Að vera túristi í Reykjavík. . .
Frábær sunnudagur í dag. Við Brynja skelltum okkur á Þjóðab.hlöðuna, öflugar. – þar sofnuðum við næstum báðar yfir bókunum, svo við ákváðum að rölta niður í miðbæ.. Plötsligt vorum við að breytast í túrista í eigin borg.
“Vá, sérðu þessa byggingu.. djöfull er þetta hús smekklegt..” o.s.frv. Þetta var upplevelsi. Maður horfir svo oft ekki á byggingar og hús frá toppi til táar, horfir bara á það sem maður sér í sömu hæð og maður sjálfur (og já sjónsviðið ).. og gefur sér ekki tíma til þess að dást að þessu öllu saman..því maður er búinn að “sjá” þetta svo oft.
Til að toppa þetta fórum við að leita að netcafé. .
hvar eru þau?.. Við fórum á falið Tourist Information netcafe rétt hjá Lækjarbrekku, og kíktum á netið til að finna okkur flug og leita að hótelum í
Kaupmannahöfn. . – þetta er bara skemmtun. Fundum hótel sem okkur leist vel á, fór TALSVERÐUR tími í að reikna e-r verð, kíkja á gengið, breyta pundum, dollaranum u.s.w. – Frábært flug, en djöfull bara eitt sæti laust. . alltaf erum við svona heppnar! Erum enn að ákveða annað flug, þetta er mjög spennandi. .
Enduðum góðum degi á Kaffi Vín,
home sweet home, alger Ósigur í Rússa hérna megin.
Pool-keppni í Lágmúlanum á föstud. með Brynju og Magga sem er nýkominn aftur heim – jii, hvað maður er lélegur. .
Afmæli hjá Andra í gær, í boði voru vodka-melónur. Skrítið að sjá alla strákana í einu þarna, saumóstelpur og Brynju P. – eins og ekkert hafi breyst.. Magnað samt hvað allt hefur breyst. . og Andrea er bara að fara að eignast barn eins og við tölum - innilega til hamingju með það.
Fékk líka símtal frá D.R.U.K.K.N.U. fólki í Frakklandi, takk fyrir það og hef ég aldrei heyrt jafngóða útgáfu af “Popplag í G-dúr” :)
´85-vika í MS í næstu viku,
Radio FM 106,0. – strákarnir allir búnir að safna “mottu” til að lita f. ballið. . sigurvegarinn er Baldur.
Þessa dagana er ég ananas djúpt sokkin ofan í
Bráðavaktina (ER), allra fyrstu þættina, fór nóttin í það . .Hver man ekki eftir Clooney, Dr.Green, Dr. Benton, Dr. Lewis, Nurse Hathaway, Jerry, Malik og Carter bara lítill læknanemi. – snilldarþættir, mínus allar þessar blóðsúthellingar. . Maður fær alveg *hroll* þegar Dr. Benton tekur múvið sitt. .
“To call you stupid would be an insult to stupid people!”
Spurning dagsins: Hver segir þetta og í hvaða mynd?
OG. .
* Hér er leikur, sjálf spila ég eiginlega aldrei tölvuleiki.. kann ekkert í þeim en þessi er góð minning..ef þú hefur ekkert að gera.. -
Shanghai - getur gert þig klikkaðan!
* Hér er listi yfir
"lingo-ið" í Bráðavaktinni. . áhugavert.