.Petersburgferdin var very good. 20 hressir Nordurlandabùar lögdu af stad fra Helsinki thann threttanda, 20 MJÖG mygladir og MJÖG thunnir Nordurlandabùar komust nokkurn veginn tilbaka thann fimmtànda. Allt i borginni var svo MASSIFT! Hallir endalaust margar, stòrar og fallegar; Hver a heima i theim?????
Pètur mikli, Katrin 2 og öll thessi saga sem eg aetla ekki ad rekja her - magnad ad sja med eigin augum. - èg hefdi viljad vera lengur; 3 dagar eru klàrlega ekki nòg.. vid skodudum rjòmann. Fòrum i bàtsferd um borgina - Feneyjarstemning. Heimsottum hid heimsfraega Hermitage Museum; stolt St.Petersburg med u.th.b. 3MILLJON listmuna!!!!! 5 byggingar tengdar saman - Vetrarhöllin, litla-, gamla-, nyja Hermitage og leikhusid. Eg get ekki lyst thessu safni; maeli med thvi ad folk geri ser ferd thangad sjalft. Litill timi til eydslu a RISA safni en saum m.a. listaverk eftir Da Vinci (ja Saga!!), Rembrandt, Michelangelo o.fl. Allt skreytt gulli og glingri.
Peterhof - lystigardur og sumarhöll Pèturs mikla (hann vildi hafa gardinn "cooler than" Versalir) - svo hann let gardinn geyma 140 gosbrunna af ÖLLUM staerdum og gerdum.. gulli skreytt. Of course.
Fòrum a slodir Dostoyevski´s Glaepur&refsing og ut ad borda a Red Matryoshka thar sem var drukkid. VODKA. - skàlad fyrir öllu skalanlegu og reglan i Russia er ad klara ur thvi glasi sem thu ert med.. sama hver staerd thess er. Drykkjusöngvar fra DK, FI, IS og SE.....vid thrju fra Islandi (thekkti Birgi ur MR) fengum klarlega MINUSstig i keppninni.... "Minn eda thinn sjohattur" er of flokinn texti ef vodka er i hönd. "Helan går.." var lika tekid..Sidan var farid a Metro Club - SNILLD! Tokum ekki leigubil...nei, nei ... thad er bara hòad a naesta bil...hver sem thad nu er.. Jon mordingi eda Jon raeningi... og samid um verd.
Metro Club var H.U.G.E! Russnesk popptonlist var alveg ad gera sig.. andstaett russnesku karaoke sem er slaemt. Dansgolfid var mjög serstakt; thad voru karlkyns strippdansarar i hverju horni uppi i loftinu; byrjudu kvöldid i e.k. skotapilsi(eingöngu) ( and you could totally see up their skirt) .. og thegar lida tok a kvöldid minnkadi efnismagn i fatnadinum. Ef litid var yfir dansgolfid voru thad stelpur; horfandi upp i loftid og strakar horfandi nidur - ein allsherjar skemmtun.. eg man satt ad segja ekki hvenaer eda hvernig vid komumst aftur a Hostelid sem eg veit ekki enntha hvar var stadsett.
Ferdin var eitt rugl og eg veit ekki af hverju eg er allt i einu med russneska fànan i fullri staerd i herberginu minu.... og ljosrit af vegabrefinu minu med adressu hja russneskuum gaur..

I dag er e-r listahàtid ad byrja i Helsinki..margt um ad vera à götum ùti, var ad hlusta a Indjàna preforma a Aleksanterinkatu...

Èg er komin med vinnu a Engel ì ÀR. . . . . . sjaum hvad setur.

Gòdur dagur: Björk - I have seen it all (live in Moscow)

sunnudagur, ágúst 15, 2004

"Njet ske ba russkì!"!!! (eg tala ekki russnesku..)

Uff, thvilik SNILLD!!
Ferdasagan kemur von bradar. . . i augnablikinu er eg ekki i astandinu til ad skrifa neitt ur neinni àtt; eins tima svefn i e-ri koju einhvers stadar i St.Petersburg eftir villt vodkadjamm gud ma vita hvar i Russlandi; Metro Club med karlkyns strippdönsurum. Eg VERD ad fara ad sofa.
"Spasiba"

Lag heimleidar: Blink 182 - All the small things

fimmtudagur, ágúst 12, 2004

RúSSLAND!! Here I come!!

joo joo kyllä! No nii.. Brjalad ad gera i vinnunni en rosa stud... Cafe Engel er greinilega e.k. "celeb" kaffihus.. i dag var hvislad ad mer ad eg hafi verid ad thjona e-jum bigshot politikus i Finnlandi - stadfest! Vid erum ad breytast i althjodlegasta eldhus nordan hafs. . eg ein hef i dag thurft ad flakka a milli ensku, saensku, finnsku, islensku og thysku.. einnig var tölud franska... en eg kom thar HVERGI vid sögu!
MJÖG SPES stemning sem myndadst i litlu eldhusi thar sem eru einungis stelpur - og thad ein frönsk, islensk, dönsk og finnsk - koma saman. Og ùtvarp.
Eg er satt ad segja ad fila thad i taetlur ad elda... og almennt vinna i eldhusinu.

A morgun verd eg i Russlandi - uff hvad eg hlakka til!!!!

Ord dagsins: Vuohen juustoo (geitaostur)

Lag i eldhusi: Queen - I want to break free!!

sunnudagur, ágúst 08, 2004

moi moi!
allt gott ad fretta hedan... solin skin og 30 stiga hiti allan daginn. Er ad fara ad vinna kvöldvakt eftir klst.
I gaer var eg i frii ad for ut til ad tynast i borginni - skodadi höfnina, thar er SNILLDAR utimarkadur med alls kyns drasli og svo var farid i e-n lystigardinn (their eru allsstadar!!!) og hlustad a finnska rokkhljomsveit - svona a ad lifa... thetta var aedi!
For svo ad hitta strák ut af ibud.. er ad fara ad flytja i lok agust i "ibud" (herbergi m/eldhusi og sameiginlegu badherbergi - byr annar strakur tharna) en heppnin er med mer - ibudin er a Mannerheimgötunni.. ADALgötu Helsinki! Ef eg myndi likja thessu vid e-d heima tha gaeti eg sagt ykkur ad eg vaeri komin med penthouseibud a midjum Laugarveginum. . . SNILLD. Stadfest. Svo ef thid verdid of drukkin i Helsinki tha getidi crashad a sofanum her.
Eg get leigt tharna fram i lok oktober...svo thad litur ut fyrir ad eg muni fagna tvitugsafmaeli her i Helsinki. . .

For a strönd i gaerkvöldi m/ Sebastian, Petri og Julie (skosk.. love her way of talking!!!) - og JÀ thad er STRÖND herna! Og bar sem heitir Nellys..
Vid Chris (SE), Anne (FI) og "Savier"(FRA) forum i bio og saum Fahrenheit 9/11 - vissum ekki hvort vid attum ad hlaeja eda grata eda hvad...

Lag gaerkvöldsins: Natalie Imbruglia - Torn
Well.
Lag

fimmtudagur, ágúst 05, 2004

eins og èg var ad segja. .
tha er aedislegt herna - tho ad eg sakna vina minna alveg oskaplega, en madur reynir ad lifa..
Sunnudagurinn sidasti for allur i sightseeing. . bara eg og kortid mitt(sem er ad bjarga lìfi mìnu!!!!) Èg labbadi hingad og thangad og sa margt.. t.d. Vetrargardinn, Olympic stadium, Finlandia Hall, Operuna, Museum Kiasma (nutima list.. aedi!), domkirkjuna o.fl.ofl. . . .og ìkorna! bara walking around i trènu...njù.

Vinnan a Cafe Engel er mjög fin, eg er adallega ad vinna i eldhusinu, sem mer finnst mjög gaman..
Uppvask! - sma tilbreyting... en tharf lika ad thjona og i leidinni segja "Sorry but I don´t speak finnish" ca.5.0000 sinnum!!!... but it´s good:)
En thessi finnska er sma ad fara med mig.. thad tala hana ALLIR! og stundum er erfitt ad fylgjast med. . Annars eru bara stelpur ad vinna i eldhusinu sem er frabaer tilbreyting - hefur verid algert KARLAVELDI i theim eldhusum sem eg hef verid ad umgangast. en vid erum sem sagt thrjar ad vinna i eldhusinu saman.. önnur theirra er finnskumaelandi Frakki - snillingur, en feimin vid enskuna. svo FINNSKAN raedur rikjum i eldhusinu!!! APUA!! (HJALP!!)

Eg by i Pasila sem er 30 min labb fra Centrum... studentahverfi - blokkir og madur tynist i theim! Vodalega russneskur still yfir thessu öllu saman. . Vid buum 3 i sama "husinu" og "my housemates" eru Chris (24 ara Svii) og Petri (23 ara) sem tala aströlsku - snillingur! Their labba mikid halfnaktir um husid:) Allt mjög heimilislegt. . .
Vid Petri forum yfir i e-ja adra blokkina i gaer - heim til Sebastiana og Björns; thyskir Earasmus studentar. . og tharna komu lika fleiri... Einungis studentar i blokkunum svo thad var hoppad a milli ibùda - Nyju skiptinemarnir i University of Helsinki komu a sunnudaginn og forum vid a djammid med theim...ALGER SNILLD ad djamma med thessu folki- svo ...haett ad kunna islensku..open-minded!! Francesco fra Italiu, Julian fra Thyskalandi, Michelle fra Tekklandi, Joel fra Porugal, Drazan fra Kroatiu, Corina fra Italiu (sem helt ad eg vaeri eskimoi!!!!).... o.fl. folk..
Drukkum vid e.k. MOSKIVSI sem er Grappathing fra Tekklandi fram a rauda nott... Eg er b.t.w. komin med nicknameid "bjork" (as in Björk Gudmunds) ... thvi ad sumir gatu ekki borid fram Drifa..... goooooott!!
Eg er hraedd um ad thetta verdi e-d RUGL!!! Eg sem aetladi ad haetta ad drekka og lifa edlilega. . en PASILA er eitt partypleis a hverjum degi. . . . thetta lid!!!

Eg er komin med finnskt simanumer: +358 40 8739775 - endilega ad lata vita um astand heima a klakanum!!!

Talandi um klaka. . . tha er grillandi hiti her og BARA SOL!!!!
BEST! ad sitja i storu tröppunum ad domkirkjunni (sja mynd f.nedan...) og lesa. . .med hvad annad? R.E.M. i sterio!!

Er i frii um helgina. . og aetla ad fara og skoda e-d merkilegt...Svo er thad St.Petersburg 13 agust!!! WUHUUUUUU!!!
Suvi hefur verid lifesaver i gegnum sima. . en hun er abyggilega spenntari yfir thvi ad eg se her heldur en eg, og er hun algert gull:) Suvi og Pekka koma hingad i lok agust og verdur tha farid i ROAD TRIP og sumarbustad. Get ekki bedid!

Sorry med ef eg svara e-mailunum ekki strax. . eg reyni ad komast i tölvu sem oftast - this vitid hver tid erud;)

Well, . . timinn er a throtum. . . "make party" aftur i kvöld med Earasmus folkinu. .

Kv. ein i TOMU TJONI!

Lag dagsins: Jon Bon Jovi-It´s my life

miðvikudagur, ágúst 04, 2004


HELSINKI BABY!

...uff stress ad thurfa ad skrifa mikid a litlum tima - er a e.k. bokasafni..

Köben var aedi a stuttum tima. . Emil kom og sotti mig a fluvöllinn og sjarmadi e-ja konuna a dönsku til ad eg fengi ad tekka inn töskuna mina allt of snemma, ad hennar sögn.

Vid gerdum margt i thessa thrja tima sem vid höfdum - röltum Ströget, fengum okkur bjor a Nytorvet - hittum Finn, Konna, Hödda, Gudrunu og Hönnu sem satu einnig ad sumbli.

Svo afram til Finnlands...
....og eg er astfangin.
Thessi borg er alger snilli! kemur mjög skemmtilega a ovart. Eg get varla lyst byggingunum her... en WOW 2 minutur eftir a kortinu minu!
Ja, segi meira seinna...
en takk fyrir myndin her til vinstri er utsynid beint a moti Cafe Engel thar sem eg er ad vinna - domkirkjan i Helsinki - eins og höll i Aladdin
moi!

föstudagur, júlí 30, 2004


Olen eksyksissä! (ég er týnd!)

Taka upp úr tösku til að láta ofan í aðra. . Svo nýkomin frá Bifröst, þó það virðist vera heil eilífð síðan!!! Ekki komin aftur inn í þetta borgarlíf – andlega séð er ég ekki hér. Og ekki að fara neitt.

Annars segir flugmiðinn minn að ég eigi að fljúga til Kaupmannahafnar snemma í fyrramálið. . .Þar segist Emil ætla að bíða eftir mér. Partýið í Köben endist ekki lengi og flýg ég með Finnair til Helsinki seinna um kvöldið.

Nú er ég búin að kveðja mikið fólk – Það var saumó hjá Ollu, Síðasta kvöldmáltíðin í guð má vita hve langan tíma. . Nú eru þær Olla og Solla bráðum off to the U.S! Það verður ótrúlega gaman hjá þeim! :)
Svo í gær fórum við y-stelpur út að borða á Grænum Kosti, kaffihús og sáum svo King Arthur. Svoooooo skrítið að vera ekki að fara aftur í MR núna. Eða bara í skóla yfir höfuð!!!

Í öllu þessu pökkunarstressi fann ég miða sem e-r hafði fyrir því að skrifa á - í sjálfri Krítarferðinni 2003. Ég er hrædd um að þetta sé gullmoli:

Drífa: ”Er saftyhólf á hótelinu?”
Katrín: ”Ég veit það ekki. .”
Magga: ”En það er nottla lás á töskunni minni!!!!”
. . . eftir smá umhugsun. . .
Magga: ”Nema það gæti náttúrulega e-r bara tekið töskuna!”

Kaffibrennslan með The Magnificent Seven í kvöld; eflaust HÖRKUstuð!

Lag dagsins: Bo Kaspers - Hon är så söt

þriðjudagur, júlí 27, 2004

Síðasta lag: Joe Cocker - Unchain my heart (90´s version)

“Run you finnish woman!! SACRIFICE!!!”
- Baldvin í Ultimate

Jæja. . (líklegast algengasta opnun á færslu.) Þá er því lokið. ÞRJÚ ÁR, takk fyrir, útskrifuð með skirteini.
Heldur betur orðið heimilislegt. . Í morgun, síðasta blaðsíðan, - Gísli næturvörður hringir klukkan sex. . ég klæði mig í svartar buxur, hvíta skyrtu og elskulega græna vestið í myrkrinu eftir tveggja tíma svefn, vek Söndru roomie náttúrulega við þessa athöfn!
Fallegur morgunn á Bifröst; bursta tennur með einni og vaska upp kampavínsglös gærkvöldsins með hinni. Pekka kemur þreyttur niður, ég bendi honum á Cheeriosið. Síðasta bloody breakfast. Ég tapaði í síldinni.

Síðustu dagar hafa verið algert grill.
Fórum í Ultimate, sem er FRISSBEE-liðaleikur. Hver spilaði svo sannarlega með sínu nefi og elti maður fljúgandi diskinn út og suður, tæklaður niður á 200km/h hraða. SNILLDARLEIKUR! Sumir fórnuðu svo gott sem lífi sínu fyrir frissbee-inn.

Helgin craazy – yfirbókun á hótelinu og við erum að tala um að túristar gistu heima hjá hótelstjóranum. Gooott, við þjónarnir – Ég, Júlía og Steinunn – ákveðum að fara á helber fyllerí á laugardeginum. . . .
Brunað í Borgarnes eftir vakt. . óvíst um hvernig og hvort við kæmumst aftur heim. Við Júlía byrjuðum kvöldið – auðvitað – á DÚSSABAR þar sem við segjum hvor annarri lífsögu yfir Red Square. Flytjum okkur yfir á KAFFI KILJAN þar sem sveitafólkið var í góðum gír. Við bjóðum finnsku Nordjobbstelpunni Heidi á djammið.Ég er viss um að Capteinninn á Kiljan í boði Júlíu hafi verið fyrsta kryddið í pottinum þetta kvöldið. . Steinunn, Borgarnesgella, mætir með allt sitt lið og við förum á þriðja og síðasta barinn á svæðinu; BÚÐARKLETTUR. . sem er bara nýjasta búllan!, en þar er þessi líka rífandi stemning! ! Við þrjár straujum kortin villt og galið og ég veit eki hvað við vorum að drekka en ég ætla að afþakka yfirlitið. Dansað tryllt með bæjarbúum.. kynntist Spánverjanum V.Rodriguez (skyldur Michelle Rodriguez (Fast and the Furious) að eigin sögn…). Ég á ekki fleiri orð en SNILLD yfir þessu djammi . . Ég er bara fegin því að hafa drepist uppi á Skakka en ekki í e-jum þvottabalanum í Þvottahúsinu eins og hefur gengið og gerst.

Sunnudagurinn. Góður endir. . að BLASTA No Doubt m/stelpunum drulluþunnar en í hláturskasti yfir hnífaparapóleringunni og uppdekkningunni; hundarð og e-ð mikið af túristum í kvöldmat. Djöfull á ég eftir að sakna þess. . og stelpnanna. Fékk vatnsKÖNNU yfir mig eftir vakt. Takk!

Elsku sæta staff. . takk fyrir SURPRISE kveðjupartýið í gær – aldrei get ég sleppt því að gráta. Takk fyrir ALLT!!  En ég hefði ekki getað trúað því. . Í ár gat ég kvatt mest megnis af fjölskyldunni 2003 (Suvi, Pekka, Seb og Sögu og hugsanl.Emil) með “See you in Helsinki” – mig vantar Söndru mína.

"There are no strangers in Bifröst - only friends who haven´t met. .
For a friend who is going away. . ."
- Suvi Jokela

Ég fékk dredda af Sebastien, einkabrandaraguide um HELL-sinki, "e.k.Faunu-mynda plagg" áritað af öllu liðinu, magna flott, myndaramma og Smirnoff Ice o.fl. Snillingar.

Nú byrjar ruglið.
Ég veit að ég er að fara til St.Petursburg 13-15 ágúst.

Í bili.


Drykkir sumarsins í boði Drífu&Júlíu:
ANTON BERG: vodka, DISARONNO hrist í klaka o djús – fyllt upp m/ 7-up, grenadine + bleikt rör.
MRS.GEBER: screwdriver + bleikt rör



. . . Stay in school.

þriðjudagur, júlí 20, 2004


Sit í móttökunni á hóteli sem ég elska. Sýg upp í nefið, óstöðvandi kvef. - þvílík heppni; kannski verður ekki hótel hér meir, eða Hótel Edda taki yfir pleisið á næsta ári.
Var að labba upp á Grábrók á tveimur fótum, og það voru ekki fleiri fætur með mér en skyggni var ágætt og lognið algert. Klukkan er tvö, og þa er klukkan margt.
 
Ég er ekki að ná að ég eigi bara viku eftir hér. Ég get rifjað upp sögur sem tengjast hverju horni á þessum blessaða stað. Hvað á ég nú að gera?
 
Myndir úr partyi helgarinnar eru hér..og þar var húsið eins og sprengivirki, aðallega eldhúsið sem hafði bersýnilega lent undir árás.
Á laugard. áttu Solla og Bjarney tvítugsafmælum að fagna og var gleðin mikil í Hfj., takk f/gott boð stelpur:)
TIL HAMINGJU allir þeir aftur sem komust inn í læknisfræði! Dugnaðurinn í þessu fólki.
 
Aðaltrendið þessa dagana er að skjótast eftir vinnu á DÚSSABAR (í Borgarnesi) til hans Dússa gamla. SNILLDARbar verð ég að segja.. ekki ósvipaður eldhúsinu hjá ömmu. Þar reynum við að haga okkur ekki eins og við séum komin í te til Bangsamömmu og drekkum RELOADED RED SQUAR sem Dússi mælir með; gerir þig klikkaðan! Rétt upp hend sem hefur drukkið þetta? - Hélt það.
Að koma sér heim aftur af Dússabar á engum bíl er svo allt önnur og enn lengri saga...
 
Lag dagsins er að finna á disk sem ég fjárfesti í á föstud. Diskurinn And Love Said No með finnsku rokksveitinni HIM. Hún er grimmt að gera sig í eldhúsinu.
 
HIM - Join me

sunnudagur, júlí 11, 2004

Ég er með ennþá meiri síldarphobiu í ár heldur en öll hin árin tilsamans. Ég finn hana horfa á mig. Að þurfa að fylla á síldina á morgunmatarhlaðborðinu..ég fæ martraðir. Sem betur fer er Pekka mjög óheppinn í blað,steinn&skæri og lendir þetta hlutverk því oft á honum.

Aðrar eins fréttir hafiði ekki lesið. En ég er að fara að byrja á nyrri bók - "Með hægð" e. Milan K..

Phil Collins - Son of man

laugardagur, júlí 10, 2004

ekkert hvað ég er að gera í lífinu. . bara í neinu!
Hér er heil súpa af furðulegustu og oftar en ekki ýktustu karakterum sem hægt er að koma undir eitt þak. Alltaf e-r vandamál/krísa og drama; og maður hefur nóg á sinni könnu.. en sleppur ekki. Þetta sumar er meira eins og draumur sem verður ekki skilgreindur, og ég veit ekki hvort ég muni muna eftir honum öllum þegar ég vakna.

"Hlutirnir verða skýrari í fyrramálið" -

Sheryl Crow - If It Makes You Happy

föstudagur, júlí 09, 2004

Páll Rosinkranz!!
Það er e-r að hlusta á Pál Rosinkranz af fúsum og frjálsum vilja inni í sal. . ég er komin að því að æla af þessari I-want-to-kill-myself-dinnertónlist! og núna er klukkan 2; ENGINN GESTUR; og SAMT er þetta SORP í græjunum!
Hver er að hlusta!? gefi sig fram núna. Mig grunar sterklega Söndru, sure hun situr i móttökunni, raðandi e-jum lyklum heyrist mér. .en hun er samt i grunsamlegri fjarlægð fra Rosinkranz...
Ef þetta væri Jet black Joe myndi eg hjóla í hana. Í bili nægir að senda illt augnaráð.
*Illt augnaráð*

CATASTROPH! Frekar crazy a hótelinu um helgina - SUCKFEST - það er orð dagsins.

Olla var að panta miða á Hárið þann 17 júlí.
Er ekki spurning um djamm 16/17 júlí? Hélt það.

Djöfulsins væl!

Hryllingur dagsins:Pall Rosinkranz - e-ð af þessu væli

fimmtudagur, júlí 08, 2004

Hring eftir hring eftir hring eft. .
- ég er að bíða eftir þurrkaranum. En talandi um hringi þá skelltum við okkur í ROAD TRIP!! í gær..nótt. Eftir vinnu, um hálftólf, ókum við Júlía, Steinunn og Saga sem leið lá ALLT Snæfellsnesið!. .við sáum samt sem minnst af Snæfellsnesinu. Meðferðis höfðum við helstu nauðsynjar - tjaldið hennar Sólu, áfengi og teppi. Og túnfisk(kattarmatur)samlokuna hennar Sögu. Eins og ég sagði, og var ekkert að grínast, sáum við lítið vegna ÞOKU, rigningar og roks; við kunnum að velja dagana!! Fórum á Stykkishólm - mingluðum við heimafólk - Grundarfjörð, Olafsvík - tókum á móti skipi og röbbuðum við bakarann (sá eini sem var vakandi) - Rif og Fróða..heiði. We drove all night!-to get to you. Eftirminnilegt trip, skyggni STÓRslæmt.

Mikið að gera a hótelinu þessa dagana. Fer i fríið 12-13 julí.
Ég er buin að vera að skoða kort af Helsinki - þetta er bara snilld. Ég verð að vinna á Aleksanterinkatu

Sumarið er svo stutt!! Mér finnst hálfleiðinlegt að geta ekki klárað hótelið hér - og þó. Og þó. Margar ástæður.
Lag þurrkarans: No doubt - Just a girl
Jæja. .setja i aðra vél. .

sunnudagur, júlí 04, 2004

SMS frá Úlfljótsvatni:
"thað er otrulega gaman herna vildi að thu værir her!! Miss you :*
". . rosa stud! .*"
"Æi elsku dullan min eg vildi oska að thu værir her þvi tha væri allt svo gaman :) "
"stemmari!"
"eg er ofurölvadudu. . . "


aUK endalausra hringinga-
Það er sko lika GEÐVEIKT GAMAN her! bara 70 manna leiðinlegt ættarmot með oþolandi krökkum sem voru að gera mig brjalaða. Eg ætla sko EKKI ad eignast krakka.STAÐFEST!

hey gaman að tala við hana Ylfu, gömul vinkona ur laugarnesinu, ekki seð i aldir og nu er hun a hjolunum með ypsiloninu
God mig langar að vera þarna. I staðinn fæ eg að vakna eftir 4 klst til að þjona i morgunmat - WUHU!!
kVEÐJA, pissed off.
Lag dags Carla (e-ð) - franskt lag

fimmtudagur, júlí 01, 2004


Fara veg allrar veraldar
. . já ég er farin að átta mig á hvaða dagar eru í gangi þessa dagana - Það er t.d. fimmtudagur í dag.
Það hoppar enginn hæð sína af gleði yfir því að vera þunnur; en ef orsökin er til staðar hlýtur e-t að koma afleiðing. . - enn djúpt hugsað, ég er að drukkna, en þetta var vitaskuld Altúnga.

Ég mun ekki vera Rvk-ánægjunni aðnjótandi mikið lengur, næ rútunni eftir smá. .

Staffapartýið sló í gegn, við Suvi slepptum okkur aðeins á myndavélinni þetta kvöldið og tala myndirnar máli sínu sjálfar. Ég er ekki frá því að við fórum upp á svið, og upp á þak og upp á stóla og upp á borð. . .spænski drykkjuleikurinn sýndi vísindalega fram á að það er hægt að brjóta IKEA-glas með tíkalli!! (It´s all in the wrist baby ;) ) Gleðin tók enda um hálf áttaleytið, þá byrjaði morgunmatarvaktin. DrAMa!

Mikið fjör að hitta y-stelpurnar í gærkvöldi. . Dröfn endaði nottla ein út-úr-kortinu-drukkin; ekkert nýtt.
En það fylgir auðvitað þessari sögu að ég er að ljúga að ykkur. Aumingja Dröfn. Það stefnir víst í 6-Y ÚTILEGU næstu helgi!!!
og ég er að vinna!! STÓRT HNUSS.

Allt a rúi og stúi: Santana- MIGRA

þriðjudagur, júní 29, 2004


My day off. . .

Fara til Rvk í nokkrar klst, á pallbíl með skrautlegum verum – check!
Það eina sem á dagskránni hjá mér er að fara á almennilegt kaffihús
, klára Da Vinci lykilinn í eitt skipti fyrir öll, - því það eru allir að vinna.
Og kaupa Le Monde.
Í kvöld er svo staffapartý, sponserað af einhverjum öðrum en okkur. . ég asnaðist til að bjóða gestinum ”Mr.Skyr” (sæti Ameríkaninn) í það. . þetta verður. . . eftirminnilegt.
Henti inn e-jum myndum hér og þar.

Húrra, á morgun verður svo aftur brunað til Rvk, því að þá verður sópaður saman hópur af kvenkyns ex-6Y-félögum (enn sá fjöldi!!) á Kaffibrennslunni.
Það er allt orðið rosalega GRÆNT og blómlegt í bænum!!
Það hefur reynst erfiðara en ella að vera á Bifröst ÞETTA sumarið ef litið er til þess að sakna vina í Rvk. . kannski af því að allir eru að fara út og suður í lok þess.

Sjitt, það er að fara að koma júlí!!

“Rare as is true love, true friendship is rarer”
LA FONTAINE

Garbage- Special

sunnudagur, júní 27, 2004


Já. Takk fyrir daginn. Í sameiningu tókst okkur Steinunni að hella kaffibolla (með 96 gráða heitu kaffi í) yfir hendi mína. . en á hinn boginn tókst mér upp á mitt einsdæmi að hella epladjúsnum yfir Steinunni. Okkur var skemmt.

Ég var actually í fríi um daginn!! Hvað er að gerast?!!
Við Suvi og Saga hitchuðum far í Borgarnes eftir að hafa reynt að líta "sympathatic" út á þjóðveginum.. Deep purple-fans tóku okkur að sér. . ´Borgarnes býður upp á bókasafn og grasagarð. Leiðin heim var engu að síður skrautleg; rokrassgat!!! og enginn ætlaði að stoppa. . enda litum við út eins og raðmorðingjar. Snilldargella varð hetja dagsins og keyrði okkur hálfa leið, síðustu spölin rúlluðum við með öðrum Deep purple aðdáendum - Hver átti þessa hugmynd??!!

England-Portúgal. Skemmtilegasti leikur sem ég hef komist í nánd við.. lobbýið pakkað af ÓLÍKUSTU finnanlegu karakterum. . að horfa á boltakalla.
Talað um "samsæri" Dana og Svía..
E-r gestur: "....%#(=&%"!Q&%#/ FOOLISH!!"
e-r: where you from?
Gestur: Italy!
Góð saga. Ekki lesa bloggið mitt. Ég elska þessa engla. Gat ekki varist bros, ekki hætt því reyndar. Sá ekki leikinn. Allir "doing their own thing", en allir á sama stað.
Ég, að hlusta á tónlist, veit hver staðan er, en fylgist samt frekar með fólkinu
Laura.. annars hugar, að sofna
Seb.. að lesa Sjálfstætt fólk á ensku, kíkir á stöðuna
Pekka.. að horfa á leikinn
Suvi.. reynir að fylgjast með
Baldvin.. kemur með e-n fróðleik um fótbolta, ég heyri ekki hvað hann segir
Emil.. stendur sífellt upp
Saga.. ofan í bók
Laurent.. hlusta á tónlist, samt "one of the guys"
Sandra.. horfa á Beckham;)
Bjarney.. að lesa e-ja bók, en reiðubúin að svara spurningum um Grábrók
E-r gestur.. að missa sig yfir stöðu mála, á nálum
Mette.. pírir á skjáinn, ég held að hún þurfi gleraugu
Joanna.. að horfa út um gluggann, ég veit ekkert hvað hun er að hugsa

Mér mikilvægur hlekkur, í keðju minni, er farinn; hann fór til Danmerkur í gær. Harla óbærileg þynnka hérna megin . . treg upprifjun á kvöldinu áður breyttist í lista; í umferð var vodka, passoa, ég held Malibu, bjór, breezerar, sígarettur, hreinn vodki og af hverju fór ég að hrista bailey´s á þjónana.. listinn var ótæmandi, en tæmdist þó vel á gólfið; tryllt sveifla á barnum, fjöldasöngur og ég veit ekki hvað. . Föst í málverki eftir sjálfa mig, way to go að kveðja Emil minn.

Face North eða hvað það nú heitir krakkarnir komu hingað í dag, jöppluðu á grænmeti og voru på peren. Staffið var ánægt að sjá afturendann á þeim krökkum. Þetta lið.

Fallegasti regnbogi sem ég hef augum litið var yfir Bifröst í gærkvöldi; hann var heill og það var annar regnbogi við hliðiná honum. Öskur og læti - skelli inn myndum af lífinu hér þegar ég kemst í það.
Útskýring mín á goðafræði og himinbrúna Bifröst fyrir franskar ömmur var á reiki.

"At my signal - unleash hell"

Góð tilfinning: R.E.M. - Nightswimming