föstudagur, febrúar 24, 2006

Dömur mínar og herrar...það er íshockey semifinale og það er allt að tryllast í húsinu..ég þori varla að fara inn í eldhús til strákanna þeir sitja sem límdir við skjáinn með bjór! :) Það er öskrað og ég veit ekki hvað...

Sverige vs Tjékkland (held ég alveg örugglega)
Það er tómt út á götu, allir að horfa á OS. Ég horfði á eitt par á listskautum. Í bleiku.
Við fengum meira að segja að fara fyrr heim úr skólanum í dag.. til þess að horfa á leikinn! Svíar komnir með 5 gull!! Curlingstelpurnar alveg að standa sig.
Í kvöld fer ég yfir til Kastrup að sækja Möllu og það er aldrei að vita en við skellum okkur á djammið í Copenhagen!
Ég ætla að fara að tékka á strákana og hvort að eldhúsið sé ekki í heilu lagi ennþá.

Lag dagsins: Saybia - The day after tomorrow

mánudagur, febrúar 20, 2006


Eurovision
Hmm...ég get nú ekki sagt að ég sé ýkja hrifin af henni Silvíu Nótt. Ég hef ekki séð einn einasta þátt með henni en alveg héðan er ég komin með ógeð af þessu lagi og finnst hún bara frekar mikið pirrandi. Er hún bara að gera allt vitlaust þarna heima?
Þó að ég sé kannski ekki alveg hlutdræg þá finnst mér framlag Belga alveg æði! Kate Ryan sem átti hið vinsæla lag Désenchantée fer með Je t ´adore í keppnina! Tékkið á laginu.. það er greinileg sænsk eurovisionsveifla í því.

Engu að síður, ÁFRAM ÍSLAND!
MYNDIR! nokkrar frá Helsingborg. Myndavélin mín er alveg kapaj svo þetta er allt sem er í boði:)


Leynilega en örugglega erum við Sandra að plana okkar hostile takeover að reka bara allt Fosshóteldæmið - glóbal og vera algerar hótelbusinesstíkur!
Hverjum líst á planið?

Lag: Gwen Stefani - Hollaback Girl

sunnudagur, febrúar 19, 2006

hei ein færslan hvarf! Ég setti inn fleiri linka. Í dag er ég rosalega busy við að lesa um hvernig konur eru settar sem "sex objects" í auglýsingar.. þessi kúrs er frekar í loftinu. Í kvöld er svo Íslendingakvöldmatur hjá Sigrúnu, en hún eldar náttúrulega bara ótrúlega góðan mat!

Lag dagsins: Sizzla - Mash dem down

fimmtudagur, febrúar 16, 2006

ó guð þetta er setning sem ég hélt myndi aldrei láta út úr mér.. en ég held að skrítni þýski skiptineminn sé skotinn í mér.

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Af heimsóknum og.
O joy Emil var í heimsókn hér í Lundi og við fórum á pöbbarölt!..verð að undirbúa mig áfengislega í að Brynja og Dóra séu á leiðinni!

Á mánudaginn hitti ég æskuvinkonu mína frá Hjärup og fékk ðe leítest skúp um hvar í lífinu eldgömlu bekkjarfélagar okkar væru...Herregud, strákurinn sem var "fyrsta dateið mitt", 9ára - fyrsti vangadansinn og allur pakkinn - er nú með síðara hár en ég og gengur um í skósíðum leðurfrakka!! Charming! Ég fékk líka mjög velkomnar upplýsingar um hvernig maður á að haga sér í stúdentalífinu hér í Lundi þar sem ég er eins og nýlent hingað. Aðalmálið er víst að djoina sk "nation" (eru 13 talsins og það segir mikið um þig og þinn karakter hvaða "nation"þú ert í..Malmö=brat, Hallands=íþróttafrík, Smålands=politiskur rebel o.fl.). - verð að athuga þetta nánar.

Lag kvöldsins: Pointer Sisters - Sisters are doing it for themselves

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Handlagin heimilisdrífa.
Síðan í október hef ég átt 2 myndaramma sem eru alltaf á leiðinni upp á vegg.. en í hvert skipti sem ég held á hamrinum þruma ég honum e-n veginn í puttana á mér og hætti snarlega við að láta rammana upp. Þeir líta líka miklu betur út liggjandi á borðinu. Svo þori ég heldur ekkert að láta neinn hjálpa mér því að það er e-ð svo pínlegt.

Útvarp dagsins: O radio (mögnuð tónlist)<<<< Hlusta HÉR >>>>

laugardagur, febrúar 11, 2006

Þrátt fyrir að ég taki ekki þátt í svona bloggæðum þá ætla ég að gera þessa undantekningu;)

Fjórar vinnur sem ég hef unnið:
- Þjónn á Hótel Bifröst
- Þjónn á Horninu
- "kokkur"á Café Engel
- jólapóstur

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
- Maverick
- River Wild (og ég veit ekki af hverju)
- My Girl
- LOTR allar

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Hjärup/Helsingborg/Lund í Svíþjóð
- Laugarnesinu, Reykjavík
- Pasila, Helsinki
- Suomenlinna eyja, Helsinki

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla:
- Desperate Housewives
- The Amazing Race
- Sex and the City
- ER

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Selva Val Gardena, Ítalíu
- París, Frakklandi
- St. Pétursborg, Rússlandi
- Vilnius, Litháen

Fjórar síður sem ég skoða daglega:
- mbl.is
- On the road again
- Lambósíðan
- yahoo-mail

Matur sem mér þykir góður:
- kanasalatti á Café Engel
- jólamaturinn hennar mömmu
- wraps ala Marlous
- pastaréttir pabba

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
- á Café Esplanad m/Möllu að skoða rassa
- á Kaffi Vín m/Brynju og Dóru að slúðra
- á skíðum m/familíunni í Selva
- ferðast um Evrópu m/réttu fólki

Valentínusaræði: Starsailor - Love is here

fimmtudagur, febrúar 09, 2006


Hversu súr er myndin Saved! með Mandy Moore??
Samt er litli Macaulay Culkin ennþá sama litla dúllan og verður það eflaust til æviloka..manni langar bara að ráðast á hann og klípa í kinnarnar

Til huggunar, hjálp frá hardcore Mandyaðdáandanum Bjarneyju, lætur Mandy Moore ekki þar við standast... tvær æsispennandi myndir á leiðinni:
"Because I said so"(2006)
Plot Outline: "A meddling mother (Keaton) tries to set her daughter (Moore) up with the right man so her kid won't follow in her footsteps"

"Personal shopping"(2006)
Plot Outline:" A tourist who lost his luggage falls head over heals for the personal shopper (Moore) he hires to outfit him with a new wardrobe."

Missið ekki af þessum!

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Það er allt að verða vitlaust í þessu Laugalækjar-reunioni! Heyri fréttir frá Brynju af fólki sem maður vissi ekki að væri til lengur! Ég hlakka sjúklega til að sjá þetta lið.. Ég átta mig á því að ég hef kannski verið að heiman einum of lengi þegar A er að eignast barn og B er að gera guð má vita hvað..Ef marka má síðunni, L-town, þá liggur í þessu mikið áfengi...feitur skandall held ég.

Í dag fjárfesti ég í yukka-pálmatré.

Kvöldið stefnir í eldhússofa-OC-gláp með Christoffer, en það er einn af þeim 6 strákum sem ég bý með..og ein stelpa sem er augljósleg te-týpa.. übernæs stelpa.
Te-týpan: það sést í kílómetra fjarlægð að umræddur aðilji drekkur te.

Lag síðasta partýs: Daddy Yankee - Gasolina

mánudagur, febrúar 06, 2006

Er hægt ad vera alvarlegur á norsku?

sunnudagur, janúar 29, 2006

Ég er ekki ad fara yfirum lengur.
Ég er búin med thetta hraedilega hraedilega próf, flúdi partýhöld til Amsterdam, kynntist businessmanni, Jan(rúmlega fertugur), vegna thess ad töskur okkar beggja voru tímabundid týndar..tók lest nr.1, 2 og 3..steig út í Antwerpen, fékk blóm, labbadi ut og sudur, gaf engisprettum braud, same old..
Vá! Vid Malla fórum í matarbod til sameiginlegs vinafolks, Liesbet og kaerastinn hennar Jef - sem er atvinnumadur i körfubolta. Vid skelltum okkur á leik med honum í efstu deild, 5000manna völlur!! Dúndrandi tónlist!! Klappstýrur, sem samkvaemt heimild sofa allar hja leikmönnunum.. (ein var ad eignast barn, 5 möguleigir pabbar) Thetta var svo mikil snilld, álit mitt á körfubolta flaug upp.
Ég smakkadi "masút" í fyrsta skipti."Masút" er BJÓR Í KÓKI!That´s right, bjór í kóki!
Lag dagsins: Madonna - Hung up

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Eraðfarayfirum!!!!!!
lag í dag: Bo Kaspers - hon är so söt

miðvikudagur, janúar 11, 2006

sjitt ég er bara orðin hrædd við að fara að sofa, martraðir síðustu 4 nætur straight. Varð vitni að morði og þvílíkur eltingaleikur i gangi..
Dagarnir eru sko ekkert skárri...er búin að umturna húsinu mínu í lærdómsherbúðir, glósur út um allt! Er einmitt í bók dauðans núna, Service Worlds!! Klárlega bók sem var EKKI á jólabókaóskalistanum.
6 dagar to go..

Lag dagsins: Love Cats - The Cure

laugardagur, janúar 07, 2006

Gleðilegt ár!!
Hef rosalega mikið að segja en þegar á að fara að setja það niður í þetta kerfi þá kemur bara ekkert!
Ég er sem sagt komin aftur til Svíþjóðar eftir æðislega dvöl á klakanum..það gafst sko ekki mínúta í námsbækur og sit ég því í súpunni núna..súpa með 8 bókum og ofgnótt af innisetu og lestri. Bragðast ekki vel.
Jólin fóru í vini, djamm, spil, vinnu og alls kyns hittinga og matarboð. Örfáar MYNDIR teknar..myndavélin mín er ónýt.
Janúarmánuður er eitthvað voðalega busy hérna..Fréttir!(fyrir suma) Ég var að fá hús (gamall finnlandsvani að kalla 16 fm herbergi hús) í Lundi!.. en sökum háanna hjá mér býst ég ekki við að flytja þangað fyrr en 24 janúar. Þá er það að taka upp skrúfjárnið og bita niður húsgögn í lestina..jej!
Samt finnst mér ákveðinn sjarmi yfir því að vera fátækur námsmaður og nota frumsömustu tækni við survivalið. Sæta franska parið sem flutti hýbýli á hjóli, lettneski strákurinn sem þáði gamalt ciabattabrauð frá kaffihúsinu mínu, ALLIR erasmusnemar sem þóttust ekki tala ensku til að þykjast ekki vita að ætti að borga í lestina..Sjálf hef ég notast við snjóþotu á flutningum svo þetta verður gaman..Best things in life are for free!
Helga! þú verður kannski heppin og tekin inn í dýnuflutning 30 jan;)

Lag lestrar: Pete Yorn - Strange Condition

laugardagur, desember 24, 2005



GLEÐILEG JÓL ALLIR!!!
MERRY CHRISTMAS!!!

fimmtudagur, desember 15, 2005

Ó Joy! Í sumar ætla ég og mitt í gamaldags tjaldferð - það er svo sjarmerandi að skríða inn í svefnpoka og kúra.
4 dagar í heimför!

Lag kvöldsins: Absolute Christmas - Jingle bell rock

miðvikudagur, desember 14, 2005

o gvuð.. Hotel Anglais jólaveisla í gærkvöldi.. Ég veit ekki hvað ég á að segja - Hef aldrei sungið jafnmikið af snapsvísum og drykkjulögum, dansað upp á borði..drukkið jafn áfengisvænt glögg - ég satt að segja veit ekki hvar við enduðum.. - Hver hæð í blokkinni átti að búa til snaps handa öllum og hver maður drakk þann næsta undir borðið.. Skömmin var að þurfa að standa upp, tæma fullt glas á meðan 30 manns sungu:

"Sätt nu glaset till din mun!
Tjo-faderittan-lambo!
och drick ur, din fylle-fylle-hunn!
Tjo-faderittan-lambo!
Se,hur dropparna i glaset
rinner ner i fylleaset
Lambo, hej! Lambo, hej! Tjo-faderittan-lambo!

Solo: Jag nu glaset druckit har.

Kör: Tjo-faderittan-lambo!

Solo: Ej en droppe finnes kvar.

Kör: Tjo-faderittan-lambo!

Solo: Som bevis jag nu vill vända - glaset på dess rätta ända..
(og snúa við glasinu á hausnum á sér..)
Kör: Lambo-hej! Lambo-hej!

Þetta útskýrir glögg í hárinu á flestum í morgun..Well, had to be there.. ó hvað ég er þreytt

Snaps gærkvöldsins: bláberjasúpa og vodki

Lag dagsins: kór hotel Anglais - Gläns över sjö och strand

mánudagur, desember 12, 2005


Ég er komin í sjúklegt jólaskap og hlakka ekkert smá til að koma heim á klakann!
var að fá út úr annarri ritgerðinni - um framvöxt verslunarmiðstöðva! - og það var ekkert annað en að krydda upp á gleðina. Blokkin er komin með ÆÐI fyrir alls kyns NEFNDUM, í hinu og þessu, varðandi Lúsíuvökuna á morgun.. þetta verður gríðarlegt partý!

Fyrirlestur dagsins fjallaði um markaðsetningu borga..m.a. um slagorðin "Wonderful Copenhagen", "New York- The big appel", "Paris - City of Lights" o.s.frv. og nú er ég að drepast úr áhuga og fletti upp öllum mögulegu borgum. Hér ætlaði ég bara að skella inn Reykjavík lógói sem mér finnst voðalega töff. Helsingborg er markaðsett sem "Perlan við sundið" - en sætt.
Met fannst mér slagorðið hjá smábænum Skurup í Svíþjóð.. og þetta var ekkert grín á sínum tíma.

Kom líka fram hvernig verið er að markaðsetja staði sem enginn myndi annars fara á ..og þá kom upp BECKHAM-LAND .

Lag dagsins: Emilíana Torrini - Heartstopper

fimmtudagur, desember 08, 2005

Í skólanum.
Ég var í skólanum áðan. Það verður ekki í frásögufærandi fyrr en ég segi ykkur að ég var á fyrirlestri. Með bekkjarfélögum mínum. Öllum 240 bekkjarfélögum mínum. Það mætti ætla að í þessum skara leynast 60 strákar á móti 180 stelpum. Ég var ein af þeim síðustu inn í salinn sökum samtals.. ekki mörg laus sæti eftir og lendi ég þá aftast og yst. Augljós mistök. Hliðiná mér situr kærasta eins stráksins(og hann situr hinum megin við hana) - hún er í heimsókn til H-borgar og lítur út fyrir að vera með greindarvísitölu á við skjaldböku og nýkomin úr vinnu sinni sem strippari; ég þekki strákinn lítið sem ekkert. Í byrjum fyrirlestrar eru þau aðeins farin að kyssast og eru voðalega snertin.. ah en sætt.. þau eru ástfangin. Ég skipti mér lítið af þessu.. en allt í einu tek ég eftir því að gellan er komin með hönd sína á millifótakonfektið(hvar heyrði ég þetta orð?) hans..jæja best að fylgjast ekki með þessu. En hvernig getur maður ekki tekið eftir því þegar hann hendir "laumulega" treflinum sínum yfir hönd hennar...Hvað er í gangi?! Ég vil ekki vita meira.. Drífa einbeita sér að fyrirlestrinum... Þau flissa og laumupúkast eins og enginn taki eftir því að gellan er klárlega bara komin með hendur inn fyrir buxur stráksa..sem verður klárlega eldrauður í framan.. Ég veit ekki meir, ég er að fylgjast með fyrilestri um ég veit ekki hvað - Sjitt hvað þetta er truflandi!!!
Eru ekki takmörk fólk???

Lag dagsins: McCoy Tyner - Passion dance