Góðir gestir, ég var rétt í þessu að koma úr Borgarleikhúsinu . .
– Nemendasýning Jazzballettskóla Báru - HULDUHEIMAR. . Ég fór og sá þær Birnu og Helgu frænku stíga trylltan nornadans; þær voru alveg glæsilegar stelpurnar, ég óska þeim báðum til hamingju aftur;) en svona í alvöru talað ég vissi ekki að það væru til svona margar stelpur bara í heiminum!!! Við hvert nýtt atriði í sýningunni skoppuðu, svifu, trítluðu, læddust, hlupu, valhoppuðu ca 30 stelpur inn á sviðið. . og atriðin voru ekkert fá sko – alveg gáttuð og þetta var víst aðeins 1/3 af skólanum.
Anyway. . frábær sýning. Takk Birna:)
Hver hefði trúað því??? Ekki ég. Í dag var mögulega hugsanlega líklega ábyggilega áreiðanlega og mjög sennilega SÍÐASTA STÆRÐFRÆÐISKYNDIPRÓF í sögu minni í MR. . cause for a celebration! (nema Gylfi taki upp á því að halda próf eftir páska.. þá mæti ég ekki.)
Quote: ”Fokk HJÁLP!” – Ásgerður Fanney
(í miðjum tíma þegar hún heldur að hún hafi gleymt að hringja inn í tíma)
Þetta er ekkert grín. . ég hringdi út – inn –út á föstudaginn síðasta og ég var að fá þvílíkt ábyrgðarfælniskast!! . . . hvernig meikar Hringur þetta?
Lag : BJÖRK - Hunter
þriðjudagur, mars 30, 2004
The Verve - urban hymns
. . . já, þetta er góður dagur fyrir verve.
Stærðfræði - ekki alslæm -
Manni langar helst til þess að leggjast í grasið og horfa á stjörnubjartan himininn. . gleyma öllu og taka á loft. . .
- nema það er ekki hægt. ekkert gras sýnilegt og það er eiginlega ennþá dagur. . .
Í dag fór Einar inn á stelpurnar í 6-Y í íþróttaklefanum (og já! við vorum allar naktar! reyndar ekki.. en við hefðum getað verið það; möguleikarnir eru ekki margir..) - stórskandall; maðurinn er æði.
Uff hvað á að detta í það eftir stúdentsprófin. . ég meina það, þetta verður rosalegt! Tequila-rosalegt?
Lag 30. mars: The Verve - Bitter Sweet Symphony
Birt af
Drifa
mánudagur, mars 29, 2004
Sjitt! Týpískt!. . .alveg dæmigert fyrir mig og mína líka. Þegar núna nálgast próf. . þá er hægri höndin á mér í algeru rugli! Það er e-ð mjööög bogið við þetta allt saman. . . Út vorpróf 5.bekkjar fór höndin í mask, líffræðiprófið var listaverk! og höndin fór í e.k.spelku.. eins fór þetta í jólaprófunum núna. . – ok, fínt.. ég er buin að venjast þessu.. – Helduru ekki að höndin taki upp á e-ju öðru – hún er svo sniðug – þessa dagana er hún að dúttla sér VIÐ FROSTMARK!!! Fyrir utan það að vera síköld og blá þá er þessi elska líka við það að verða alveg máttlaus . .þegar verst liggur á. Ég held samt að Birna sé með meiri áhyggjur af þessu en ég sjálf. . .
Alveg æðislegt.
Lag: SELF - Stay home
Birt af
Drifa
laugardagur, mars 27, 2004
’what’s the frequency, kenneth? ’. .
Verkbókarföndur. . .Hlusta á eldgamlar kasettur í enn eldra útvarpi. Líma og skreyta
fyrir Egil – fæ eflaust til baka e.k. póstmóderniskt kaffislettugallerí. . .
Road trip á miðvikud. Fórum í Borgarfjörðinn og á Bifrastarslóðir.. Mjög gaman að sjá þetta allt saman aftur (margt breytt) – en skrítið – og hitta fólkið. En áttar sig á því hvað maður hefur eftir.. Góð tónlist og góðir vinir gera eitt gott ferðalag:)
Lag sem kemur mér alltaf til að hugsa um manneskju með mér þykir mjög vænt um:
R.E.M. - Daysleeper
Saumó í gær hjá Tobbu. . fengum að sjá nýja glæsilega húsið í ghettóinu og slideshow frá Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Tælandi. . geðveikar myndir – neinei.. EKKERT öfundsjúkar!
Stefnan tekin á lélega spólu á morgun. . . og á ákveðnum mælikvarða.. HVERSU sorglegt er að vera með skuld á Swimfan????
Quote: ”you have no selfrespect for yourself” – Elli
(sem ég hló að heilt kvöld hjá Dröfn að skrifa Faunu-comment)
Birt af
Drifa
þriðjudagur, mars 23, 2004
Norah Jones
teppi og knús.
Áfram veginn. . . the only way is forward;)
Á morgun verður að öllum líkindum kæruleysið tekið, hoppað upp í bíl með kakó í brúsa og ekkert annað.
THE SKY IS THE LIMIT
Í dag er Saga tvítug - til hamingju með það:*
..og í gær var Dröfn tvítug!
Ég er nítján ára.
Lag: Norah Jones - Don´t know why
Birt af
Drifa
mánudagur, mars 22, 2004
Já, svona er þetta. .
Ekki varð mikið úr lærdómnum þennan daginn. . frekar en hinn. Aðeins farin að kíkja á goðafræði. . frábært! Svo heppilega vill til að ég held að það sé e-r búinn að stofna e-ð bílskúrsband í bílskúrnum fyrir framan kjallarann sem ég er að læra í. . þungarokk!!!
Skattskýrslan fór aðeins ekki eins og hún átti að fara. . . og eðlisfræðiskýrslan fór á ennþá verri stað. . – við Ása erum núna meistros á bongótrommur!
Við stelpurnar í bekknum fórum mjög skemmtilegt í dag. . við fórum á Grænan Kost – alveg snilld!!
Við Emil fengum okkur kaffi á Brennslunni í kuldanum. . kannski að verði farið e-ð á miðvikud. - hver veit.. enginn.
Lag skattskýrslu: Norah Jones – Come away with me
“Broken bottles, broken plates,
Broken switches, broken gates,
Broken dishes, broken parts,
Streets are filled with broken hearts.
Broken words never meant to be spoken,
Everything is broken.
Seem like every time you stop and turn around
Something else just hit the ground”
- Bob Dylan -

sunnudagur, mars 21, 2004
Hornið
Í dag sá ég þrítuga konu í burberry skokk með burberry spöng.. hún sat m/ömmu sinni á sjöunni og var að brotna í þúsund mola... (held ég) og á næsta borði sat Fm-hnakkaliðið eins og það leggur sig. .
Þetta er eitt sem ég elska við að vera þjónn – fá að fylgjast með fólki í örstutta stund, áður en það hverfur aftur – allir þessir karakterar.
Síðasta vinnuhelgi fyrir próf;
LXX. MISSKILINN – Bókin um veginn (Lao-Tse)
1. Orð mín eru auðskilin, og auðvelt að framkvæma þau. Og þó getur enginn skilið þau eða framkvæmt.
2. Orð mín eiga sér víðtæka uppsprettu, og verk mín stjórnast af máttugu lögmáli. Menn þekkja mig ekki, af því að þeim er þetta ókunnugt.
3. Fáir þekkja mig, og það er mér til lofs. Því að hinn vitri er fátæklega búinn en ber gimstein í barmi sér.
Ég skoðaði hveri í dag – í Reykjadal – tók sundsprett;)
Lag síðasta vinnudags: Era - Ameno
Birt af
Drifa
fimmtudagur, mars 18, 2004
Björk - Debut.
By far besta platan hennar... ekkert annað í græjunum um þessar mundir.
Jæja..það er búinn að vera 17 mars í allan dag.
Viti menn! Ég fór að læra finnsku hjá Norræna félaginu í dag; alveg gaman!! - búin að gleyma því;)
Svo farið á Herranótt - LODD.. ég veit ekki, ég skemmti mér bara mjög vel.. krakkarnir eiga hrós skilið; Einar fór á kostum í þessum buxum!
Við erum að tala um að þurfi að "fínpússa" pool-leiknina hérna megin. . . .
Fallegt lag:: Björk - Venus As A Boy
Birt af
Drifa
mánudagur, mars 15, 2004
sunnudagur, mars 14, 2004
High school dropout. . . . . . . það hljómar mjööög vel núna!!
Fyrirlestur og próf og almenn hamingja.
Afmæli Ollu og Gumma í gær. Fyrst fyrirpartý hjá Gumma gler og síðan var haldið á Cafe Victor - frítt áfengi. . og ég var EKKERT að standa mig! skamm, það mætti halda að það væri e-r metnaður í gangi hér, ussss!!!
Mikið af fólki, gamalt laugalækjarpakk, ms-ingar og drukkið fótboltafólk . . .og e-ð gamalt fólk sem enginn vildi kannast við.
Tobba komin heim! og flutt.
Núna er fyrsta lambúshettan orðin tvítug - iðrast einskis - og núna erum við hinar bara næstar "í röðinni" hver sem hún nú er og hverju sem verið er að bíða eftir. . .
Á hún sér leyndan, léttan grun:
langur ber vetur margt í skauti,
hvort heldur er á yzta bænum,
ellegar hér á lágum hól.
- Pasternak -
Lag dagsins: Dido - Life for rent

föstudagur, mars 12, 2004
fimmtudagur, mars 11, 2004
Einn dagur eftir af vikunni – þær enda á föstudögum; þá er bara kominn allt annar heimur. Heimur helgarinnar.
Í gær var Stelpukvöld 6-Y!!! (strákum sko ekki boðið, þeir mega fara í sín gufuböð;) ). Hist heima hjá bróður Ásu. . ég ætla einmitt að flytja í þá íbúð þegar ég verð stór.
Þema kvöldsins: GRÆNT og risaeðlur.
Ætluðum að horfa á Jurassis Park en enduðum á að horfa á Amelie -> mæli eindregið með henni.. mjög sæt mynd:) Endurtökum þetta við fyrsta tækifæri.
Eðlisfræðiskýrslugerð okkar Ásu er annars í fullum gangi þessa dagana... við erum svoooo að fara að fá 10!! Eða 11!!
GANGASLAGUR!! Var í dag!! wuhu!! Gleði gleði, Davíð 6-X náði að hringja inn í tíma og töpuðu því yngribekkingar!! Þetta var allbrútal slagur sýndist mér. . ég dáist að þeim stelpum sem tóku þátt – þið eruð hetjur!! Strákarnir líka náttúrulega... en stelpur þið eruð hetjur! Blóðug átök.
Kaffihús og slúður í kvöld......
Helgin verður bara lærdómur og fyllerí.
lAG: Pink - 18 wheeler

miðvikudagur, mars 10, 2004
þriðjudagur, mars 09, 2004
Í dag lærði ég að segja ”bon appetit” o.fl. á táknmáli í vinnunni (norskir málleysingjar). . . ég var ekki að halda nein jól í þessu – þetta er ekkert grín!!
Allt annar handleggur.
Langar þig að læra færeysku??? finnsku? Hefur þig ekki alltaf dreymt um að kunna norsku?? og finnst þér ekki óþæginlegt þegar vinir þínir frá Grænlandi eru að tala við þig og þú skilur ekki neitt???
Lausnin er hér - tungumálanámskeið endilega að skrá sig, nordklubb@norden.is
Lag þriðjudags: The Knack - My Sharona!!!

mánudagur, mars 08, 2004
laugardagur, mars 06, 2004
Fiðluballið var alveg magnað. -> þetta gerir maður sko ekki tvisvar! :)
Við stelpurnar í 6-Y(alveg 7 í 2o..manna bekk) hittumst hjá Dröbbbbbbn þar sem fór fram greiðsla/förðun/fara í kjól; mikill æsingur í fólki. Svo var farið í Iðnó þar sem ballið fór fram, allir voru svo glæsilegir að maður var alveg gáttaður - dansað mikið!!! Tekinn polki, vínarvals, enskur vals, skottís, hringdansar, marsering, tangó, "fyrst á réttunni.." og swing! Allt saman alveg snilld - nema skottís! úff! Í frjálsu dönsunum var myndataka af bekkjunum... við vorum í lengi!!! þar sem enginn gat verið alvarlegur. Að loknu balli voru fæturnir búnir að syngja sitt síðasta og fóru að lifa sjálfstæðu lífi - Hvaða masókisti fann upp háhæla?? - marseringin í kringum tjörnina var þolraun..en það hafðist:)
Eftirminnilegt kvöld í alla staði - myndir af sveiflunni
Á morgun laugardag - tvítugsafmæli í n-ta skipti -> Óli 20 ára!! Partýin þar klikka ALDREI! ;) Ég heyrði orðið FYLLERÍ í H-stofu í dag. . . Hmmmm......
Kvöldið er búið að vera NORSKT á allan hátt.. hitti Synne og fékk 30 Norðmenn niður í Djúp. . . ég er örmagna. .
"I have no legs, I have no legs.."
Lagið: Lisa Loeb & Nine Stories - Stay
Birt af
Drifa
miðvikudagur, mars 03, 2004
Góður dagur? Já..allt eins – segja náttúrulega sumir, aðrir ekki.. það er misvel . .og er það vel.
Já þetta voru gömlu dagarnir:)
Nákvæmlega í dag gerðist ég formlegur meðlimur Norræna félagsins, mjög spennandi.. Fundur í kvöld einhvers konar.
Ég spjallaði við ágæta konu þeirra í meðal.. Hún kvatti mig til þess að fara á finnsku-námskeið 15.mars- 1.apríl - stúdentsprófin í rassgatinu á þessu svo ég sagði já til að segja ekki nei.
Olla og Gummi eru tvítug í dag! Til hamingju með það aftur!
Í tilefni dags: Bo Kaspers – Vi kommer aldrig att dö
(þeir voru einmitt að gefa út nýja plötu...)

þriðjudagur, mars 02, 2004
Klukkan er að ganga þrjú og ég er ennþá ekki búin að jafna mig á gærkvöldinu. . . þessi dansæfing í kvöld verður hrikaleg. – Þunn(og það EKKERT smá)/þreytt í skólanum. . allt út um þúfur!
Óskarsvakan hjá Söndru heppnaðist vel; við héldum okkur NOKKURN VEGINN vakandi allan tímann (Hmm..saga.) Nú það vita allir hvernig fór svo ég ætla ekki að fara að rekja það; go Sean Penn! Núna þarf maður að drífa sig að sjá Lost in Translation, Monster og EKKI Seabiscuit! Hvað er með þá mynd?!!
Árshátíð Hornsins var í gær – gargandi gaman. Fyrst var farið út að borða alveg dýrindis mat á Hótel Holt; lærðum talsverða ítölsku. Gólfið á Holtinu er CURSED bara svona öðrum til viðvörunar; það misstu allir e-ð á gólfið og okkur Kríu tókst að missa veskin einum OF oft; gott Kría vera með 10.000 kall í klinki!
Eftir Holtið var farið á Hornið þar sem DJ Hlynur var með hálfgert uppistand í micro-inn, sem breytti röddinni í e.k. Tweety-óhljóð. You had to be there. . NEMA HVAÐ!! Lottó!..og haldiði ekki! Ég hef ALDREI á ævinni unnið neitt í neinu. . . en hvað? FERÐAVINNINGUR TIL EVRÓPU m/HEIMSFERÐUM! Úff! Núna er gaman að vera til. Mörg lögin tekin og Tanja kenndi mér að opna bjór með kveikjara, núna fullfær í útilegu.
- partýið í DJÚPINU breyttist í HELBER FYLLERÍ (ég ætlaði mér ekki að drekka!) og RUGL! – alveg gaman sko:) þvílíkir snillingar. Myndir af tjúttinu.
Zhivago. . .
Lag gærkvöldsins: U2 - Sunday Bloody Sunday