fimmtudagur, maí 20, 2004


Skunk Anansi
(vil náttúrulega minna á Ace (þessi með dreddana) en we go waaay back. .)

Það fer að styttast all skuggalega í þetta. . . og annað. 4 dagar eftir, 1 próf. . ekki beint auðveldasta prófið en svona er þetta nú samt. . .

Í gær var munnleg íslenska. . það gekk alveg þó að ég hafi fengið stopp á hjartað þegar ég dró miðann.. fékk meðal annars Bragarbót (Matthías Joch.) sem okkur fannst ekki vinsælt; og enn síður voru Passíusálmarnir vinsælir í B-stofu,- ég fékk líka einn slíkann.
Ég hafði líka ákveðið að orð eins og “Heimshryggð” og “hefðbundið ljóð” væru orð dagsins.. en mér tókst ekki að ota þeim inn í A-stofu.

Horfði á eina af mestu snilldarmyndum í gær.. MAVERICK m/þeim Mel Gibson og Jodie Foster en hún leikur einmitt æðislegan karakter.
“How dare you....?” – Annabelle (Jodie Foster)

Gasalega fjölmennur fundur í gær hjá Norræna félaginu. .

Skunk Anansi- Twisted (Everyday hurts)

mánudagur, maí 17, 2004

Í þessu ljóðagrúski fann ég skemmtileg ljóð úr rómantískri ljóðasamkeppni innan bekkjarins – og birti hér ljóð sigurvegara:

Elli krútt
Skólinn er honum óþarfur því hann er í Gettu betur.
Við ættum að drepa hann með sverði réttlætisins.
Aldrei hefur sólin brosað jafn breitt;
hún leit til mín rannsakandi
líkt og blóm sem springur út að vori.
Æi, hvers vegna fór ég og hvert,
handan þessa háu fjalla?
Blandaðu saman fegurð og hatri og þú færð hurð.


Annars skemmti ég mér ágætlega í þessum íslenskulestri; las t.d. allt leikritið Galdra-Loftur og komst svo að því að ég átti ekkert að vera að því. . .

Ljóð dagsins: Jónas Árnason - Um tilgangsleysi

"Ég undrast þá flamingófugla
sem um pólitík þrátta og þrugla;
því að allt hvort sem er
til anskotans fer,"
sagði vitur og víðlesin ugla.

sunnudagur, maí 16, 2004


ævintýri. .
Klukkan 10 mínútur í Eurovision vissum við Tinna og Brynja ekki hvar við vorum staddar í lífinu . .við vorum á e-jum indverskum stað sem ég vissi ekki tilveru á; vissum ekki hvernig við áttum að haga okkur á slíkum stað. Við fórum út þegar enginn sá. Hraðskrefuðum Hverfisgötuna – eins og við höfðum lent á jörðinni í gær. Leituðum hælis hjá Hraðlestinni, en þar var vondur kall, útnjósnari illra afla, sluppum naumlega. Klukkan tvö lög búin hreiðruðum við um okkur á e-ju ”barborði” óvitandi um framhald þessa ævintýris. “Hvar er Tobba!? Ó góði guð hvar er Tobba?”. . gat ég lesið úr augnaráði Tinnu, hún var orðin örvæntingafull. Brynja fékk sér Coke og reyndi að leyna hræðslu sinni. Sjálf var ég ekki í jafnvægi. Allt í einu! heyrist sími hringja. . .hver ætlar að þora að svara? Brynja leit á okkur Tinnu, sem vorum augljóslega ekki að fara að svara. ., svo hún gekk huguð skrefi framar. Hún svaraði: ”Jelló”. . .þögn. . . . . .
Okkur var borgið. Tobba kom á stóra svarta hesti sínum, skeiðandi niður Hverfisgötuna. Sá hinn sami hestur stoppaði seinna alla umferð í skeifunni þar sem hann platseraði sjálfan sig í miðju alls; umferðarteppa. The rest is history... frábært kvöld! Thai matstofa fær plús. Klukkan 9 lög búin vorum við komnar úr allri hættu, við vorum staddar í höll að Hrísateigi. Grikkland hefði átt að vinna, þó að gríski guðinn hafi stolið bol af Tinnu til að vera í; en Pólland var hins vegar mesta snilldin í keppninni!

Ég hélt alltaf að “ég á ekki síma” væru augljós skilaboð; augljós mistök.
Ég sá rosalegt “chickfight” í nótt. . salurinn trylltist og glös brotnuðu þegar þær tóku aðra lotu. Bærinn var pack´in í gær. . og mikil ölvun um alla borg, að sögn lögreglu, en þurfti enga löggu til að segja mér það. Þegar skriðið var heim úr vinnunni kl.7 að morgni var allt morandi ennþá, ”um hábjartan dag” – allt mjög kjánalegt.

Jæja.. íslenska. . 2 próf eftir; mér finnst ég hafa verið í stúdentsprófum alla ævi. E-jir ”djöflar” í hverju horni. . freista mann að gera e-ð annað. Emil er búinn að vera einstaklega erfiður viðureignar í dag. Hnuss.

Miranda: Steve is completely predictable but that's one of the things I love about him. He's just so comfortable and safe.
Carrie: Are you dating a man or a minivan?

The Beatles- Ob-la-di, Ob-la-da

laugardagur, maí 15, 2004

Þetta stefnir allt í rosalegt kvöld/nótt!
Þessarri færslu ætla ég að tileinka Lambhúshettum - bendi á snilldarljóð. Komin síða.. af því að helmingur (betri helmingurinn?;) ) er að fara af landi brott.

Jejús ég hélt að ég myndi aldrei aftur verða hluti af "Skalla-sjoppuhangsi" en við erum guilty as charged...

ÁFRAM ÍSLAND! Við vinnum ! Ég er viss um það! Við vinnum ALLTAF!

Góðar stundir, ávallt.

Lagið: Jónsi - Heaven

föstudagur, maí 14, 2004

Geisp! á allan lærdóm! Ég er í ruglinu núna.. of langt í næsta próf – og þá fer maður bara ekkert að læra. . .ónei. Ég kúgast af tilhugsuninni að þurfa að vaða í þessari stærðfræðisundlaug enn einu sinni!! Had it!
. . .svo ég hef tekið þá ákvörðun að læra ekki í bili – á morgun er eurovision/kveðjupartý hjá Andra followed by laaaaangri Eurovisionnótt á Café Victor; af hverju samþykkti ég að vinna?!

Charlotte: “Those flowers were supposed to say "We're so sorry, we love you," not "You're dead, let's disco"! “

Snillingur allra tíma: Bob Marley- Could you be loved

þriðjudagur, maí 11, 2004


Ég myndi kasta krónu en þeir eru bara þrír. . . 3 próf eftir gott fólk.
Tvinntölur mega fara til anskotans og helst lengra!!
VIN INN, VIT ÚT
Mér finnst þessi dreifisnepill hans Gunna um próflokapartý/afmæli 24. maí alveg æðislegur.. svona ”gamaldags” boðskort með nafni, til fyrirmyndar, það mætti halda að fólk geri HVAÐ SEM er til að sleppa við að læra. . . I know. I do.

“OMG!! We just saw Björk!! OMG ! Can you believe it!??!!”
- Bretar á Hótel Klöpp seint að kveldi

Björk Guð & tríó Guðmundar Ingólfssonar- Litli tónlistarmaðurinn

mánudagur, maí 10, 2004

Jæja. . . 4 próf eftir af 13!!!!
Ég get þetta ekki lengur... nei takk, ekki fyrir mig.

Eurovision á laugardaginn!! Hver á eftir að vinna???
Af því fáa sem ég hef séð (Ísland, Albanía og Svíþjóð) þá er bókað að Svíar hafa þetta!! Heja Lena! Ekki slæmt það, en auðvitað heldur maður með Íslandi!! Heja Jónsi!
Ég er komin í rosalegan evrópufíling. . .

t.A.T.u- Ne ver, ne boisia

sunnudagur, maí 09, 2004


Og róa sig. . .
Ég er bæði búin að spjalla við Louis og Sollu og það er komin SMÁ ró hérna megin...
Bréfberar ..bréfberar! Þær Jóhanna og Sigurrós spurðu hvernig andlega heilsan væri.. bréfberar! Nú er allt í rugli.

Louis Armstrong- Hello Dolly!



laugardagur, maí 08, 2004


Ég er búin að tala frönsku við sjálfa mig í allan dag. . nei, ég kann ekki frönsku.

Ég held að ég hafi labbað allar Hlíðarnar í gær. . þegar ég kom að Skaftahlíð/Lönguhlíð/Neðri-Stigahlíð/Grænuhlíð/Bogahlíð var ég svo gott sem geðveik – ég vissi að löng pósthúsvera mundi segja til sín e-n daginn. . – svo ég skottaðist yfir Miklubraut og kíkti í bíó m/Sögu og Söndru. VAN HELSING. Ég er með mjög margar athugasemdir en ætla ekki að fara með þær.. Tarzanskýlan, klámmyndavampírurnar og kjánalegi búningurinn gerðu þetta alls ekki leiðinlega bíóferð. Það var aldrei ró yfir mér þarna, það kom ALLTAF e-r vampíra á skjáinn, í n-ta mörg atriði og aumingja hendin á Sögu.

Stærðfræði: Blur- Song 2

föstudagur, maí 07, 2004


Bryan Adams

Morguninn fyrir eðlisfræðipróf I rabbaði ég við ónefndan bekkjarfélaga minn. . þessi félagi hafði bókstaflega varla lært NEITT fyrir prófið. .nema e-jar 5 sannanir.
Félagi: “Ég hugsaði bara. .ok það er ekki séns að ég nái að læra 3 eðlisfr.bækur á 2 dögum.. so why bother”
Drífa: “Hvað ertu þá búin að gera síðastl.daga?”
Félagi: “Ég las Harry Potter”
- Já.. hann er hetja!

Tilvalið að fara kannski bara að lesa ”Stríð og frið” núna fyrir stærðfr.prófin..hvernig væri það?

Bryan Adams- Summer of ´69

Sjitt! Hvað ég hlakka til í sumar!

fimmtudagur, maí 06, 2004


Wet wet wet

Ég hjólaði í skólann, meðfram sjónum. Ég var öll rennÍ SJÓ í eðlisfræðiprófinu. . . – það var rokrassgat og ég fékk HEILA ÖLDU yfir mig á leiðinni… og ég er ekki að tala um smá vatnsgusu.. ég er að tala um HUGE WAVE AF SJÓ flaug yfir mig en samt aðallega Á MIG!
Þurfti að vinda úr mér og svo fauk ég af hjólastignum..... góð saga. Já og hefði ég leikið í grínmynd mundi ég hafa mætt með þang á mér og kolkrabba á hausnum. . . en það er önnur saga.

Norræna félagið heldur opið hús laugardaginn 8. maí að Óðinsgötu 7, kl. 14.00-16.00 fyrir áhugasama. . .

Sex and the City í kvöld!!!!!!!!!

6 maí: Wet wet wet- Love is all around me

miðvikudagur, maí 05, 2004

Ef ég fengi að velja mér Groundhog Day þá yrði dagurinn í dag EKKI fyrir valinu!
SLÁTRUN!! plús það læra vonda eðlisfræði, sem er hjá veginum komin á svartalista!!!, í allan dag vitandi þess.. að á morgun endurtekur sig slátrunin!

Þemalag eðlisfræði: Limp bizkit- Break stuff!!!

mánudagur, maí 03, 2004

“Cool it.. lay back in my backyard.. have a banana
- I´m gone, SOLID GONE!”-
Baloo
Jungle Book, teiknimyndin(e.) er óhemju fyndin. . í henni er líka einn besti eltingaleikur kvikmyndasögunnar. . Fílaherinn ”The dawnpatrol!” er snilld!!!

Gróttu-sólarlag í gær. . .kósý; drap nottla aðeins stemningu að fá útskýringu á Gauss-lögmáli í leiðinni, en engu að síður;)
Sáum Ned Kelly – og myndin var svona að semi-virka. . .en ALLT til þess að sleppa frá eðlisfræði, við eðlisfræðin urðum óvinkonur, og hún þarf verulega að fara að hugsa sinn gang ef þetta á að ganga á milli okkar!! Hnuss.

Eurovisionlagið okkar er CATASTROPH!!

Squeeze - Tempted

Og við þetta er að bæta að mér finnst stelpurnar í saumaklúbbnum okkar allar alveg rosalega mannborulegar. :)

laugardagur, maí 01, 2004


Bo Kaspers
Men jag har börjat fundera
det här känns nästan alldeles för bra
Det kommer aldrig fungera
det är så det brukar va

- Hon är så söt

. . . 7 próf eftir. . .
ég held að það sé hægt að búa til myndarlegan regnskóg úr öllum blöðum, bókum og glósum sem eru búin að lýsa yfir sjálfstæði í kjallaranum hjá ömmu.
Í dag er 1. maí og ef ég lít út um gluggann er "Hvítbláinn" þarna stoltur að húni.

. . ég þarf að endurskipuleggja allt; það er komið babb í bátinn . . MENNINGARferðalagið okkar Brynju verður ábyggilega að hausti/vetri til. . . - það er allt komið út um gluggann!

1.maí: Bo Kaspers- Undantag

föstudagur, apríl 30, 2004


Starsailor.
Bót allra meina.
Það er ekki lítið óþægilegt að þurfa að þaga yfir stórrass-leyndarmáli og ekki segja ákveðnu fólki. . . og sérstaklega að ef umræddir aðiljar vissu umrætt leyndarmál, sem ég bjargarlaus veit, mundu þeir einfaldlega fá heilsuspillandi gleðiveiki. . ef slíkt er til. Þetta er svo rosalegt að það hálfa er svo skelfilega rosalegt og hugsanlega mundi það tæplega heila vera alveg óhugsandi. Ég lifi í draumi.
Undirskrift, Drífa.

Söguprófið er history; svaf í 2 tíma . . gekk alveg ágætlega – þessar hjólaferðir eru himnasending. . mæti smá seint í próf vegna DJÚPRA samræðna um styrjaldir Napóleons. . hleyp inn í prófið, fyrsta sem ég sé: Napóleonsstyrjaldir. Takk guð! Óþolandi heppni;)
Annars skrifaði ég líka ævisögu Jóns Arnórs á prófið. . og já Sandra við erum að tala um SKÓSTÆRÐS-mál hérna!:)

þreytt í dag: Starsailor - Poor Misguided Fool

þriðjudagur, apríl 27, 2004


”Þú skalt ekki skæla, segir hann.
Ég er ekkert að skæla, segir hún og heldur áfram að skæla.”

- Laxness (Sjálfstætt fólk)

Hann Jack Johnson er alveg að bjarga mér í þessum lestri. . . but blah blah blah..

Ég var að komast að þeirri niðurstöðu í lífinu, að ég þarf að fara að kaupa lottómiða.

”Hlutir til að gera”- listinn setur eiginlega þau skilyrði.


Sumar:
- Skoða heim Ítalíu m/Brynju
- Londonferðin m/mömmu
- Læra á gítar
- Heimsækja Seb, Sögu og Söndru á Bifró.
- Sjá endinn á Sound of Music
- Road-trip m/lambúshettum, Emil og Ásu
- Lesa margar margar bækur úr bókasafninu hans afa
- Ferðast um Finnland m/Suvi
- Búa til "fullkomna" kokteil-uppskrift
- Klífa Baulu
- Læra Moonwalk
- Læra meira í finnskunni
- Hreddaball

. .. . þetta bara gengr ekki upp. Ég veit það ekki einu sinni..

Mæli með því að kíkja á síðuna hans atla - flokkar starfandi í Svíþjóð (Tannlæknakostnaðurinn er alltof hár - flokkurinn)
Auk þess - Luciano Pavarotti saung í stofunni okkar! Það finnst mér alveg magnað.

Lag í kjallara: Jack Johnson- the horizon has been defeated

mánudagur, apríl 26, 2004

Jújú. . . þetta er það sem tekur við af félagsfræðinni. . . .

Which Band Should You Be In?
by couplandesque
Your Name
Band NameSystem Of A Down
RoleVocalist
TrademarkEmo Poster Child
Love InterestGirl Who Works At Starbucks
Created with the ORIGINAL MemeGen!

laugardagur, apríl 24, 2004

Jæja já. . . engin miskunn; maður er rétt svo að rífa sig upp úr þynnkunni eftir dimissio og þá er bara skellt tveimur stúdentsprófum framan í mann; var að koma úr kvikmyndagerðarprófinu. . – mjög ”heimatilbúið próf”, ekki einu sinni pláss gert til þess að skrifa nafnið sitt á prófið; en þetta gekk bara framar vonum og þakka ég mínum steiktu glósum fyrir það (sem dæmi: drama; allt í fokki reyna samt að kópa, grínmyndir; allt í lagi – klúðra öllu engu að síður). . annað hvert orð í þessum ”glósum” er á slæmri ensku og hitt á enn verri íslensku.

Næst er félagsfræði. . . á ekki bókina.

Dimissio var um daginn. . þetta var einn alveg skemmtilegur dagur. Daginn áður var farið upp í Gerplu að fíflast og sleppa frá sér allri heilbrigðri hegðun. Morgunpartý og farið svo upp í skóla að kveðja kennarana. Við áttum að vera Uma Thurman í Kill Bill. . . alveg einstaklega þæginlegur búningur, og verður að segjast að þessar svokölluðu hárkollur eru mesta snilld sem ég hef augum litið! Enginn með eins klippingu og eftir gámaferðina voru þær úfnari og fyndnari en anskotinn!
Síðan var farið út og suður í lygilega góðu veðri! Lífið gerist ekki betra en að drepast næstum því á e-ri bryggju í Nauthólsvík á góðum degi. Síðan gengum við yfir meirihlutann af Íslandi í takt við Dressman-göngu-lagið; skriðum svo af Grænum Kosti síðustu spölin heim til Hödda. Eftir smá jafning var aftur tekið á í drykkjunni og af myndum að dæma voru alltaf e-r slagsmál, villtur dans, e-r hópknús eða allir í e.k. hrúgu. . . trektin var á sínum stað.
Tjúttaður ”trölladansinn vinsæli” á Felix. . þar til á 21 tíma. Maggi var svo elskulegur að skutla okkur Brynju heim, takk.
Myndir í vitlausri tímaröð.

Lag partý´s: Outkast- Hey ya
. . . . en lög dagsins voru öll lögin á Kill Bill vol.1 disknum (nauðgað hrottalega)

Quote: "Í alvöru. . ég held að ég sé að missa meðvitund"
- Lóa á Kaffitár í morgun, klst fyrir próf.

þriðjudagur, apríl 20, 2004

Síðasti skóladagur. . . . . auðvitað léttir á vissan hátt en voðalega leiðinlegt – þegar fólk fer að gráta í kringum mig þá fer ég yfirleitt í kerfi!. . .
Bekkurinn gerði sér “glaðan dag” og fór út að borða saman í frímó; svo fórum við að syngja við undirleik Ásu upp á sal. . svona píanóspil, og sérstaklega upp á sal er svo fallegt. Myndir e-jar . . salurinn er bara svo fallegur, skemmtileg birta.
Ég vil þakka alveg meiriháttar bekk, 6-Y, fyrir allt! og ég meina ALLT! Alræmdur fyrir sudd og læti, brjálæðingar upp til hópa.

Dimissio á morgun – vá, hvað verður gaman:) í tilefni af því þá verður síðan gul um stundarsakir.
Gerpla í kvöld þar sem bekkurinn ætlar að læra bardagalistir. . sjáum hvernig það fer.. endar í tómu rugli býst ég við.

Lag síðasta skóladags: 6-Y- Valede studia

mánudagur, apríl 19, 2004


"Suckered in. Set up. Pushed around."
- Melvin

Ég var numin á brott af geimverum í gærkvöldi. . og þær létu mig horfa á þessa mynd; ENGA kosta völ . . ég hef ekki enn beðið þess bætur.
Grínlaust þá var þetta svo léleg mynd að það hálfa væri sko skelfilega lélegt. Við Sólveig kúguðumst á köflum, þetta var átakanleg mynd; ég gat þetta ekki lengur þegar Mandy Moore var að hlaupa í "slómósjon" og undir var þetta líka SKELFILEGA vemmilega lag. . . þetta er meira að segja slæm spóla (spóla sem við Katrín myndum svo leigja...)- annars var mjög skemmtilegt að fylgjast með Möggu í salnum... og þetta var bara á heildina litið ágætis skemmtun, að Mandy Moore undanskilinni.

smörja dagsins: Mandy Moore- I wanna be with you

sunnudagur, apríl 18, 2004


Kent
Mér líður í augunum eins og ég hafi vakað í 100 klst eða sofið í 1000 ár. .
- eða slæmt.

Lesa allt mikið. . . í þessum fáránlegu aðstæðum svo andstæðum heilbrigðri skynsemi að það hlýtur að felast e-ð táknrænt…

Næsta próf er íslensk ritgerð (föstud.). . . sem er ekki alveg minn tebolli.


”Ég komst að því að bjórinn kostar 13 kr.!!!
Þá er kippan kannski á 80 kall….
BLEKUÐ á 200 kr.!!!”

-Eyrún að fara til Króatíu

lag sunnudags: Kent- 747

fimmtudagur, apríl 15, 2004


Landið lítur út eins og kona í kjól, hún er að rétta úr hendinni. . . .



Matarboð hjá Hönnu í Finnska sendiráðinu
Kona kemur til dyra: "Ahh!! Moi! Mä ole´ Hanna – Kuka sinä olet?"
Drífa: "Eh...bla.....Moi, minä olen Drífa"
Hanna:" blablabla??...Mitä kuluu?"
Drífa: "eh… Hyvää, kiitos kysymästä, entä sinulle?"
Hanna: "/(&$#..blablabla…$#”&()%: blablabla...."
Drífa hugsar (um hvað er hún að tala???????)
Hanna heldur áfram: "$&U/(%% ...blablabal...&%$#(Ö/&."
Drífa spyr sjálfa sig: (hvað er ég búin að koma mér í núna????)
Hanna: " %$#)/ . .vodka. ."


Það er ekkert verið að draga úr þessari ímynd finnsku þjóðarinnar – ég hélt nú að þetta væru ýkjur í meira lagi…en nei.
Það fyrsta sem þessi elskulega kona fer að bjóða mér er VODKA “og tónik” (ég vil meina að þetta hafi verið vodkinn einn). .juju.. það er nú einu sinni miðvikudagur og klukkan er orðin rúmlega 6...
Annars fengum við frábæran furðulegan finnskan mat og endalaust af rauð/hvítvíni, alveg frábært! En.. ekki þekktust margir þarna en guði sé lof var Birgir, sem er með mér í kvikm.gerð. Við vissum ekki alveg hvernig við áttum að haga okkur. . . Kynntumst stráksa sem hafði verið í Finnlandi (í Nordjobb) – vann í vodkaverksmiðju að líma miða á flöskurnar. . . allt í lagi. Og urðum margs vísari um margt . . Við erum sem sagt 3!!! sem erum að fara. .
Mér leið bara skuggalega ILLA í dag, þetta áfengi fór ekki vel í mig.

Lag : Wilmer X- Perssons gård

þriðjudagur, apríl 13, 2004


Halldór Laxness - eins og blaut tuska framan í fólk!

Guð hjálpi oss. . . Hún Ólína er farin að blogga - hún fær sko feitan sess í safnið; það verður gaman að fylgjast með henni.

ÍSLENSKUPRÓFIÐ ER BÚIÐ!!!!!!!! Alger snilld!! aldrei aftur.

Ég er hrædd um að það séu svo YFIRGNÆFANDI hættulegar líkur á því að við Solla verðum fyrir bíl næsta mánuðinn eða svo.... Maður hjólar bara í sínum heimi.. og á kannski ekkert að fara að laga ljósin hjá Faxaskála??? Á að drepa mann!

Næstu dagar verða alveg æði, ég hlakka bara til.. Klára að lesa Sjálfstætt fólk, lesa Meistarann og Margarítu, BIRTÍNG (ein af uppáhalds bókunum mínum.. síðan ég las hana) og kannski Ríkarður III ef tími er ennþá inni í þessari mynd sem ég var að leggja fyrir... eh..mig. Bókmenntapróf á SUNNUDAGINN!! Er það ekki brot á mannréttindum? Biblíunni jafnvel???

En fyrst!! lesa þetta líka HELJARINNAR slúðurbréf sem ég var að fá í hendurnar.

Svo þetta matarboð á morgun... spes.
Guð, það er skóli á morgun... ég man ekki einu sinni hvernig skólinn lítur út.. páska"fríið" gone with the mótvind.

"Do you want the truth?!!!
- …No, we want another lie....."


Lag í dag : Quarashi - Framogtilbaka

sunnudagur, apríl 11, 2004

GLEÐILEGA PÁSKA ALLIR LANDSMENN!!
Kv. Drífa

Dagens låt: Skunk Anansie - Selling Jesus

laugardagur, apríl 10, 2004


Grímur Thomsen

Ófáar leiðinlegar minningar um kallinn. .
Þökk sé honum þurftum við að læsa okkur inni á klósett í gamla skóla og hafa fataskipti þar hvorki meira né minna en 5 sinnum!!!!
Ég hef aldrei þurft að gera svona marga bindishnúta á svona fáum dögum.
Takk!

Ljóð dagsins: Grímur Thomsen - Á Sprengisandi

föstudagur, apríl 09, 2004

Ég vissi ekki að ég væri í áhættuhópi páskageðveikinnar. . .

Hér eru myndir af vinum mínum; Bóbó, Gulli, Pasta, Andri og Fígaró. Og svo er þetta mynd af páskaliljum.

Lag föstudags:: Halfcocked - Bad reputation

miðvikudagur, apríl 07, 2004


Lífið er svo mikil sápa
- það er hægt að hafa svo gaman af því -
"það eru laus sæti fyrir svona 8 manns í sófunum við hliðina á honum en ég geng samt til hans og sest á lærið á honum !!!!! Ekki spyrja, ég veit ekki af hverju ég gerði þetta og ég veit ekki hvernig ég þorði þessu og þegar ég hugsa um þetta er ég ekkert viss um að þetta hafi verið ég!!!! !"
- snillingur

Ég veit ekki hvað ég gerði / eða EKKI gerði án þín-

það þurfa allir melo drama. Ég hlakka svo til í sumar; svo mikið planað - spurning um . . já við sjáum sko til! Úff hvað það verður gaman! Ég er í það minnsta buin að plana 4 road trip! Spurning um bílpróf? eða bara að hjóla þetta - það væri líka gaman... líma ghettoblasterinn við stýrið.. og on the road again. . . ég var líka að fá nýjan lás á hjólið á mánudaginn.. gerði varúðarráðstafanir; lás með svona tölum..veit ekki hvað það heitir.. allavega EKKI með lykli! ég týni þeim ALLTAF! hef þurft að klippa upp 3 lása..
Hmm... eða húkka bara far... eða nei, slæm reynsla.

dagurinn er búinn að vera alveg út úr kortinu!!!
ég ætla að glugga áfram í Sjálfstætt fólk - allt að gerast skal ég segja þér!

Ég veit ekki af hverju: Village people - YMCA
weird. . . það var verið að bjóða okkur í finnskunámskeiðinu í mat til einhverrar Hönnu í Finnska sendiráðinu þann 14.apríl
- djöfull verður þetta steikt.

þriðjudagur, apríl 06, 2004


Fugees

´Hell no sirree, wrong M.C.
Why should I be a spy, when you spying me, ´


Bestu tónleikar í minni sögu. Ég fæ hroll.

Lag dagsins : Fugees - The Mask

Það er nú ekki hægt að segja mikið spennandi í þessum prófum. . samt geta MINNSTU hlutir lífgað ALL svakalega upp á þessa daga. . . . og gert þá bærilega.

það komu vöfflur á manninn!!
Ég fór í vöffluveislu til Brynju í gær. .

allt önnur tuska
Ég meina hversu slæm getur eilíf þjáning verið? Í alvöru.

mánudagur, apríl 05, 2004


"there goes gravity. . ."
já. . sem sagt ekki að læra. .
Ég hef hugsað í óhófi um það að snákur kæmi og biti mig í fótinn í dag. . mér tókst aftur og aftur að hræða sjálfa mig og ég þorði varla út fyrir dyr. . massíft stór snákur, hlakka ekki til að fara að sofa.

Ég manaði mig þó í að fara upp í TBR með stelpunum að horfa á úrslit Íslandsmeistarmóts í badminton. . Þetta var alveg gaman sko! Ég vil óska Tinnu enn og aftur til hamingju með glæsilegan árangur! Átt allt gott skilið. Fyndið hvað svona ekki-inni-í-badminton-fólk hefur að segja um leikinn. . við Tobba komumst að því að Tinna var rosalega smekkleg og sætust inni á vellinum, það er gaman að horfa á stráka keppa í litlum stuttbuxum og við lærðum næstum því hvenær MÁ klappa í badmintonleik og hvernig maður á að haga sér, enda gott spjall við Tinnu-aðdáendur á fremsta bekk.

Lag augnabliksins: Eminem - 8 mile

laugardagur, apríl 03, 2004


”Nothing but good news today. . Er heimurinn ekki frábær staður að vera á í dag?” – Emil.

Ég fékk nebbi góðar fréttir í dag . . Fékk sumarvinnu (byrja reyndar i ágúst..) á Café Engel í miðborg Helsinki! Á annarri aðalgötunni. . :) :) ég held að ég hafi verið skrýtin í skólanum í dag.

Í kvöld hélt 6-Y upp á byrjun páskafrís – Grillveisla mikil hjá Hödda; sem leystist upp í partý, dans, fíflalæti, slagsmál, söng, drykkju, Nínu (fyrir Kristínu) guð má vita og vafasöm athæfi. . . myndir speak for themselves. . . . já - voða mikið af myndum af sama fólkinu
Farið var niður í fjöru, rigning mikil, á alla vegu

Lag grillveislunnar : Britney Spears - Toxic

Ekkert betra en að eiga vini sem eru til staðar.
Núna er komið páskafrí; allir verða að hætta öllu rugli og fara að læra. .

Memo to myself: sumir eru bara craaazy.

fimmtudagur, apríl 01, 2004


Oh! Pabbi og Atli eru að fara á Mezzoforte-tónleikana! mig langar með!
. . ég held bara mína eigin tónleika í stofunni með dúndrandi Daybreak! Alein í húsinu!
(reyndar óstýrlátir krakkar á leiðinni...)
í húsinu.
þjappari!! Hvar er Þjapparinn í dag??

Lag kvöldsins: Mezzoforte - After Hours

miðvikudagur, mars 31, 2004

Góðir gestir, ég var rétt í þessu að koma úr Borgarleikhúsinu . .
Nemendasýning Jazzballettskóla Báru - HULDUHEIMAR. . Ég fór og sá þær Birnu og Helgu frænku stíga trylltan nornadans; þær voru alveg glæsilegar stelpurnar, ég óska þeim báðum til hamingju aftur;) en svona í alvöru talað ég vissi ekki að það væru til svona margar stelpur bara í heiminum!!! Við hvert nýtt atriði í sýningunni skoppuðu, svifu, trítluðu, læddust, hlupu, valhoppuðu ca 30 stelpur inn á sviðið. . og atriðin voru ekkert fá sko – alveg gáttuð og þetta var víst aðeins 1/3 af skólanum.
Anyway. . frábær sýning. Takk Birna:)

Hver hefði trúað því??? Ekki ég. Í dag var mögulega hugsanlega líklega ábyggilega áreiðanlega og mjög sennilega SÍÐASTA STÆRÐFRÆÐISKYNDIPRÓF í sögu minni í MR. . cause for a celebration! (nema Gylfi taki upp á því að halda próf eftir páska.. þá mæti ég ekki.)

Quote: ”Fokk HJÁLP!” – Ásgerður Fanney
(í miðjum tíma þegar hún heldur að hún hafi gleymt að hringja inn í tíma)
Þetta er ekkert grín. . ég hringdi út – inn –út á föstudaginn síðasta og ég var að fá þvílíkt ábyrgðarfælniskast!! . . . hvernig meikar Hringur þetta?

Lag : BJÖRK - Hunter

þriðjudagur, mars 30, 2004


The Verve - urban hymns
. . . já, þetta er góður dagur fyrir verve.
Stærðfræði - ekki alslæm -

Manni langar helst til þess að leggjast í grasið og horfa á stjörnubjartan himininn. . gleyma öllu og taka á loft. . .
- nema það er ekki hægt. ekkert gras sýnilegt og það er eiginlega ennþá dagur. . .

Í dag fór Einar inn á stelpurnar í 6-Y í íþróttaklefanum (og já! við vorum allar naktar! reyndar ekki.. en við hefðum getað verið það; möguleikarnir eru ekki margir..) - stórskandall; maðurinn er æði.

Uff hvað á að detta í það eftir stúdentsprófin. . ég meina það, þetta verður rosalegt! Tequila-rosalegt?

Lag 30. mars: The Verve - Bitter Sweet Symphony

mánudagur, mars 29, 2004


Sjitt! Týpískt!. . .alveg dæmigert fyrir mig og mína líka. Þegar núna nálgast próf. . þá er hægri höndin á mér í algeru rugli! Það er e-ð mjööög bogið við þetta allt saman. . . Út vorpróf 5.bekkjar fór höndin í mask, líffræðiprófið var listaverk! og höndin fór í e.k.spelku.. eins fór þetta í jólaprófunum núna. . – ok, fínt.. ég er buin að venjast þessu.. – Helduru ekki að höndin taki upp á e-ju öðru – hún er svo sniðug – þessa dagana er hún að dúttla sér VIÐ FROSTMARK!!! Fyrir utan það að vera síköld og blá þá er þessi elska líka við það að verða alveg máttlaus . .þegar verst liggur á. Ég held samt að Birna sé með meiri áhyggjur af þessu en ég sjálf. . .
Alveg æðislegt.

Lag: SELF - Stay home

laugardagur, mars 27, 2004


’what’s the frequency, kenneth? ’. .

Verkbókarföndur. . .Hlusta á eldgamlar kasettur í enn eldra útvarpi. Líma og skreyta
fyrir Egil – fæ eflaust til baka e.k. póstmóderniskt kaffislettugallerí. . .

Road trip á miðvikud. Fórum í Borgarfjörðinn og á Bifrastarslóðir.. Mjög gaman að sjá þetta allt saman aftur (margt breytt) – en skrítið – og hitta fólkið. En áttar sig á því hvað maður hefur eftir.. Góð tónlist og góðir vinir gera eitt gott ferðalag:)
Lag sem kemur mér alltaf til að hugsa um manneskju með mér þykir mjög vænt um:
R.E.M. - Daysleeper

Saumó í gær hjá Tobbu. . fengum að sjá nýja glæsilega húsið í ghettóinu og slideshow frá Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Tælandi. . geðveikar myndir – neinei.. EKKERT öfundsjúkar!

Stefnan tekin á lélega spólu á morgun. . . og á ákveðnum mælikvarða.. HVERSU sorglegt er að vera með skuld á Swimfan????

Quote: ”you have no selfrespect for yourself” – Elli
(sem ég hló að heilt kvöld hjá Dröfn að skrifa Faunu-comment)

þriðjudagur, mars 23, 2004


Norah Jones
teppi og knús.
Áfram veginn. . . the only way is forward;)
Á morgun verður að öllum líkindum kæruleysið tekið, hoppað upp í bíl með kakó í brúsa og ekkert annað.
THE SKY IS THE LIMIT

Í dag er Saga tvítug - til hamingju með það:*
..og í gær var Dröfn tvítug!
Ég er nítján ára.

Lag: Norah Jones - Don´t know why

mánudagur, mars 22, 2004

Já, svona er þetta. .
Ekki varð mikið úr lærdómnum þennan daginn. . frekar en hinn. Aðeins farin að kíkja á goðafræði. . frábært! Svo heppilega vill til að ég held að það sé e-r búinn að stofna e-ð bílskúrsband í bílskúrnum fyrir framan kjallarann sem ég er að læra í. . þungarokk!!!

Skattskýrslan fór aðeins ekki eins og hún átti að fara. . . og eðlisfræðiskýrslan fór á ennþá verri stað. . – við Ása erum núna meistros á bongótrommur!

Við stelpurnar í bekknum fórum mjög skemmtilegt í dag. . við fórum á Grænan Kost – alveg snilld!!

Við Emil fengum okkur kaffi á Brennslunni í kuldanum. . kannski að verði farið e-ð á miðvikud. - hver veit.. enginn.

Lag skattskýrslu: Norah JonesCome away with me

“Broken bottles, broken plates,
Broken switches, broken gates,
Broken dishes, broken parts,
Streets are filled with broken hearts.
Broken words never meant to be spoken,
Everything is broken.

Seem like every time you stop and turn around
Something else just hit the ground”

- Bob Dylan -

sunnudagur, mars 21, 2004


Hornið
Í dag sá ég þrítuga konu í burberry skokk með burberry spöng.. hún sat m/ömmu sinni á sjöunni og var að brotna í þúsund mola... (held ég) og á næsta borði sat Fm-hnakkaliðið eins og það leggur sig. .
Þetta er eitt sem ég elska við að vera þjónn – fá að fylgjast með fólki í örstutta stund, áður en það hverfur aftur – allir þessir karakterar.
Síðasta vinnuhelgi fyrir próf;

LXX. MISSKILINN Bókin um veginn (Lao-Tse)
1. Orð mín eru auðskilin, og auðvelt að framkvæma þau. Og þó getur enginn skilið þau eða framkvæmt.
2. Orð mín eiga sér víðtæka uppsprettu, og verk mín stjórnast af máttugu lögmáli. Menn þekkja mig ekki, af því að þeim er þetta ókunnugt.
3. Fáir þekkja mig, og það er mér til lofs. Því að hinn vitri er fátæklega búinn en ber gimstein í barmi sér.

Ég skoðaði hveri í dag – í Reykjadal – tók sundsprett;)

Lag síðasta vinnudags: Era - Ameno

laugardagur, mars 20, 2004

hAAAAA!! Hvað kom fyrir?. .

Lag: Bob Dylan - Forever young

fimmtudagur, mars 18, 2004


Björk - Debut.

By far besta platan hennar... ekkert annað í græjunum um þessar mundir.

Jæja..það er búinn að vera 17 mars í allan dag.
Viti menn! Ég fór að læra finnsku hjá Norræna félaginu í dag; alveg gaman!! - búin að gleyma því;)
Svo farið á Herranótt - LODD.. ég veit ekki, ég skemmti mér bara mjög vel.. krakkarnir eiga hrós skilið; Einar fór á kostum í þessum buxum!
Við erum að tala um að þurfi að "fínpússa" pool-leiknina hérna megin. . . .

Fallegt lag:: Björk - Venus As A Boy

mánudagur, mars 15, 2004


Love and Basketball

Hvað hef ég séð hana oft? . . baaaah

Hún Sandra er endalaust fyndin. Lag tileinkað.
Lag:
ya´ll gonna make me lose my mind. . . Up in here up in here.

Quote: "Þetta er ekki spurning lengur um að reyna við gestina. . . þetta er spurning um péééning!" - Jakob Reynir

sunnudagur, mars 14, 2004

High school dropout. . . . . . . það hljómar mjööög vel núna!!
Fyrirlestur og próf og almenn hamingja.

Afmæli Ollu og Gumma í gær. Fyrst fyrirpartý hjá Gumma gler og síðan var haldið á Cafe Victor - frítt áfengi. . og ég var EKKERT að standa mig! skamm, það mætti halda að það væri e-r metnaður í gangi hér, ussss!!!
Mikið af fólki, gamalt laugalækjarpakk, ms-ingar og drukkið fótboltafólk . . .og e-ð gamalt fólk sem enginn vildi kannast við.
Tobba komin heim! og flutt.
Núna er fyrsta lambúshettan orðin tvítug - iðrast einskis - og núna erum við hinar bara næstar "í röðinni" hver sem hún nú er og hverju sem verið er að bíða eftir. . .

Á hún sér leyndan, léttan grun:
langur ber vetur margt í skauti,
hvort heldur er á yzta bænum,
ellegar hér á lágum hól.

- Pasternak -

Lag dagsins: Dido - Life for rent

laugardagur, mars 13, 2004

Snilld! Fann þetta hjá Konna. . :)

Your future occupation by meteoric
Your name
Your future occupationPolitician
Yearly income$19,962
Hours per week you work62
EducationHigh school dropout
Created with quill18's MemeGen 3.0!

föstudagur, mars 12, 2004

Tilviljun? Við viljum meina ekki. . . . kíkið annars vegar á þetta
. . . .og hins vegar þetta

What is goin´ on????? annars algerir snillingar hér á ferð!!!

fimmtudagur, mars 11, 2004

Einn dagur eftir af vikunni – þær enda á föstudögum; þá er bara kominn allt annar heimur. Heimur helgarinnar.

Í gær var Stelpukvöld 6-Y!!! (strákum sko ekki boðið, þeir mega fara í sín gufuböð;) ). Hist heima hjá bróður Ásu. . ég ætla einmitt að flytja í þá íbúð þegar ég verð stór.
Þema kvöldsins: GRÆNT og risaeðlur.
Ætluðum að horfa á Jurassis Park en enduðum á að horfa á Amelie -> mæli eindregið með henni.. mjög sæt mynd:) Endurtökum þetta við fyrsta tækifæri.

Eðlisfræðiskýrslugerð okkar Ásu er annars í fullum gangi þessa dagana... við erum svoooo að fara að fá 10!! Eða 11!!

GANGASLAGUR!! Var í dag!! wuhu!! Gleði gleði, Davíð 6-X náði að hringja inn í tíma og töpuðu því yngribekkingar!! Þetta var allbrútal slagur sýndist mér. . ég dáist að þeim stelpum sem tóku þátt – þið eruð hetjur!! Strákarnir líka náttúrulega... en stelpur þið eruð hetjur! Blóðug átök.

Kaffihús og slúður í kvöld......

Helgin verður bara lærdómur og fyllerí.

lAG: Pink - 18 wheeler

miðvikudagur, mars 10, 2004


wasting time. . .
but everybody thinks that everybody knows
about everybody else but nobody knows
anything about themselves
because they´ll all worried about everybody else.

þriðjudagur, mars 09, 2004

Í dag lærði ég að segja ”bon appetit” o.fl. á táknmáli í vinnunni (norskir málleysingjar). . . ég var ekki að halda nein jól í þessu – þetta er ekkert grín!!
Allt annar handleggur.

Langar þig að læra færeysku??? finnsku? Hefur þig ekki alltaf dreymt um að kunna norsku?? og finnst þér ekki óþæginlegt þegar vinir þínir frá Grænlandi eru að tala við þig og þú skilur ekki neitt???
Lausnin er hér - tungumálanámskeið endilega að skrá sig, nordklubb@norden.is

Lag þriðjudags:
The Knack - My Sharona!!!

mánudagur, mars 08, 2004


Ég er svoooooo þreytt. . .
- ég er sko með annað augað opið. . nei bíddu, nú er allt svart - Lykilorðið er þreytt.

Lagið: Roxette - sleeping in my car

laugardagur, mars 06, 2004


Fiðluballið var alveg magnað. -> þetta gerir maður sko ekki tvisvar! :)

Við stelpurnar í 6-Y(alveg 7 í 2o..manna bekk) hittumst hjá Dröbbbbbbn þar sem fór fram greiðsla/förðun/fara í kjól; mikill æsingur í fólki. Svo var farið í Iðnó þar sem ballið fór fram, allir voru svo glæsilegir að maður var alveg gáttaður - dansað mikið!!! Tekinn polki, vínarvals, enskur vals, skottís, hringdansar, marsering, tangó, "fyrst á réttunni.." og swing! Allt saman alveg snilld - nema skottís! úff! Í frjálsu dönsunum var myndataka af bekkjunum... við vorum í lengi!!! þar sem enginn gat verið alvarlegur. Að loknu balli voru fæturnir búnir að syngja sitt síðasta og fóru að lifa sjálfstæðu lífi - Hvaða masókisti fann upp háhæla?? - marseringin í kringum tjörnina var þolraun..en það hafðist:)
Eftirminnilegt kvöld í alla staði - myndir af sveiflunni

Á morgun laugardag - tvítugsafmæli í n-ta skipti -> Óli 20 ára!! Partýin þar klikka ALDREI! ;) Ég heyrði orðið FYLLERÍ í H-stofu í dag. . . Hmmmm......

Kvöldið er búið að vera NORSKT á allan hátt.. hitti Synne og fékk 30 Norðmenn niður í Djúp. . . ég er örmagna. .
"I have no legs, I have no legs.."

Lagið: Lisa Loeb & Nine Stories - Stay

miðvikudagur, mars 03, 2004

Góður dagur? Já..allt eins – segja náttúrulega sumir, aðrir ekki.. það er misvel . .og er það vel.

Já þetta voru gömlu dagarnir:)

Nákvæmlega í dag gerðist ég formlegur meðlimur Norræna félagsins, mjög spennandi.. Fundur í kvöld einhvers konar.
Ég spjallaði við ágæta konu þeirra í meðal.. Hún kvatti mig til þess að fara á finnsku-námskeið 15.mars- 1.apríl - stúdentsprófin í rassgatinu á þessu svo ég sagði til að segja ekki nei.

Olla og Gummi eru tvítug í dag! Til hamingju með það aftur!

Í tilefni dags: Bo Kaspers Vi kommer aldrig att dö
(þeir voru einmitt að gefa út nýja plötu...)

þriðjudagur, mars 02, 2004

Klukkan er að ganga þrjú og ég er ennþá ekki búin að jafna mig á gærkvöldinu. . . þessi dansæfing í kvöld verður hrikaleg. – Þunn(og það EKKERT smá)/þreytt í skólanum. . allt út um þúfur!

Óskarsvakan hjá Söndru heppnaðist vel; við héldum okkur NOKKURN VEGINN vakandi allan tímann (Hmm..saga.) Nú það vita allir hvernig fór svo ég ætla ekki að fara að rekja það; go Sean Penn! Núna þarf maður að drífa sig að sjá Lost in Translation, Monster og EKKI Seabiscuit! Hvað er með þá mynd?!!

Árshátíð Hornsins var í gær – gargandi gaman. Fyrst var farið út að borða alveg dýrindis mat á Hótel Holt; lærðum talsverða ítölsku. Gólfið á Holtinu er CURSED bara svona öðrum til viðvörunar; það misstu allir e-ð á gólfið og okkur Kríu tókst að missa veskin einum OF oft; gott Kría vera með 10.000 kall í klinki!
Eftir Holtið var farið á Hornið þar sem DJ Hlynur var með hálfgert uppistand í micro-inn, sem breytti röddinni í e.k. Tweety-óhljóð. You had to be there. . NEMA HVAÐ!! Lottó!..og haldiði ekki! Ég hef ALDREI á ævinni unnið neitt í neinu. . . en hvað? FERÐAVINNINGUR TIL EVRÓPU m/HEIMSFERÐUM! Úff! Núna er gaman að vera til. Mörg lögin tekin og Tanja kenndi mér að opna bjór með kveikjara, núna fullfær í útilegu.
- partýið í DJÚPINU breyttist í HELBER FYLLERÍ (ég ætlaði mér ekki að drekka!) og RUGL! – alveg gaman sko:) þvílíkir snillingar. Myndir af tjúttinu.

Zhivago. . .

Lag gærkvöldsins: U2 - Sunday Bloody Sunday

sunnudagur, febrúar 29, 2004


Ladies and Gents . …….It´s OSCARNIGHT!

Já gott fólk, gríðarleg stemning hér.. Óskarsvaka hjá Söndru í nótt. . Íslandsklukkupróf í fyrramálið.

Á föstud. var Esjan klifin í fyrsta sinn..útsýnið var ekkert útsýni, einungis þoka... ég er nú komin í hóp Íslendinga.

....Hins vegar varð afturhvarf til Svía ekki seinna en næsta kvöld. Æskuvinur minn Sigurþór varð tvítugur í Garðabænum. . Þangað fórum við Magga og Eyrún, einnig sænsk æskuvinkona, og var gaman að sjá fólkið aftur. – til mikillar gleði okkar Eyrúnar var frítt áfengi, líst vel á þig Sigurþór. Þar hittum við gamalt Krítarandlit, Inda. Gaman.

Fyrr um kvöldið höfðum við Unnur, Katrín og Magga gert okkur góða ferð á Ítalíu.

. . . álpaðist ég yfir götuna og í ógöngur í Garðbænum, get ég þakkað íbúum Ásbúðar 44 fyrir að vera enn á lífi. Skammt frá var tvítugsgleði hjá Guðrúnu. . Mr-ingar höfðu sig nokkuð hæga hliðiná fótboltaliðinu. Sumir vildu þó koma beru holdi á framfæri og enn aðrir heimtuðu að fá að syngja í sturtunni. . . don´t ask.
Þaðan var haldið á SHOCKWAVE og hef ég ekki séð aðra eins biðröð. . við erum svo illa innrætt að við svindluðum okkur inn annars staðar en aftast í röðinni. Stemningin var okkur ekki alveg að skapi.. en fékk ég samt ghettokveðju"Jó whass up babe!" frá gömlum kunningja, svo takmarki kvöldsins var náð, og var þetta allt ágætt.
Ég var ansi lélegur ljósmyndari þetta kvöldið..en hér eru einhverjar.

Fiðluball í næstu viku. .

fimmtudagur, febrúar 26, 2004


Carrie: I don't believe in email. I'm an old-fashioned girl. I prefer calling and hanging up.

Stanford: Oh God! She's fashion roadkill!

Carrie: The only thing I've ever successfully made in the kitchen is a mess. And several small fires.

Carrie: I will literally be the old woman who lived in her shoes.

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

SHOCKWAVE!!! ! ! ! ! (bergmááááálll......) ! ! !
(þetta er ..ekki.. auglýsing)
SHOCKWAVE á laugard. 28 feb!!!!! Þetta verður sérstakt - en eflaust TAUMLAUS gleði! ;)

Voða spes dagur. . fann síma úti á götu.. fyrst brjáluð að sitja uppi með símann því "heima"-númerið gaf í skyn að eigandi byggi á Ísafirði!! og enginn svaraði..aldrei! og ENGINN var heima í húsunum rétt hjá..FRÁBÆRT! mig langaði helst til að láta símann á nákvæmlega sama stað og ég fann hann - svo fannst eigandi og ég ÞURFTI! að þiggja 1000 kr. í fundarlaun og þá fékk ég samvizkubit anskotans!

Já, pottablómið er ENNÞÁ á lífi. . það hefur enginn trú á mér!

Ég þarf bráðum að segja upp á Horninu. . stúdentsprófin eru bara á morgun.

Kaffi Vín í gær, elskulegi maðurinn minn gaf mér konudagsgjöf; ég gat ekki annað en hætt við að skilja við greyið . . hamingjusamlega gift.
24 feb: Lauryn Hill - Adam lives in theory

mánudagur, febrúar 23, 2004

Jæja. .
Merkisatburður í mínu lífi. . eignaðist mitt fyrsta pottablóm! svo stolt að hafa loksins tekið þetta skref. . þetta er sem sagt "Bergpálmi" . . ég á ennþá eftir að skíra blómið..svo hugmyndir eru vel þegnar.
ég er samt að fá smá ábyrgðarfælniskast.

Við Atli fórum á Cold Mountain í gær - stórgóð mynd, óhætt að mæla með henni! Reyna að sjá sem flestar myndir tilnefndar sem besta myndin "before the big night" sunnudag-mánudag. .

Nauðguð plata hérna megin! (sum ykkar vita það! ;) ) náið ykkur í eintak


Lag dagsins: Lauryn Hill - Just like water

sunnudagur, febrúar 22, 2004

Myndir úr afmæli Dóru 6-Y . .
- grænn
- ég var edrú krakkinn (ekki sá eini samt)
- aðrir drukku epli, drukku sig græna og sprengdu upp epli (4real)
- við vorum stödd útí rassgati!

Lag kvöldsins: No doubt - Don´t speak

laugardagur, febrúar 21, 2004

Þetta er mjög fyndið

Rétt upp hendi sem er EKKI veikur!!!

. . .en gaman að vera að þjóna í STEGGJApartýi á föstud.kvöldi í þessu ástandi. . "eru þið ekki með e-ja svona uppákomu?".. jú, ég skal bara fara úr að ofan og taka lagið á barborðinu! Hvernig væri það! Í staðinn lét ég stegginn staupa tequila sem hann sagðist vera með "ofnæmi"fyrir....og var hann orðinn ískyggilegur þegar leið á kvöldið...ég var fegin að fá að komast heim.

Dóra á afmæli í dag; til hamingju með það!

"I am disinclined to acquiesce to
your request.
. . . . .Means ´No´ "


Lag: Garbage - When I grow up

fimmtudagur, febrúar 19, 2004

Það væri frekar skynsamlegt að fara að læra jarðfræði í dag. Skynsamlegt.
Nema hvað?!?! Minna má nú vera!
Ég mæli m/þessari síðu - handrit að MJÖG mörgum myndum; gaman að lesa
Script-o-rama

Ég var að lesa ýmislegt sem ég skrifaði á bók í 4.bekk - ég held að ég hafi ekki verið með öllu mjalla.

Styttist í stúdentspróf. .ég mun fá hjartaáfall og taugaáfall og allt í senn. - en ég held að ég hafi verið meira kvíðin fyrir samr.prófin í 10.bekk?

Fyrsta lag dagsins gefur tóninn fyrir daginn. . . . ”Volare” með: Gipsy Kings
Ég veit ekki alveg með það.

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

TÍMINN BARA LÍÐUR. . .

Miss Match (Sundur og saman): Kate Fox starfar á lögfræðistofu föður síns en hjónaskilnaðir eru hennar sérgrein. Aðalhlutverk leika Alicia Silverstone og Ryan O´Neal (who?)
(1:17)
- spurning um að kíkja á þetta! Ég var búin að gleyma tilvist Aliciu. .

Jude Law er vilji fólksins, Robbir Williams??annar.. persónulega vil ég sjá Hugh Jackman, hann er þriðji inn á lista. 33 greidd atkvæði (hvaða fólk er þetta?)

Jarðfr.próf á föstud. - vinna um helgina - tvítugsafmæli á laugard.

Loadin´cannons, mate!


Lag þessa dags: Bo Kaspers - Ingenting alls

þriðjudagur, febrúar 17, 2004


Blah! Takið með ykkur bangsa, teppi (sem þið þekkið vel) og soundproof-eyrnaskjól.
....og gerið ykkur ekki ferð í Öskjuhlíðina eftir myndina. Augljós mistök.

Mikið að gera. . .

Lag: Flaming Lips - Yoshimi Battles the Pink Robots pt.1

sunnudagur, febrúar 15, 2004

Another glorious day!
. . svona dagar eru alveg dýrlegir! Vakna eiturhress! Vikuskammtur af Nágrönnum, og lesa svo í kyrrðinni hjá ömmu klst saman.. innifalið jurtate og símablaður. Ég má varla við því að sleppa bókinni, virkilega vel skrifuð – persónusköpunin (Júrí Andrejevits. Nikolaj, Lara Fjodorofna, Misja, Níka, Pasja o.fl.) og frásagnaraðferðin alveg til undrunar hjá mér, ég vildi eiginlega að ég yrði veik á morgun. . en hef ekki efni á því mætingarlega séð.

Dyngdi snjó og freri
Fyrr en varði.
Kerti brann á borði,
Brann kerti.

- Boris Pasternak -

Saumó. .
Af hverju notar maður ekki regnhlíf?
. . ég held að ég hafi aldrei séð Íslending með regnhlíf. . nema e-t á 17. júní.. Er það af því að það er hvort eð alltaf rigning?
- fólk í útlandinu tekur meira að segja regnhlíf m/á djammið.. já satt, geyma þær í fatahenginu.
Mér dytti ALDREI í hug að fara út og "Ah..best að taka regnhlíf!"
Segja sumir - aðrir ekki....

Travis - Why does it always rain on me?

laugardagur, febrúar 14, 2004


Í gær fékk ég fallegasta Valentínusarkort sem ég hef fengið (úr ÖLLUM bréfastaflanum! ;) ), ég táraðist

Árshátíðarfrí!!! Alltaf vel þegið. .
Myndir úr árshátíðarpartýi speak for themselves. . . snilld!

Vinna aftur í kvöld, svo kannski Viktor m/krökkunum - en samt búin að skrúfa niður djammstuðið þessa helgi. .
Mig langar nú frekar í bíó, sjá þessa Gothika.. verður að bíða betri tíma

Saumó á morgun hjá Ollu - spennó:)

Lag dagsins í dag: U2 - I will follow

miðvikudagur, febrúar 11, 2004

- ”ÁFRAM GENGU ÞAU og sungu Eilífan frið, og í hvert skipti sem þau þögnuðu, var eins og fótatak þeirra, stormhviðurnar og hófar hestanna héldu söngnum áfram. . ”

ef e-r heillaðist af þessu. . þá eru þetta fyrstu þrjár línur Sívagó læknis, en ég þarf einmitt að fara að grúska í þeim fyrirlestri, og tel ég fyrsta skref vera að byrja á bókinni.

Árshátíð Framtíðarinnar á morgun. . morgunpartý hér. . ætli ég verði ekki að baka e-ð - Hjálp! Ég er ekki þessi bakari sem þið haldið að ég sé


(lengi lifi)
Lagið: Roxette - How do you do?

þriðjudagur, febrúar 10, 2004

Hvernig var dagurinn?
. . tjah! bara ágætur takk fyrir.. fór í skólann (en fór ekki á skíði), las smá í sögubókinni (en fór ekki á skíði).. svo fór ég í vinnuna (í strætó.. en ekki á skíðum)... þetta venjulega. Fór ”næstum” að reykja pizza-oregano með Múmma, en við létum okkur seinna nægja að sniffa línu.. good shit.
Kynntist æðislegum Breta, Thomas. Ég dýrka útlendinga sem eru allir í “Icelandic beer? DO YOU HAVE ICELANDIC BEER??”.. og fær sér svo góðan fisk með Gullinu.. Við náðum að tapa okkur yfir landakorti og ég var nottla svona allt í einu orðinn sérfræðingur í íslenskri landa- og jarðfræði. . – og úsaði alveg af þekkingu á Snæfellsnesinu góða, takk Saga og Gulli.


Lag þessa dags: Wyclef Jean feat. Sharissa Take Me As I Am

mánudagur, febrúar 09, 2004

Volkswagen. Heim komið. .
Jih hvað var gaman!
Selva Val Gardena - Alveg æðislegt. . . mig langar aftur strax í dag. . ég bara nenni ekki að hanga í bíl.
Mikið er hægt að segja frá en ég bara nenni því varla. . Vaknað snemma alla daga, komin á skíðin (old school sko, beygja ekki sjálf) um hálf níu, endalausar brekkur!! Fyrsti bjór fyrir hádegi.. skíðað meira, í u.þ.b. 1000-2778 m hæð – háfjallaveiki smá. Ótrúleg náttúrufegurðin þarna.. ég væri alveg til í að setjast þarna að.
Hittum margan Íslendinginn, fórum með þeim m.a. hina margfrægu Sellarondu, til St. Christinu, Ortisei, Corvara, La Villa, upp á tindinn (þar sem var barist í WW1) – góður hópur af fólki. Eftir skíðalætin var farið í APRES SKI. . helsta gamanið á Luisl keller.. en það er einmitt mesti snilldarbar til!! Elska þennan bar, ætla að giftast honum. Núna var maður bara fullur um miðjan dag. Gott mál.
Þarna ríkir gífurleg TYROLA-stemning. . búningar, bjór, jóðl, Anton, bjálkakofar (nb.með reyk úr strompi). Sáum mjög athyglisvert dansatriði..eða e-ð.. eiginlega bara stelpur í mini-tyrol-outfitti að stampa í gólf og slá í rassinn á þeirri næstu. Síðasta daginn tóku Íslendingar eftir-skíðið föstum tökum og slepptu sér á Hotel Laurin, þar mátti sjá miðaldra fólk í villtri sveiflu á skíðaklossunum og öllum pakkanum! Djammið hélt svo áfram á Luisl Keller. . . volkswagen. Fékk bæði símanúmer og e-mail hjá plötusnúðnum Rennes, en við vorum einmitt orðnir “eins og þetta” alla vikuna . . Hann er gogo-dansari og sýndi mér of margar myndir af sjálfum sér í sundskýlu. Mikil traffík á flugvellinum heim, seinkun og svo aftur seinkun vegna þess að e-r fann bensínlykt. . þá þurfti flugstjóri að skrifa undir pappíra í tímana tvo, en þetta var e-ð allt annað. Myndir í þar til gerðum dálk.

Núna er mikið að læra og ég fór undir teppi að horfa á Pirates of the Caribbean m/Brynju og Somma því hér er kalt. “They are really more like guidelines. .”

föstudagur, janúar 30, 2004

Ég held að ég muni fótbrjóta mig úti. Kappið í pabba og mér er of mikið þegar kemur að bruni;) Ekkert "safety first"- kjaftæði
En ég er allavega bráðum farin. . – sjáum til hvort ég komi aftur.. skíði, afterski, snjór, Ítalir og heitt kakó hljómar vel í mínum eyrum.

”spurt og svarað”- fyrirlesturinn hjá Hilmari Odds var bara stórskemmtilegur og kom á óvart. Missti þarna aðeins einbeitingu í lokin . .takk bjarney.

Þið getið bara dundað ykkur á meðan.. púzzlað til dæmis… en já, ég mæli líka endilega með því að þið takið þátt í ”Frúin í Hamborg” á þessari síðu, þetta er bróðir minn fyrir þá sem ekki vita.

Ciao prisipjessa!
giorgio.

One for the road. .


Manu Chao - Clandestino

fimmtudagur, janúar 29, 2004

Gasaleg stemning hér á ferð, enda töluverð eiturlyfjaneysla í gangi.
Lifði af 2xstærðfræði í dag, lærði meira að segja heima.. tókuði eftir því?!
Fékk líka einkar skemmtilegt bréf frá Suvi, virðist vera í sama tjóninu og ég. Djöfull sakna ég hennar.

Fórum á Kaldaljós í gærkvöld, alveg ágætis mynd bara.. strákurinn áslákur er algjör mús. Soldið þung mynd en alveg ágæt! Það verður mjög gaman að heyra í leikstjóranum á morgun.

Búið að ákveða dimissio-búning í bekknum. Þetta verður snilld!
Frikki er kominn í nýja skó.

Hvernig munduði segja "ég er með #lag# á heilanum" á ensku? Sigríður Arnbj. gat ekki einu sinni hjálpað mér...



Lag sem Suvi var að minna mig á.
The Beatles - Hey Jude

þriðjudagur, janúar 27, 2004



Ensímikafbátamúsík...
- drullugóð tónlist! Minnir mig samt svo mikið á stærðfr.próf í 3.bekk.. hlustaði STRAIGHT heila helgi. Allur diskurinn er bara snilld, sérstaklega góð þó arpeggiator, atari, kælibox og flotkví.

En já... við pabbi vorum að ljúka við að horfa á finnsku myndina Mies vailla menneisyyttä eða the man without a past.. eftir Aki Kaurismäki, einn helsti leikstjóri Finna... fantagóð mynd! Mæli með henni.

Eiginlega ekkert að gera í skólanum í dag.. sem byrjaði einmitt á þreföldu gati. Það fer að styttast svo í árshátíð.. og var mér falið það hlutverk að halda morgunpartý. Mér skilst að bekkurinn ætli svo út að borða á Pottinum og Pönnunni. Fast á eftir því á Konni afmæli og verður heljarinnar fagnaður hjá honum.

Styttist enn meira í skíðin.. spurning um að fara að pakka. Ef ég sá rétt í dag þá ætlar parentið að taka með svona labbrabb - tæki . . Fjölskyldan þarf að fara að finna e-r dulnöfn..

Á morgun fer kvikmyndagerð á Kaldaljós og röbbum svo við Hilmar Odds á fimmtud. Jarðfræðigreinsúrdráttur okkar Birnu er líka allur að gerast.. ætlum að reyna að krydda e-ð upp á þetta.

mánudagur, janúar 26, 2004

I am impressed. . . sænska vinkona mín sem við Brynja heimsóttum fyrir stuttu var að skrifa mér bréf þar sem hún segir meðal annars að hún sé byrjuð að læra íslensku á e-ju námskeiði í háskólanum.

Það er svona þegar maður kann ekki japönsku. . "votta shiva ne co desh!"
.. við verðum að finna e-ð annað til að segja, við yrðum settar e-rt inn.. læst og lyklinum fleygt!

Mona Lisa smile er ágætis skemmtun, takk guð fyrir breytta tíma.

sunnudagur, janúar 25, 2004

Juanes er góður.
...en um steikta drauma þá dreymdi mig að ég og Þórunn Helga værum að leika í auglýsingu sem Roman Polanski var að leikstýra.. við Þórunn áttum að ýta e-jum bíl eftir strandlengju, mjög óljóst, en svo fór draumurinn bara í það að Polanski (var allt í einu rússneskur) var að reyna að skrifa niður kennitöluna mína á rússnesku.. og það tók öld!

nú. Við Sandra og Saga fórum að dansa á föstud., voðalega spes kvöld en klikk gaman! Byrjuðum á Felix.. dansaður trylltur, við Saga fórum að efast um samband Söndru við vegg.. Stjáni bifró djoinaði okkur og kom okkur á sporið með ákveðnum danssporum.. hittum gaur sem kom með ákveðna nýjung í dansinn.. (svona "you had to be there") en allt kvöldið var eiginlega "you had to be there" því að næst fórum við á Glaumbar.. sem heitir nú með réttu "Glyðrubar!"
... strax tekið stæði á dansgólfi fyrir það sem framundan var. Góð tónlist, trylltir dansarar hvert sem augað leit. Sumir kannski AÐEINS trylltari en aðrir.. Stelpurnar þarna eru bara nöttkeis.. uppi á borðum með vinkonum sínum, g-strengur bara hérna! og einkadansarnir þarna voru ekkert einka! heldur bara out there. Við reyndum að láta þetta framhjá okkur fara ..en það var erfitt! Hámarkið hjá mér held ég að hafi verið þegar e-r gaur reyndi að taka mig úr buxunum á miðju dansgólfi. Já eða svarti "fána-gaurinn"... hver man ekki eftir honum? Ég átti erfitt með að halda niðri í mér hlátrinum þegar STÓR gaur kom dansandi á milli sögu og söndru.. en hann var það sem maður kallar klístraður dansari! Kristín Rós tennisgella var þarna líka mætt. Ég fékk þann "heiður" að Oroblu-strákurinn lét hendi mína á rassinn sinn. Staðurinn var sem sagt pakkaður af slaurum og glellum.. en þetta var tryllt kvöld! Stuðið var gífurlegt, dansað til klukkan 6 að morgni.


Í kvöld er Golden Globe.. maður horfir nú allavega á "the red carpet" ef ekki bara allt saman ;)
Gaman.

Lag 25 janúar: Whitney Houston - My love

laugardagur, janúar 24, 2004



JUANES – undíanormal.. hann er í græjunum núna... við megum sjá á þessum skýringarmyndum sem fylgja færslu þessarri....já takk, með smelli eins og A dios le pido, La paga, Es por ti, La noche o.fl.


. .Por los hijos de mis hilos y los hijos de tus hijos a
Dios le pido. .

Ég veit ekki hvað ég var að skrifa.

Nýr pizzabakari á Horninu! Hann heitir Vesblabla… köllum hann Wes, en hann er frá Írak!! Soldið kvennagull;)
. . hittum hann aftur á morgun. En í dag var bóndadagur, og ekki vissi ég að það væri merkilegur dagur, en Hornið var pakkin´!!!

Núna er það bærinn - Felix

Já..comment frá Gylfa að þessu sinni; ”Mun betra en oft áður!”.. thank you:) en ég er einmitt að fara að læra m/Brynju á morgun; rosalega miklir námshestar, hnegg

fimmtudagur, janúar 22, 2004

9 dagar í Ítalíu elskan!

Kláraði loks þetta handrit eftir mikið basl og kaffi. - fór svo í stærðfræðipróf hjá Gylfa.. ekki sama slátrunin og venjulega...ég er ekki frá því að mér hafi bara sjaldan gengið jafn vel á ólesnu stærðfr.prófi í 6 bekk.. maður ætti bara að hætta að sofa yfir höfuð!

FACE OFF - videokvöld hjá Sögu í gærkvöldi eftir vafasöm skilaboð/eða? ég var nebbla sofandi í gær
- ég ákvað að það væri best að fara í Breiðholtið í ullarsokkum.

Hvað stendur til boða í kvöld.. annað hvort að horfa á Bruce almighty m/ásrúnu, eða fara hvert?
Á Glaumbar! E-ð lið á leiðinni þangað... Skímóstrákar á kassagítar og bjórtilboð á barnum. - ætli maður láti platast?

þriðjudagur, janúar 20, 2004

Katsumoto! Míta saki! Higo, Sake!
The Last Samurai í gær... mjög góð mynd og við erum sammála þeim gaurum að Katsumoto er FLAUR!
Dillon er bara kominn í álit hjá mér. . barinn sko, ekki fólkið á honum.. nokkrum myndum af þeim stelpum hent inn í "ýmislegt".

The Smiths/Ella/t.A.T.u. - lagið "How soon is now?"
Þetta lag er bara EINN STÓR MISSKILNINGUR! (allavega með t.A.T.u.) Ekki að dansa.
á að vera..
"I am the son
I am the heir
Of a shyness that is criminally vulgar"


- sungið...
"I am the sun
in the....air!!!
All the shadows that. ."


og...
"I go about things the wrong way?"
sungið...
"I go around the drinks and run away!"

mánudagur, janúar 19, 2004

Þetta er allt að róast. .
Ég er komin í Matt Damon&Ben Affleck inniskóna mína og er að skrifa stuttmyndahandrit byggt á ensku smásögunni "The Luncheon". . eða "Hádegisverðurinn".
Í kvöld verður svo farið á The Last Samurai m/Tom Cruise...
Já honum er boðið með.

Ég var að líta aðeins á bókasafnið sem ég er að fara að demba mér í á næstu vikum.. Íslandsklukkuna, Sjálfstætt fólk, Meistarinn og Margaríta OG svo var ég að velja mér kjörbók heima hjá ömmu, en hún á einmitt athyglisverðar bækur sem hægt er að glugga í..



Ég ákvað að velja Sívagó lækni eftir Boris Pasternak, ég var mjög hrifin af þáttunum um hann Júrí.

laugardagur, janúar 17, 2004



Í mínum heimi er gamla kasettan (snældan) málið. . – við Brynja erum með ágætt kasettuflóð heima, lög tekin upp frá svona ´94 - ´01. . aðallega úr útvarpinu. KLASSÍSK lög!! ÓGLEYMANLEG! Núna eru geisladiskar í öllum stærðum og gerðum búnir að skyggja allverulega á kasettuna. Hún er búin að safna ryki of lengi. . . It´s a comeback!
Lag færslunnar: Nasaffirmative action

og eitt fyrir Atla... Will Smith - Freak this!

föstudagur, janúar 16, 2004

“Á hafinu allt er í öldum
og þar indjánar búa í tjöldum.
Og kýr segja ”me”
Og klifra upp í tré.
Ég veit ekki af hverskonar völdum.”


Já, freeekar þunnur skóladagur. . og fr10*(e)kar skrítið kvöld, en engu að síður mjög skemmtilegt. Planið breyttist og við Bjössi byrjuðum að elda kl.5 handa Birnu og Kjarra. Jamie hjálpaði okkur aðeins, en viljum við meina að við erum snilllldarkokkar! Hoppuðum út í Melabúð og hófumst handa. Elduðum æðisgenginn ”Penne Carbonara” . (m/gnocchi), salat, hvítlauksbrauð og hvítvín (sem var reyndar frekar vont..) Allt átti að vera fullkomið svo við keyptum líka kerti. Má sjá myndir hér af þessu öllu saman. Við horfðum svo á SNILLDAR myndina Zoolander. Tóti bættist í hópinn og breyttist þetta í fyllerí. Seinna komu líka Laufey og Erna. Aðal trendið þetta kvöld var e-ð ”Frank the Tank” (úr Old school, sem ég hef nú ekki séð) en það fól í sér að sleikja næstu manneskju á meðan hinir kölluðu ”Frank the Tank”. . frekar ógeðslegt, . . aumingja Saga vissi ekkert hvað var í gangi þegar Bjössi og Kjarri réðust á hana á Felix, en þar vorum við allt í einu stödd. Bjórkvöld MR/MH. Ég tók að mér vinnu í fatahenginu og kynntist þar ágætan fjölda 4.bekkingja, á meðan hinir tóku að sér að ”Frank the Tank-a” fjöldann. . dansað eins og galið þar til partýið var búið. Fólk mátti varla líta upp í skólanum án þess að næstum því æla. Gott kvöld hjá ”sundklúbbnum”.
Lag kvöldsins: Manu Chao – Bongo bong

Vinna í kvöld og á morgun, ekki alveg upplögð í það. Við ætluðum kannski á skíði á laugard. því að á sunnud. á að vera ”hláka” en það er einmitt uppáhalds orðið mitt þessa dagana. Efast mjög um opnun skíðasvæða.

Dröfn hélt fund í samb.við Dimissio og búningaval. Eftir miklar vangaveltur, misgóðar hugmyndir, o.fl. eru 5 hugmyndir í gangi og verður bráðlega atkvæðagreiðsla, spennó.
Fiðluballsumstang er líka komið í gang; góð Dröfn.



"But they won´t be looking for. . . NOT us"
"He is so hot right now"
- Zoolander -

miðvikudagur, janúar 14, 2004

Mér finnst alltaf jafn fyndið þegar Birna sendir sms á borð við “Hvað er að læra heima í stærðfræði?” Þessi elska hefur ennþá trú á mér, takk :)

Komin heim aftur eftir stutta dvöl í Köben. Úti var nottla ÆÐI! Vorum á frábæru hóteli í bænum (Vester Farimagsgade).
Áttum nokkur lestarævintýrin . . Strax frá Kastrup vorum við næstum farnar um borð á lest yfir til Svíþjóðar.. hlupum e-rt og það var svo rétt lokað á hælana í réttu lestinni. Soldil snjókoma. .Vaknað snemma, og gert grín að okkur, en við fórum í dýragarðinn – sáum ALLT! Tígrisdýr, nashyrning, ljón, brún björn, fíla, apa.. og ÍSBIRNI! Og margt fleira. Gaman þótti okkur í “frumskóginum” þar sem við héldum að RISA leðurblaka var að ráðast á okkur.. en reyndist vera fiðrildi. Allavega. Farið niður í bæ, á Ströget, Kongens nytorv o.fl. Við urðum báðar skotnar í næturverðinum á hótelinu – hann bent okkur á ítalskan veitingastað – óþægilega starað á okkur, sífellt blikk, og var okkur vísað til borðs beint f.framan eldhúsið, þetta var orðið frekar óþægilegt.. en mjög góður matur. Smá barhopp.. kíktum á Moose (svona Kaffibarsstemning) sem Olla lofsyngur. Á sunnud. var farið til Svíþjóðar. . Ég kenndi Brynju að segja “Jag hatar tåg”. . en fyrst í Malmö vorum við í ruglinu.. lestin ætlaði að snúa við og náðum við að hoppa út í e-ri eyðimörk (Malmö Syd) SKÍTKALT! Náðum lest.. skiptum um vagn.. og vesen.. loks komumst við til Lundar. Löbbuðum um.. dómkirkjan, Stortorget, FOLK Å ROCK, Ebbas skafferi o.fl. Lentum á æðislegum leigubílstjóra sem vissi ekkert hvað hann var að gera.. var að keyra í annað sinn, vitlaus átt o.fl. en gott spjall. Kíktum á gamla heimabæ minn, Åttevägen 5.. allt saman. Fórum í mat til Sigrúnar og Sæma (vinafólk). Aftur í Lundi var rok og RIGNINGARRASSGAT. Við hefðum allt eins getað stokkið í sundlaug.. og týndar í Lundi.. spurðum grilljón af fólki til vegar, og fundum loks æskuvinkonu mína, Ulriku - mikið rifjað upp.. og fékk ég slúðrið af öllum gömlu vinunum.. hver væri í rugli og hver ekki.
Aftur labbað um í Köben og skoðuðum margt. Fengum svo stærsta bjór sem ég hef séð á flugvellinum. Skuggalega full flugum við heim.
Set inn myndir bráðum.

Ítalía eftir svona 2 vikur. . Ég held að ég geti kysst skólamætingu bless!

Annað fátt að frétta. . veit ekkert hvað er að gerast í Nágrönnum, mikið að læra, og mikil vinna framundan.
Saumó í kvöld hjá Sollu; alltaf gaman.


Á morgun hittist svo “Sundklúbburinn” (ég get reyndar aldrei mætt í sjálft sundið, snemma morguns og í vestri) hjá Bjössa í videokvöld/fordrykki fyrir bjórkvöld. Kjarri bætti svo við þeirri hugmynd að við myndum snæða kvöldmat saman (karlmenn sundklúbbs ætla kannski að elda), það verður gaman að sjá, hlakka til.

Kannski skíði með y-stelpum á sunnudaginn???

Farin í saumó. .

þriðjudagur, janúar 13, 2004

Þegar það er e-ð of mikið að gera þá fresta ég öllu fram á nótt eða morgun. . þá er meirihlutinn af Íslandi sofandi.
Höfum það þannig.
Þetta verður lööööng nótt.

fimmtudagur, janúar 08, 2004



21 klst. í DANMÖRK!

Hvaða drasl. . ?
Af einhverjum ókunnugum ástæðum HENTUST allir út af msn-ni hjá mér. .e-r 30 nöfn. .ég man svona helminginn.. mjög óþægilegt.
Það er lika búið að taka LANGAN tíma að skrifa umsóknir o.fl. á sænsku út um allan bæ.. að nú er komið kvöld.

Er að fara á Kaffi Vín (who would have guessed?) núna með litlu bifrastarbangsunum. . sem minnir mig á að í leikfimi í dag áttum við að ganga "bangsagang" um íþróttahöllina... don´t ask!

Ég er búin að skoða kort af Köben í bak og fyrir . . "so, I am in my map"

Ég segi bless þangað til á þriðjud. djö.. missi af tveimur tvítugsafmælum. .
Magga á afmæli á sunnudaginn! Til hamingju og "Djammaðu geðveikt!"
Eins með Ásu í bekknum- Til hamingju! og reyndu að hafa hemil á bekkinn;)

Bless! Verð ekki með síma.

miðvikudagur, janúar 07, 2004

Skólinn er ga-ga. Byrjuðum á tveggja tíma gati. . í þriðja tíma var líka gat (Gylfi veikur).. ok íslenska (alltaf rugl).. ahh.. frímó. hey, gat eftir frímó (Helgi er..hvar er hann?).. Hvað segiru? 6 tími! LÍKA GAT!.. förum í jarðfræði, flestir orðnir ískyggilega þreyttir eftir alla tímana og Fawlty Towers/Punk´d - gláp... ég held að ég hafi sofnað í tímanum.. það er hægt að sofa með augun opin. 7 tími.. gat.. (Egill veikur).. flestir sofandi eða horfandi á að mér skilst mexíkó-klámmynd. Svo var kvikm.gerð, stutt spjall, fara fyrr.
Það stefnir í enn verri dag á morgun, ef gylfi og egill eru ennþá veikir... þá fer ég bara í leikfimi og íslensku (ætti að vera til 16.00 í skólanum)

BAnana!!

mánudagur, janúar 05, 2004

Gleðilegt ár.

Vakna snemma og hugleiða... Hmm.... Núna er janúar og þvílík hálka. – allir geta dottið og það þýðir ekkert að hlaupa yfir. Þetta ár verður öðruvísi – svona og svona byrjun, en þetta er allt á uppleið. I can feel it. Ég verð að segja að ég er hamingjusöm. Mig grunar að ma&pa halda að ég sé geðveik.

Áramótin voru all ágæt en soldið veik. Sólarhringurinn er kominn út úr kortinu. Spila og sjúskast með Ollu og Brynju, Kaffibrennslan og í gær 28 days later (heil mynd af ógeði) með Sögu og Söndru. – get ekki sofið.

Skóli byrjaði í dag; gaman að sjá alla krakkana aftur. Ýmislegt kom upp á yfirborðið í sambandi við jólaballspartý – málning, tannbursti o.fl. sem er verra en að vera stutt saga. Einhverjir aðiljar voru að ”ræða” við Kristínu íslenskukennara á balli í fyrra, hún hefur engu gleymt.. aðiljar hafa öllu gleymt.

Framundan er margt skemmtilegt. . .
Á morgun; út að borða og bíó með hl. 6-Y (10 manns), LOTR (aftur) – bara gaman.
Við Birna ætlum líka við tækifæri að kíkja á leikritið "Meistarinn og margaríta" í Hafnarfjarðarleikhúsi... M.a. stórleikarar á borð við Dröfn. - Erum að fara að lesa verkið í bókmenntum.... þetta gæti verið hörkustuð.
- þarf líka að muna að láta Renato baby þýða meðmæli.

Nýársferðin á Bifröst.. húkka far – sem sagt slæm hugmynd. Förum á fimmtud.

DANMÖRK BABY! . . já, það mun vera við Brynja leggjum í hann á föstud. Ég fæ fiðring að hugsa til þess að fara. Er búin að kynna mér aðeins Köben.. Carlsberg bruggið, Rådhusplatsen. . Ef e-r er með tillögur að e-ju ”möst sí” þá endilega. Hugsa um að fjárfesta í digital myndavél í fríhöfninni... – kannski verðum við með upptökuvél.