laugardagur, desember 24, 2005



GLEÐILEG JÓL ALLIR!!!
MERRY CHRISTMAS!!!

fimmtudagur, desember 15, 2005

Ó Joy! Í sumar ætla ég og mitt í gamaldags tjaldferð - það er svo sjarmerandi að skríða inn í svefnpoka og kúra.
4 dagar í heimför!

Lag kvöldsins: Absolute Christmas - Jingle bell rock

miðvikudagur, desember 14, 2005

o gvuð.. Hotel Anglais jólaveisla í gærkvöldi.. Ég veit ekki hvað ég á að segja - Hef aldrei sungið jafnmikið af snapsvísum og drykkjulögum, dansað upp á borði..drukkið jafn áfengisvænt glögg - ég satt að segja veit ekki hvar við enduðum.. - Hver hæð í blokkinni átti að búa til snaps handa öllum og hver maður drakk þann næsta undir borðið.. Skömmin var að þurfa að standa upp, tæma fullt glas á meðan 30 manns sungu:

"Sätt nu glaset till din mun!
Tjo-faderittan-lambo!
och drick ur, din fylle-fylle-hunn!
Tjo-faderittan-lambo!
Se,hur dropparna i glaset
rinner ner i fylleaset
Lambo, hej! Lambo, hej! Tjo-faderittan-lambo!

Solo: Jag nu glaset druckit har.

Kör: Tjo-faderittan-lambo!

Solo: Ej en droppe finnes kvar.

Kör: Tjo-faderittan-lambo!

Solo: Som bevis jag nu vill vända - glaset på dess rätta ända..
(og snúa við glasinu á hausnum á sér..)
Kör: Lambo-hej! Lambo-hej!

Þetta útskýrir glögg í hárinu á flestum í morgun..Well, had to be there.. ó hvað ég er þreytt

Snaps gærkvöldsins: bláberjasúpa og vodki

Lag dagsins: kór hotel Anglais - Gläns över sjö och strand

mánudagur, desember 12, 2005


Ég er komin í sjúklegt jólaskap og hlakka ekkert smá til að koma heim á klakann!
var að fá út úr annarri ritgerðinni - um framvöxt verslunarmiðstöðva! - og það var ekkert annað en að krydda upp á gleðina. Blokkin er komin með ÆÐI fyrir alls kyns NEFNDUM, í hinu og þessu, varðandi Lúsíuvökuna á morgun.. þetta verður gríðarlegt partý!

Fyrirlestur dagsins fjallaði um markaðsetningu borga..m.a. um slagorðin "Wonderful Copenhagen", "New York- The big appel", "Paris - City of Lights" o.s.frv. og nú er ég að drepast úr áhuga og fletti upp öllum mögulegu borgum. Hér ætlaði ég bara að skella inn Reykjavík lógói sem mér finnst voðalega töff. Helsingborg er markaðsett sem "Perlan við sundið" - en sætt.
Met fannst mér slagorðið hjá smábænum Skurup í Svíþjóð.. og þetta var ekkert grín á sínum tíma.

Kom líka fram hvernig verið er að markaðsetja staði sem enginn myndi annars fara á ..og þá kom upp BECKHAM-LAND .

Lag dagsins: Emilíana Torrini - Heartstopper

fimmtudagur, desember 08, 2005

Í skólanum.
Ég var í skólanum áðan. Það verður ekki í frásögufærandi fyrr en ég segi ykkur að ég var á fyrirlestri. Með bekkjarfélögum mínum. Öllum 240 bekkjarfélögum mínum. Það mætti ætla að í þessum skara leynast 60 strákar á móti 180 stelpum. Ég var ein af þeim síðustu inn í salinn sökum samtals.. ekki mörg laus sæti eftir og lendi ég þá aftast og yst. Augljós mistök. Hliðiná mér situr kærasta eins stráksins(og hann situr hinum megin við hana) - hún er í heimsókn til H-borgar og lítur út fyrir að vera með greindarvísitölu á við skjaldböku og nýkomin úr vinnu sinni sem strippari; ég þekki strákinn lítið sem ekkert. Í byrjum fyrirlestrar eru þau aðeins farin að kyssast og eru voðalega snertin.. ah en sætt.. þau eru ástfangin. Ég skipti mér lítið af þessu.. en allt í einu tek ég eftir því að gellan er komin með hönd sína á millifótakonfektið(hvar heyrði ég þetta orð?) hans..jæja best að fylgjast ekki með þessu. En hvernig getur maður ekki tekið eftir því þegar hann hendir "laumulega" treflinum sínum yfir hönd hennar...Hvað er í gangi?! Ég vil ekki vita meira.. Drífa einbeita sér að fyrirlestrinum... Þau flissa og laumupúkast eins og enginn taki eftir því að gellan er klárlega bara komin með hendur inn fyrir buxur stráksa..sem verður klárlega eldrauður í framan.. Ég veit ekki meir, ég er að fylgjast með fyrilestri um ég veit ekki hvað - Sjitt hvað þetta er truflandi!!!
Eru ekki takmörk fólk???

Lag dagsins: McCoy Tyner - Passion dance
2005 bara bráðum á enda.. og þá fer maður að rifja upp góðar stundir á árinu. Ég er nokkuð sátt með ferðalögin á þessu rúmlega einu ári..grófi listinn lítur svona út:
  1. Finnland (bjó í tæplega 1 ár)
  2. Suomenlinna eyja (bjó í 2 mánuði)
  3. Suður-Svíþjóð (bý þar núna)
  4. Stokkhólmur (3x)
  5. Danmörk (8x)
  6. Belgía(2x)
  7. Eistland(3x)
  8. Lettland(2x)
  9. Litáen(1x)
  10. Rússland(1x)
  11. Frakkland(1x)
  12. og fram og tilbaka til elsku Íslands!

Þetta hefur nú bara verið eitt besta ár! En núna hlakkar mig skuggalega mikið til að komast heim á klakann!

kveðja, Drífa

þriðjudagur, desember 06, 2005

jaherna en sá dagur..
burr ég ætti að vera að lesa um heilsuástandið í heiminum(Global folkhälsa) en ég er ekki að því. Ég er með hugann allt allt annars staðar.. hann er allur í París. Kom heim í gær aftur.. Verður alltaf betra og betra. 5 klst í rútu frá Antwerpen til Parísar!! Ég hef gengið í gegnum verra.

Á einum degi sérð þú ekki alla París en okkur tókst það næstum því með því að taka 50 metro að Sacré Cæur á Montmartre .. erum við ekki að grínast með útsýnið! WAUW!
Fyrir framan Notre Dame labbaði gömul jazzvinkona mín, Emeline, á okkur..!! Engin tilviljun það enda hafði Malla upplýst hana um komu okkar (án þess að ég vissi!).. Sjitt hvað var gaman að sjá hana aftur:) Oh æðisleg borg, ég er alveg ástfangin.. Pompidou er ein svalasta bygging til! Við litum líka inn á kaffihús Amélie Poulain..

Antwerpen var líka æðisleg as ever og er ég ástfangin af litlu djasskaffihúsi, De Muze. Á laugardeginum lentum við Malla á djammi með þeim Gudrun, Meintje og Marian. Rulluðum inn á bæjarkrá í smábænum Beerse.. á djamminu with the locals.

Kem heim eftir 2 vikur!!
...and back to the books.
Lag dagsins1: Yann Tiersen - La valse des monstres
Lag dagsins2: Infernal - From Paris to Berlin

sunnudagur, nóvember 27, 2005



Af hverju lendi ég alltaf í því að djamma með fólki sem finnst NAUÐSYNLEGT að saga niður götuskilti, stela auglýsingaskiltum og umfram allt að taka með sér heim APPELSÍNUGULAR UMFERÐARKEILUR!!!
Fyrir utan þá staðreynd að húsið okkar er ein rúst þá eru stórar keilur hér og þar í stofunni..smekklegt.

Lag dagsins: Alcazar - Physical

miðvikudagur, nóvember 23, 2005

Ó guð, ég verð að vinna á PÓSTINUM enn ein jólin, stop me!!
María! Segðu mér að mér takist að draga þig með mér niður????
Ég held ég sé sködduð.

Lag dagsins: Natalie Imbruglia - Torn

mánudagur, nóvember 21, 2005

Glatt á hjalla þessa dagana!
Mamma og pabbi komu í heimsókn til H-borgar!! Við tókum bátinn kæra yfir sundið og skelltum okkur til Louisiana á Matisse o.fl.asskabblega skemmtilegt safn:).. við vorum ekki lengi að hella í okkur einum Túlla og Gammel Dansk.. og við mamma lestuðumst áfram til Köben. Kíktum á Jólalandið í Tívolíinu..sjitt hvað þetta var fallegt, grilljón jólaskreytingar og jólaljós..jólaglögg og æbleskive.
Það er ÆÐI að fá fréttir frá fólki sem maður heldur að sé gufað upp:) Gamli jazz-félagi minn frá Helsinki, Vina frá Brasilíu, hefur þést og þjappast og er á lífi.

Húsið er að skipuleggja tryllt jólahlaðborð og Lúsíuvöku!!

Lag dagsins: Trabant - Nasty boy

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Mér finnst svo gaman að plana... Helsta stóra planið er:
Að flytja til Lundar.
Ábyggilega á næsta ári.

Vakna snemma í morgun við: "OH MY GOD AAARCH!!I woke up this morning, EYE in EYE w/an almost NAKED SNAIL!! YAK! Come here and save me from that bastard!.."

Tiltekt dagsins: Quarashi - Mr.Jinx

föstudagur, nóvember 11, 2005

lag dagsins: September - Satillites

Ég veit ekki alveg hvað þessi kúrs sem ég er í fjallar um...
Heima er ég að lesa námsefnið: "Populärmusik från Svedala" um sænska tónlistarbransann.. - ekki vissuði að fyrsta plata Roxette átti í rauninni að vera 3 sólóplata Per Gessle?? Marie Fredrikson var bara hent inn sem aukagella...- hljómsveitin komst inn á alþjóðamarkað vegna þess að amerískur skiptinemi fílaði lagið "The Look" og bað litla útvarpstöð í Minneapolis að spila lagið? Magnað!
en í dag fór ég á æðislegan fyrirlestur um EU og Brussel... get ekki hugsað um annað síðan.
Nújæja.

sunnudagur, nóvember 06, 2005

ó fokk ég steingleymdi að borga leiguna og er klárlega VIKUsein..Hvað get ég sagt? Lykillinn að póstkassanum mínum hvarf við "remodlið" á íbúðinni minni.. það er rétt! Íbúðin mín! 19fm!..
Eftir vikurugl meðan Marlous var hérna hjá mér er kominn tími til að koma lífinu á rétt spor aftur..
nr.1 borga leigu
nr.2 kíkja á bókaFLÓÐIÐ sem fylgir þessum nýja kúrs sem ég átta mig lítið á

Vikan leið svo hratt og nú er ég ein heima aftur..burr:(Það er grínlaust svo leiðinlegt að elda fyrir einn, verður oft bara pasta með engu eða kartöflumús með gúrku, eða e-ð svipað.. hins vegar er ég snilldarkokkur ef ég elda fyrir tvo...
Á fimmtud. var veisla hér á hæðinni ..þar sem við flæktumst inn í DÝRAdrykkjuleik með hóp sjávarlíffræðinga.. leikur sem utanaðkomandi myndi þykja MJÖG spes.. ég, sitjandi sem snákur milli gríss og gullfisks(já, það er hægt að apa eftir gullfiski), hef sjaldan hlegið jafn mikið.

Ferðin til Köben var frábær, ég er svo veik fyrir haustinu... ég fæ alveg fyrir hjartað ef ég rekst á huge grasagarð í haustlitum. OG erum við ekki að grínast með fjöldann af Íslendingum á Strikinu!!!RÓLEG! og róleg á litla heiminum.. rákumst á Sögu í lest í dk!

Við Marlous erum nú góðkunningjar kirkjuvarða í allri Skandinavíu.

Jii..mig langar til Louisiana!!!! Matisse-sýning í gangi.

sunnudagsnostalgía: Natalia - I´ve only just begun to fight!

sunnudagur, október 30, 2005


Ég er svo þreytt...

Lag dagsins: Come away with me - Norah Jones

þriðjudagur, október 25, 2005

.......Mig langar sjúkt í e-ja ferð.. út fyrir borgarmörk í heilan dag.
Ég komst að því að það er partýbátur hér líka! Sem rúntar til Oslo!! Sjitt hvað væri gaman!!
Allir að setja í ferðatösku og koma í heimsókn. Eftir 6 daga er þetta próf mitt búið og gert og vikufrí í skólanum.. Mallan kemur og verður þá skroppið til Köben!! (Núna er ég bara að hugsa upphátt) ........Eiginlega er ég bara að mygla yfir feitri bók sem var þýdd frá finnsku yfir í ensku og ensku yfir í sænsku og útkoman er vægast sagt hræðileg!!.. 6 dagar....

Lagið í dag: Sinéad O´Connor - Paddy´s Lament

mánudagur, október 24, 2005


Ég er að mygla hérna! Lærandi daginn út og inn í dag..
www.FM957.IS er að bjarga mér alveg.. Ég hef ekki hitt einn einasta Íslending síðan ég kom til Svíþjóðar. Ég hélt að ástandið væri slæmt í Finnlandi.

Ég mæli eindregið með www.WAYN.com

Mögla dagsins: Nina sky - Move ya body

sunnudagur, október 23, 2005

Takk fyrir allar kveðjur, símtöl og allt saman á afmælinu mínu. Mér tekst alltaf að lenda í e-ri vitleysu.. ég þekki ekki hálfa blokkina en þau vissu öll af afmæli mínu og öll 3 hæðin tók að góla hástöfum... eftir mikið rugl og absinthe skriðum við til “VILLAN” sem er stórt hvítt hús. Fimmtudagar hér eru eins og miðvikudagar í Finnlandi, háskólanemar detta rækilega í það. – sem og við geðum.. ég lenti í liði með Stockhólmsfólki, Åsa og gaur sem vill láta kalla sig “C.H.” (Clas Henrik!..blessi hann)..og fékk ég frítt að drekka allt kvöldið. Leiðin lá á MINK sem er skemmtistaður í Helsingborg.. æðisleg tónlist og staðurinn er innréttaður þannig að það er ekki mikið annað hægt að gera en að dansa..og það eins og vitleysingar.. 4 borð, sem eru eingöngu þarna til að dansa uppá og svo myndaðist viss Kæjótí Öglí stemning þar sem stelpur sem vildu tóku trylltan uppi á barborðinu. Frábært kvöld

Lag kvöldsins: Shakira feat. Alejando Sanz – La tortura

fimmtudagur, október 20, 2005

Hhahaha..."years and years of floor-parties...we never get out of the house"- Ale, einstaki ítalski vinur minn og gamall Pasila-búi. Þetta er svo satt!
Í kvöld er veisla á 4 hæð og heldur svo áfram á 3 hæð... við komumst ekki út.
Lifi blokkin

Lag dagsins: Tom Jones and the Cardigans – Burning down the house

mánudagur, október 17, 2005


Ég er alveg óþolandi þessa dagana.. ég veit ekki alveg hvað er að mér en þið þekkið vonandi flest þá tilfinningu þegar maður STENST EKKI að brosa framan í allt og alla... maður labbar um óþolandi hamingjusamur og ástfanginn.. Einhvern veginn tekst allt í kringum mann að vera útibú himnaríkis og maður vill hjálpa öllum úti á götu, hendir pening í tónlistarmanninn á götuhorninu(þótt að maður sé eflaust sjálfur fátækari), borgar reikninga með bros á vör og er alveg hreint óþolandi!... Ég er búin að vera með þetta syndróm núna í 4 daga, samt er ekkert sérstakt að gerast í mínu lífi.
Og þetta bangsatímabil mitt er að fara út úr höndum..
Ein óþolandi

p.s. vá hvað haustið er fallegt hérna á hnettinum – gul/rauð lauf alls staðar!!

Nostalgía dagsins: Call on Me - Eric Prydz

föstudagur, október 14, 2005

hjálp! ég er svo SOKKIN.... !!!!!
áður en ég fór út fyllti Brynja laptopinn af Desperate Housewives (sem ég hafði aldrei áður sýnt áhuga en er víst algert MÖST !)..og núna hefur mér tekist að opna þá geymslu og ég get ekki hætt ..þetta er svo spennandi!!

Ég þarf að játa annað.. ég hefði aldrei trúað því upp á sjálfa mig en.....ég er HÚKKT huge kúrubangsa sem ég hef nýlega fengið í hendur...í rúminu stelur hann meira að segja meirihlutann af vinstri hliðinni!! Ég er svo mússjí að ég er að deyja!God.

Lag dagsins: Juanes - La Camisa Negra