sunnudagur, nóvember 27, 2005



Af hverju lendi ég alltaf í því að djamma með fólki sem finnst NAUÐSYNLEGT að saga niður götuskilti, stela auglýsingaskiltum og umfram allt að taka með sér heim APPELSÍNUGULAR UMFERÐARKEILUR!!!
Fyrir utan þá staðreynd að húsið okkar er ein rúst þá eru stórar keilur hér og þar í stofunni..smekklegt.

Lag dagsins: Alcazar - Physical

miðvikudagur, nóvember 23, 2005

Ó guð, ég verð að vinna á PÓSTINUM enn ein jólin, stop me!!
María! Segðu mér að mér takist að draga þig með mér niður????
Ég held ég sé sködduð.

Lag dagsins: Natalie Imbruglia - Torn

mánudagur, nóvember 21, 2005

Glatt á hjalla þessa dagana!
Mamma og pabbi komu í heimsókn til H-borgar!! Við tókum bátinn kæra yfir sundið og skelltum okkur til Louisiana á Matisse o.fl.asskabblega skemmtilegt safn:).. við vorum ekki lengi að hella í okkur einum Túlla og Gammel Dansk.. og við mamma lestuðumst áfram til Köben. Kíktum á Jólalandið í Tívolíinu..sjitt hvað þetta var fallegt, grilljón jólaskreytingar og jólaljós..jólaglögg og æbleskive.
Það er ÆÐI að fá fréttir frá fólki sem maður heldur að sé gufað upp:) Gamli jazz-félagi minn frá Helsinki, Vina frá Brasilíu, hefur þést og þjappast og er á lífi.

Húsið er að skipuleggja tryllt jólahlaðborð og Lúsíuvöku!!

Lag dagsins: Trabant - Nasty boy

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Mér finnst svo gaman að plana... Helsta stóra planið er:
Að flytja til Lundar.
Ábyggilega á næsta ári.

Vakna snemma í morgun við: "OH MY GOD AAARCH!!I woke up this morning, EYE in EYE w/an almost NAKED SNAIL!! YAK! Come here and save me from that bastard!.."

Tiltekt dagsins: Quarashi - Mr.Jinx

föstudagur, nóvember 11, 2005

lag dagsins: September - Satillites

Ég veit ekki alveg hvað þessi kúrs sem ég er í fjallar um...
Heima er ég að lesa námsefnið: "Populärmusik från Svedala" um sænska tónlistarbransann.. - ekki vissuði að fyrsta plata Roxette átti í rauninni að vera 3 sólóplata Per Gessle?? Marie Fredrikson var bara hent inn sem aukagella...- hljómsveitin komst inn á alþjóðamarkað vegna þess að amerískur skiptinemi fílaði lagið "The Look" og bað litla útvarpstöð í Minneapolis að spila lagið? Magnað!
en í dag fór ég á æðislegan fyrirlestur um EU og Brussel... get ekki hugsað um annað síðan.
Nújæja.

sunnudagur, nóvember 06, 2005

ó fokk ég steingleymdi að borga leiguna og er klárlega VIKUsein..Hvað get ég sagt? Lykillinn að póstkassanum mínum hvarf við "remodlið" á íbúðinni minni.. það er rétt! Íbúðin mín! 19fm!..
Eftir vikurugl meðan Marlous var hérna hjá mér er kominn tími til að koma lífinu á rétt spor aftur..
nr.1 borga leigu
nr.2 kíkja á bókaFLÓÐIÐ sem fylgir þessum nýja kúrs sem ég átta mig lítið á

Vikan leið svo hratt og nú er ég ein heima aftur..burr:(Það er grínlaust svo leiðinlegt að elda fyrir einn, verður oft bara pasta með engu eða kartöflumús með gúrku, eða e-ð svipað.. hins vegar er ég snilldarkokkur ef ég elda fyrir tvo...
Á fimmtud. var veisla hér á hæðinni ..þar sem við flæktumst inn í DÝRAdrykkjuleik með hóp sjávarlíffræðinga.. leikur sem utanaðkomandi myndi þykja MJÖG spes.. ég, sitjandi sem snákur milli gríss og gullfisks(já, það er hægt að apa eftir gullfiski), hef sjaldan hlegið jafn mikið.

Ferðin til Köben var frábær, ég er svo veik fyrir haustinu... ég fæ alveg fyrir hjartað ef ég rekst á huge grasagarð í haustlitum. OG erum við ekki að grínast með fjöldann af Íslendingum á Strikinu!!!RÓLEG! og róleg á litla heiminum.. rákumst á Sögu í lest í dk!

Við Marlous erum nú góðkunningjar kirkjuvarða í allri Skandinavíu.

Jii..mig langar til Louisiana!!!! Matisse-sýning í gangi.

sunnudagsnostalgía: Natalia - I´ve only just begun to fight!

sunnudagur, október 30, 2005


Ég er svo þreytt...

Lag dagsins: Come away with me - Norah Jones

þriðjudagur, október 25, 2005

.......Mig langar sjúkt í e-ja ferð.. út fyrir borgarmörk í heilan dag.
Ég komst að því að það er partýbátur hér líka! Sem rúntar til Oslo!! Sjitt hvað væri gaman!!
Allir að setja í ferðatösku og koma í heimsókn. Eftir 6 daga er þetta próf mitt búið og gert og vikufrí í skólanum.. Mallan kemur og verður þá skroppið til Köben!! (Núna er ég bara að hugsa upphátt) ........Eiginlega er ég bara að mygla yfir feitri bók sem var þýdd frá finnsku yfir í ensku og ensku yfir í sænsku og útkoman er vægast sagt hræðileg!!.. 6 dagar....

Lagið í dag: Sinéad O´Connor - Paddy´s Lament

mánudagur, október 24, 2005


Ég er að mygla hérna! Lærandi daginn út og inn í dag..
www.FM957.IS er að bjarga mér alveg.. Ég hef ekki hitt einn einasta Íslending síðan ég kom til Svíþjóðar. Ég hélt að ástandið væri slæmt í Finnlandi.

Ég mæli eindregið með www.WAYN.com

Mögla dagsins: Nina sky - Move ya body

sunnudagur, október 23, 2005

Takk fyrir allar kveðjur, símtöl og allt saman á afmælinu mínu. Mér tekst alltaf að lenda í e-ri vitleysu.. ég þekki ekki hálfa blokkina en þau vissu öll af afmæli mínu og öll 3 hæðin tók að góla hástöfum... eftir mikið rugl og absinthe skriðum við til “VILLAN” sem er stórt hvítt hús. Fimmtudagar hér eru eins og miðvikudagar í Finnlandi, háskólanemar detta rækilega í það. – sem og við geðum.. ég lenti í liði með Stockhólmsfólki, Åsa og gaur sem vill láta kalla sig “C.H.” (Clas Henrik!..blessi hann)..og fékk ég frítt að drekka allt kvöldið. Leiðin lá á MINK sem er skemmtistaður í Helsingborg.. æðisleg tónlist og staðurinn er innréttaður þannig að það er ekki mikið annað hægt að gera en að dansa..og það eins og vitleysingar.. 4 borð, sem eru eingöngu þarna til að dansa uppá og svo myndaðist viss Kæjótí Öglí stemning þar sem stelpur sem vildu tóku trylltan uppi á barborðinu. Frábært kvöld

Lag kvöldsins: Shakira feat. Alejando Sanz – La tortura

fimmtudagur, október 20, 2005

Hhahaha..."years and years of floor-parties...we never get out of the house"- Ale, einstaki ítalski vinur minn og gamall Pasila-búi. Þetta er svo satt!
Í kvöld er veisla á 4 hæð og heldur svo áfram á 3 hæð... við komumst ekki út.
Lifi blokkin

Lag dagsins: Tom Jones and the Cardigans – Burning down the house

mánudagur, október 17, 2005


Ég er alveg óþolandi þessa dagana.. ég veit ekki alveg hvað er að mér en þið þekkið vonandi flest þá tilfinningu þegar maður STENST EKKI að brosa framan í allt og alla... maður labbar um óþolandi hamingjusamur og ástfanginn.. Einhvern veginn tekst allt í kringum mann að vera útibú himnaríkis og maður vill hjálpa öllum úti á götu, hendir pening í tónlistarmanninn á götuhorninu(þótt að maður sé eflaust sjálfur fátækari), borgar reikninga með bros á vör og er alveg hreint óþolandi!... Ég er búin að vera með þetta syndróm núna í 4 daga, samt er ekkert sérstakt að gerast í mínu lífi.
Og þetta bangsatímabil mitt er að fara út úr höndum..
Ein óþolandi

p.s. vá hvað haustið er fallegt hérna á hnettinum – gul/rauð lauf alls staðar!!

Nostalgía dagsins: Call on Me - Eric Prydz

föstudagur, október 14, 2005

hjálp! ég er svo SOKKIN.... !!!!!
áður en ég fór út fyllti Brynja laptopinn af Desperate Housewives (sem ég hafði aldrei áður sýnt áhuga en er víst algert MÖST !)..og núna hefur mér tekist að opna þá geymslu og ég get ekki hætt ..þetta er svo spennandi!!

Ég þarf að játa annað.. ég hefði aldrei trúað því upp á sjálfa mig en.....ég er HÚKKT huge kúrubangsa sem ég hef nýlega fengið í hendur...í rúminu stelur hann meira að segja meirihlutann af vinstri hliðinni!! Ég er svo mússjí að ég er að deyja!God.

Lag dagsins: Juanes - La Camisa Negra

fimmtudagur, október 13, 2005


Stugan är som frugan.
Pant ekki taka til í húsinu mínu..
Myndin sýnir ráðhúsið í Antwerpen, ég sötraði kaffi þar fyrir utan og íslenski fáninn er efst uppi til hægri, tveimur fánum frá Noregi.

Ég er nýkomin aftur til Helsingborg eftir frábæra ferð til Antwerpen; mér finnst þetta bara æðisleg borg og þá sérstaklega bara stemningin og lífið..hitti fullt fullt af fólki og á föstudeginum byrjuðum við Malla og Meintje á e-ri búllunni sem selur um 100 tegundir af bjór.. við völdum asnalegustu nöfnin af listanum (flierefluiter..eða e-ð svoleiðis)og svo auðvitað Duvel, þegar líða tók á kvöldið smökkuðu allir bjórarnir eins og hurfu sporlaust.. jesus ég er þess minnig að við höfum farið með bjórdós í hönd inn í redlight district og heilsað upp á fljóðin dansandi í gluggunum. Dagarnir liðu svo hratt...svo gaman að hitta aftur Liesbet og Lieve sem bjuggu með okkur í Finnlandi.

Þessa dagana liggjum við, ég og minn 6 manna hópur í skólanum, í því að skrifa 10 bls rapport um servicekúltúr á McDonalds!! Þetta er mjög áhugavert:)
Hei! Ég fékk út úr mínu fyrsta sænska prófi í dag! EISAÐI ÞAÐ!! Mikið er það gaman fyrir ykkur að lesa.
Hafið þið e-t spilað billiard og ekki fengið niður eina einust kúlu í meira en klukkutíma? Ekki einu sinni óvart! Það gerði ég í gær. Það er huge underground poolstofa hliðiná húsinu mínu.

fimmtudagur, september 29, 2005

Hallo kallo, jajämän! Eg er á lífi.. og brjálað að gera! Er að drukkna í hagfræðinni eins og er, "tenta"(próf) á mánudaginn! Partý á 2 hæðum i blokkinni í kvöld og ég og 5 aðrir erum að fara að elda Tacos! Netið mitt er pirrandi þessa dagana, kemst í lag.. er farin að nota guðsgjöf fátækra skiptinema Skype og má endilega finna mig þar.
Næsti mánuður verður pakkaður lika af e-ju hópverkefni en fyrst 7 október skelli ég mér til Brussel og Antwerpen hlakka mikið til - hahaha heljarinnar diskópartý þar á sunnudeginum. ´Talandi um diskóið þá fékk ég tvær öskrandi símhringingar á laugard. fyrra skiptið fékk ég að heyra "Le freak" live og seinna skiptið voru það dívurnar Weather Girls syngjandi Raining Men live á sviði - GOÐSÖGN eftir ófá partýin í Helsinki. Bollurnar með regnhlífarnar!

Jæja, eg var að fá mjög skemmtilegt bréf í WAYN mailboxið.. skemmtilegt lið þarna úti.
"Hi Drifa,
Ashish here, Im a 27 yr old male living in India... i have a question
for u... its sort of a really wierd question,
..
is God a good designeri? dont think so...because most men in
india are really hairy and the sun and heat is unforgiving... are the men in Iceland hairy
at all? or are they like most europeans and bare
chested?

i think that this is unfair.. we indians have all the hair and no cold climate to make use of Gods design... lol
i would love to get to know you (have always wanted to go to iceland and use my hairy chest ... send me
an email if u like, have a nice day.."

Diskur m/lærdómnum: Dave Brubeck quartet - Time out

sunnudagur, september 18, 2005

Ein slöpp í thessu..
Jaeja, eg held ad eg og nágranni minn verdum komnar med netid eftir ca 10 daga! ..
Eg er enntha a lifi herna i Helsingborg.. er buid ad vera frekar erfitt allt saman, med ad komast i "heima-filinginn" herna.. sakna folksins heima, Lamós og vina frá Finnlandi og Biffans. og tungumálid er pakki lika...er ad reyna ad grafa mig ofani fyrirtaekjahagfraedi sem er alger snilld verd eg ad segja:)
Vid vorum 5 stelpur sem áttum okkar eigid fyrirtaeki.. og thetta er enginn leikur - vid settum fyrirtaekid okkar naestum a hausinn fyrsta starfsár i fjarfestingum, lánum og miklum thróunaráaetlunum.. hljómar flókid? já. en eftir öfluga markadsetningu og verkstaedafjarfestingum komst litla fyrirtaekid okkar inn á Evrópumarkad og we kicked ass..... thar sem Drífa litla var ekonomisk chef.
Marlous kom í heimsókn í nokkra daga og vid skruppum yfir til Danmerkur og til Lundar.. og a fimmtudaginn eldadi folkid a haedinni minni (erum 3 stelpur og 4 strákar) og seinna heldum vid heljarinnar "korridorsfest" og held eg ad öll blokkin hafi verid a skallanum...;) annars verd eg ad segja ad eg hef haldid mig mjög vel a teppinu sidan eg kom hingad.
Bid ad heilsa heim
love Drifa

laugardagur, september 03, 2005

Hej allihopa!
Eg er stödd eins og er a netcafe i Lundi. Sökum thess ad eg hef ekkert skrifad er ad eg er ekki komin med internetid enntha.. Eg tharf ad fara ad koma thvi i gang, kann nottla litid sem ekkert a thessa maskinu. En eg er flutt til Helsingborgar, vid strandlengju Svithjodar.. 180kr ad fara til Danmerkur! Studentabaer med meiru!
Adressan:

Gustaf Adolfsgatan 14 B/ROOM 408
25227 Helsingborg
SVERIGE



Svo nú er thad um ad gera ad fara ad senda póst og laeti.. Eg verd duglegri vid skrif um leid og netid er komid, skulda ca öllum i bókinni email!
Skolinn er byrjadur og thetta gengur vel enn sem komid er..saenskan verdur betri med hverjum degi en enn er eg smá feimin vid thetta all saman.
Vona ad allt gangi vel heima a klakanum, sakna allra mikid! Öllum er guds velkomid ad kikja i heimsokn til min hvenaer sem er! Thad er baedi sofi og aukadyna.
Jaeja, verd ad fara ad hoppa upp i lest..
kvedja Drifa
SIMANR./PHONE NR.: +46 42 (0)709723405... held ég..

þriðjudagur, ágúst 16, 2005

HEJA SVERIGE!!
Jæja, á viku komst ég af e-jum ástæðum inn í Lundarháskóla, leitaði hátt og lágt að herbergi - fann það! og splæsti í flugmiða.
Svo ágætu lesendur, ef enn eru e-jir.. Þann 29 ágúst FLYT ég og mín ferðataska til Helsingborgar á Campus LU, í gamalt hótel sem nú hýsir eingöngu nemendur..Hotel Anglais. 19fm herbergi og sameiginlegt eldhús með 6 öðrum.
Ég er að fara að stúdera Service Management - INTR.hotell/resturang. Svo þið vitið hvar má finna mig vonandi næstu 4 árin... Allir velkomnir í heimsókn!
Uff, nú er að dusta rykið af 11 ára gamalli sænsku... herregud!

Nú erum við líka að fara að setja Hótel Bifröst í ferðatösku þar sem það mun flytja inn í geymslu á Reykholti. AH! en sorglegt. Gott sumar með skemmtilegu starfsfólki, og þakka ég sérstaklega Söndru og Sögu fyrir frábær ár! Takk elskurnar! Hvað eigum við nú að gera?!

Helgin var skemmtileg, laugardagurinn fór í ball á Búðarkletti m/öllu staffinu, Kötu skvís og Dóru sem gistu nóttina í kofanum. Kvöldið endaði reyndar með haugafullu fólki og einn starfsmaður var fluttur suður á bráðamóttöku; er allt að verða gott og blessað aftur.
Á sunnudaginn fórum við Lambhúshettur út að borða á Einari Ben þar sem Bjarki eldaði fyrir okkur ÆÐISLEGAN mat! vá! klapp!!! snilld!

Farið að styttast í Menningarnótt og hlakka ég mikið til . .

laugardagur, ágúst 06, 2005



  1. MYNDIR - Sumar 2005.. eða það sem er liðið af því. Myndir af síðasta Bifröst og við Malla húkkuðum far á Akranes, Akureyri og alla leið á Mývatn - og fórum allt Snæfellsnesið með rútu af gömlu fólki sem gisti á Biffanum.



    Vá hvað ég er e-ð löt yfir sumartímann að halda við þessarri síðu. Ég held að ég byrji bara í HÍ í haust, ekki viss hvenær - en hlakka bara til að byrja í skóla aftur.

    Uff, í dag fórum við Sandra, Jo (N-Írlandi) og Malla á hestbak í 2 klst... og við erum allar að drepast í rassinum. Endir. haha.

laugardagur, júlí 09, 2005

Ahh!!!.. Kat, gamall húsfélagi frá Finnlandi, er komin með það..Lagalisti sem vekur trylltar minningar frá æðislegu ári!, Uff! Djöfull var gaman..ef þessi lög voru ekki bara OFspiluð 24/7..heima og á djamminu alla daga vikunnar, fær mig til að brosa:

Call on Me - Eric Prydz
Every single song - The Corrs
GALVINIZE - Chemical Brothers
Hypnotic - Bomfunk MC's
It's Raining Men - Weather sisters
Lady - Mojo
Memories - Within Temptation
Nemo - Nightwish
Paris to Berlin - Infernal
Physical - Alcazar
Pump It Up - Danzel
Sick and Tired - Anastasia
Sound of San Francisco - Global DJ´s
Stand My Ground - Within Temptation
Suavemente Besa Me - Elvis Crespo