HEJA SVERIGE!!
Jæja, á viku komst ég af e-jum ástæðum inn í Lundarháskóla, leitaði hátt og lágt að herbergi - fann það! og splæsti í flugmiða.
Svo ágætu lesendur, ef enn eru e-jir.. Þann 29 ágúst FLYT ég og mín ferðataska til Helsingborgar á Campus LU, í gamalt hótel sem nú hýsir eingöngu nemendur..Hotel Anglais. 19fm herbergi og sameiginlegt eldhús með 6 öðrum.
Ég er að fara að stúdera Service Management - INTR.hotell/resturang. Svo þið vitið hvar má finna mig vonandi næstu 4 árin... Allir velkomnir í heimsókn!
Uff, nú er að dusta rykið af 11 ára gamalli sænsku... herregud!
Nú erum við líka að fara að setja Hótel Bifröst í ferðatösku þar sem það mun flytja inn í geymslu á Reykholti. AH! en sorglegt. Gott sumar með skemmtilegu starfsfólki, og þakka ég sérstaklega Söndru og Sögu fyrir frábær ár! Takk elskurnar! Hvað eigum við nú að gera?!
Helgin var skemmtileg, laugardagurinn fór í ball á Búðarkletti m/öllu staffinu, Kötu skvís og Dóru sem gistu nóttina í kofanum. Kvöldið endaði reyndar með haugafullu fólki og einn starfsmaður var fluttur suður á bráðamóttöku; er allt að verða gott og blessað aftur.
Á sunnudaginn fórum við Lambhúshettur út að borða á Einari Ben þar sem Bjarki eldaði fyrir okkur ÆÐISLEGAN mat! vá! klapp!!! snilld!
Farið að styttast í Menningarnótt og hlakka ég mikið til . .